Morgunblaðið - 14.02.1978, Side 33
41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚÁR 1978
AI
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10—11
FRÁ MANUDEGI
væri ein af beztu myndum Elvis
Presleys, meira að segja skrifuðu
þið það í Mbl.
Jæja, svo á sýningin á myndinni
að hefjast en þá fer rafmagnið,
svo ég sá ekki nema smá hluta úr
miðri myndinni og endinn. Og það
hafa verið fleiri en ég sem sáu
ekki meira af myndinni. Svo mér
þætti ekkert mikið af sjónvarpinu
að það endursýndi myndina, þeir
hafa ekki minnst svo mikið á
rokkkónginn Elvis Presley, ég
held að frétt hafi komið einu
sinni í fréttatíma um lát hans og
svo i fréttayfirlitinu á gamlárs-
dag.
Eg vona að það verði fleiri sem
senda í blöðin eða hringja i sjón-
varpið til að fá myndina endur-
sýnda.
Elfsabet Jónsdóttir.,,
0 Gatnasalt —
grautarsalt
„Söltunarstarfsemi á gatna-
kerfi Reykjavikurborgar hefur
lengi verið úr hófi fram, en aldrei
eins og nú. Varla bregst það, að
búið sé að salta flestar götur kl. 7
að morgni, jafnvel þótt gaddfrost
sé og götur svo þurrar, að allir
nema hörðustu ökuníðingar
hljóta að geta stansað bíla sina.
Þarna virðist vera sóað tugum
eða hundruðum milljóna, engum
til gagns nema saltseljendum og
svo þeim, sem hafa af þessu at-
vinnubótavinnu, á næturkaupi.
Nýlega skrapp ég upp í Bláfjöll
á laugardagsmorgni með ungt
fólk á skiði. Þá höfðu söltunar-
meistarar borgarinnar verið þar á
ferð og atað út skrælþurran veg-
inn í hörku frosti.
Kannski hafa þeir verið að salta
Gvendarbrunnavatnið, svo borg-
ararnir þurfi ekki í framtíðinni
að eiga „salt i grautinn".
Sveinn Indriðason."
Þessir hringdu . . .
0 Um fíkniefnamenn
Fyrir stuttu var greint frá
beiðni er sögð var vera frá sauma-
klúbbi isfirzkum um nafnbirting-
ar kynferðisafbrotaanna. Eitt-
hvað virðist sú beiðni hafa skolazt
til hjá Velvakanda því þær ís-
firzku vilja engan þátt eiga i nafn-
birtingu þeirra, en áttu hins veg-
ar við fikniefnasala. Sögðu þær að
erfitt væri að varast slika menn í
litlum plássum úti um land,
mönnum er e.t.v. kæmu úr varð-
haldi og reyndu siðan að hefja
fyrri iðju sína á ný og mynda
„sambönd" við fólk á þessum
stöðum. Væri það oft svo að menn
þessir væru að lcita fyrir sér með
vinnu og kæmu undir þvi yfir-
skyni, en hefðu siðan aðra og
verri starfsemi með höndum. Fór
hinn isfirzki saumaklúbbur sem
sé fram á að nöfn þessara manna
yrðu birt þegar þeir hefðu verið
dæmdir, þannig að menn vissu
hverja iðju þeir hefðu fyrrum
lagt stund á jarðvel þótt ekki væri
svo lengur.
0 Góðir þættir
5780—6184:
Ég vil fá að þakka fyrir og
vekja athygli með nokkrum orð-
um á þáttum Geirs V. Vilhjálms-
sonar er hafa verið í útvarpinu að
undanförnu á sunnudagskvöld-
um. Það er mjög þarft að taka til
umræðu það sem þarna er á ferð-
inni og þessi mál varða almenning
mjög miklu, þ.e. hvert stefnir nú i
hcilsugæzlumálum. Meðal annars
kom það fram siðast að fjarlægðar
eru á lyfjaglösum teiðbeiningar,
sem þar eiga að vera og sagði
einhver meinatæknir frá því að
honum hefði verið meinað um
þessar leiðbeiningar. Þá kom
fram ágæt hugmynd frá Olafi
Mixa um að leysa á einfaldan hátt
vandamál hinna öldruðu og
barnagæzluvandamál. sem sé að
þeim öldruðu verði gefinn kostur
á að gæta barna. Með þvi fá þau
að sinna börnum, fá verkefni, sem
þáu e.t.v. hefur vantað og þá fá
börnin að umgangast aðra en for-
eldra sina, fá að umgangast gamla
fólkið, sem sannarlega mætti vera
meira, og læra af þyi.
HÖGNI HREKKVÍSI
Okkur leiðist ekki biðin — þarft ekki að skemmta
okkur.
— Kosningar í
Frakklandi
Framhald af bls. 11
áhrifariku yfirlýsingu sinni í
kjölfar ræðu Giscards að flokk-
ur kommúnista hefði fallið frá
þeirri eindregnu kröfu að
endurskoðun hinnar sameigin-
legu stefnuskrá væri algert
skilyrði fyrir þvi að vinstri
flokkarnir störfuðu saman i rík-
isstjórn.
Engin vinstfi
stjórn?
Nokkuð væri hæft i þvi að slá
þvi fram, að kommúnistar
mundu fúsir til þátttöku i
myndun rikisstjórnar vinstri-
manna ef þeir komu svo sterkir
út úr kosningunum að þeir
stæðu nokkurn veginn jafnfæt-
is jafnaðarmönnum. Svo fram-
arlega sem kommúnistar gætu
aflað sér aukaatkvæða á kostn-
að einhvers annars en jafnaðar-
manna. En staðrcyndin er sú,
að bezti möguleiki Marchais á
því að fá meiri fylgi en 21 af
hundraði er að draga atkvæði
frá Mitterand.
Vegna baráttuaðferðar
kommúnista verður kosninga-
barátta jafnaðarmanna og
kommúnista eins illskeytt og
kosningabarátta vinstri og
hægri manna, þótt hin afdrifa-
ríka ræða Giscards hafi sett
strik i reikninginn og Marchais
sé fallinn frá kröfu sinni um
endurskoðun á stefnuskrá eins
og fyrr segir.
Takist Marchais að ná þvf
marki að fá meira en 21 af
hundraði i fyrri umferð kemst
hann nálægt þvi að rétta við
valdajafnvægið á vinstra
vængnum. Sennilega tekst hon-
um þá einnig að tryggja að
kommúnistar hafi betur en
frambjóðendur jafnaðarmanna
i fjölmörgum kjördæmum og
þar með hefur hann rétt til þess
að fara fram á það i siðari um-
ferðinni að aafnaðarmenn ljái
kommúnistum atkvæði sin.
En raunar getur svo farið að
kommúnistum verði lftið gagn
af slikum atkvæðaskiptum i síð-
ari umferðinni ef þeir gera
kjósendum jafnaðarmanna svo
gramt i geði að þeir neiti að ljá
þeim atkvæði.
Verið getur að kosningabar-
átta, scm háð er við slik skil-
yrði, komi af stað svo mikilli
úlfúð milli jafnaðarmanna og
kommúnista að sameiginlegur
sigur þeirra gæti ekki leitt til
stjórnarsamvinnu.
Barátta Mitterand
stenzt vel
samanburð við
„kák“ forsetans
Mitterand er báráttuuænn en
jafnvel pólitizkur .Napóleon
gæti ekki með hægu móti leyst
vanda hans nú. Hann segir að
vinstri menn geti þótt sundrað-
ir séu tryggt sér sameiginlegan
þingmeirihluta. Sá möguleiki
er fyrir hendi að Mitterand
biðji Marchais að samþykkja
stefnu byggða á útgáfu jafn-
aðarmanna á hinni sameigin-
legu vinstri stefnuskrá, sem nú
er dauð
Hann hlýtur að vita að
Marchais gæti ekki fallizt á
slikt hvort sem um er að ræða
25 eðæ20 af hundraði atkvæða.
Ekki verður heldur með góðu
móti séð hvernig jafnaðarmenn
geti stjórnað einir. Mitterand
og samstarfsmenn hans hafa
kannað þá hugmynd en þeir
vtlja helzt forðast vandræðin,
sem portúgalskir jafnaðarmenn
hafa komizt i þar scm minni-
hlutastjórn þeirra féll fyrir ára-
mót. Auk þess óttast jafnaðar-
men að þcir fái varanlegt óorð á
sig ef þeir gera tilraun til að
stjórna skamma hrið, þar sem
það gæti orðið til þess að þeir
kæmust ekki i stjórn um árabil.
Ætla vinstri menn þá að koma
hægri mönnum aftur til vaida.
Svo þarf ekki að vera. Almcnn-
ur áhugi er á breytingu i Frakk-
landi eftir tveggja áratuga
hægri stjórn og baráttu Mitter-
ands fyrir þjóðfélagsumbótum
stenzt vel samanburð við hálf-
kert kák Giscards d'Estaing síð-
ustu þrjú árin. En stjórnin varð
dálitið trúverðugri þegar Barre
forsætisráðherra boðaði stefnu-
skrá sfna.
Barre: Framþróun
án byltingar
Hugmyndir Barres hafa að
geyma góðan umbótavilja i
anda frjálslyndisstefnu Gis-
cards. Barre leggur m.a. til að
Frakkar taki upp „habcas
corpus" (þ.e. þá reglu :ð tit
þurfi að koma skipun til að
leiða menn fýrir dóniara) en
það fyrirkomulag i lagakcrfi
Engilsaxa hafa Frakkar lengi
dáðst að og talið höfuðkost laga-
kerfis þeirra fyrrnefndu. Sjálf-
ir hafa þeir ekki þorað að taka
það upp í lög sín um gæsluvarð-
hald, sem eru ekki nærri cins
frjálslynd.
Stefnuskráin í efnahagsmál-
um mun ekki „frelsa heiminn"
en sainkvæmt henni er siglt
fram hjá þeirri hættu að verð-
bólgan magnist.
Grunntónninn i stefnuskrá
Barres er „framþröun án þylt-
ingar", hugmynd sem fjölda-
mörgum Frökkum fellur veæ i
geó- Það sem líklega hefur þó
haft meiri áhrif á Frakka varð-
andi stefnuskrá Barre, var það
sjónarspil, sem hann setti á
svið, þegar hann kynnti hana að
viðstöddum öllum ráðherrum
stjórnarinnar.
Eini áhrifamaðurinn. sem
ekki var viðstaddur, var
Jacques Chirac, hinn skapstóri
fyrrverandi forsætisráðherra,
sem reynir að gera stöðu Gaull-
istaflokksins sem sterkasta i
bandalagi mið- og hægri flokka.
1 fyrrihluta kosninganna
munu þvi gaullistar ekki siður
en kommúnistar keppa fyrst og
fremst að þvi að sigur þeirra
verði sem stæ__tur, en öfugt
við kommúnista leikur enginn
vafi á því að gaullistar muni
styðja bandamenn sina i siðari
umferðinni.
Og þótt ágreiningurinn sé
nokkur milli núverandi forsæt-
isráðherra Barres og fyrrver-
andi forsætisráðherra Chirac er
hann þó aldrei cins mikill og á
milii Marchais og Mitterand.
Þótt samvinna hægri manna
sé skrikkjótt ganga þeir sam-
einaðir til kosninganna en það
verður ckki sagt unt vinstri
menn, hvað sem siðar kann að
gerast. Þvi má telja að kosning-
ar þessar verði mjög tvísýnar
þótt skoðanakannanir hafi
hingað til spáð vinstri mönnum
sigri. — H.Þ. tók saman úr
L.’Express. Le Monde og The
Economist.
Mótmæla
banninu
NOKKRIR aðilar hafa sent rfkis-
saksóknara mótmæli vegna af-
skipta hans af fyrirhuguðum sýn-
ingum á japönsku myndinni
Veldi tilfinninganna, sem felldar
• voru niður. Nemendur við Mynd-
lista- og handfðaskólann hafa
mótmælt þessu svo og fundur
kennara og nemenda í Flensborg-
arskóla f Hafnarfirði, en Mbl. hef-
-ur borizt bréf þess fundar er
hljóðar svo:
Hr. ríkissaksóknari
Þóröur Björnsson
Fundur kennara og nemenda
Flensborgarskólans í Hafnarfirði
mótmælir því harðlega að þú í
krafti þíns embættis hafir látið
banna sýningar á kvikmyndinni
„Veldi tilfinninganna” eftir jap-
anska leikstjórann Nagisa
Oshima.
Við mótmælum því að þú skulir
leyfa þér að úrskurða kvikmynd,
sem vakti geysilega athygli i
Cannes ‘76 og margir vildu kalla
einstætt listaverk, kvikmynd, sem
breska kvikmyndastofnunin kaus
bestu mynd ársins ‘76 klám er
varði við lög að sýna á þessari
fyrstu kvikmyndahátið Islands.
Þætti okkur fengur i að vita hvort
þú hyggst einnig ákvarða hver
verði leyfileg dagskrá listahátíðar
á sumri komanda.
Okkur þykir það næsta óheilla-
vænleg þróun að geöþóttaákvörð-
un embættismanna hins opinbera
skeri úr um hvað er list og hvað
ekki.