Morgunblaðið - 18.10.1977, Blaðsíða 1
230. tbl. 64. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Geir Hallgrímsson, forsætisráðherra, á Alþingi í gær:
Ríkisst ar fsmenn njóti
sömu kjara og aorir
— en umframhækkanir leiða til óstöðvandi kjarakapphlaups — Ríkis-
stjómin væntir þess að BSRB virði lög landsins við framkvæmd verkfalls
festu og neita ad verda við
kröfum ræningjanna. Páll páfi
bauðst f kvöld til að taka við
stöðu gíslanna í þotunni, ef það
k.vnni að verða að gagni.
David Owen, utanríkisráð-
herra Bretlands, lýsti í dag yfir
fullkomnum stuðningi við
hverja þá ákvörðun, sem v-
þýzka stjórnin kynni að taka í
málinu. Sagði Owen, að hryðju-
verk sem þessi yrði að stöðva og
það yrði aðeins hægt með
algerri samstöðu þjóða heims.
Heiniut Schmidt Raymond Barre, forsætisráð-
Ógnun hryðjuverka
alheimsfyrirbæri
London, Bonn, Washington
Vatíkaninu og viðar. Reuter
ALLUR heimur fylgdist í kvöld
og nótt með framvindu mála i
Mogadishu í Sómalíu þar sem
flugræningjarnir fjórir héldu
86 manns í gíslingu eftir að
hafa skotið flugstjóra Luft-
hansaþotunnar til bana í
morgun skömmu eftir flugtak
frá Aden. V-Þýzku stjórninni
hafði í kvöld borizt fjöldi
stuðningsyfirlýsinga frá ríkis-
stjórnum ýmissa þjóða og fjöl-
miðlar á Vesturlöndum og
víðar hvöttu Helmut Schmidt
og stjórn hans til að sýna áfam
herra Frakklands, tók f sama
streng og sagði að mestu hörku
yrði að sýna, er lýðræði væri i
húfi og lífið í heiminum gæti
orðið óbærilegt ef ekki væri
hægt að sigrast á kreppu
siðmenningarinnar með því að
sanna að lýðræði og grund-
vallarreglur þess gætu varið
sig. Sagði hann að Frakkar
myndu í einu og öllu styðja
stjórn Schmidts.
Ríkisstjórn Egyptalands for-
dæmdi hryðjuverkamennina og
hrósaði stjórn V-Þýzkal.ands
fyrir tilraunir til að bjarga líf-
Framhald á bls. 28.
GEIR Hallgrfmsson, forsætisráð-
herra, kvaddi sér hljóðs utan dag-
skrár á Alþingi f gær og gerði að
umtalsefni kjaradeilu þá, sem nú
stendur yfir við opinbera starfs-
menn. t kjölfar ræðu forsætisráð-
herra urðu miklar umræður á Al-
þingi sem stóðu framundir kvöld.
I ræðu forsætisráðherra kom
fram m.a.:
0 Kjaradeilunefnd hefur sent
ráðherrum skýrslu um 6 tilvik,
þar sem ákvarðanir nefndar-
innar hafa ekki verið virtar.
Ríkisstjórnin kvaddi stjórn
BSRB á sinn fund af því tilefni
og þar var tekið fram, að hún
liti svo á að það væri skilyrðis-
laus skylda framkvæmdavalds-
ins að sjá um, að ákvarðanir
nefndarinnar yrðu fram-
kvæmdar. Fulltrúar BSRB
kváðust mundu halda lög
landsins og kvaðst forsætisráð-
herra vænta þess, að við það
yrði staðið við framkvæmd
verkfallsins.
0 Geir Hallgrimsson sagði, að
krafa BSRB um endurskoðun-
arrétt á samningstíma með
verkfallsrétti fæli í sér brigður
á því samkomulagi, sem gert
var við BSRB, þegar lögin um
verkfallsrétt voru sett. Alls
ekki væri unnt að samþykkja
slíkan endurskoðunarrétt með
verkfallsrétti og ríkisstjórnin
mundi ekki beita sér fyrir
slíkri lagasetningu. Hins vegar
væri ríkisstjórnin tilbúin til að
tryggja að BSRB hefði aldrei
Geir Hallgrímsson.
lakari verðbótatilhögun en al-
mennt gerist.
9 Geir Hallgrímsson sagði, að
rikisstjórnin gæti ekki orðið
við þeirri kröfu BSRB, að
lægstu laun yrðu hækkuð um-
fram þaö, sem ríkið hefði
þegar boðið, þar sem kjör
BSRB væru þá komin upp
fyrir það, sem almennt gerist á
vinnumarkaði og væri það því
óverjandi. Hins vegar væri
ríkisstjórnin reiðubúin til að
tryggja, að enginn starfsmað-
ur, sem starfsfestu næði, sæti
lengi í neðstu þrepum launa-
stigans.
0 Forsætisráðherra sagði ríkis-
stjórnina hafa gengið svo langt
til móts við kröfur BSRB um
15—20% hækkun um miðbik
launastigans umfram hækkan-
ir ASl, að naumast væri hægt
að ganga lengra, ef ekki ætti
að hleypa af stað óstöðvandi
kjarakapphlaupi.
0 Ríkisstjórnin hefði lýst þvi
yfir, að hún væri reiðubúin til
að ræða önnur atriði samning-
anna innan ramma síns lokatil-
boðs.
0 í lok ræðu sinnar lét Geir Hall-
grfmsson i ljós ósk um að
kjaradeila þessi leystist og að
þeir almennu hagsmunir vrðu
virtir, sem í því væru fólgnir,
að starfsmenn ríkisins fengju
sambærileg kjör og aðrir vinn-
andi menn i landinu.
Ræða Geirs Hallgrímssonar,
forsætisráðherra, fer hér á eftir í
heild, en frásögn af umræðum á
Alþingi í gær er að öðru leyti á
bls. 18 og 19.
Ríkisstjórnin hefur á mörgum
fundum sínum og siðast á fundi
sinum i morgun fjallað um yfir-
standandi kjaradeilu milli ríkis-
Framhald á bls. 28.
Frækilegt björgunar-
afrek Vestur-Þjóðverja
Sérþjálfuð víkingasveit bjargaði öllum gíslunum í leifturárás - Ræningjarnir felldir
Bonn 18. október Reuter — AP.
SÉRÞJÁLFUÐ v-þýzk víkingasveit úr landamæraher-
deild landsins vann f nótt frækilegt björgunarafrek, er
60 liðsmenn hennar gerðu leifturárás kl. 23.30 að ísl.
tíma á Lufthansaþotuna, sem rænt var á fimmtudag, þar
sem hún stóð á flugvellinum f Mogadishu f Sómalfu, og
bjargaði öllum gfslunum 86, en felldi ræningjana 4.
Um tvöleytið í nótt var ekki endanlega ljóst hvort
einhver gíslanna hefði særzt, en fyrstu fregnir frá
talsmanni Bonnstjórnarinnar hermdu, að allir hefðu
komizt lffs af, en hann bætti við: „Það kann að vera að f
Ijós komi að einhver gfslanna hafi látið Iffið.“
Arás víkingasveitarinnar, sem
sett var á stofn eftir moröin á
ísraelsku íþróttamönnunum á
Ölympiuleikunum í Múnchen
1972, stóö aðeins í tvær minútur.
Að sögn AI’- og Reuterfréttastof-
anna sprengdu liðsmenn sveit-
anna neyðarútganga þotunnar
upp og réðust skjótandi úr vél-
byssum inn í hana. Tókst þeim að
hæfa ræningjanna 4, áður en þeir
gátu gert sprengjuhleðslur virkar
og 5 mínútum eftir að árásin hófst
voru allir farþegarnir, þ.á m. 7
börn og hjón á áttræðisaldri.
I komnir út úr þotunni niður á
flugbrautina. 44 karlar, 31 kona, 7
| börn og 4 manna áhöfn var á lifi
er árásin varð gerð, en ræningj-
arnir myrtu flugstjórann i morg-
Framhald á bls. 28.
Boeing 737 þota Lufthansa í flugtaki.
I