Morgunblaðið - 19.12.1976, Side 25

Morgunblaðið - 19.12.1976, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19.DESEMBER 1976 25 AUGI.ÝSrNGASÍMÍNN ER: 22480 |H«r0unliI«t>ib Bókamiðstöðin: Fjórar nýjar ævintýrabækur á jólamarkað BÓKAMIÐSTÖÐIN hefur gefið út fjórar bækur í safni ævintýra fyrir yngstu lesendurna. Þau heita Ævintýrið um Sigríði og tunglið, Ævintýrið um Þumaling og sígaunana, Ævintýrið um spiladósina góðu og Ævintýrið um Fútta og Bússu. Bækurnar eru þýddar af Jóhanni J. Kristjáns- syni og myndskreyttar af Herdisi Hilbner. Otgáfa þessa ævintýrasafns hófst árið 1964 og hafa nú komið út alls 25 hefti. Fyrstu átta ævin- týrin þýddi Högni Torfason og voru þau myndskreytt af Baltazar. Næstu 13 ævintýri voru þýdd af Jóhanni J. Kristjánssyni, eins og þau fjögur sem nú eru komin út, og voru þau myndskreytt af Ellen Birgis. Spies greiðir milljarð í skatt Kaupmannahöfn 15. des. Ntb. MEÐ ávísun, sem hljóðar upp á tæpan milljarð, mun danski ferða- málafrömuðurinn og glaumgos- inn Simon Spies gera upp skuldir sinar við dönsk skattayfirvöld að þvi er danska blaðið Politiken segir i dag. Skuldin hefur verið að aukast síðustu fimmtán ár og kröfur skattayfirvalda hljóðuðu I fyrstu upp á fjórum sinnum hærri upphæð. En i gær náðist svo sam- komulag sem felur i sér, að Spaes og fyrirtæki hans greiði um millj- arð og sé þar með kvittur við skattayfirvöld. Samtimis var tek- ið fram að fyrirtækið hefði ekki reynt að svikja undan skatti en vegna mismunandi túlkunarat- riða ýmissa greina skattalaganna slyppi Spies við frekari greiðslur svo og þyrfti hann ekki að greiðá skaðabætur. vervgmi sinu, og geturfært eigamtanum veglegan mppdnettisvinning að upphæð 20 milljónir Happdrættisskuldabréfin em til sölu nú. Þau fást í öllim m og spansjóðum og kosta 2000 krónur. 1) SEÐLABANKI ÍSLANDS Tvær sauðfjár- sæðingarstöðvar starfræktar Á SÍÐAST liðnu ári voru sæddar I hér á landi nær 18 þúsund ær en gert er ráð fyrir að talan verði nokkuð lægri I ár. Sæðingar- stöðvar eru nú starfræktar á tveimur stöðum, Hesti i Borgar- firði og Laugardælum. t ár er ekki starfrækt sæðingarstöð I Eyjafirði, eins og undanfarin ár en frá Laugardælum eru ær sæddar vfða um Suðurland, auk þess hefur sæði verið sent þaðan til Norðurlands. Sæðisskammtur- inn er seldur á 130 krónur en bændur verða auk þess að greiða kaup sæðingarmannsins og ferða- kostnað hans. Fyrstu ærnar voru tæknifrjóvg- aðar hér á landi á Hvanneyri árið 1913 og gerði það Halldór Vil- hjálmsson, skólastjóri á Hvann- eyri. Notaði hann venjulega bólu- setningasprautu og gafst ágæt- lega. Arið 1945 var í fyrsta og eina skiptið flutt inn sæði frá Skot- landi, sæddar væru 640 ær og af þeim héldu 94. Sauðfjársæðingar hafa að því er segir i siðasta fréttabréfi Upplýsingaþjónustu landbúnaðarins verið og eru stór þáttur I þeim kynbótaframförum, sem orðið hafa I sauðfjárræktinni en lögð hefur verið áherzla á að vélja vel byggða hrúta og einnig hefur frjósemin ráðið miklu um val kynbótahrútanna. Ný rakara- stofa Á ÞESSÁRI mynd má sjá Lárus Gunnlaugsson hárskera á Dalvfk en hann opnaði nýlega rakarstofu að Goða- braut 11 þar f bæ. Mun þetta vera fyrsta rakarastofan sem Starfrækt er á Dalvfk. Lárus veitir almenna hárskera- þjónustu, og auk þess mun vera hægt að panta tfma hjá honum, og á móti þeim pöntunum er tekið f sfma 6- 14-66. (Ljósm. Jón Baldvins- son)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.