Morgunblaðið - 21.12.1976, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 21.12.1976, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1976 27 Matthías Á. Mathiesen, fj ármálaráðherra; HÉR fer á eftir framsöguræða sú, er Matthfas A. Mathiesen, fjár- málaráðherra, flutta um lánsfjár- áætlun fyrir árið 1977 á Alþingi f gær: Við 1. umræðu fjárlagafrum- varpsins vék ég að gerð lánsfjár- áætlunar 1977. Þá var að þvi stefnt, að sfðari hluta nóvember- mánaðar yrði unnt að gera Alþingi grein fyrir áætluninni sem nú er lögð fram. Lánsfjár- sjóði. Þá er gerð grein fyrir áætlun ríkisstjórnarinnar um opinberar framkvæmdir, sem fjár er aflað til með lánum, svo og áformum um erlendar lántökur. Loks er fjallað um fjármuna- myndunarspá fyrir árið 1977. Niðurstöður eru sýndar ýtarlega í töflum. 1 heild gefur skýrslan yfirlit yfir uppruna og ráðstöfun lánsfjár 1976 og skiptingu þess eftir lántekendum og áætlun fyrir 1977. Grundartanga er talinn verða um 2.5 milljarðar en heildarfram- kvæmdakostnaður um 5.5 milljarðar króna. Fjármundmyndun, önnur en með sérstökum framkvæmdum og kaupum skipa og flugvéla, er tal- in aikast um 4% á næsta ári. Fjármunamyndun atvinnuveg- anna er I heild talin munu verða e.t.v. um 2% meiri en f ár, og stafar aukningin nær einvörð- ungu af framkvæmdum á Grund- artanga. Að þeim frátöldum er því búist við, að fjármunamyndun atvinnuveganna verði e.t.v. um 12% minni 1977 en á þessu ári. Ibúðabyggingar á árinu 1977 eru taldar verða svipaðar að magni og á þessu ári. Opinber fjárfesting er loks talin dragast saman um 16% á næsta ári vegna minni raforku- framkvæmda en f ár, en hins veg- ar verða fjárfestingar hitaveitna enn auknar verulega. Þessar spár um fjármunamynd- un á árinu 1977 hafa, svo sem Stefnt að 121% sam- drætti 1 lánsfjárfram- boði á næsta ári Jókst um 10% í ár í stað 16,5% minnkunar, sem áætlað var áætlun hefur nú verið samin öðru sinni, en þvf miður hefur ekki tekist að hafa hana fyrr á ferðinni en í fyrra. Þessu veldur annars vegar, að allt kapp hefur verið lagt á að vanda sem mest til verksins, ekki síst með þvf að áætlunin væri f samræmi við fjár- lagatillögur og tillögur ríkis- stjórnarinnar um fjáröflun með lántöku, og hins vegar hefur það tafið áætlunina, að ákvarðanir um einstakar framkvæmdir og fjár- öflun til þeirra hljóta ætíð að taka nokkurn tfma í meðferð ríkis- stjórnar og fjárveitinganefndar. Lánsfjáráætlunin fyrir árið 1976 var hin fyrsta, sem tók til allrar lánastarfsemi í landinu. í henni voru settar fram hugmynd- ir um þróun f lánamálum, sem væri i samræmi við og stefndi að yfirlýstum markmiðum ríkis- stjórnarinnar í efnahagsmálum. Eins og eðlilegt má telja vað hverja frumraun- hefur ýmislegt farið öðruvísi en ætlað var. 1 heild má þó fullyrða, að lánsf járáætlun- in 1976 hafi gefið gagnlegt yfirlit yfir starfsemi allra lánastofnana í landinu og auðveldað stjórn lána- mála. Nokkuð skortir enn á, að lánskjör og ýmis atriði önnur, sem áhrif hafa á lánahreyfingar, séu ákveðin með samræmdum hætti. Að þessu verður hugað sérstaklega við framkvæmd láns- fjáráætlunar næsta árs, sem hér er lögð fram. Lánsfjáráætlun fyrir árið 1977 er samin f samvinnu stofnana fjármálaráðuneytisins, Seðla- banka Islands, framkvæmda- stofnunar ríkisins, Þjóðhagsstofn- unar, Sambands fslenskra við- skiptabanka, félagsmálaráðuneyt- is, Húsnæðismálastofnunar og viðskiptaráðuneytis. Efni um opinberar framkvæmdir og fjár- öflun til þeirra var unnið í fjár- laga- og hagsýslustofnun. Undir- búningsvinna að þvf er tekur til lánamála var að meginhluta unn- in í hagfræðideild Seðlabankans. Aætlunin er reist á þjóðhagsspá Þjóðhagsstofnunar, dags. 7. des. 1976, og spá Seðlabankans um þróun greiðslujafnaðar 1977. 1 skýrslunni er fyrst fjallað um efnahagsmarkmið -rfkisstjórnar- innar og efnahagshorfur áætlunarinnar. Þá er fjallað um meginniðurstöður lánsfjáráætl- unarinnar fyrir lánamarkaðinn f heild og hvað varðar banka, fjár- festingarlánasjóði og lífeyris- Almennar forsendur lánsfjáráætlunar Meginforsendur lánsfjáráætl- unar þessarar eru núverandi staða og horfur í efnahagsmálum og helstu stefnumið rfkisstjórnar- innar i efnahagsmálum næsta árið. Ríkisstjórnin hefur lýst þeirri meginstefnu sinni f efna- hagsmálum, að á árinu 1977 væri að þvf stefnt að minnka hallann á viðskiptajöfnuði þjóðarbúsins og draga verulega úr hraða verðbólg- unnar, jafnframt þvf sem full atvinna væri tryggð og hagvöxtur vakinn á ný eftir afturkipp sfð- ustu tveggja ára. Eigi að takast að ná þessum markmiðum öllum í senn, þarf samstallingu aðgerða á öllum sviðum efnahagsmála. Lánsfjáráætlun fyrir árið 1977 er liður f þessari viðleitni. 1 samræmi við ofangreind markmið og það mat á núverandi stöðu og horfum, sem fram koma f þjóðhagsspá Þjóðhagsstofnunar, er að þvi stefnt, að viðskiptahall- inn við útlönd verði hálfu minni árið 1977 en árið 1976, eða 1,9% af þjóðarframleiðslu borið saman við 3,6% halla 1970, og 1114% halla 1975 og 1974. Eigi þessi árangur að nást, þarf að stilla aukningu þjóðarútgjalda mjög f hóf. 1 þjóðhagsspánni er reaknað með, að þjóðarframleiðslan aukist um U4% en raungildi þjóðar- tekna nokkru meira, eða 2t4%, vegna heldur betri viðskiptakjara við önnur lönd, en á þessu ári. Innan þessa ramma er reiknað með 3% vexti einkaneyslu, þ.e. að einkaneysla vaxi líkt og þjóðar- tekjur, að samneysla aukist um 2% en fjármunamyndun verði 5—6% minni en 1976. Samdrátt fjármunamyndunar má allan rekja til stórframkvæmda, og er þvf f reynd stefnt að 4% aukn- ingu alménnra framkvæmda. í heild er þannig reiknað með um 1% aukningu þjóðarútgjalda. Með þessum hætti er að því stefnt að verja þriðjungi aukningar þjóðarframleiðslunnar, og öllum viðskiptakjarabatanum, sem metinn er sem rúmlega 1% af þjóðarframleiðslunni, til þess að draga úr viðskiptahallanum við útlönd. Verðlagsforsendur Rfkisstjórnin leggur mikla áherslu á, að takast megi að draga úr verðhækkunum á árinu 1977. Eins og nú stendur má telja, að fram til miðs næsta árs hafi verð- breytingum í meginatriðum verið markaður farvegur ákvörðunum, sem þegar hafa verið teknar. I árslok 1976 er almennt veðlag í landinu 12% hærra en meðallag ársins og byggingarkostnaður 9% hærri. Fyrstu sex mánuði næsta árs er óhjákvæmilegt að gera ráð fyrir 8—10% hækkun verðlags. Takist, eins og að er stefnt, að koma verðbreytingum frá miðju næsta ári til ársloka niður í 6—7%, þ.e. 12—15% á ári, væru því engu að sfður horfur á 23—24% meðalhækkun neyslu- verðlags og 21% hækkun bygg- ingarkostnaðar 1977. Við þetta er miðað í fyrrgreindri þjóðhagsspá, og svo er einnig í lánsfjáráætlun- inni. Þó verður peningastærðum hennar yfirleitt skorinn heldur þrengri stakkur en þessi forsenda felur f sér, þannig að lánskerfið vinni ekki gegn viðleitninni til að draga úr verðbólgu heldur styðji hana. Fjármunamyndun Samkvæmt fyrirliggjandi þjóð- hagsspá 1977 er reiknað með, að á árinu 1977 verði f heild varið um 85,6 milljörðum króna til fjár- munamyndunar i landinu. Er þá annars vegar gert ráð fyrir, að byggingarkostnaður verði að með- altali um 21% hærri 1977 en 1976 og hins vegar, að raungildi fjár- munamyndunarinnar verði um 5—6% minna en á árinu 1976. Meginástæða þess, að reiknað er með samdrætti í fjármunamynd- un á árinu 1977 er, að á árinu mun að mestu lokið stórfram- kvæmdum þeim í raforkumálum, sem staðið hafa yfir við Sigöldu og Kröflu, án þess að þegar séu á döfinni aðrar framkvændir af þvf tagi. 1 spánni er gert ráð fyrir, að til Sigöldu- og Kröfluvirkjana verði varið 3.7 milljörðum króna á árinu 1977, en ætla má, að í ár muni framkvæmdakostnaður við þessar virkjanir nema um 10.8 milljörðum króna. Þá er reiknað með, að innflutningur skipa og flugvéla 1977 verði meira en helmingi minni f ár og nemi um 3.0 milljörðum króna. Fram- kvæmdir við járnblendiverk- smiðjuna að Grundartanga eru hins vegar taldar munu vega upp samdráttinn í stórframkvæmdum og sérstökum innflutningi fjár- festingavöru að nokkru leyti. Inn- flutningur til framkvæmdanna að unnt hefur reynst, verið samdar i samræmi við fjárveitingatillögur fjárlagafrumvarps og lántöku- áform. Þær tillögur og ákvarðanir um opinberar framkvæmdir, sem þar koma fram, gefa til kynna, að hreinar rfkisframkvæmdir drag- ist saman um 39% á árinu 1977, en á frátöldum virkjunarfram- kvæmdum við Sigöldu og Kröflu aukast hreinar ríkisframkvæmdir um 7%. Sameiginlegar fram- kvæmdir ríkis og sveitarfélaga eru taldar aukast um 15% og loks er reiknað með, að framkvæmdir í umsjá sveitarfélaga einna aukist um fimmtung á áranu 1977, eink- um vegna aukinna hitaveitúfram- kvæmda. Lánsfjárframboð Að gefnum markmiðum ríkis- stjórrfarinnar og horfum fram- undan f efnahagsmálum er ljóst, að lánafjárframboð verður að tak- marka við nauðsynlegustu fram- kvæmdir og brýnustu rekstrar- fjárþörf atvinnuveganna, og að draga verður úr lánveitingum, sem hvetja til innflutnings eða umframeftirspurnar, eftir þvf sem við verður komið. Sérstak- lega er nauðsynlegt að draga úr peningaútstreymi úr Seðla- bankanum og lántökum erlendis, því að framboð lánsfjár verður að byggjast á innlendum sparnaði f rfkari mæli en veríð hefur. Þetta er meginatriði þessarar lánsfjár- áætlunar, en á sama hátt var það meginatriði lánsfjáráætlunar þessa árs að draga að marki úr heildarframboði lánsfjár. Það hefur hins vegar tekist miður en skyldi í ári og þvf enn brýnna að árangur náist i þessum efnum á næsta ári. Þvf verður að leggja þunga áherslu á að stefna i lána- málum allra lánastofnana, við- skiptabankanna ekki siður en fjárfestingarlánasjóða, miðast miklu nánar en hingað til við þann ramma, sem lánafjáráætlun setur. Ég hygg að í þessu sam- bandi sé hollt að huga nokkru nánar að hversu til hefur tekist í ári. 1 lánsfjáráætlun þessa árs var að þvf stefnt, að hreint framboð lánsfjár, þ.e. veitt ný lán að frá- dregnum afborgunum, yrði um 16.5% minna en 1975. Reyndin sýnist hins vegar verða sú, að hreint lánsfjárframboð aukist um 10% 1 ár. Samdrátturinn, sem stefnt var að i fyrra var við það miðaður að verulega yrði dregið úr skuldaaukningu ríkisins og að skuldir einkaaðila ykjust um svip- að hlutfall og árið áður. Þrátt fyrir, að verulegur árangur hefði náðst í ár í stjórn ríkisfjármála hafa skuldir rfkisins aukist meira en ætlað var eða um rúma 11 milljarða króna sbr. við þá 7.6 milljarða króna aukningu, sem að var stefnt. Þessu veldur einkum, að opinberar framkvæmdir, ekki síst raforkuframkvæmdir, hafa orðið talsvert dýrari en ætla mátti við afgreiðslu fjárlaga þessa árs. Skuldaaukning einkaaðila vegur þó mun þyngra í healdinni þvi i stað þess að hún yrði svipuð og árið áður, eins og að var stefnt, er nú sennilegt, að hreinar lántökur einkaaðila verði um 8 milljörðum króna meiri en 1975. í lánsfjáráætluninni fyrir árið 1977 er á ný stefnt að því, að hreint lánsfjárframboð dragist saman, alls um 1214%. Er þá ann- ars vegar reiknað með, að lán til opinberra aðila minnki um helm- ing f krónutölu, en hins vegar að lánsfjárnotkun einkaaðila aukist lítið eitt f heild, þótt lán til íbúða- byggjenda aukist nokkuð. Niöurstöður Helstu niðurstöður lánsfjár- áætlunar hvað varðar einstaka hluta lánakerfisins má setja fram í fáum orðum. Hvað bankakerfið áhrærir er stefnt að því, að bæta gjaldeyrisstöðu og launafjárstöðu innlánsstofnana, einkum með þvi að dregið verði úr útlánaaukn- ingu bankanna. Utlán innláns- stofnana aukast sennilega um þriðjung á ári og er það mun meira en að var stefnt, en á næsta ári verður leitast við að takmarka útlánaaukningu þeirra við 20%. Ljóst er, að breytingin, sem hér er að stefnt, mun ekki nást nema staða ríkissjóð við Seðlabankann batni á næsta ári, eins og að er stefnt við afgreiðslu fjárlaga. Út- lán fjárfestingarlánasjóða aukast sennilega um 22% i ár, sem telja verður fremur hóflega aukningu þótt hún sé meiri en að var stefnt. Á næsta ári er reiknað með að ný útlán sjóðanna verði um 22% meiri en í ár, en þar af aukist útlán atvinnuvegasjóða um rúm- lega 16% en ibúðalánasjóða um 32t4% og er það í samræmi við stefnu rfkisstjórnarinnar um lán- veitingar til verkamannabústaða, leigu- og söluibúða sveitarfélaga og leiguíbúða aldraðra og öryrkja auk lána til kaupa eldri fbúða. 1 skýrslunni kemur fram, að lánafjárþörf til rikisframkvæmda 1977 nemur 10.280 m.kr. þegar allt er talið og er áformað að þar af verði 3.410 m.kr. aflað innan- lands. Þörf fyrir erlendar lántök- úr ríkisins nemur þvi 6.870 m.kr. en auk þess þarf að afla 2.862 m.kr. til Framkvæmdasjóðs. Frumvarp til laga um heimild til þessarar erlendu lántöku hefur þegar verið flutt og hef ég hér engu að bæta við framsöguræðu mína fyrir þvf frumvarpi. 1 áætl- un um erlendar lántökur ánæsta ári er í heild gert ráð fyrir, að þær nemi tæpum 20.9 milljörðum króna en það er lítið eitt hærri fjárhæð í krónum en á þessu ári, en vataskuld lægri í gjaldeyri reiknað. 1 þessu sambandi er og til þess að iita, að endurgreiðslur erlendra lána aukast að mun á næsta ári, þannig að hrein aukn- ing langra erlendra skulda verður 2 milljörðum króna minni 1977 en á þessu ári. Erlendar lántökur verða þó áfram afar miklar. Ég tel því brýnt, að hvergi sé gengið lengra í lánveitingum en lánsfjár- áætlunin gerir ráð fyrir. Ég tel engan vafa á, að þrátt fyrir byrjunarörðugleika muni lánsfjáráætlun reynast varanleg framför f íslenskri efnahags- stjórn. Farsæl framvinda efna- hagsmála er undir því komin, að lánamálin í heild verði tekin föst- um tökum. Hér skiptir helst máli, að útgjöldum sé þegar til lengdar lætur haldið innan þeirra marka, sem þjóðartekjurnar setja og dregið sé úr erlendum lántökum. Með lánsfjáráætluninni hefur verið mótuð stefna í lánamálum fyrir árið, sem fer í hönd. Á kom- andi ári verður unnið að þvi að bæta úr þeim göllum, sem f ljós komu við framkvæmd siðustu lánsfjáráætlunar. -

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.