Morgunblaðið - 04.12.1976, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 4. DESEMBER 1976
23
Deilt á forseta þingsins:
Tvö ár í fulla flutn-
ingsgetu byggðalínu
Stjórnarflokkar og Alþýðubandalag í fóstbræðralagi
þagnarinnar um Kröflu — segja Alþýðuflokksmenn
FUNDUR var i sameinuðu þingi
í gær, föstudag, sem fátítt er á
þeim degi, og 18 mál á dag-
skrá. Ekkert þeirra var þó fyrir
tekið, heldur fram haldið um-
ræðum um Kröfluvirkjun (utan
dagskrár). Umræður urðu all-
heitar og verða hér á eftir laus-
lega raktar, efnislega.
Ófyrirséðar afleiðingar
I fyrri hluta umræðna um Kröflu,
utan dagskrár. 30. nóvember sl., vitn-
aði framsögumaður, Eyjólfur Sigurðs-
son (A). til Axels Björnssonar, jarð-
eðlisfræðings. eða viðtals við hann í
dagblaðinu Vísi. Þar eð frásögn af
þessari tilvitnun á þingsíðu Mbl. dag-
inn eftir hefur valdið misskilningi, þyk-
ir rétt að birta ummæli Eyjólfs orðrétt:
„Ástand á Kröflusvæðinu hefur oft á
undanförnum mánuðum verið talið
ískyggilegt og virðist nú vera enn
alvarlegra en áður, ekki sizt jarðfræði-
lega. — Axel Bjornsson. eðlisfræðing-
ur, en hann stjórnar jarðskjálftarann-
sóknum við Kröflu. segir í viðtali við
eitt af dagblöðum borgarinnar i gær
með leyfi forseta: „Ef land heldur
áfram að risa við Kröflu má búast við
skjáltavirkni nálægt áramótum, skv
fyrri reynslu. Skjálfti þarf þó ekki að
boða eldgos, þótt hætta á því aukist.
en i raun og veru geta skjálftarnir haft
ófyrirsjáanlegar afleiðingar á jarðhita-
svæðinu við Kröflu." (tilvitnun lýkur).
Síðan sagði Eyjólfur: „Ég bendi á, að
hér er um að ræða eðlisfræðing. sem
stjórnar jarðskjálftarannsóknum við
Kröflu."
Fundið að viS Alþingisforseta
Bragi Sigurjónsson (A) hóf umræð-
urnar í gær (föstudag). Hann vakti
athygli á þvi, að Alþýðuflokkurinn
hefði fengið leyfi þingforseta og við-
komandi ráðherra til að hefja umræður
um Kröflu. Frummælandi (Eyjólfur Sig-
urðsson) hefði búið sig vel undir mál-
flutning sinn, til að allar staðreyndir
málsins mættu kom þar fram. En þegar
til kom hafi þingforseti skammtað hon-
um einar fimm mínútur til að koma
máli sinu á framfæri sem hvergi nærri
hafi nægt til. Siðan hafi ráðherra feng-
ið 10 mínútur til andsvara. Þá hafi
komið 20 mínútna kaffihlé Síðan hafi
annað mál verið tekið fyrir utan dag-
skrár. Þar hafi framsögumaður notið
42 minútna f málflutning, án þess að í
bjöllu forseta heyrðist. (Lúðvík Jóseps-
son um könnunarviðræður við EBE).
Gaf Bragi í skyn að hér hefði aðrir leitt
forseta úrskeiðis en hann væri annars
vandur að virðingu sinni. Staðreyndin
væri sú að stjórnarflokkarnir og Al-
þýðubandalagið vildu ekki umræður
um Kröflumál
Siðan vék Bragi að Kröflumálum.
Sagði hann að þegar hefðu verið bor-
aðar 1 1 holur, fyrir hvorki meira né
minna en 1300 m. kr., eða rúnlega
100 milljónir króna á holu að meðal-
tali. Ekki væri þó tiltæk gufa nema sem
varaði 8 til 10 MW virkjunar (í stað 70
MW-virkjunar). Með sömu gufugjöf á
holu þyrfti 55 til 60 holur í viðbót til
að ná settu framleiðslumarki, sem
kosta myndu 6 milljarði, ef fyrri kostn-
aður væri hafður til hliðsjónar Bragi
sagði Alþýðuflokkinn hafa lagt til þegar
fyrir nokkru að beðið yrði með fram-
kvæmdir við Kröflu unz jörð kyrrðist. Á
hann hefði ekki verið hlustað, heldur
anað áfram. Þjóðin ætti heimtingu á
þvi að fá að vita, hvað væri að gerast i
sandkassanum við Hlíðardal Að lokum
sagði Bragi að nú væri svo komið að
enginn vildi Kröflu-Lilju kveðið hafa
Landhelgismálið hefur for-
gang.
Ásgeir Bjarnason, forseti samein-
aðs þings, mótmælti ásökunum Braga.
Sagði hann forseta hafa vald til að
leyfa eða hafna hvort mál væru tekin
fyrir „utan dagskrár' Ennfremur, hve
lengi talað væri, ef slík umræða væri
leyfð Það væri þingvenja að leyfa 5
mínútur í fyrirspurnir og 1 0 mínútur í
svar ráðherra. Þessum fyrirmælum sín-
um hefði verið hlítt. Á engan var því
hallað í þessu máli. Ef menn blaða í
þingtíðindum sjá þeir dæmi þessa Á
það skal og bent að umræðu var ekki
lokið, og er fram haldið nú og þing-
menn geta komið þvi á framfæri. sem
þeir vilja. Krafla hefur og verið títt á
dagskrá hér, bæði í vetur og fyrravet-
ur, og sizt fengið minni tima en önnur
mál hér í þinginu. Þá er enn að geta,
að fyrir liggur fyrirspurn frá háttvirtum
þingmanni (Br. Sig) til iðnaðarráð-
herra. i mörgum liðum, um Kröflumál,
svo enn á málið eftir að fá umræðu. —
Hins vegar hafi ég sem forseti metið
landhelgismálið á annan veg. Ég hefi
ekki takmarkað umræður um utanríkis-
mál eða landhelgismál utan dagskrár.
sagði forseti að lokum.
Fóstbræðralag þagnarinnar
Sighvatur Björgvinsson (A) sagði
Lúðvík Jósepsson hafa fengið tilmæli
um að tala ekki lengra mál en 5
minútur. Hann hefði hins vegar ekki
virt þau tilmæli Þingmenn Alþýðu-
flokksins hefðu alltaf virt tilmæli for-
seta um lengd ræðuflutnings. Þing-
flokkur Alþýðuflokksins allur setti fram
óskir um, að Kröflumál yrðu rædd
Umfang þess máls væri einnig stórt.
Áætlaður kostnaður virkjunarinnar
væri um 10 milljarðir króna, eða sem
svaraði 200 þús. króna skuldabagga í
erlendum gjaldeyri á hverja meðalfjöl-
skyldu í landinu Hins vegar hefðu þrír
þingflokkar, stjórnarflokkarnir og Al-
þýðubandalagið. svarizt í fóstbræðra-
lag þagnarinnar um Kröflumál. en for-
maður Alþýðubandalagsins væri einn
Kröflustjórnenda.
Sighvatur sagði 4 höfuð á þessu
máli: ráðuneytið, Kröflunefnd. Rarik,
Orkustofnun, auk hugsanlegs rekstrar-
aðila, en samvinnan væri ekki meiri en
svo. að ekkert þeirra virtist af hinu vita
Þá sagði Sighvatur að líkur bentu til að
raforka frá Kröflu yrði margfalt dýrari
en innflutt olía frá Arabalöndum
Þriðji þingmaður Alþýðuflokksins.
Eyjólfur Sigurðsson, tók einnig til
máls, en ræða hans verður ekki rakin
hér, enda efnislega svipuð hinum fyrri.
Hvað vill Alþýðuflokkurinn?
Gunnar Thoroddsen, iðnaðarráð-
herra, mótmælti ásökunum í garð
forseta. Hvorki hann né ríkisstjórnin
hefðu borið fram nokkrar óskir um að
takmarka ræðutimann
Alþingi samþykkti lög um Kröflu-
virkjun vorið 1974, sagði ráðherra.
Þáverandi iðnaðarráðherra ákvað að
nýta heimildarlögin um þessa virkjun
og skipaði Kröflunefnd, sem enn er
óbreytt að skipan, utan það, að nýr
formaður er fyrir nefndinni. Kröflu-
nefnd sér um byggingu stöðvarhúss.
kaup á vélum og búnaði Rafmagns-
veitur ríkisins sjá um háskpennulinu-
lögn frá Kröflu til Akureyrar. Orku-
stofnun annast undirbúningsrannsókn-
ir, gufuöflun. þar með taldar boranir
MÞinGI
og gufuveitu. Álits Orkustofnunar er
leitað reglubundið á þeim verkþáttum,
sem undir hana heyra. Þessir aðilar
skipa síðan allir fulltrúa i samstarfs-
nefnd. sem í eiga sæti ráðuneytisstjóri,
formaður Kröflunefndar, orkumála
stjóri og forstjóri RARIK, svo rangt
er að halda þvi fram, að á milli þeirra
sé ekkert samband
Ráðherra sagði verðútreikning Sig-
hvatar út i hött Hann væri miðaður við
það að greiða virkjunina niður á 7
árum og að rafmagnssala stæði i stað á
Norðurlandi. Jafnvel þó slikar forsend-
ur væru lagðar til grundvallar væri
dæmið rangt reiknað. Hvað er það sem
Alþýðuflokkurinn stefnir að, spurði
ráðherra. i orkumálum Norðlendinga
Talsmenn hans nefna Laxárvirkjun.
eins og gleymt sé samkomulag stjórn-
valda og landeigenda nyrðra í því efni
frá 1973. Þeir tali einnig um byggða-
linu, þó Ijóst sé. að hún getur ekki flutt
umtalsvert rafmagn norður fyrr en í
fyrsta lagi eftir tvö ár (þegar ný há-
spennulína er komin frá Geithálsi i
Borgarfjörð) Þangað til flytur hún að-
eins um 4 MW sem segir litið í orku-
skortinn nyrðra.
Þá ræddi ráðherra um Blönduvirkjun
og Bessastaðaárvirkjun og taldi óhjá-
kvæmilegt að byggja stórvirkjun utan
hins eldvirka svæðið þó ekki væri
nema af öryggisástæðum
Þá spurði ráðherra, vill Alþýðuflokk-
urinn aðeins virkja á Þjórsársvæði við
rætur Heklu.
Að lokum vitnaði ráðherra til
greinargerðar, sem hann flutti um
Kröflu sl. þriðjudag, og varaði við
ótimabærum fullyrðingum um málið,
bæði óþarfa svartsýni og óþarfa bjart-
sýni. Hann sagði að álit vísinda-
manna. sem tengdir væru þessu máli.
að mál myndu skýrar liggja fyrir upp úr
áramótum (i janúar)
Borgarstjórn — Umræður um fjárhagsáætlun:
Hitaveituframkvæmdir í
nágrannabæjum arðbærar
fyrir Reykjavík á næsta ári
^ _ r
— sagði Birgir Isl. Gunnarsson borgarstjóri
EINS og skýrt hefur veríð frá hér í
blaðinu var frumvarp að fjárhags
áætlun Reykjavlkurborgar lagt
fram á fundi borgarstjómar 2.
desember. Greint hefur verið frá
framsoguræðu borgarstjóra, Birgis
ísleifs Gunnarssonar (S), sem hann
flutti af þvi tilefni. En að loknu máli
hans töluðu fulltrúar annarra flokka.
Hafði Sigurjón tPétursson (Abl)
fyrstur orðið og sagði að þó hann
kenndi ekki meirihluta borgarstjórn-
ar um verðbólguna þá gæti hann
ekki sagt annað en hann (meirihlut-
inn) hefði gert sitt til að viðhalda
verðbólgunni ef marka mætti frum-
varp það er hér lægi fyrir. Sigurjón
sagði að borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins hugsuðu ekki um hag
borgaranna heldur um hag flokks-
ins. Á timum viðreisnarstjórnarinnar
hefði kyrrstaða og aðgerðaleysi
einkennt starfsemi Reykjavikur-
borgar. Nú væri svo komið aftur
eftir athafnatimabil sem liðið væri
hjá Skipulega væri unnið að því að
skerða kjör launþega enda væri það
eitt af yfirlýstum markmiðum núver-
andi ríkisstjórnar að draga úr kaup-
mætti launa frá því sem samið var
um i febrúar 1974 Taldi Sigurjón,
að stefnt væri að geysilegum sam-
drætti í byggingu húsa i Reykjavik
þvi auðsýnt væri, að á næsta ári yrði.
tiltölulega fáum nýjum lóðum út-
hlutað til nýbygginga
Sigurjón Pétursson sagði að auka
mætti skattheimtu hjá fyrirtækjum
þ á m með meiri innheimtu á
aðstöðugjaldi Það gæti kannski létt
skattbyrðar hins almenna borgara
Hann sagði að nú væri verið að cjera
umtalsvert átak í málefnum aldraðra
og kvaðst hann fagna því enda hefði
minnihlutinn lengi barist fyrir þvi
Þá minntist borgarfulltrúi Sigurjón
Pétursson á tillögu sem Albert
Guðmundsson flutti haustið 1973 i
borgarráði um það — að séð yrði
fyrir þvi að launafólk fengi ekki tóm
launaumslög við útborgun $vo sem
komið hefði fyrir. Sagði Sigurjón, að
Albert væri nú á þingi og sæti líka í
borgarstjórn en hann hefði ekki fylgt
tillögunni eftir. Sjálfur kvaðst Sigur-
jón myndu styðja tillöguna. Sigur-
jón Pétursson sagði síðan að tillaga
þessi væri aðeins hluti af því lýð-
skrumi sem borgarfulltrúi Albert
Guðmundsson slægi títt um sig
Hann sagði ennfremur að nú væri
kominn tími til að borgarkerfið yrði
athugað af hlutlausum aðilum. Ýmis
kostnaður hækkaði geigvænlega. og
stjórnvöld sýndu ekkert hik við að
hækka brýnustu nauðsynjar sem
hita og rafmagn. Sagðist Sigurjón
draga í efa að slíkar hækkanir væru
réttlætanlegar. Afborganir af lánum
væru einnig hrikalegar. Albert
Guðmundsson (S) talaði næst og
sagði að tillaga sin hefði verið flutt
hér í borgarstjórn. Hún hefði ekki
verið samþykkt og hefði sjálfur Sig-
urjón Pétursson átt þátt í að fella
hana. Albert sagðist einnig hafa
minnst á þetta atriði við afgreiðslu
fjárlaga siðast en þar sem það fékk
ekki afgreiðslu hefði hann ekki greitt
atkvæði með fjárlagafrumvarpinu i
fyrra. Albert sagðist ekki ætla fara
svara persónulegu ati borgarfulltrúa
Sigurjóns Péturssonar í sinn garð,
menn sæju hvað þar lægi að baki.
Björgvin Guðmundsson (A) sagði
að hinn almenni launamaður væri
að sligast undan skattabyrðum sem
lagðar væru á. Taldi Björgvin að
hækka mætti innheimtu aðstöðu-
gjalda og minnka þar með álag á
almennt launafólk. Gagnrýndi hann
að skólabyggingar væru nokkuð á
eftir áætlun Björgvin Guðmunds-
son fagnaði því að byggingar
fyriraldraða væru nú vel á veg
komnar Taxta Hitaveitu og
Rafmagnsveitu taldi Björgvin að
þyrfti að kanna gaumgæfilega og
ennfremur stöðu þessara stofnana
Nefndi hann framkvæmdir í
nágrannasveitarfélögunum sem
hann taldi gagnrýniverðar
Guðmundur G. Þórarinsson (F)
sagði að fjölmargt benti til þess, að
samskipti ríkis og borgar væri ekki
eins og best væri á kosið Sagði
hann að ekki væri nægjanlegt að hér
væri bara lögð fram fjárhagsáætlun,
hér þyrfti líka að koma til greiðslu-
áætlun. Þá nefndi Guðmundur að
nauðsyn væri á að einnig fylgdi með
áætlun um fjárhag B.Ú.R. Þá taldi
hann að ekki gætti nægilegs sam-
ræmis á áætlun hinna ýmsu borgar-
stofnana og nefndi þar heimtauga-
gjöld sem dæmi. Þau væru færð á
mismunandi stöðum, þ.e.a.s skilin
á mismunandi hátt Adda Bára Sig
fúsdóttir (Abl) tók næst til máls og
minntist á tillögu sem hún hafði flutt
í borgarráði um niðurfellingu sölu-
skatts á rafmagn í því skyni að bæta
hag Rafmagnsveitunnar án hækkun-
ar á orkuverði til neytenda Var i
tillögunni gert ráð fyrir að leitað yrði
til alþingis með þetta mál Þá spurði
Adda Bára hvenær fundur yrði með
borgarfulltrúum og þingmönnum
Reykjavíkur. Borgarstjóri Birgir ís-
leifur Gunnarsson (S) svaraði og
sagði að fyrrnefndur fundur hefði
verið fyrirhugaður 30 nóv En
vegna þess, að 1. þingmaður Reyk-
vikinga þurfti að fara af landi brott
var honum seinkað en allar likur
benda til að umræddur fundur verði
haldinn i næstu viku. Þá sagði Birgir
ísleifur að i þeim umræðum sem hér
hefðu farið fram hefði margt komið í
Ijós og skoðanir verið skiptar. Hann
sagðist þó vilja gera að umtalsefni
reiðilestur borgarfulltrúa Sigurjóns
Péturssonar sem hefði skorið sig
mjög úr Sagðist hann þess full viss
að slík ræða hefði ekki í mörg ár
verið flutt hér i borgarstjórn, eða
a.m.k ekki á þessu ári. Ræða Sigur-
jóns Péturssonar borgarfulltrúa
Alþýðubandalagsins væri auðsjáan-
lega flutt sem áróðursræða til
birtingar i Þjóðviljanum, og i henni
væru ekki allir hlutir byggðir á stað-
reyndum Sagðist Birgir ísleifur sér-
staklega vilja nefna umrædda tillögu
sem borgarfulltrui Albert
Guðmundsson hefði flutt í borgar-
ráði fyrir nokkrum árum. Sagði hann
að tillaga þessi hefði komið aftur til
umræðu i borgarráði og síðan til
afgreiðslu i borgarstjórn Þá hefði
nú brugðið svo við að borgarfulltrúi
Sigurjón Pétursson hefði flutt breyt-
ingatillögu við tillögu Alberts
Guðmundssonar og hefði tillaga
Sigurjóns verið töluvert útþynning á
tillögu Alberts, þannig að málið
hefði komið miklu veikara út. Sem
sagt málið væri að Sigurjón Péturs-
son auglýsti hér eftir tillögu sem
hann hafði þynnt út með eigin til-
lögu fyrir nokkru. Sagðist borgar-
stjóri gefa litið fyrir málflutning Sig-
urjóns ef hann væri byggður upp á
slíkri sannleiksást sem þarna kæmi i
Ijós Varðandi málflutning Björgvins
Guðmundssonar sagði borgarstjóri
það skrýtna hagfærði að skatta ætti
alla að lækka en allar framkvæmdir
ætti að auka Hvar hætti þá að fá
peningana? Sagði borgarstjóri að
borgarstjórn væri gerð óvirðing með
slíkum málflutningi
Varðandi hitaveituframkvæmdir i
nágranna-sveitarfelögunum sem
gagnrýndar hefðu verið vildi hann
segja að þegar á næsta ári myndu
þær verða farnar að borga sig fyrir
Reykjavík Raunar væri farið að örla
á hagkvæmni nú þegar Um það
hvort gagnrýni á rikisstjórn væri
mikil eða litil i einn eða annan tíma
sagði borgarstjóri, að borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins væru kjörnir af
kjósendum til að gæta hagsmuna
þeirra Það skipti því ekki nokkru
máli hvaða ríkisstjórn væri við völd i
landinu. hvort það væru samflokks-
menn eða ekki sem ættu i henni
sæti skipti engu máli Hlutverk
borgarfulltrúa er að sjálfsögðu fyrst
og fremst að gæta hagsmuna Reyk-
vikinga Og munum við borgar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins segja
álit okkar á ríkisstjórn hverra flokka
sem hún er, og vil ég geta þess að
þessi rikisstjórn sem nú situr hefur
verið gagnrýnd eins og aðrar rikis-
stjórnir Björgvin Guðmundsson
sagði að gætt hefði misskilnings hjá
borgarstjóra varðandi hvernig ætti
að lækka skatta Björgvin sagðist
hafa meint að koma ætti við ýmsum
sparnaði Borgarstjóri sagði þetta
einkennilegan málfluting sem þarna
kæmi fram Sigurjón Pétursson
sagði að tillaga sín hefði ekki veikt
tillögu Alberts Guðmundssonar
Borgarstjóri sagði það einkenni-
legan málflutning sem hér hefði
komið fram, eða svo liti út fyrir Um
ræður um frumvarp að fjárhagsáætl-
un Reykjavikurborgar voru nokkuð
langar og voru stórar tölur oft
nefndar i ræðum borgarfulltrúa
Borgarstjóri Birgir ísleifur Gunnars-
son lagði til að frumvarpinu yrði
vísað til annarrar umræðu og var
það samþykkt samhljóða Umræður
stóðu fram undur miðnætti enda
voru málin itarlega rædd Ræða
borgarstjóra tók u þ b eina klst. og
fjörtiu minútur en þar flutti hann
mjög greinagóða lýsingu á frum-
varpinu