Morgunblaðið - 12.08.1978, Qupperneq 1
48 SÍÐUR OGLESBÓK
172. tbl. 65. árg.
LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Ágreiningur um
framsal nryð ju-
verkamanna
Lík þessi voru til sýnis í Umtali í Rhódesíu í gær, og segja yfirvöld þau vera af
skæruliðum úr hópi þeirra, sem myrtu brezka trúboða og skyldulið þeirra, alls 12
manns, skammt frá landamærum Rhódesíu og Mósambique fyrir fáeinum vikum.
(AP-símamynd) Sjá bls 16.
Tékkóslóvakía:
Erlendir blaðamenn
verða fyrir aðkasti
Ráðherraheimsókn aflýst í mótmælaskyni
Bonn 11. ágúst — Reuter
Utanríkisráðherrum Vest-
ur-Þýzkalands og
Júgóslavíu mistókst að ná
samkomulagi um gagn-
kvæmt framsal hryðju-
verkamanna á fundi sínum
í dag, og hafa þeir lýst því
yfir að ágreiningsefni af
þessu tagi verði að útkljá
fyrir dómstólum. Dómstóll
í Köln úrskurðaði í dag, að
framselja megi einn þeirra
átta Króata, sem eru í
haldi í Vestur-Þýzkalandi
og Júgóslavíustjórn krefst
að fá framselda svo hægt sé
að sækja þá til saka í
Júgóslavíu.
Gullið upp —
dalurinn niður
Lundúnum — 11. ágúst — AP
Bandaríkjadalur rak
smiðshöggið á ófarir vik-
unnar með því að hleypa
gullverði enn upp úr öllu
valdi og falla meira gagn-
vart vestur-þýzku marki og
svissneskum franka en áð-
ur hefur þekkzt. Fjármála-
spekingar eru yfirleitt
sammála um að dalurinn
hafi ekki í annan tíma
verið svo trausti rúinn á
markaðnum. Við lokun
stóð bandaríkjadalur í
1.6455 svissneskum
franka, og 1.9688 v-þýzku
marki.
Gullverðið hélt eins og fyrr segir
áfram að hækka, og við lokun
síðdegis var únsan seld á 211.15
bandaríkjadali. Silfur er einnig að
hækka í verði.
Mál þriggja annarra Króata
hafa komið til kasta vestur-þýzkra
dómstóla að undanförnu, en í þau
skipti hefur úrskurður orðið á þá
lund að þeir skyldu ekki framseld-
ir. Júgóslavar settu fram kröfur
um framsal Króatanna eftir að
fjórir alræmdir hryðjuverkamenn
frá Vestur-Þýzkalandi voru hand-
teknir í Júgóslavíu. Þeir hafa enn
ekki verið sendir til síns heima svo
hægt sé að sækja þá til saka þar,
en þeirra á meðal eru Birgitte
Mohnhaupt og Rolf Clemens
Wagner, sem eftirlýst eru vegna
morðsins á Hanns-Martin Schley-
er. Júgóslavnesk stjórnvöld halda
því fram að framsalskrafa þeirra
standi ekki í sambandi við mál
v-þýzku hryðjuverkamannanna,
heldur sé það réttmæt krafa og í
samræmi við samning ríkjanna að
Króatarnir verði framseldir þar
sem þeir séu sakaðir um árásir á
júgóslavneskar stjórnarskrifstof-
ur, sem samvkæmt alþjóða-
samningum teljist júgóslavneskt
yfirráðasvæði.
ELF viðurkennir
ósigur í Eritreu
Damaskus — 11. ák'úst — AP
AHMAD Mommed Nasser, for-
svarsmaður ELF-aðskilnaðar-
hreyfingarinnar í Erítreu, viður-
kenndi í dag að stjórnarherinn í
Eþíópíu hefði að undanförnu sótt
mjög fram í héraðinu og hefði
náð allmörgum bæjum af aðskiln-
aðarsinnum, þar á meðal Agor-
dat, sem er hernaðarlega mjög
mikilvægur staður. Ber fullyrð-
ingum Nássers saman við upplýs-
ingar útvarpsins í Addis Abeba
um töku Agordat.
ELF hefur haft mest áhrif í
vesturhluta Erítreu. Að undan-
förnu hefur ELF tapað mörgum
fylgismönnum til annarrar erí-
treískrar aðskilnaðarhreyfingar,
EPLF, sem er skipuð sýnu harð-
fylgnari baráttumönnum en fyrr-
nefnda hreyfingin.
Briissel — 11. ágúst — Reuter
Innanríkisráðherra
Belgíu, Henri Boel, hefur
aflýst heimsókn sinni til
Tekkóslóvakíu síðar í þess-
um mánuði í mótmæla-
skyni við brottrekstur
virts belgísks blaðamanns,
Hugo Camps, í gær. Camps
hafði ekki stundlegan frið
fyrir tékkneskum yfirvöld-
um meðan hann var við
störf í landinu, og sömu
sögu hafa tveir norskir
blaðamenn að segja.
Norska blaðamannasam-
bandið hefur mótmælt með-
ferðinni á þeim harðlega
við Gustav Husak forseta
Tékkóslóvakjíu.
Hugo Camps og Norðmennirnir,
sem eru blaðamenn Aftenposten,
voru í Tékkóslóvakíu þeirra erinda
að kynna sér ástandið í landinu tíu
árum eftir innrás Sovétmanna.
Aftenpostenmennirnir voru kyrr-
settir í Prag á þriðjudaginn var og
tóku yfirvöld farangur þeirra í
sína vörzlu. Þeir fengu leyfi til að
yfirgefa landið í fyrradag, en þá
höfðu yfirvöld eyðilagt fyrir þeim
tvær ljósmyndafilmur. Norðmenn-
irnir fengu á hinn bóginn að halda
vinnuplöggum sínum, en öll skjöl
Belgans voru gerð upptæk.
Belgíska utanríkisráðuneytið
hefur krafizt skýringa á því að
Camps var haldið í yfirheyrslum í
tvo sólarhringa samfleytt áður en
hann var rekinn úr landi, um leið
og meðferðinni á honum var
mótmælt og í því sambandi vísað
til undirritunar Tékka og Belga á
Helsinki-sáttmálanum, sem meðal
annars kveður á um frjálsa
upplýsingamiðlun.
Landbimaðar-
sýning 1978
MORGUNBLAÐINU í dag fylgir
12 síðna aukablað í tilefni af
Landbúnaðarsýningunni, sem nú
stendur yfir á Selfossi. Blaðamenn
Morgunblaðsins heimsóttu nokkra
sunnlenzka bændur og birtast
samtöl við þá í aukablaðinu. Þá er
rætt við forsvarsmenn afurðasölu-
félaga bænda á Suðurlandi og sagt
frá starfi Búnaðarsambands
Suðurlands, en Landbúnaðarsýn-
ingin er haldin í tilefni af 70
afmæli Búnaðarsambandsins.
Gífurlegar örygg-
isráðstafanir við
útför Páls páfa í dag
Vatíkaninu — 11. ágúst — Reutrr
MIKILL viðbúnaður er í Vatíkan-
inu og í Róm vegna útfarar Páls
gáfa sjötta, sem fram fer í dag.
Aætlað er að 100 þúsund manns,
hið fæsta, safnist saman á torginu
fyrir framan Péturskirkjuna, en í
erfðaskrá páfa, sem birt var í
dag, koma fram óskir um látlausa
athöfn. Tugþúsundir pílagríma
og trúrækinna Rómverja þyrpt-
ust í Péturskirkjuna í dag, en
samkvæmt sérstakri ákvörðun
var lík páfa haft á viðhafnarbör-
um lengúr en ætlað var í fyrstu
til þess að sem flestir fengju
tækifæri til að líta það augum
hinzta sinni.
Tugir þúsunda öryggisvarða og
hermanna munu fylgjast með
útförinni í dag, en mjög er óttazt
að hryðjuverkamenn freistist til
að láta til skarar skríða þar sem
margt stórmenni verður saman
komið við athöfnina.
I erfðaskránni, sem hinn látni
páfi ritaði eigin hendi, biður hann
fyrirgefningar „hvern þann, sem
ég kann að hafa misboðið, gert
rangt til, ekki þjónað, ekki elskað
nógu mikið ... “. Það er mál
manna að óskir þær, sem fram
koma í erfðaskránni séu enn ein
staðfestingin á þeirri auðmýkt,
sem öðru fremur hafi auðkennt
hans heilagleika. Veraldlegar eig-
ur sínar eftirlætur hann páfastóli,
að undanskildum fáeinum per-
sónulegum munum, sem hann
ánafnar nánpm ættingjum og
vinum.
Er útförin í dag hefur farið fram
hefst níu daga opinber sorgartími
í páfagarði, en kardinálasam-
kunda, sem kýs nýjan páfa, kemur
saman 25. ágúst.