Morgunblaðið - 04.12.1976, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 4. DESEMBER 1976
Lágmarkslaun fyrir dag-
vinnu verði 100 þús. kr.
— fullar vísitölubætur
t kjaramálaályktun Alþýðusambandsþings eru f níu
liðum sett fram þau atriði, sem þingið telur að kjara-
baráttan muni beinast að á næsta ári. Þá ákvað þingið að
boða til sérstakrar kjaramálaráðstefnu í febrúarmánuði
á næsta ári. Verði hún það fjölmenn að tryggt verði að
þar komi til álita þær skoðanir og tillögur, sem þá hafa
verið til umræðu f aðildarsamtökunum. Þá var mið-
stjórn ASt falið að kanna möguleika á samstarfi við
launþegasamtök utan ASt og eru BSRB og Farmanna- og
fiskimannasamband tslands sérstaklega nefnd f þessu
sambandi.
Eftirfarandi niu liðir munu
einkenna kjarabaráttuna á næsta
ári samkvæmt ályktun ASÍ-
þingsins:
„1. Þingið telur að lágmarkslaun
fyrir dagvinnu megi ekki vera
lægri en kr. 100.000,— á
mánuði og önnur laun hækki til
samræmis við það, þannig að
launabil haldist f krónutölu.
2. Launin breytist f samræmi við
breytingar þær, sem verða á
vfsitölu framfærslukostnaðar á
samningstfmanum, án
frádráttar nokkurra liða
þeirrar vfsitölu.
3. Fullar vfsitölubætur komi á
lágmarkslaunin, en sama
krónutöluupphæð á þau laun,
sem hærri eru.
4. Aðgerðum til að skapa raun-
verulegt launajafnrétti kvenna
og karla, m.a. með þvf að bæta
aðstöðu til atvinnuþátttöku.
5. Sem mestri samræmingu á
kjörum allra launþega varð-
andi orlof, vinnutfma og hvers
konar réttindi, sem ekki teljast
til beins kaupgjalds.
6. Setningu nýrrar löggjafar um
vinnuvernd f samræmi við sér-
stakar tillögur þingsins um það
efni.
7. Gagngerri endurskoðun skatta-
kerfisins f réttlætisátt.
8. Eflingu félagslegra fbóða-
bygginga með lánskjörum, sem
samrýmast fjárhagsgetu
almenns verkafólks.
9. Fullri framkvæmd á þeirri
stefnu verkalýðshreyf ingar-
innar, sem mótuð var við gerð
sfðustu kjarasamninga f
málefnum Iffeyrisþega."
1 ályktuninni um kjaramál
segir svo m.a.
„Það er álit þingsins, að þegar í
næstu kjarasamningum sé
óhjákvæmilegt að hækka verka-
laun mjög mikið og þó alveg sér-
staklega öll láglaun, sem nú eru
langt frá því að geta talizt mann-
sæmandi.
Þingið lítur svo á, að fullar
efnahagslegar forsendur séu nú
fyrir hendi, ef rétt er á málum
haldið, til þess að stórbæta al-
menn launakjör, án þess að stefnt
sé í nokkurt óefni efnahag þjóðar-
innar."
176 fulltrúar af
392 vildu afsögn
r í kiss t j órn ar inn ar
Á hinum langa fundi ASl-
þingsins f fyrrinótt voru margar
tillögur bornar undir atkvæði, en
ekki urðu miklar umræður um
sumar þeirra. Voru þingfulltrúar
enda orðnir þreyttir og höfðu
Iftinn áhuga á að taka þátt f
ófrjóum umræðum, sem „órólega
deildin“ innan Alþýðubandalags-
ins hafði efnt til.
Með stuttu millibíli voru sam-
þykktar tillögur um að ríkis-
stjórnin ætti að segja af sér og
efnt skyldi til kosninga og
skömmu siðar mótmæli við aðild
Islands að Nato og dvöl varnar-
liðsins. I fyrri atkvæðagreiðsl-
unni var kosið með handaupp-
réttingum og tóku aðeins 273 af
392 þingfulltrúum þátt i því kjöri.
176 greiddu atkvæði með tillögu
um afsögn rikisstjórnarinnar, 97
á móti henni. Atkvæðagreiðsla
um Nato og varnarliðið var hins
vegar skrifleg og þar féllu
atkvæði þannig að 202 voru á móti
varnarliði á Islandi og Nato aðild,
en 157 með .
Umræður um kjaramálin
drukknuðu nokkuð í þrefinu um
þessi mál og einnig féllu ýmsar
aðrar tillögur nokkuð í skuggann.
Af öðrum umræðum, sem sam-
þykktar voru á „maraþonfundin-
um“ í fyrrinótt, má nefna m.a.:
Fagnað var framkominni þings-
ályktunartillögu um skipan
nefndar til að kanna eðli og út-
breiðslu atvinnusjúkdóma, sem
nú liggur fyrir alþingi. Flutnings-
maður tillögu um þetta efni var
Torfi Sigtryggsson.
Alþýðusambandsþingið lýsti
yfir samstöðu og stuðningi við
baráttu starfsstúlkna í mjólkur-
búðum gegn þeirri ákvörðun
Mjólkursamsölunnar að loka öll-
um mjólkurbúðum sínum fyrir-
varalitið á örstuttum tima.
Flutningsmaður tillögunnar var
Lilja Kristjánsdóttir.
Þingið lýsti yfir fullum
stuðningi við alla þá aðila, sem
berjast gegn því böli, sem
ofnotkun áfengis og neyzla eitur-
lyfja hefur i för með sér.
Flutningsmaður Jóhann Möller
o.fl.
Samþykkt var að beina því til
stjórnvalda og viðkomandi flug-
félaga að viðhald og viðgerðir
íslenzkra flugvéla verði fram-
kvæmdar hér á landi eins og
framast er unnt. Flutningsmenn
Valdimar Sæmundsson og Ragnar
Karlsson.
Þingið telur brýna nauðsyn
bera til að hafnarsvæðum á Stór-
Reykjavíkursvæðinu verði lokað
hið fyrsta, þannig að óæskileg
umferð um hafnarsvæðin hverfi.
Meðal þeirra, sem tóku til máls
um þetta mál, var sú aldna verka-
lýðskempa Guðmundur
Guðmundsson, sem var aldursfor-
seti þingsins.
Trotskyist-
ar á sveif
með atvinnu-
rekendum
TIL umfjöllunar á ASÍ-
þinginu var laga-
breytingartillaga þar sem
sagði, að hlutfallskosning
yrði tekin upp í verkalýðs-
félögunum. Er þessi tillaga
hafði borizt þingforseta,
Eðvarð Sigurðssyni, tók
hann sjálfur til máls og var
greinilega mikið niðri fyrir.
Sagði Eðvarð að fyrir
mörgum árum hefði það
verið mikil barátta verka-
lýðshreyfingarinnar að fá
kosningafyrirkomulagi
breytt og hætta við hlut-
fallskosningar og hefði sú
barátta verið gegn at-
vinnurekendum. Nú kæmu
„Trotskyistar" í verkalýðs-
hreyfingunni með tillögu
um að taka þetta fyrir-
komulag upp aftur. —
Hringurinn hefur lokazt,
sagði Eðvarð og mælti
harðlega gegn fram-
kominni tillögu og voru til-
mæli þingforseta tekin til
greina.
(ljósm. Ól. K. Mag ).
Það var margur maðurinn orðinn lúinn og svefnþurfi á ASl-þinginu
i fyrrinótt, enda hafði þingfundur staðið lengi.
Tveir baráttumenn verkaiýðshreyfingarinnar, Hannibal Valdimars-
son og Jón Sigurðsson.
Fjármagna lífeyris-
sjóðirnir byggingu
dagvistunarheimila?
TILLÖGUR um að llfeyrisjóðir
verkalýðshreyfingarinnar fjár-
magni beint byggingu dvalar-
heimila fyrir aldrað fólk og láni
fjármagn, sem á skortir til að
fullnægja brýnni þörf fyrir dag-
vistunarheimili. Flutingsmenn
þessara tiilagna eru þau
Guðmundur H. Garðarsson, Aðal-
heiður Bjarnfreðsdóttir og
Johanna Sigurðardóttir. Fara til-
iögurnar hér á eftir:
Dagvistunarheimili
33. þing ASl haldið 29. nóv. —
3. des. ’76 leggur áherslu á, að af
hálfu hins opinbera verði jafnan
veitt nægilegt fjármagn til dag-
vistunarheimila.
Atelur þingið tómlæti þessara
aðila gagnvart þessum málum.
Með tilliti til þess, virðast vera
Björn Jónsson að loknu Alþýðusambandsþingi:
„Afkastamesta þing
sem ég man eftir”
Það Alþýðusambandsþing, sem
nú er lokið, var afkastamesa ASÍ-
þing, sem ég man eftir, sagði
Björn Jónsson forseti ASl að
þingi sambandsins loknu I gær.
— Við höfum afgreitt mörg mikil-
væg mál og magnið hefur aldrei
verið meira og ég hef þá trú, að
gæði þeirra séu I sama hlutfalli.
Afgreiðsla stefnuskrárinnar var
sögulegt augnablik i sögu ASl og
kjaramálaályktunin er skorin-
orðari og veigameiri en áður
hefur verið. Þessi tvö mál tel ég
þau merkustu hér á þinginu, en
marga aðra málaflokka mætti
nefna, sem dæmi um það hve vel
og ósleitilega hefur verið unnið,
sagði Björn.
Aðspurður um það hvort pólitík
hefði sett meiri svip á þetta þing
en önnur þing Alþýðusambands-
ins, sagði Björn, að það væri ljóst
stjórnina og þ.ví voru umræður
um stjórnvöld í harðara lagi og
harðari en oft áður. Það ríkti ein-
hugur um að þeir sem lægst hafa
launin skuli bera mest úr býtum
við næstu kjarasamninga, sagði
Björn. — Á þinginu var lagður
grundvöllur að því að bæta lág-
launakjörin, en það verður verk-
efni verkalýðsfélaganna og kjara-
málaráðstefnu, sem haldin verður
ekki seinna en í febrúar, að móta
kröfurnar endanlega.
1 ræðu sinni við þingslit sagði
Björn, að í upphafi þessa 60 ára
afmælisþings hefði hann talað um
að nú skyldi varnarbaráttu lokið
og sóknarbaráttan hafin. Fólk
yrði þó að gera sér grein fyrir að í
sókninni væri á brattann að
sækja, með vindinn í fangið og
að ólga væri meðal launafólks. — árangur næðist ekki nema með
Verkafólk er óánægt með ríkis- samstöðu allra launþega.
litlar horfur á, að á næstunni
verði leyst úr þvi alvarlega
ástandi er nú ríkir í dagvistunar-
málum. Þess vegna beinir þingið
því til stjórna llfeyrissjóðanna að
þær athugi, hvort ekki komi til
greina, að sjóðirnir láni það fjár-
magn er á skortir til að fullnægja
brýnni þörf fyrir dagvistunar-
heimili.
Lán til nauðsynlegra fram-
kvæmda verði veitt á sömu kjör-
um og sjóðirnir njóta við kaup á
vísitölubréfum Byggingasjóðs.
Dvalarheimili aldraðra
33. þing ASl haldið 29. nóvem-
ber — 3. desember 1976 hvetur
stjórnir lífeyrissjóða verkalýðs-
hreyfingarinnar til að kanna
hvort ekki sé grundvöllur fyrir
því að sjóðirnir fjármagni beint á
grundvelli bestu útlána-
kjarabyggingu dvalarheimila
fyrir aldrað fólk.
Með þvi yrði brotið blað I þróun
þessara mála og hinum öldruðu
tryggt betur en nú er húsnæði er
hentar betur breyttum aðstæðum.
Frá
ASÍ-
þingi