Morgunblaðið - 19.12.1976, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19.DESEMBER 1976
17
^LjósmyndiiT
'>igfúsar~'
^EymundssonaT
Dómkirkjan leitar
til Reykvíkinga
EFTIRFARANDI bréf hefur
nú, ásamt gíróseðli, verið sent
út til þeirra, sem búa innan
sóknarmarka Dómkirkjunnar.
Ef einhverjir hafa ekki fengið
bréfið, geta þeir fengið það í
Dómkirkjunni eða hringt
þangað og fengið það sent.
Hér er bréfið birt vegna
hinna mörgu velunnara
kirkjunnar, sem utan sóknar-
markanna búa, en vilja styðja
hinn aldna helgidóm, sem öll-
um Reykvíkingum er kær.
Framlögum er hægt að koma til
okkar dómkirkjuprestanna eða
kirkjuvarðarins, og svo á
gfróreikning kirkjunnar, sem
er nr. 12113.
Forráðamönnum kirkjunnar
er ljóst, að desember er mörg-
um, og ekki síst fjölskyldufólki,
erfiður mánuður fjárhagslega,
en söfnunin stendur fram yfir
áramót, svo þetta ætti ekki að
hindra.
Eins og bréfið ber með sér
hefur útkoma þess dregist
vegna anna þeirra, sem veittu
okkur aðstoð við að undirbúa
söfnunina, en útsendingu var
þó ekki frestað fram yfir ára-
mót, þvi margir munu vilja
gefa eitthvað til kirkjunnar
sinnar um jólin.
Við væntum góðra undir-
tekta, svo hægt verði að gera
þær lagfæringar á Dómkirkj-
unni, sem nauðsynlegar eru, og
hún megi með sóma gegna hlut-
verki sínu sem Dómkirkja
Islendinga.
Hjalti Guðmundsson.
Þórir Stephensen.
Og hér kemur bréfið:
Reykjavík, nóvember 1976.
Heiðraði viðtakandi.
Eins og þér mun kunnugt á
Dómkirkjan 180 ára afmæli um
þessar mundir. Þegar æfmælis-
ins var minnst, var sú ákvörðun
tekin að láta framkvæma mikla
viðgerð á kirkjunni innan-
verðri, mála hana, leggja ný
teppi, lagfæra bekki og margt
fleira, sem nauðsyn er að gera,
svo að þetta forna guðshús
verði svo veglegt sem því ber,
og geti, jafnframt því að vera
sögulegur minnisvarði, einnig
verið kirkja lifandi safnaðar.
Kirkjan hefur búið við þröng-
an efnahag að undanförnu, því
að íbúum prestakallsins, og þar
með gjaldendum, hefur fækkað
um meira en helming s.l. 30 ár.
Það er ekki sfst vegna þess að æ
meira húsnæði innan sóknar-
marka Dómkirkjunnar er nú
tekið undir skrifstofur og aðra
starfsemi ýmissa fyrirtækja.
Þess vegna skrifum við nú bæði
öllum heimilum og fyrirtækj-
um i sókninni með beiðni um
Framhald á bls. 37
i
i
4
t