Morgunblaðið - 19.12.1976, Qupperneq 2
_2___________________
Húsnædismálastofnunin
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19.DESEMBER 1976
Hefur í ár veitt 1,5 millj-
arda vegna 2836íbúóa
FOKHELDISVOTTORÐI fyrir
394 Ibúðir var skilað 1 september-
mánuði fram til 1. október si. og
nema frumlán út á þessar fbúðir
samtals 306 milljónum króna,
sem koma til afgreiðslu eftir
miðjan desember. Samtals nema
frumlánin á þessu ári einum
MORÍJUNBLAÐIÐ sneri
sér í gær til Ragnars
Kjartanssonar aðstoöar-
framkvæmdastjóra hjá
Skeljungi hf og spurðist
fyrir um það hvenær búast
mætti við því að nýákveðin
verðhækkun OPEC-
ríkjanna á oliu kæmi fram í
olíuverði hér á íslandi og
hve mikil hækkunin hér
innanlands yrði.
Ragnar sagði að í samningum
við Sovétríkin væri ákveðið
grundvallarverð, sem siðan
hækkaði og lækkaði í samræmi
við skráð olíuverð í Rotterdam og
Curacao í Venezuela. Kvaðst
Ragnar búast við því, að olíu-
milljarði og 76 milljónum króna
vegna 1467 (búða.
Að sögn Sigurðar E. Guðrnunds-
sonar. framkvæmdastjóra
Húsnæðismálastofnunarinnar, er
stofnunin i ár búin að veita
byggingalán út á samtals 2836
íbúðir og er lánsfjárhæðin alls
hækkunin hefði áhrif til hækkun-
ar hér á íslandi fljótlega eftir
áramótin.
Hitt væri erfiðara að segja til
um, hve hækkunin yrði mikil, en
OFEC-verðið væri miðað við
hráoliu til olíuhreinsunarstöðva.
Sú kenning hefði verið sett fram,
að hækkunin hér á Islandi yrði
hclmingi minni en á hráolíunni
frá OPEC-ríkjunum, en ekki væri
gott um þetta að segja, þar sem
mörg atriði kæmu inn í reikning-
inn.
Eins og fram kom í Mbl. í gær,
ákváðu olíumálaráðherrar OPEC-
ríkjanna að 11 af 13 ríkjumum
hkkuðu hráolíuverð um 10% en
tvö þeirra, Saudi-Arabía og
Sameinuðu arabisku furstadæm-
in, um 5%.
einn milljarður og 578 milljónir
króna. Ef hins vegar bæði
byggingalán og lán til kaupa á
eldra íbúðarhúsnæði er tekin
saman, hefur stofnunin á þessu
ári afgreitt lán til útborgunar
samtals að fjárhæð tveir
milljarðar og 912 milljónir króna,
en lánin til kaupa á eldri Ibúðum
eru að fjárhæð 259.075 milljónir
vegna 778 íbúða. Þau lán ná hins
vegar aðeins til íbúða sem sótt var
um lán út á fyrir 1. júlí sl.
Eins og áður segir koma þessar
greiðslur til almennra hús-
byggjenda til afgreiðslu frá og
með 1 desember, en lánin skiptast
í nokkurn veginn þrjá jafna
hluta. Hámarkslánið í ár er 2,3
milljónir króna og er frumlánið
að fjárhæð 800 þúsund krónur,
miðlánið 800 þúsund og lokalánið
er 700 þúsund krónur. Tíminn
sem líður á milli þessara lánveit-
inga er yfirleitt milli 6 og 7
mánuðir.
Sigurður var að því spurður
hvernig tekizt hefði að afla fjár til
þéssara útlána. Hann kvað allt
hafa gengið samkvæmt áætlun
hvað snerti venjulega tekjustofna
Húsnæðismálastjórnar. Hins
vegar kvað hann skuldabréfa-
kaup lffeyrissjóðanna vera dálitið
óljósan þátt og nefndi Sigurður,
að stofnunin hefði f ár getað selt
lffeyrissjóðunum skuldabréf að
fjárhæð milli 840 og 850 milljónir
króna, sem Sigurður kvað raunar
um 200 milljónum minna en
stofnunin hafði gert sér vonir um
en Sigurður sagði að þessi þáttur
væri engu að síður mjög mikil-
vægur.
Olíuhækkun
OPEC kemur fram
hér eftir áramót
HÓTEL LOFTLEIÐIR
BLÓMASALUR, SUNDLAUG OG VEITINGABÚÐIR HÓTELANNA
VERÐA OPIN, SEM HÉR SEGIR UM HÁTÍÐIRNAR:
VEITINGABÚÐ
19:00—22:30
•12:00—14:30
18:00—20:00
1 2:00—14.30
19.00—21 :00
12:00—14:30
1 9.00—22:30
r12:00—14:30
19:00—22:00
Jóladagur
HÓTEL LOFTLEIÐA SUNDLAUG ESJUBERG
05:00—20.00 08:00— 16:00— 1 1:00 19:30 08:00—22:00
05:00—14:00 08:00— 1 1:00 08:00—14:00
09:00—16:00 15:00— 17:00 LOKAÐ
05:00—20:00 08:00— 1 1:00 LOKAÐ
16:00— 19:30
05:00—16:00 08:00— 14:00 08:00—14:00
09:00—16:00 10:00— 14:00 LOKAÐ
1 9:00—22:00
GISTIDEILD HÓTEL ESJU VERÐUR LOKUÐ FRÁ HÁDEGI 24. DESEMBER TIL
08:00 27. DESEMBER, OG FRÁ HÁDEGI 31. DESEMBER TIL 08:00 2.
JANÚAR. GISTIDEILD HÓTEL LOFTLEIÐA OPIN ALLA DAGA.
Hótel Loftleiðir og Hótel Esja óska öllum viðskiptavinum sinum gleðilegra jóla
og farsæls nýárs og þakka ánægjuleg viðskipti.
#HnraL«
.M&fcjí
O
Vinsamlegast geymið auglýsinguna.
Þessa kátu jólasveina hitti ljósmyndarinn á förnum
vegi í Kópavogi. Þeir voru nýkomnir i bæinn og kunnu
sér ekki læti eins og sjá má. Ljósm. RAX.
Sungn um Sigga Jóns,
Sigga Nobb
Neskaupstað 18. desember.
HÉR ER nú komið hið bezta veð-
ur og snjórinn, sem setti niður
fyrr f þessum mánuði, að mestu
horfinn. Fólk vinnur nú af kappi
að jólaundirbúningi og margir
eru þegar búnir að setja upp jóla-
skrautið. Þótt einstaklingar séu
duglegir við að skreyta hús sín og
bærinn hafi sett upp fallegt jóla-
tré við kirkjuna og annað við fé-
Aðventu-
tónleikar á
Akureyri
Akureyri 18. desember.
TÓNLISTARSKÓI.INN á Akur-
eyri og Passíukórinn efna til að-
ventutónleika í Akureyrarkirkju
á morgun, sunnudag, og hefjast
þeir kl. 21. Þar koma fram nem-
endur, kennarar og hljómsveit
Tónlistarskólans, en henni stjórn-
ar Michael Clarke, einnig félagar
úr Lúðrasveit Akureyrar, auk
Passfukórsins.
A efnisskrá eru verk eftir
Vivaldi, Bach, Hándel, Purcel,
Scharlatti og Charpender og
verða þau flutt af hljóðfæraflokk-
um einsöngvurum og einleikur-
um á orgel, flautu, fiðlu, kornett
og píanó. Á síðari hluta efnis-
skrárinnar er Te deum eftir Char-
pender en það flytja Passíukór-
inn, hljómsveit Tónlistarskólans
og einsöngvarar úr liði kennara
og nemenda.
Roar Kvam stjórnar flutningi
þessarar tónlistar og hann hefur
einnig annazt skipulagningu efn-
isskrár og val viðfangsefna. Að-
gangseyri verður varið til hljóð-
færakaupa, en hann verður 100
kr. fyrir börn og 200 kr. fyrir
fullorðna. _ _
Sv.P.
Jólatónleikar
í Hafnarfirði
Tónlistarskólinn í Hafnarfirði
efnir til jtónleika í sal skólans i
dag, sunnudag, kl. 14. Efnisskráin
er mjög fjólbreytt og aðgangur
ókeypis og öllum heimill.
og Steina
lagsheimilið er ekki hægt að
segja það sama um kaupmennina.
Verzlun Höskulds Stefánssonar
var aðeins skreytt f dag og t.d. var
kaupfélagið ekki búið að setja
neitt skraut upp.
Afli togaranna hefur verið frek-
ar tregur að undanförnu, en smá-
bátar hafa fiskað sæmilega á línu
þegar gefið hefur.
Lionsmenn héldu árlega árshá-
tíð sína fyrir skömmu og hafa þeir
stofnað 17 manna kór. Á árshátið-
inni söng kórinn og vakti mikla
hrifningu, en eingöngu voru létt
lög á efnisskrá. Sennilega vakti
lagið um þá Sigga Jóns, Sigga
Nobb og Steina mesta athygli, en
þetta eru allt gamalkunnir Norð-
firðingar.
Fréttaritari.
Síldarleið-
angri lokið
ÁRNI Friðriksson kom í gær-
morgun til Reykjavikur úr
síldarrannsóknaleiðangri. Að
sögn Jakobs Jakobssonar
leiðangursstjóra í þessari ferð,
er Ijóst, að síldaraflinn í haust
var ekki of stórt hlutfall af
stofninum. Myndina hér að
ofan tók Óskar Sæmundsson af
Jakobi Jakobssyni fyrir nokkr-
um dögum, þar sem hann var
að hrista síld úr flottrollinu á
Árna Friðrikssyni. -