Morgunblaðið - 19.12.1976, Side 28

Morgunblaðið - 19.12.1976, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19.DESEMBER 1976 Jólagiafir íþróttafólte l,r}S in Tíoubled Wat'ers í ■ rf 1 J norwegIan Æfo m J ATLANTIC O CEAN □ Tarritoriol woters cloimed by Europeon Communit^ □ Territorial waters claimed ^ by other countries os of V, Jan. I. 1977* •U.S. claim goes into effect March 1, 1977 \ 'k w*°'Xw (þróttatöskur— íþróttatöskur yfir 20 mismunandi gerðir. Merktar töskur m.a. Arsenal. Liverpool, Tottenham, Celtic, Stoke, | M. City, Derby. Leeds, Q.P.R. o.fl. Verð frá kr. 1415.- ______ KLAPPARSTIG 44 SIMI 1 1 783. Kort sem Time birtir til að skýra útfærslu fiskveiðilögsögu Efnahagsbandalagsins f 200 mflur. Horfur á lausn á fiskideilu EBE I n-qólf/ ©/lk«9iiw/@i»n®T LOUHOLUM 2 — 6 SÍMI75020 Utanrfkisraðherrar Efnahags- bandalagsins halda sérstakan fund f Briissel á mánudag til að reyna að leysa ágreininginn um fiskveiðistefnu bandalagsins þar sem samkomulag tókst ekki á fundi ráðherranna sfðastliðinn mánudag. Anthony Crosland, utanrfkis- Spencer ^Fataverzlun fjölskyldunnar ráðherra Breta, hefur varað við þvá að Bretar kunni að grfpa til einhliða ráðstafana ef samkomu- lag tekst ekki fyrir áramót. EBE vi 11 kvótakerfi innan hinnar nýju 200 mflna lögsögu en Bretar og trar vilja allt að 50 mflna einka- lögsögu. The Times segir að þótt ekkert hafi þokast i samkomulagsátt á síðasta fundi utanríkisráðherr- anna séu menn bjartsýnni en áður á að takast megi að varðveita einingu eftir úrfærsluna 1. janúar, meðal annars vegna þess að ákveðið hefur verið að stór- minnka afla Rússa á miðum EBE- landanna þannig að auka megi kvóta Breta og Ira. Fundur utnarfkisráðherranna er líklega siðasta tækifærið til að leysa máli fyrir áramót og ef eng- in bráðabirgðalausn finnst ætla Bretar og trar að grípa til ein- hliða friðunarráðstafana á miðum sínum sem er áttatfu af hundraði af heildarlögsögu EBE. The Times segir að afmörkuð verði viss friðunarsvæði og aðgangur að þeim stranglega takmarkaður eftir stærð báta og neta og veiði- aðferðum. Veiði vissra fiskteg- unda verði bönnuð og áhrifin verði svipuð og ef lýst verði yfir einkalögsögu. Bretar og Irar hafa gefið f skyn að þeir séu fúsir að afsala sér tilkalli til einkalögsögu á vissum aðlögunartfma ef það hefur engin áhrif á endanlega fiskmálastefnu EBE. Margt bendir til þess að nýjar tillögur sem utanrikisráð- herrarnir ræða á mánudag hafi að geyma viðurkenningu á hug- myndinni um verndunarsvæði þótt það sé spurning hvort Bretar og írar telja þær reglur sem stungið verður upp á nógu strang- ar, segir The Times. Vikuritið Time fjallar um úr- færslu EBE-lögsögunnar í siðasta tölublaði, kallar hana varnarráð- stöfun og nefnir 200 mflna lög- sögu tslendinga og Rússa f þvf sambandi og segir að EBE vilji aðeins veita Norðmönnum, tslendingum og Færeyingum veiðiheimildir í nýju lögsögunni f von um veiðiréttindi á móti. Blaðið bendir á að 200 mflna lög- saga EBE einskorðast ekki við Evrópu og nái til Grænfands, frönsku eyjanna St. Pierre og Miquelon við Nýfundnaland og Rockall. Time segir að Rússar muni veiða 500.000 lestir á EBE-miðum á þessu ári eða tíu sinnum meira magn af þorski og ýsu en EBE veiðir á Barentshafi. EBE vilji reka Rússa úr lögsögu sinni á tveimur til þremur árum og það eigi ekki að valda Rússum mjög miklum erfiðleikum þar sem verksmiðjuskip þeirra fái aðeins 5% afla sfns á EBE-miðum en úr þessu hafi orðið millirfkjadeila sem sé komin í ógöngur þar sem Rússar neiti að semja við EBE þar sem þeir hafi aldrei' viðurkennt bandalagið. Ríki sem neita að semja fá ekki að veiða á EBE-miðunum og ef Rússar neita að semja verða allir togarar þeirra að sigla burt af evrópskum miðum fyrir 1. janúar. Time segir að ef Rússarnir fari ekki sér brezki flotinn reiðubúinn að senda fallbyssubáta á vettvang til að taka þá og fara lfkt að og Islendingar þegar þeir tóku brezka togara „í þorskastríðinu sem nú er orðið frægt“. Efling brezku landhelgisgæzl- unnar bar á góma í Neðri málstof-. unni nýlega og Patrick Duffy að- stoðarlandvarnarráðherra sagði að pantað hefði verið nýtt varð- skip af Island-gerð, fimm yrðu f notkun eftir eitt ár og fjórar Nimrod þotur yrðu teknar í notk- un 1. janúar. Hann sagði að tvö varðskip af Bird-gerð, Kingfisher og Cygnet, væru með fiskverndar- flotanum. Hann taldi óraunhæfa tillögu James Johnsons frá Hull um að togarar sem yrðu að hætta veiðum yrðu notaðir til að verja brezku landhelgina. Tveir lögreglu- menn drepnir í skot- hríð í Mílanó Milano 15. des. Ntb. TVEIR lögreglumenn og borgari, sem trúlega hefur verið vinstri sinnaður hryðjuverkamaður, voru skotnir til bana f Milano árdegis. I gær var lögreglumaður og hryðjuverkamaður drepnir í svipuðum atburði f Rómaborg. Skothríðin í dag átti sér stað í fbúð sem er í eigu eins af með- limum í öfgasamtökum sem nefna sig „Rauðu hersveitina". Maður nokkur, sem hét Walter Alasia, hóf skothrfð þegar lögreglan var að gera þar húsrannsókn og við það beið einn lögreglumannanna samstundis bana og annar slasað- ist alvarlega og lézt nokkru sfðar Þriðji lögregluþjónninn skaut Alasia til bana. Aukin pólitisk spenna hefur verið í Róm og Mílanó upp á sfðkastið og f sl. viku kom til átaka milli vinstrisinna og lög- reglumanna úti fyrir Scala- óperunni f Milano, þar sem vinstri sinnar kváðust vera að -mótmæla háu verði á aðgöngu- miðum. v

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.