Morgunblaðið - 14.02.1978, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRUAR 1978
19
KEPPNIN í 1. deild tslandsmótsins í handknattleik byrjaói ad nýju á laugardaginn eftir fjögurra
mánaða hlé, sem gert var vegna undirbúnings og þátttöku landsliðsins í HM í Danmörku. A
laugardaginn léku Haukar gegn Víkingi í Hafnarfirði og varð jafntefli, 19:19. Að þeim leik loknum
léku FH og KR og sigruðu FH-ingarnir í leiknum. Re.vndist Geir Hallsteinsson KR-ingum erfiður, en
hann er einmitt þjálfari Vesturbæjarliðsins. Lið FH, Vikings og Hauka eru taplaus í mótinu og hafa
FH-ingar ekki tapað stigi. A meðfylgjandi mynd Ragnars Axelssonar er það Janus Guðlaugsson, sem
sækir að vörn KR og koma þeir Ingi Steinn og Sfmon engum vörnum við. í opnu blaðsins er greint frá
þcssum leikjum og á blaðsíðu 21 er greint frá leikjum Fram gegn Armanni og tR á móti Val, en þessir
k-ikir fóru fram í gærkvöldi.
Sigurður og Jóhann
beztir á KR-mótinu
ÞEIR Sigurður Ilaraldsson og Jóhann Kjartansson, TBR, voru hinir sterku á opnu tvíliðaleiksmóti í
badminton, sem KR gekkst f.vrir á laugardaginn. 1 úrslitum unnu þeir „erkióvinina" Harald Kornelíus-
son og Steinar Petersen. Höfðu Sigurður og Jóhann nokkra vfirburði í úrsiitaleiknum, en leikirnir í
undanúrslitum voru hins vegar mjög skemmtilegir. Það vakti t.d. athvgli hve vel þeir stóðu sig í mótinu
Öskar Guðmundsson og Eiríkur Ölafsson, KR.
Urslit í mótinu urðu þessi:
Meistaraflokkur karla:
Úrslit:
SigurðurHaraldsson og Jóhann
Kjartansson, TBR, unnu Harald
Kornelíusson og Steinar Peter-
sen, TBR, 15:9, 15:4.
Undanúrslit:
Haraldur og Steinar unnu Ósk-
ar Guðmundsson og Eirík Olafs-
son, KR, 9:15, 15:9, 15:12.
Sigurður og Jóhann unnu Sig-
fús Ægi Árnason og Brodda
Kristjánsson, TBR, 15:7 og 15:14.
A-flokkur:
Urslit:
Sigurður Þorláksson og Hjalti
Helgason, KR, unnu Guðmund
Adolfsson og Skarphéðin Garðars-
son, TBR, 15:3 og 15:6.
Undanúrslit:
Sigurður og Hjalti unnu Sigurð
Agúst Jensson og Agúst Jónsson,
KR, 15:10 og 15:13.
Guðmundur og Skarphéðinn
unnu Ragnar Ragnarsson og
Hrólf Jónsson, Val, 15:11 og 15:8.
Konur:
Urslit:
Kristín Magnúsdóttir og Kristín
Kristjánsdóttir, TBR, unnu Vil-
disi Kristmannsdóttur, KR, og
Önnu Njálsdóttur, TBR, 15:5 og
15:6.
Undanúrslit:
Kristin og Kristín unnu Sif
Friðleifsdóttur og Örnu Steinsen,
KR, 15:12 og 15:8.
Vildis og Anna unnu Sigriði
Jónsdóttur og Jórunni Skúladótt-
ur, TBR, 15:8 og 15:6. — SA
ÓVÆNT Ú RSLITI
HBMSBIKARNUM
BANDARtKJAMAÐURINN Phil Mahre vann
nokkuð óvæntan sigur yfir Ingemar Stenmark í
svigkeppni heimsbikarsins f Chamonix í Frakk-
landi á laugardag. Forysta hins tvítuga Banda-
ríkjamanns var aðeins 6/100 úr sekúndu eftir
fyrri ferðina, en í þeirri síðari gekk honum mjög
vel og fékk samanlagðan tíma 1:58.26, en Inge-
mar Stenmark varð i öðru sæti á 1:59.85. ttalinn
Paolo Dechiesa varð þriðji á 2:00.49.
_________________________________
1 brunkcppni, einnig á laugardaginn, voru
Kanadamenn sigursælir og Ken Read sigraði,
kom í mark á 16/100 úr sekúndu betri tíma en
landi sinn Dave Murrav. Þriðji varð V-
Þjóðverjinn Miehael Veith. Athvglisvert við
brunkeppnina var að heimsmeistarinn Josef
Walcher varð sjötti og Franz Klammer náði að-
eins 13. sæti.
HM-FARARNIR
STERKASTIR Á
PUNKTAMÓTINU
PUNKTAMÓT í svigi fór fram á Húsavík á laugardag-
inn, en stórsvigsmótinu, sem fram átti aó fara á sunnu-
daginn, vard að aflýsa vegna veðurs, snjóleysis og bilana
í tímatökutækjum. Verður stórsvigsmótið líklega haldið
á Akureyri síðar.
Sigurvegari í svigi karla varð
Haukur Jóhannsson og fékk hann
2'A sekúndu betri tíma en hinn
keppandi íslands í Heimsmeist-
arakeppninni á dögunum, er var
með í mótinu, þ.e. Hafþór Júlíus-
son. Höfðu þeir félagarnir nokkra
yfirburði yfir aðra keppendur, en
megn óánægja kom fram með
tímatöku og fannst mörgum hún í
meira lagi ónákvæm. I stúlkna-
flokki voru Reykjavíkurstúlkurn-
ar Ásdis og Ása Hrönn sterkastar,
en Margrét Baldvinsdóttir kom í
þriðja sæti.
Alls tóku 32 piltar þátt í keppn-
inni og 12 stúlkur. Luku stúlkurn-
ar allar keppni, en 11 piltar hættu
eða voru dæmdir úr leik. Þokka-
legt veður var meðan keppnin fór
fram á laugardag, en snjóleysi
gerði framkvæmd þó erfiða.
ÚKSUT 1 SVIGI KARI.A:
1. Haukur Jóhannss. Ak
2. Hafþór Júlíusson Is
3. Bjarni Siguróss. II
4. Karl Frímannss. Ak
5.-6. Kristinn Si«uróss. Rvk.
5.-6. Arnór Magnúss. Ís
7. Einar Valur
Kristjánsson Is
8. V: Iþór Þorgeirss. II
,9. Yalur Jónatanss. ís
10. Björn Vfkingss. Ak
43.8 32,6 76,4
43,0 33,9 76,9
45.5 34,6 80,1
44.5 36,5 81,0
46,0 35,4 81,4
46.0 35.4 81.4
44.2 37.4 81,6
46.1 36,0 82.1
46.2 36,0 82,2
46.7 36.1 82.8
SVI<; KVKNNA:
1. Asdís Alfrcdsd. R\ k
2. Asa II. Sæmundsd. Rvk
3. .Margrót Baldvinsd. Ak
4. (iuörún Leifsd. Ak
5. Ilalldóra Björnsd. R\ k
6. Jónfna Jóhannsd. Ak
38.4 39.3 77,7
40.0 38.3 78.3
40.3 41.4 81.7
41.3 40.6 81,9
41,6 40.5 82,1
41.5 41.3 82.8
Þau Sigurður T. Sigurðsson og Berglind Pétursdótt-
ir stóðu sig bezt og urðu stigahæst einstaklinga á
meistaramótinu í fimleikastiganum, sem haldið var
um helgina. Margt efnilegt fimleikafólk sýndi hæfni
sína á mótinu og þeirra á meðal stúlkan, sem sýnir
æfingar á gólfi á myndinni hér fyrir neðan. Á næstu
blaðsíðu er greint frá úrslitum í mótinu. i Jósm. Friöþjófur.