Morgunblaðið - 28.05.1977, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1977
Forráðamenn Arnarflugs við nýju Arnarflugvélina við heimkom-
una. Ljósm. ói.k.m
Nýja vélin tekur færri farþega og er rumbetri en hin eldri.
Arnarflug fær nýja þotu
Breytir mjög rekstrarmöguleikum félagsins
ARNARFLUG hefur nú
tekið á leigu þotu af
gerðinni Boeing 720 B af
bandarísku flugvéla-
leigufyrirtæki, en þessi
vél var í áætlunarflugi
fyrir Western Airlines
allt þar til á fimmtu-
daginn var.
Að sögn Magnúsar Gunnars-
sonar, framkvæmdastjóra
Arnarflugs, er þessi vél full-
komnari en vélin sem er i eigu
félagsins en er nú í Englandi
þar sem vart hefur orðið tær-
ingar í vélinni. Kostir nýju
vélarinnar umfram hina eru
einkum fólgnir í mun fullkomn-
ari hreyflum, sem hefur í för
með sér að flugeiginleikar
hennar eru mun meiri, hún er
sparneytnari en um leið lang-
fleygari. Vélin getur borið 149
farþega í stað 171 sem hin vélin
flutti. Vélin kom hingað beint
frá Minneappolis ið miðrikjum
Bandarikjanna.
Að því er Magnús sagði breyt-
ir tilkoma þessarar vélar mjög
allri rekstrarstöðu og mögu-
leikum Arnarflugs til að veita
enn betri þjónustu en hingað
til, ekki sízt með tilliti til að fá
flutninga erlendis. Miklar ann-
ir eru framundan hjá félaginu i
sumar bæði fyrir íslenzkar
ferðaskrifstofur og vegna ferða
félagsins sjálfs.
Varðandi Arnarflugsvélina
eldri er nú verið að kanna hvar
og hvernig gert verði við hana
erlendis, en ekki er ljóst um
framhaldið — hvort hún verður
þá seld eða félagið reki báðar
válarnar áfram. Nýja vélin
fékkst með mjög hagkvæmum
leigukjörum að sögn Magnúsar
en félagið hefur möguleika á að
kaupa hana þótt síðar verði, og
kvaðst Magnús fastlega vænta
þess að nýja vélin yrði hér til
frambúðar.
Dóms yfír „Korkinum” að vænta innan skamms:
Sðluhagnaðurínn var
tæpar 5 milljónir
—en unnustan er líklega
stungin af með peningana
SVO sam fram kom I MorgunblaSinu I gar. fór é fimmtudaginn fram
málflutningur I máli ákæruvaldsins gagn bandarlska sjóliöanum
Christopher Barber Smith (Korkinum ö8ru nafni) I Sakadómi I ávana-
og flkniefnum. Bragi Steinarsson, vararfkissaksóknari, flutti málið af
hálfu ákasruvaldsins en verjandi bandarlska sjóliBans var Páll A.
Pálsson hdl. Smith er ákærSur fyrír stórfelldan innflutning á flkniefnum
til landsins og dreifingu þeirra innanlands. einkum til hermanna á
Keflavlkurflugvelli. Ennfremur er hann ákærður fyrir aS hafa keypt 600
grömm af hassi af Islenzkum manni. Krafizt er refsingar samkvæmt
ákvæSum almennra hegningarlaga, en refsing viS stórfelldu smygli og
dreifingu flkniefna er 2—10 ár auk sekta eftir atvikum. Ennfremur er
krafizt upptöku sölugróSa aS upphæS tæplega 5 milljónir Islenzkra
króna. PaS kom fram viS málflutninginn I fyrradag. aS unnusta Smith,
Barbara Burl aS nafni, sá um aS koma söluhagnaSinum I banka I borg
einni I New York-fylki I Bandarlkjunum. Sendi Smith henni peningana.
samtals 23.500 dollara. I smáskömmtum I pósti. MeSal annars sendi
hann eitt sinn 6.500 dollara eSa um 1.2 milljónir Islenzkra króna I
almennu bréfi. Nú hefur hins vegar komiS I Ijós, aS nefnd Barbara Burl
er horfin sporlaust og er taliS aS hún hafi tekiS út peningana og haft á
brott meS sér. Eru þvl litlar llkur á þvl, a.m.k. eins og málin standa I
dag, aS rlkissjóSur íslands fái umræddan söluhagnaS.
Fíkniefnin
keypt í Amsterdam
Bragi Steinarsson byggði mál sitt
á ákæru, sem rikissaksóknari he'ur
gefið út á hendur „Korkinum'. tn
þar gerir saksóknari kunnugt, „aö
höfða ber opinbert mál á hendur
Christopher Barber Smith, sjóliða,
dveljandi í byggingu 746 á Kefla-
víkurflugvelli, fæddum 29. sept-
ember 1953 i New York, fyrir að
hafa á tímabilinu mai-nóvember
1 975, ýmist einn eða ásamt öðrum,
farið samtals fimm ferðir til Amster-
dam til kaupa á ávana- og fikniefn-
um (kannabis, hassi, anfetamindufti
og LSD) er ákærði ýmist flutti með
sér og fylgdarmönnum sinum eða
sendi til íslands og tók þar sjálfur
við því, þar sem ákærði síðan dreifði
efnum þessum úr vörslum sinum
með hagnaði til margra manna,
einkum varnarliðsmanna á Kefla-
víkurflugvelli, þannig að af hreinum
söluhagnaði hafði ákærði er hann
var handtekinn 1 7 desember 19 75
sent til Bandarikjanna sem banka-
innstæður US $ 23 500 (rúmlega
4.5 mílljónir íslenzkra króna) og i
vörslum hans fundust við húsleit
18 desember jafnvirði isl kr
220 000 00 i ýmissi erlendri mynt
Ákærði neytti hluta efnanna sjálfur,
hluta þeirra sendi ákærði áfram til
Bandarikjanna þar sem hann hugð-
ist selja það magn fyrir US $
10.000, (tæpar 2 milljónir króna)
en hluti þess (allt að 3.7 kg hassi)
kom ekki til skila til ákærða úr
póstsendingum eða voru tekin
herlögregluá Keflavikurflugvelli
af
Ferðirnar fimm
1. í 1. ferS 1. mai: í fylgd þriggja
annarra keypt 50-LSD töflur fyrir US
$ 70 og 90—100 gr af hassi fyrir
um US $ 200 Af þessu séldi
ákærði eftir komu til landsins 40
LSD töflur fyrir US $ 5 hverja töflu
og 80 gr af hassi fyrir US S 8 hvert
gr Söluhagnaður hefur þvi verið um
1 00 þúsund íslenzkar krónur
2. í 2. ferS 3. — 8. júlf: Keypt
490 — 500 gr af hassi fyrir US $
500—600, sem áicærði síðan seldi
ónafngreindum félaga sínum á
Keflavikurflugvelli fyrir US $ 8 pr
gr Söluhagnaður hefur verið um
650 þúsund krónur
3. í 3. ferS 9. — 15. ágúst: Keypt
ásamt öðrum (Peter Joseph
Dobbins) 4 kg af hassi fyrir um US
$ 4000, og einn sér 28 gr af
anfetamindufti fyrir um US $ 300
Hassið sendu þeir félagar til íslands
i tveimur misstórum pökkum en að-
eins annar þeirra kom fram og í hlut
ákærða kom 1.7 kg, sem ákærði
seldi ýmsum aðilum, mest gegn
staðgreiðslu. fyrir US $ 5—7 pr
gr, en anfetaminduftið flutti ákærði
með sér innan klæða og seldi það
hér á landi ýmsum aðilum fyrir US
$90 hvert gr. Söluhagnaður hefur
væntanlega verið um 1.6 milljónir,
þrátt fyrir að aðeins hluti efnisins
hafi komið fram
4. j 4. ferS 13. september:
Keypt 3 kg af hassi fyrir um US $
3000. Þar af flutti ákærði með sér í
farangri sínum 1 kg (970 gr), sem
ákærði seldi ýmsum aðilum, mest
gegn staðgreiðslu, fyrir US $ 7, en
50 gr á US $ 5 Afganginn % hluta
póstlagði ákærði til Keflavíkurflug-
vallar, en sótti ekki pakkann á póst-
húsið þar eð ákærði hafði frétt að
yfirvöld vissu um innihaldið. Sölu-
hagnaður um 700 þúsund krónur,
þótt % efnisins hafi tapast
5. Í 5. ferS 1. eSa 2. nóvember:
Keypt ásamt öðrum (Randy
Augustus Harrell) 10 kg af hassi,
þar af átti ákærði 8 kg, 112 grömm
af „speed' -efni, þar af átti ákærði
28 grömm, og hvor um sig 10 stk.
LSD töflur, fyrir US $ 1 000 hvert kg
af hassi, $ 300 hverja únsu (28
grömm) af „speed '-efni, og $ 2 50
hverja töflu af LSD Varningnum
komu þeir m.a. fyrir í kassa ásamt
flugvélavarahlut og sendu með her-
flugvél til íslands Hluta varningsins
seldi ákærði ýmsum aðilum fyrir
hliðstætt verð og áður greinir utan
LSD töflurnar, sem ákærði gaf, og
þeirra 4.5 kg af hassi, sem ákærði
sendi í tvennu lagi til Bandarikjanna
til sölu þar. Erfitt að áætla söluhagn-
að, en líklega hefur hann verið
2—3 millj
Fíkniefni keypt
af íslendingi
Ennfremur ákærist nefndur Cristo-
pher Barber Smith fyrir:
A í apríl 1975 þrívegis keypt í
húsi í miðborginni í Reykjavík af
íslenzkum manni 200 gr af hassi
fyrir US $ 8 hvert gr, sem ákærði
síðan seldi að mestu fyrir sama verð.
B í október 1975 lagt félaga
sínum Peter Joseph Dobbins til fé,
US $ 3000, til fíniefnakaupa í ferð
til Amsterdam ásamt Abbot-hjónum
Fyrir það framlag fékk ákærði 1 kg
(970 gr) af hassi, ákærði seldi hér á
landi fyrir US $ 6 pr. gr. Söluhagn-
aður er um 500 þúsund kr.
C. í desember 1975 lagt félaga
sínum Randy Augustus Harrell til fé,
US $ 300—400, til fíkniefnakaupa
í ferð hans til Bandaríkjanna og
Amsterdam. Fyrir það framlag skyldi
ákærði fá 28 grömm „speed"-efnis,
en á þann varning ásamt sams kon-
ar varning Harrells var lagt hald við
komu til Keflavíkurflugvallar í byrjun
janúar 1976
Brot ákærða, sem að framan er
lýst, teljast varða við 173. gr. a.
almennra hegningarlaga nr. 19,
1940, sbr. lög nr. 64, 1974, og 1.
og 4 mgr. 2. gr. sbr. 5. gr. laga um
ávana- og fíkniefni nr. 65. 1 974
Þess er krafist, að ákærði verði
dæmdur til refsingar, til að sæta
upptöku framangreinds söluand-
virðis samkvæmt 5. gr. i.f. nefndra
laga nr. 65, 1974, eða ávinnings
þess sem að framan greinir , U$
23.500 (rúmlega 4,5 milljónir) og
jafnvirðis ísl. kr 220 000.00 í
ýmissi erlendri mynt, samkvæmt 3.
tölul. 1. mgr. 69. gr nefndra laga
nr. 19, 1940, og til greiðslu alls
sakarkostnaðar "
Innskot eru Mbl. og tölur miðast
við núverandi gengi Bandaríkja-
dollars.
Búið að dæma
í málum annarra
Það kom fram i sóknarræðu Braga
Steinarssonar, að búíð væri áð
dæma i málum þeirra aðila, sem
tengzt hefðu máli Christophers
Barber Smith Hefðu sumir aðilar
verið dæmdir en málum annarra
lokið með sátt Randy Harrell hlaut
1 5 mánaða fangelsi og 600 þúsund
króna sekt og Otto Dickey hlaut 6
mánaða fangelsi og 300 þúsund
króna sekt. Þetta voru ströngustu
dómarnir. en Peter Dobbins var
horfinn af landi brott áður en lokið
var að dæma i máli hans. Nefndur
Randy Harrell afplánar nú fangelsis-
dóm sinn á Litla-Hrauni Sagði Bragi
Steinarsson, að enginn vafi léki á
þvi, að Christopher Barber Smith
mætti kalla ótvíræðan forgöngu-
Framhald á bls. 26
Þrjár ásjónur Christophers Barber Smith. Nýliði í hernum,skeggjaður afbrotamað-
ur og loks strokufangi með litað hár.