Morgunblaðið - 05.03.1977, Page 1
44 SÍÐUR OG LESBÖK
51. tbl. 64. árg.
LAUGARDAGUR 5. ÍVIARZ 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Stórtjón í
Rúmeníu
BrlRrad. 4. man. Reuler.
KRÖFTUGUR jarðskjálfti varð f Rúmenfu í kvöld og olli miklu
eignatjóni og manntjóni aðsögn Kúkarest-útvarpsins.
Grátandi símastúlka, sem samband náðist við í Búkarest, sagði: „Það
hefur orðið mikið tjón hérna" og endurtók orðin aftur og aftur.
I Vfn sagði talsmaður veðurstofunnar þar að mikill jarðskjálfti hefði
orðið norður af Búkarest, að hann virtist hafa valdið mestu tjóni f
Transylvanfu og mælzt 7.2 stig á Richters-kvarða.
Búkarest-útvarpið sagði að
vatnslaust væri og rafmagnslaust
vegna jarðskjálftans og truflanir
hefðu orðið á fjarskiptum. Tals-
maður rúmenska sendiráðsins í
Vín sagði að allar síma- og telex-
línur milli Búkarest og Vestur-
Evrópu hefðu slitnað.
Jarðskjálftinn fannst um alla
Júgóslavíu og sums staðar í Ung-
verjalandi, Ítalíu, Grikklandi,
Austurríki og Sovétríkjunum.
Búkarest-útvarpið kvaðst ætla
að halda áfram útsendingum i
alla nótt og sagði að stjórn lands-
ins skoraði á alla þjóðina að „sýna
stillingu" og „aðstoða björgunar-
sveitir eftir mætti.“
• •
Osku Tony
Croslands
dreift í á
Grimsby, 4. marz. Reuter.
ÖSKU Anthony Croslands
heitins utanrfkisráðherra,
þingmanns Grimsbys f 18 ár,
var f dag dreift úr dráttarbát f
ósa Humber-fljóts.
Ekkja Croslands, Susan,
tvær dætur hennar og nokkrir
nánir vinir voru um borð f
dráttarbátnum Brend Fisher
sem öskunni var dreift úr.
„Ráðstafanir verður að gera til
að skrúfa fyrir gas í öllum bygg-
ingum,“ sagði útvarpið. „Leggið
ekki bílum og bíðið ekki nærri
alvarlega skemmdum húsum og
byggingum," sagði útvarpið enn
fremur.
Útvarpið skoraði á þjóðina að
hjálpa við að hreinsa burtu rústir
eftir jarðskjálftann. Það sagði að
„allir vinnandi menn yrðu að
mæta á vinnustöðum" og aðstoða
svo að „efnahagslífið stöðvaðist
ekki“ og „tryggja að allir fengju
nóg af vatni og mat.“
Rúmenska sendiráðið í Belgrad
sagði að Búkarest virtist hafa
orðið hart úti. Símastúlka í Bel-
grad fékk þær fréttir að mikið
eignatjón hefði orðið í miðborg-
Framhald á bls. 24.
Amin þakkar
Kúbumönnum
Nairobi, 4. marz. Reuter.
IDI AIVIIN forseti ræddi f dag við
fulltrúa Sovétrfkjanna og Kúbu
og þakkaði þeim fyrir stuðning
við Uganda að sögn útvarpsins f
Kampala.
Forsetinn sagði jafnframt yfir-
manni heraflans, Isaac Lumago
hershöfðingja, að menn hans
yrðu að vera við þvf búnir að
hrinda hvers konar árás. Amin
hefur sagt að hann hafi fengið
þær upplýsingar f bréfi að 2.600
bandarfskir, brezkir og fsraelskir
málaliðar sæki fram í Kenya til
árásar á Uganda. Hann segir Ifka
að fallhlffaárás sé fyrirhuguð og
innrásarlið hafi tekið sér stöðu á
landamærum Tanzaníu.
Háttsettir embættismenn í
Kampala hafa sagt flóttamönnum
sem komu í dag frá Uganda til
Nairobi í Kenya að öryggissveitir
Framhald á bls. 32
David Owen, hinn nýi utanrfkisráðherra Breta, ræðir við Khaled, Konung
Saudi-Arabíu, sem hefur legið f sjúkrahúsi f London f þrjár vikur.
Ian Smith sigraði
- með naumindum
Salisbury, 4. marz. Reuter.
IAN SMITH forsætisjáðherra
sigraði með naumindum upp-
reisnarmenn f flokki sfnum f dag
og tryggði sér stuðning þingsins
við fyrirætlanir sfnar um aukið
Ian Smith.
jarðnæði handa blökkumönnum.
Smith fékk nákvæmlega þau 44
atkvæði sem hann þurfti til i ) fá
samþvkkta nauðsvnlega laga-
breytingu, en stjórnmálasérfræð-
ingar segja að hann hefi stórbætt
stöðu sfna sem leiðtogi Rhódesfu.
Sex blökkumenn björguðu
stjórninni með þvf að greiða
henni atkvæði. Aðrir 10 blökku-
menn sem sitja á þingi tóku ekki
þátt f atkvæðagreiðslunni. Tólf
þingmenn Rhódesfufylkingar-
innar greiddu atkvæði gegn til-
lögunni sem þeir sögðu stofna
öryggi hvftra manna í hættu.
Þar með verður sú breyting á
jarðnæðislögum að innan við
0.5% 39 milljóna hektari lands í
Rhódesíu verður eingöngu f eign
hvitra manna. Áður var kveðið á
um að jarðnæði skiptist jafnt
milli hvítra manna og svartra.
Uppreisnarmennirnir undir
forystu Ted Sutton-Pryce að-
stoðarráðherra segja að breytíng-
in verði til þess eins að blökku-
menn krefjist fleiri tilslakana.
Smith telur hana hins vegar nauð-
synlega til að fá blökkumanna-
leiðtoga innanlands til viðræðna
um framtið Rhódesíu þannig að
finna megi lausn sem hljóti viður-
kenningu erlendis.
Izvestia rædst
á sendifulltrúa
Listahátíð breytt að
kröfu Rússa í Ítalíu
R6m, 4. marz. Reuter.
RtJSSAR hafa beitt opinberum þrýstingi til að
koma f veg fyrir að listahátfðin í Feneyjum
(Biennale) f sumar verði helguð andófsmönn-
um f Austur-Evrópu, og forstöðumaður hátfðar-
innar, Carlo Ripa di Meana. hefur sagt af sér f
mótmælaskyni.
Sovézki sendiherrann, Nikita Ryjov, sagði að
Rússar og aðrar Austur-Evrópuþjóðir mundu
hætta við þátttöku sfna f hátfðinni ef hún yrði
helguð andófsmönnum.
ftalski kommúnistaflokkurinn sendi frá sér
yfirlýsingu vegna málsins og sagði að forstöðu-
menn hátfðarinnar ættu að geta starfað sjálf-
stætt og án erlendra afskipta.
Ripa de Meana sagði að hann hefði verið
kallaður f utanrfkisráðuneytið þar sem honum
hefði verið sagt að finna „diplómatfska lausn“ á
málinu og kvaðst telja að slfk lausn jafngilti þvf
að þegja.
„Getur Feneyja-hátfðin starfað frjáls á ftalíu
eða verður hún að beygja sig fyrir nauðungartil-
skipunum frá Sovétrfkjunum?" spurði Ripa de
Meana f afsagnarbréfi.
„Feneyja-hátfðin ætti, eins og allir viðburðir
af þessu tagi, að stuðla að eflingu vinsamlegra
samskipta þjóða f stað þess að valda erfiðleikum
eða óánægju með samskipti rfkja,“ sagði Ryjov f
yfirlýsingu.
ftalska stjórnin stendur að mestu ein undir
kostnaði við listahátfðina.
Washington, 4. marz. Reuter.
CYRUS Vance.utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna,
sagði á blaðamannafundi í
Washington í dag að hann
teldi ekki að stuðningur
Carters forseta við sovézka
andófsmenn mundi spilla
fyrir bættri sambúð
Bandarfkjamanna og
Rússa.
í Moskvu sakaði stjórnarmál-
gagnið Izvestia nokkra banda-
ríska sendifulltrúa i dag um að
vera útsendarar leyniþjónustunn-
ar CIA. Blaðið segir að þeir hafi
fengið til liðs við sig Gyðinga sem
berjist gegn stjórninni. Árás Iz-
vestia er taiin alvarlegasti mót-
leikur Rússa gegn gagnrýni Cart-
ers forseta.
Á blaðamannafundi sinum
sagði Vance að hann færi í opin-
bera heimsókn til Kína siðar á
árinu. Hann og samstarfsmenn
hans hafa að und:nförnu rann-
sakað skjöl frá stjórnartið Nixons
forseta til að kanna hvort nokkuð
er hæft í því að á þeim árum hafi
verið gerður leynisamningur við
Kínverja.
Aðspurður sagði Vance á blaða-
Framhald á bls. 24
Ishkov til
nýs fundar
í Brussel
BrUssel, 4. marz. NTB.
FISKIMÁLARÁÐHERRA Sovét-
rfkjanna, Alexander Ishkov, fer á
mánudag til Brussel til nýrra við-
ræðna við fulltrúa Efnahags-
bandalagsins um gagnkvæmar
fiskveiðiheimildir.
Ætlunin er að reyna að ganga
frá texta þar sem gerð verði grein
fyrir meginreglum verndunarráð-
stafana, kvótakerfis og veiðiheim-
ilda.
Samkomulag hefur tekizt að
Framhald á bls. 32