Morgunblaðið - 14.02.1978, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRUAR 1978
3
Bílasýning
fyrirhuguð
í apríl
BÍLGREINASAMBANDIÐ ráð-
gerir að gangast fyrir bílasýningu
í Reykjavík og er gert ráð fyrir að
hún verði í byrjun apríl-mánaðar.
Skv. upplýsingum Arnar Guð-
mundssonar hjá Bllgreinasam-
bandinu er þetta þriðja sýning
sambandsins, hinar fyrri voru ár-
in 1970 og 1973.
A sýningunni í ár verða sýndar
um 150 gerðir bifreiða og eru þær
frá öllum bifreiðaumboðum sem
hérlendis eru nema einu. Sagði
Örn að sum fyrirtækin hygðust fá
hingað til lands sérstakar gerðir,
þær sem ekki væru almennt seld-
ar. Þá verða einnig sýnd ýmiss
konar verkfæri, vélar og áhöld,
eða allt sem tilheyris bílgreininni,
eins og ðrn Guðmundsson orðaði
það.
Larsen og
Miles tefla
fjöltefli
AKVEÐIÐ er að þeir Larsen og
Miles tefli fjöltefli í Reykjavík að
Reykjavikurmótinu loknu og til
greina getur komið að Poluga-
evsky fari til Akureyrar og tefli
þar. Larsen hefur samþykkt að
tefla við verkfræðinga og að lík-
indum mun Miles tefla við banka-
menn.
Vilja taka
þátt í hrað-
skákmóti
ERLENDU skákmennirnir, sem
nú tefla á Reykjavikurskákmót-
inu hafa sýnt áhuga á að taka þátt
í hraðskákmóti í Reykjavík áður
en þeir yfirgefa landið. Einar S.
Einarsson forseti Skáksambands-
ins sagði í samtali við Morgun-
blaðið á sunnudag, að ekki væri
vitað hvenær gæti orðið af þessu
móti, en reynt yrði að koma því á,
áður en allir erlendu skák-
mennirnir færu af landinu. Sagð-
ist Einar búast við að auk þeirra
og Islendinganna sem taka þátt i
Reykjavíkurmótinu, myndu ein-
hverjir fleiri Islendingar taka
þátt í því.
Sérstakt
pósthús á
skákmótinu
SÉRSTAKT pósthús frá Póststof-
unni f Reykjavík verður opnað á
Hótel Loftleiðum á fimmtudag, í
tilefni af 8. Reykjavíkurskákmót-
inu.
A pósthúsinu verður notaður sér-
stimpill, sem aðeins verður i
gangi þennan eina dag, en þá fer
fram 11. umferð skákmótsins, og
verður afgreiðslutíminn frá kl.
14—18.00. I fréttatilkynningu frá
Skáksambandinu segir, að til sölu
verði á mótsstað m.a. 5 gerðir
frímerkjaumslaga, sem Skáksam-
band Islands hafi látiö útbúa. Þau
sé hægt að panta í síma Sl. 27570
frá kl. 15—16.30 virka daga eða
með þvi að skrifa í pósthólf 674,
Reykjavík.
Lýst eftir bifreið
Rannsóknarlögreglan lýsir eftir
bifreiðinni R-47640, sem stolið
var frá Möðrufelli 15, aðfaranótt
laugardags. Þetta er Ford-Cortina
árgerð 1970, brúnsanseruð að lit.
Guðlaug Þorsteinsdóttir hefur þegar tekið forystu á Reykjavíkur-
skákmóti kvenna. Hér er Guðlaug að tefla við Sigurlaugu Frið-
þjófsdóttur. Lj(>sm Mbl.: ÓI.K.M
Guðlaug efst
AÐ LOKNUM þrem umferðum
á Reykjavíkurmóti kvenna í
skák er Guðlaug Þorsteinsdótt-
ir efst með 3 vinninga af 3
mögulegum. Jana Hartston frá
Bretlandi er búin að tefla tvær
skákir og hefur hlotið tvo vinn-
inga, Birna Nordahl er með 1
vinning úr 2 skákum, ennfrem-
ur Olöf Þráinsdóttir, og þær
Aslaug Kristinsdóttir og Sigur-
laug Friðþjófsdóttir eru með 1
vinning úr þrem skákum, lest-
ina rekur Svana Samúelsdóttir
með engan vinning eftir 3 skák-
ir.
Mikil ófærð
vegna snjóa
SNJÖKOMA og skafrenningur spilltu mjög færð á vegum um landið
um helgina og í gær.
I gær var fært frá Reykjavík í Borgarfjörð og til Búðardals, en
fjallvegir á Snæfellsnesi voru þungfærir vegna skafrennings. Vestur
frá Búðárdal var aðeins stórum bílum fært í Reykhólasveit.
Holtavörðuheiði var orðin þungfær í gær og þar var skafrenningur
og einnig gerði skafrenningur orðið þungfært um Húnavatnssýslur.
Ófært var til Hólmavíkur, Siglufjarðar og Ólafsfjarðar. Öxnadalsheiði
var fær stórum bílum í gær, en þar var skafrenningur. Fært var frá
Akureyri til Húsavíkur um Dalsmynni, en ófært um Tjörnes og úr
Kelduhverfi komust stórir bílar til Þórshafnar, en þar fyrir austan var
allt ófært.
A Austurlandi var færð farin að þyngjast á Héraði i gær. Ráðgert var
að opna Fjarðarheiði, en við það varð að hætta. Oddsskarð var ófært.
Stórir bílar komust suður með fjörðum og úr því kom i Berufjörð varð
greiðfært suður um. Ófært var í Mýrdalnum, en í gær var mokað í
vestur frá Vík og i dag á að moka í austur.
I uppsveitum Arnessýslu var mokað í gær, en undir kvöldið var útlit
fyrir að allt myndi fylla aftur. Hellisheiði var rudd í gær.
I gær átti að ryðja milli Patreksfjarðar og Bíldudals, en samkvæmt
siðustu fréttum voru allir f jallvegir á Vestfjörðum ófærir.
x Hafir þú gert
góð kaup á útsölunni
munt þú gera
enn betri kaup núna.
Látiö ekki happ
úr hendi sleppa
TÍZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS
KARNABÆR
Utsölumarkaðurinn
LAUGAVEG 66 SÍMI FRÁ SKIPTIBORÐI 28155