Morgunblaðið - 18.10.1977, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1977
80 ARA er f dag, 18. október,
Sveinbjörg Bjarnadóttir Barón-
stíg 31 í Reykjavík. Sveinbjörg
dvelur í dag á heimili dóttur sinn-
ar að Iðufeili 8 í Reykjavfk.
un hryðjuverkanna er alheims-
fyrirbæri og enginn skyldi láta
sér koma til hugar að V—Þjóð-
verjar eigi einir í þessu máli.“
Vinstri blaðið A1 Hamishmar
í Tel-Aviv sagði: „Heimurinn
borgar nú dýru verði að menn
skyldu láta hryðjuverk sem
vind um eyru þjóta fyrir nokkr-
um árum."
1 Argentínu sagði Buenos
Aires Herald, að hryðjuverka-
mennirnir stefndu að því að
grafa undan frelsi einstaklings-
ins og Ziirichblaðið Tages-
anzeiger sagði, að flug-
ræningjarnir hefðu breytt
Lufthansaþotunni í
útrýmingarbúðir. Stærsta blað
Kenya krafðist þess, að stjórnir
þjóða heims tæku saman hönd-
um um aðgerðir til að koma i
veg fyrir flugrán.
áttu við starfsmannafélagið varð
sammála um að slíta viðræðum,
en í nefndinni eiga sæti: Richard
Björgvinsson, bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, Magnús Bjarn-
freðsson, bæjarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins og Björn Ólafs-
son, bæjarfulltrúi Alþýðubanda-
lagsins.
A ísafirði stóðu samningavið-
ræður yfir á miðnætti og var búizt
við því að haldið yrði áfram fram
á nótt. Samningamenn vörðust
allra frétta í gærkveldi.
Þá stóð samningafundur í
Hafnarfirði fram yfir miðnætti og
var búizt við því að menn næðu
saman, en svo varð þó ekki.
Benda líkur til þess að gerð verði
útslitatilraun til samningsgerðar í
kvöld, en þó var það ekki full-
ákveðið í gærkveldi.
— Tekinn
fyrir nauðgun
Framhald af bls. 40
tímabilinu.
Það var á níunda tímanum á
laugardagskvöldið að piltinum
tókst að lokka 12 ára gamla
stúlku upp í bifreið sína i ná-
grannabyggðalagi Keflavíkur.
Fór hann með stúlkuna á afvik-
inn stað og kom fram vilja sín-
um. Sleppti hann henni síðan.
Atburðurinn var strax kærð-
ur til lögreglunnar. Gat stúlkan
gefið nákvæma lýsingu á piltin-
um og einnig bifreiðinni, sem
hann var á. Pilturinn var hand-
tekinn á heimili sínu um eitt-
leytið aðfararnótt sunnudags-
ins. Viðurkenndi hann brot sitt
eftir stuttar yfirheyrslur.
í lok ágústmánaðar framdi
pilturinn afbrot af sama tagi. I
það skipti var 13 ára stúlka í
Keflavík fórnarlamb nauðgar-
ans. Vegna þess máls var rang-
ur maður handtekinn og sat
hann í gæzluvarðhaldi í fimm
daga unz lögreglunni tókst að
hafa hendur í hári fyrrnefnds
pilts, sem játaði strax brot sitt.
Þegar hann hafði játað var hon-
um sleppt.
r
— Ognun
hryðjuverka
Framhald af bls. 1 ^
um gíslanna. Sama yfirlýsing
kom frá Spánarstjórn,
Jórdaníustjórn og stjórnum
Tyrklands og Bandaríkjanna.
Samtök atvinnuflugmanna í
heiminum sendu í kvöld frá sér
yfirlýsingu, þar sem morðið á
v-þýzka flugstjóranum var for-
dæmt, en sögðu að þótt það
væri auðvelt að varpa sökinni á
morðingjann, sem hleypti af
skotinu væru rikisstjórnir
landa heims hinir eiginlegu
sökudólgar, því að þær hefðu
látið undir höfuð leggjast að
gera ráðstafanir til að koma i
veg fyrir flugrán. Var skorað á
þjóðir heims að halda ráðstefnu
og samhæfa þar aðgerðir til að
hindra flugrán í framtíðinni.
Var sagt að ef ríkisstjórnir
þjóða heims gerðu þær öryggis-
ráðstafanir, sem flugmenn
þeirra gerðu kröfu til, væri
hægt að koma í veg fyrir 99%
allra flugrána.
Fjölmiðlar i ýmsum löndum
fordæmdu flugránið og ránið á
Hanns Martin Schleyer og lýstu
stuðningi við ákvörðun v-þýzku
stjórnarinnar um að láta ekki
undan kröfum ræningjanna.
Flest helztu dagblöð V—Þýska-
lands sögðu að Schmidt og
rikisstjórn hans hefðu haldið
skynsamlega á málum. Hið
óháða Westdeutsche All-
gemeine Zeitung sagði að
ákvörðun v-þýzku stjórnar-
innar um að sleppa ekki hryðju-
verkamönnunum úr haldi hefði
verið rétt, jafnvel meirihluti
þjóðarinnar hefði verið henní
andvigur.
Belgiska blaðið La Derniere
Heure sagði að hinn vestræni, «
siðmenntaði heimur væri í
húfi, hér væri um að ræða strið,
sem aðeins yrði hægt að binda
enda á, ef annar aðilinn gæfist
upp. Le Quotidien de Paris
sagði: „Við erum öll gíslar, ógn-
— Matthías og
Kristján
Framhald af bls. 40
ræður við samninganefnd
BSRB og tókum upp þráðinn,
þar sem frá var horfið. Viðræð-
urnar nú gefa ekki tilefni til
neinna yfirlýsinga um málið á
þessu stigi, en ég vonast til
þess, að menn dragi nokkurn
Iærdóm af því, sem gerst hefur.
Raunsætt mat og dómgreind
verða að sitja í fyrirrúmi, ef vel
á að fara.“
Kristján Thorlacius, for-
maður BSRB, sagði eftir fund-
inn í gærkveldi að menn væru
að þreifa fyrir sér um önnur
atriði en launastigann. Hann
kvaðst hvorki vera bjartsýnn
né svartsýnn á framvindu mála,
en kvaðst þó vilja vera bjart-
sýnn. Hins vegar kvaðst hann
ekki þora að segja neitt um
málið á þessu stigi. Engin efnis-
atriðf hefðu verið til umræðu,
heldur aðeins rædd vinnu-
brögð.
— Samkomulag
í Keflavík
Framhald af bls. 40
Reykjanessamninginn með viss-
um breytingum þó. Launataflan
og áfangahækkanir eru hin sömu
og í Reykjavíkursamningunum.
Uppsagnarákvæði Reykjanes-
samningsins var breytt í það horf,
sem Reykvíkingar sættust á og nú
eru 2 laugardagar í orlofi, en í
þess stað var framlag aukið í or-
lofsheimilissjóð. Þá var samið um
að 1.600 gæzluvistarstundir gæfu
12 fridaga fyrir starfsfólk sjúkra-
hússins.
Gengið var frá samningum á
Akureyri rétt um miðnættið i
nótt. Helgi Bergs bæjarstjóri kvað
samkomulagið myndu verða lagt
fyrir félagsfund klukkan 16 i dag.
Hann kvað stjórn og samninga-
nefnd starfsmannafélagsins hafa
borið samkomulagið undir trún-
aðarmannaráð félagsins og hefðu
allir trúnaðarmenn félagsins
ákveðið að mæla með samkomu-
laginu. Hann kvað trúnaðar-
mannaráðið telja samkomulagið
spor í rétta átt frá þvi samkomu-
lagi, sem áður hafði verið fellt, en
efnisatriði væru að mörgu leyti
svipuð og í Reykjavíkursamkomu-
laginu, þó væru þar atriði um-
fram samningana i Reykjavik og
öfugt.
I Kópavogi slitnaði algjörlega
upp úr samningaviðræðum. Náðst
hafði samkomulag um flest ef
ekki öll samningsatriði, nema eitt,
endurskoðunarákvæði samnings-
ins ef breytt væri vísitöluákvæð-
um hans. Þar krafðist starfs-
mannafélagið þess að verkfalls-
réttur fylgdi endurskoóunar-
ákvæðinu, en Richard Björgvins-
son, forseti bæjarstjórnar, kvað
bæjarstjórnina ekki hafa getað
gengið að slíku, nema lagabreyt-
ing hefði komið til. Lét bæjar-
stjórnin bóka að hún myndi ekki
hafa frumkvæði að nýjum samn-
ingaviðræðum. Á félagsfundi
starfsmannafélagsins höfóu
félagsmenn sett það skilyrði fyrir
samningum að verkfallsréttur
fylgdi endurskoðunarákvæði
samningsins meö 97 atkvæðum
gegn 16. Samninganefnd Kópa-
vogskaupstaðar, sem viðræður
— Skiptum okk-
ur ekki af...
Framhald af bls. 2
að breyta vinnuskyldu frá þvi
sem verið hefur og vaktaskipu-
lagi. Hins vegar hefur t.d. verið
samþykkt vaktaskipulag hjá toll-
gæzlunni.'Sama er um spítalana,
að þar er það vaktafyrirkomulag,
sem gilt hefur. Ég held að lítil
skynsemi sé í þvi fyrir kjaradeilu-
nefnd að fara að blanda sér í
vaktaskipulag, ef um það er
samkomulag á vinnustöðunum.
Ef hins vegar væri ágreiningur,
myndum vió skoða það mál.“
— BSRB ber að
fara að lögum
Framhald af bls. 40
nefnd úrskurðaði að húkrunar-
nemar gætu unnið. Hinn 13. októ-
ber loka síðan verkfallsverðir
Hjúkrunarskóla islands og var
vinnuskylda hjúkrunarnema þar
með úr sögunni.
Þá s.egir ennfremur um það
deiluatriði, sem komið hefur upp
vegna úrskurða Kjaradeilunefnd-
ar um starfsrækslu fjarritastöðv-
ar Pósts og síma. I greinargerð
Kjaradeilunefndar segir um það
atriði m.a.: „I framhaldi af þess-
um aðgerðum verkfailsvarða
BSRB, dags. 14. október s.l., sbr.
fylgiskjal nr. 8, þar sem nefndin
er beðin að endurskoða þessa
ákvörðun sína. I bréfi verkfalls-
nefndar kemur fram, að hún
hyggst taka lögskipað vald kjara-
deilunefndar í sínar hendur sbr.
niðurlag bréfsins: „Hins vegar
vill Verkfallsnefnd BSRB taka
fram, að hún mun taka rökstudd-
ar óskir um nauðsynlegar viðgeró-
ir á telexbúnaði stjórnvalda, ríkis-
stofnana og erlendra sendiráða
hér á landi til vinsamlegrar
athugunar eftir því sem efni
standa til hverju sinni.““
— Kennsla í
Háskólanum
Framhald af bls. 40
um aðgerðir í mennta- og fram-
haldsskólum segir m.a.:“
„Sem kunngt er auglýsti
menntamálaráðuneytið að
kennsla myndi hefjast samkvæmt
stundaskrá í morgun í mennta- og
fjölbrautarskólum í Reykjavík,
Hafnarfirði, Kópavogi og Kefla-
vík og i Kennaraháskóla Islands.
Með þessu var reynt að stuðla að
verkfailsbroti þar sem dyra-
og/eða húsverðir skólanna eru
félagar í BSRB. Verkfallsverðir,
BSRB fóru i þessa skóla í morgun.
Þeir ræddu fyrst við rektora skól-
anna og óskuðu eftir að skólarnir
yrðu ekki opnaóir. Jafnframt ósk-
uðu þeir eftir að fá að skýra
sjónarmið sín fyrir nemendum og
kennurum. Var það leyfi veitt.
Verkfallsverðir beindu þeim til-
mælum til nemenda og kennara
að skólum yrði lokað og
nemendur og kennarar færu
heim. Einnig tilkynntu þeir að
þeir myndu ekki beita valdi til að
koma í veg fyrir kennslu."
I samtölum við skólastjóra
skólanna á bls. 24 i blaðinu í dag
kemur fram, að þar sem
nemendur komust ekki inn i skól-
ana hafi það verið vegna þess að
verkfallsverðir meinuðu þeim að-
gang.
i Menntaskólann í Reykjavik
kvað Guðni rektor hafa komið um
50 verkfallsverði sem hefðu leyst
upp kennsluna í skólanum og m.a.
lofað nemendunum minna náms-
efni vegna verkfallsins þótt slíkt
kæmi að sjálfsögðu ekki til
greina.
Ingólfur Þorkelsson, skóla-
meistari Menntaskólans í Kópa-
vogi, kvaðst hafa tilkynnt verk-
fallsvörðum að ekki yrði beitt
valdi gegn þeim til þess að hefja
kennslu. Sagði Ingólfur að ef ekki
yrði samið bráðlega væri
nauðsynlegt að knýja fram und-
anþágu til þess að hefja kennslu
eða fara lögbannsleiðina.
I Menntaskólanum í Hamrahlíð
fengu nemendur ekki að fara inn
í skóla sinn, en nemendur hurfu á
braut, þegar kennarar skólans töl-
uðu til nemenda af svölum
skólans og lýstu yfir samstöðu
sinni með félögum í BSRB.
Menntamálaráðherra, Vilhjálm-
ur Hjálmarsson, sagði i samtali
við Morgunblaðíð i gær, að þótt
hvergi hefði orðið alvarleg átök
við skólana í gær, þá hefði hvergi
verið vinnufriður, en hins vegar
yrði reynt áfram að halda uppi
kennslu.
Skólastjórunum bar saman um,
að það væri ekki verkfallsbrot að
þeirra mati þótt þeir opnuðu þá
skóla sem þeir veittu forstöðu og
allir lýstu þeir því yfir, að þessar
aðgerðir á vettvangi skólastarfs-
ins gætu orðið ákaflega dýrkeypt-
ar fyrir stóran hluta nemenda.
Sumir skólastjóranna kváðust
ætla að reyna að halda áfram uppi
kennslu, en aðrir ekki að
óbreyttu. Sjá nánar viðtöl á bls.
24.
— Ekki hlutverk
ríkisstjórnar
Framhald af bls. 2
— Undirbúningur Kjaradeilu-
nefndar fyrir sitt starf hefur
verið slakur. Hana átti að skipa
fyrir síðustu áramót, en var þó
ekki fullskipuð fyrr en á vordög-
um. Fyrsti fundur nefndarinnar
var síðan haldinn í byrjun júní,
en næsti fundur ekki fyrr en í
september. Hjá Kjaradeilunefnd
hefur allt verið á siðustu stundu.
— Það þekkist t.d. hvergi að
dómar séu tijkynntir i gegnum
síma, en það hefur Kjaradeilu-
nefnd látið gera, því úrskurðir
hennar eru i rauninni ekki annað
en dómar, þar sem verið er að
dæma verkfallsrétt af fólki. I lög-
unum segir að Kjaradeilunefnd
skuli tilkynna einstaklingum ef
þeir eiga að vinna í verkfalli.
Þetta hefur ekki verið gert,
heldur útbúnir ónákvæmir listar
á heilu hópana og yfirmönnum
falið að tilkynna hverjir eiga að
starfa.
— Samtökin hafa ítrekað verið
að bjarga Kjaradeilunefnd, sagði
Kristján Thorlacius.
— Fá ekki
laun sín
Framhald af bls. 40
á félagssvæði Dagsbrúnar með
um 500 verkamenn. Hefði strax á
sunnudagskvöld, þegar fyrir lá að
samningar hefðu verið samþykkt-
ir, verið byrjað á þvi að vinna i
launum þessara manna og væri
unnið dag og nótt þar til þau væru
frágengin.
Guðmundur sagði ennfremur,
að aftur á móti væri enn allt óljóst
með launagreiðslur til þeirra
manna sem störfuðu hjá ríkis-
fyrirtækjunum og stofnunum, svo
sem Vegagerðinni, Vita- og
hafnarmálaskrifstofunni, Orku-
stofnun og Rafmagnsveitum ríkis-
ins. Flestir þessara manna hefðu
ekki hærri laun en svo að þau rétt
dygóu frá einni viku til annarrar,
og hjá mörgum verkamanninum
væri því tekið að kreppa töluvert
að. Hann kvaðst þó vongóður um
að viðhlítandi lausn fyndist á
.þessu vandamáli og kvaðst telja
líklegast að sú leið yrði farin að
öllum þeim verkamönnum og
iðnaðarmönnum, sem i hlut ættu,
yrði greidd föst upphæð og yrði
hún hin sama hjá öllum.
Samkvæmt upplýsingum hjá
Starfsstúlknafélaginu Sókn, en
innan vébanda þess er stór hópur
kvenna sem starfar hjá ríki og
bæjum, þá er þetta vandamál þar
ekki fyrir hendi, þar sem allar
launagreiðslur til Sóknarfélaga
eru mánaðarlegar.
— Hvergi
vinnufriður
Framhald af bls. 24
„Nemendumir
sóttu ekkert á"
„Öll kennsla i skólanum féll ni5-
ur i dag. en vi8 munum mæta á
morgun og reyna a8 taka upp
eSlilegt starf," sagBi Bjöm Bjama-
son skólameistari MT i samtali viS
Mbl. 1 bær. „Kennararnir mættu
til vinnu og krakkarnir einnig og
ég opnaSi skólann en verkfalls-
verSimir skelltu í lás aftur og tóku
sér stö5u við dymar, um 10 tals-
ins. Það kom greinilega fram, að
þeir ætluðu að loka skólanum og
nemendur sóttu ekkert á, þvi þeim
var Ijóst hvert ástandið var þegar
verkfallsverðimir tóku sér stöSu
við dymar."
„Vil ekki stofna
til áfloga nemenda
og verkfallsvarða"
Ekkert varð úr fyrirhugaðri
kennslu i Menntaskólanum við
Hamrahlið i gær þótt mennta-
málaráðherra hefði auglýst að svo
yrði. Fjölmargir nemendur sinntu
auglýsingum ráðherra og mættu
til skóla. en engum nema kennur-
um var hleypt inn þar sem nokkrir
verkfallsvarða funduðu með
rektor um réttmæti opnunar skól-
ans. Héldu verkfallsverðir vörð við
inngang skólans á meðan rektor
fundaði meS fulltrúum þeirra.
Þegar um 15 minútur voru liðn-
ar frá þvi er fyrsta kennslustund
átti að hefjast samkvæmt stunda
skrá kom rektor. GuSmundur Arn-
laugsson, út á svalir skólahússins
og tilkynnti nemendum, að ekki
væri Ijóst hvort kennt yrði, en
máliS væri i athugun. Rúmum
hálftíma siðar eða upp úr kl. 9.
komu fjölmargir kennarar út á
svalirnar. Höfðu þeir haldið meS
sér fund og samið ályktun sem
einn kennarinn, Eygló Eyjólfsdótt-
ir, las yfir nemendum. Var hún á
þá leið aS kennarar MH lýstu sam-
stöSu sinni með félögum i BSRB i
kjarabaráttu þeirra. Nokkrir viS-
staddir nemendur létu þá þau orS
falla. að þessi yfirlýsing kennar
anna yrði til þess að engin kennsla
yrSi. hvaS svo sem kæmi út úr
athugun rektors og héldu flestir
þegar á brott. Nokkrum minútum
eftir yfirlýsingu kennaranna birtist
GuSmundur Arnlaugsson á svöl-
unum og sagði að fella yrSi niður
kennslu þennan daginn. en reynt
yrði aS kenna á morgun, þ.e. i
dag. ViS svo búiS héldu allir sem
eftir voru á brott.
j spjalli viS Mbl. i gærkvöldi
sagðist GuSmundur Arnlaugsson
telja, aS ekki yrSi um neina
kennslu i skóla sinum i dag. Sagði
hann verkfallsnefnd BSRB hafa
sent bréf þar sem tilkynnt væri aS
verkfallsverSir mundu varna nem-
endum inngöngu i skólann og
væri þaS ekki vilji sinn að stofna
til áfloga með þvi aS segja nem-
endum aS reyna inngöngu meðan
hópur verkfallsvarða stæði fyrir
dyrum.
AðspurSur sagSist GuSmundur
ekki álita það verkfallsbrot. að
hann opnaSi skóladyrnar sjálfur.
— 8 skip á
Ytri-höfninni
Framhald af bls. 19
skipi að bryggju eða öðru hafnar-
mannvirki fyrr en að fengnu leyfi
tollgæzlunnar, sem einnig getur
ákveðið í samráði við hafnaryfirvöld,
hvar i höfn skipið skuli leggjast "
Niðurlagsorð bréfs BSRB eru
þessi:
..Tollafgreiðsla ofangreindra skipa
hefur ekki farið fram að öðru leyti en
þvi, að áhöfn og farþegar hafa verið
tollafgreidd. en engin tollafgreiðsla
farið fram á skipunum eða farmi
þeirra
Bandalagið vill vekja athygli tolla-
deildar fjármálaráðuneytis á þvi
alvarlega lögbroti, sem þarna yrði
framið, ef skipin leggjast að
bryggju. Samkvæmt 71 gr fyrr-
greindra laga varða brot á þeim
sektum, varðhaidi eða fangelsí.
Við bendum á, að það er á ábyrgð
tollyfirvalda, ef skipin leggjast að
bryggju."