Morgunblaðið - 04.12.1976, Síða 40
LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1976
munið trúlofunarhringa
litmvndalistann
(§ull Sc á§>tlfur
Laugavegi 35
Dæmdir í
8 og 10 ára
fangelsi
fyrir morð
LAUST fyrir hádegi f gær var
kveðinn upp f sakadómi Reykja-
vfkur dómur f máli, sem ákæru-
valdið höfðaði gegn Albert
Ragnarssyni Akureyri, og Krist-
mundi Sigurðssyni, Reykjavfk,
fyrir að hafa orðið Guðjóni Atla
Arnasyni að bana f Kópavogi
aðfararnótt 6. júlf s.l.
Hinir ákærðu voru fundnir
sekir um brot þau, sem þeim voru
gefin að sök. Var Albert dæmdur
í 8 ára fangelsi og Kristmundur i
10 ára fangelsi. Refsing Alberts
Framhald á bls. 22
Síðasti
Bretinn
fór kl. 16.31
SfÐASTI brezki togarinn, sem
hér var að veiðum fram til 1.
desember, fór yfir miðlfnuna
milli Færeyja og fslands suðaust-
ur af Hvalbak f gær klukkan
16.31. Var það Ross Canaveral H
267, togarinn, sem fylgdi eftirlits-
skipinu Othello, sem biiaði
aðfararnótt 1. desember. Othello
átti talsvert eftir að miðlfnunni f
gær og bjóst Landheigisgæzlan
ekki við þvf að eftirlitsskipið færí
yfir miðlfnuna fyrr en einhvern
tfma f nótt. Sóttist skipinu seint
ferðin og er augljóst að alvarleg
bilun hefur átt sér stað.
f gær voru að veiðum við landið
15 vestur-þýzkir togarar, allir að
löglegum veiðum. Einnig var
einn belgfskur togari að veiðum
og 3 færeyskir.
Flugvélin TF-FTA eftir brotlendinguna f gær. Eins og sjá má er vélin mjög illa farin og má teljast með ólfkindum, að mennirnir tveir, sem
f vélinni voru, skyldu hafa sloppið lifandi úr slysinu. Ljósm Mbl.: RAX
Tveir menn stórslasast í flugslysi:
„Sá vélina stefna beint
niður 115 metra hæð”
jr
segir Pétur Olafeson, eini sjónarvotturinn
Athygli kaupenda er vakin á
þvf að Lesbók var borin út með
blaðinu f gær, föstudag.
LfTIL tveggja sæta flugvél brot-
lenti á Heiðartjarnarheiði,
skammt fyrir ofan Geitháls, um
kl. 14.30 f gærdag. Tveir menn,
sem voru f vélinni, Viðar
Friðriksson flugkennari og Sig-
urður Ingibjartsson flugnemi,
slösuðust mikið. Eru þeir báðir
mikið beinbrotnir, en voru ekki
taldir f Iffshættu f gærkvöldi en
aðgerð á þeim var þá ekki að fullu
lokið. Vélin, sem er af gerðinni
Cessna 150 Aerobat, er gjörónýt
og þykir mesta mildi, að mennirn-
ir tveir skyldu sleppa lifandi úr
siysinu.
Ekki er vitað með vissu hvernig
slysið átti sér stað, en svo virðist
sem flugmaðurinn hafi ætlað að
nauðlenda vélinni á vegarspotta
skammt norðan við háspennulfn-
una á heiðinni og að sögn eina
sjónarvottsins að siysinu stefndi
vélin beint niður augnabliki áður
en hún skall á jörðinni, og skrúfa
og nef hennar grófust niður f
freðinn jarðveginn.
Björn Jónsson endur-
kjörínn forseti ASÍ
Snorri Jónsson varaforseti, miklar breytingar í midstjóm
BJÖRN JÓNSSON var endurkjör- I
inn sem forseti Alþýðusambands |
tslands án mótframboðs á loka-
degi ASf-þingsins f gær. t kosn-
ingum um sæti varaforseta sigr-
aði Snorri Jónsson Aðalheiði
Bjarnfreðsdóttur með miklum
mun. t kjöri til miðstjórnar urðu
miklar mannabreytingar frá síð-
ustu miðstjórn. Atta þeirra 15,
sem nú voru kjörin f miðstjórn-
ina, áttu þar ekki sæti áður. Tveir
miðstjórnarmannanna náðu ekki
endurkjöri, en sex gáfu ekki kost
á sér, þau Guðmundur H. Garð-
arsson, Jón Sigurðsson, Jóna Guð-
jónsdóttir, Margrét Auðunsdóttir,
Óðinn Rögnvaldsson og Óskar
Hallgrfmsson.
Það ASt-þing, sem lauk f gær,
var mikið átakaþing og var þar
tekizt á um menn og máiefni.
Mörg veigamikil mál voru af-
greidd á þinginu, þar á meðal meðal margra annarra tillagna í
kjaramálaályktun. sem rædd var fyrrinótt, en síðasti fundur þings-
Talningu til miðstjórnar er lokið og Magnús L. Sveinsson skýrir
tölurnar fyrir forseta þingsins, Eðvarð Sigurðssyni. Björn Jónsson
forseti ASI og Snorri Jónsson varaforseti fylgjast með. (Ljósm. MBL.
Ól.K. Mag.).
ins stóð nær samfleytt frá klukk-
an 9 f fyrradag til klukkan 16 í
gær. Stefnuskrá samþykkti þing-
ið, auk ályktana um vinnuvernd,
vinnulöggjöf, skattamál, atvinnu-
mál og margt fleira. A blaðsíðu 18
er greint frá þingstörfum og rætt
er við Björn Jónsson forseta ASt.
Kjörnefnd er venjulegast skip-
uð i upphafi Alþýðusambands-
þinga, en að þessu sinni náðist
ekki samstaða um skipan hennar
fyrr en um kvöldmatarleytið í
fyrrakvöld. Nefndin var síðan að
störfum í alla fyrrinótt og kosn-
ingar hófust ekki fyrr en á tfunda
tímanum í gærmorgun. Þær
höfðu hins vegar verið á dagskrá
klukkan 23 á fimmtudag.
Kjörnefnd náði ekki samkomu-
lagi um tillögur um 13 miðstjórn-
armenn og komu fram tveir listar.
Á lista meirihlutans voru 10 full-
trúar, en minnihlutinn stakk upp
Framhald á bls. 22
að slysinu
Þegar Morgunblaðið hafði sam-
band við Loftferðaeftirlitið í gær-
kvöldi var sagt, að þar sem margt
væri enn mjög óljóst í sambandi
við slysið, væri ekkert hægt að
segja um það.
Klukkan, sem er í mælaborði
flugvélarinnar, stöðvaðist kl.
14.25 og virðist slysið þá hafa átt
sér stað, en fólk kom ekki á stað-
inn fyrr en nokkru siðar. Flugvél-
in fór í venjulegt kennsluflug kl.
14.03 í gær og var á venjulegu
æfingasvæði þegar slysið varð.
Stefndi beint niður
„Ég var að vinna við hænsnabú
mitt við Dalland, þegar ég sá flug-
vélina fyrst,“ sagði Pétur Ölafs-
son, en hann er sá eini sem sá
flugvélina hrapa. „Fyrst í stað
sveimaði vélin hér yfir svæðinu,
eins og kennsluvélar gera oftast,
og fannst mér þá ekkert óeðlilegt
við flug hennar. Vélin kom síðan i
átt frá Hafravatni og stefnu á
háspennulínuna og sá ég ekki bet-
ur en hreyfillinn væri þá í gangi.
Siðan sá ég allt í einu að vélin
stefndi beint niður og þá sýndist
mér skrúfan hætt að snúast og að
mínu mati var vélin þá ekki nema
Framhald á bls. 22