Morgunblaðið - 12.08.1978, Page 3

Morgunblaðið - 12.08.1978, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1978 3 Síðumúla 23 - Sími 842(X) Nú er rétti tíminn til að tryggja sér falleg húsgögn á viðráðanlegu verði. Húsgagnasýning Forsetinn lauk máli sínu með því aö segja að sýningin væri í raun og veru Búnaðarbálkur í sérstakri útgáfu á nútíma vísu, í sýnilegri og áþreifan- legri myndí eintómra oröa staö, í senn varnarræða, kynning og hvatning. Óskaöi forsetinn Búnaöar- sambandinu til hamingju meö sýninguna og 70 ára afmæliö og opnaöi þessu næst sýninguna. í dag, laugardag, verður sýningin opnuö kl. 10 og hún verður opin til kl. 23. Alla daga sýningarinnar verða í gangi ýmsar sérsýningar og má nefna aö heimilisiðnaðarsýningar veröa allan daginn, sýnikennsla veröur á vegum afuröasölufélaga landbúnaöarins kl. 14, 16, 18 og 20 alla dagana. Af einstökum sérsýning- um í dag má nefna að kl. 13 verða nautgripir sýndir, kl. 15, 18 og 21 veröa tízkusýningar á ullar- og skinnafatnaöi, klukkan 16 veröa hryssur sýndar kl. 17 verður skóg- ræktarstarfsemi kynnt og frá kl. 16.30 og fram undir kvöld verður opin hestaleiga. Sjá ræöu forseta íslands viö opnun sýníngarinnar „Brýning um aö nýta og vernda gæöi landsins" é bla. 31. Á aýningunni eru hinar ýmau teg- undir búfjár sýndar. Hér má sjá hvar Gunnar Guóbjartsson formaður Stéttarsambanda bænda viröir fyrir sér hrossin á sýning- unni. Dúna Síöumúla 23 heldur sýningu um helgina á allskonar húsgögnum og húsbún- aöi í dag kl. 13.30—18.00. í tilefni sýningarinnar höfum viö fengið mjög mikið úrval af enskum húsgögnum, sem aldrei fyrr hafa fengist hér á landi. Ráöstefna hinna norrænu samtaka er vinna að slysavörnum hver í sínu landi hófst í húsakynnum Slysavarnafélags íslands í gærmorgun. Þar bera forsvarsmenn þessara samtaka saman bækur sínar, skiptast á skoðunum og reynslu á sviði hinna margvíslegu þátta slysavarna. Ljósm. Mbi. Emelía. CHiPPV Komiö og skoðið húsgögnin °g húsmunina frá Old Charm, Beutilux, CabinetExport, Abbey Craft, Chippy 60 ár síð- an fyrsta dráttarvél- in kom til landsins Akranosi. 11. ÚKÚst 60 AR eru liðin frá því í dag, að fyrsta dráttarvélin kom til íslands. Hún var keypt hingað af þeim frændum Þórði As- mundssyni og Bjarna Ólafs- syni, útgerðarmönnum hér á Akranesi. Stefán B. Jónsson kaupmað- ur í Reykjavík útvegaði tækið, sem hét Ávery, ásamt plógum, herfum og áburðarvagni. Vélin kom hingað með gamla Gull- fossi frá Bandaríkjunum hinn 12. ágúst 1918 sem áður getur. Stuttu síðar hóf Jón Sigur- mundsson vélamaður, sá er ók fyrsta Fordinum hér á landi sett hafði vélina saman og kennt Sveinbirni Oddssyni, síðar formanni Verkalýðsfélags Akraness, meðferð hennar, erf- itt landbrot með henni á Elínarhöfða hér á Akranesi. Einnig voru plægðir stórir kartöfluakrar á sandbökkum við Os í Skilamannahreppi, þar sem þeir félagar hófu tilraunir með umfangsmikla kartöflu- rækt. Nú er ekkert eftir af þessari dráttarvél nema ljós- myndir, og kveikjan, sem er á byggðasafninu í Görðum. —Júlíus Hagsýslustjóri til Alþjóda- bankans og nýr í hans stað Morgunblaðinu hefur borizt eftir farandi frétt frá Fjárlaga og hagsýslustofnuni Fjármálaráðherra hefur veitt dr. Gísla Blöndal, hagsýslustjóra, leyfi frá störfum í Fjárlaga- og hagsýslustofnun, þar sem hann mun taka sæti varafulltrúa Norðurlanda í framkvæmdstjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington næsta tímabil. Tekur hann við því starfi 1. nóvember n.k. I fjarveru hans hefur fjármála- ráðherra sett Brynjólf I. Sigurðs- son, dósent við viðskiptadeild Háskóla Islands, hagsýslustjóra ríkisins frá 1. september n.k., um tveggja og hálfs árs skeið. Jafn- framt hefur menntamálaráðherra veitt Brynjólfi leyfi frá störfum við viðskiptadeild Háskóla íslands í jafnlangan tíma. Brynjólfur I. Sigurðsson er fæddur 1. maí 1940. viðskipta- fræðingur frá Háskóla íslands 1965, stundaði rannsóknir og kennslustörf við Verzlunarháskól- ann í Kaupmannahöfn 1965—68. Hann hefur starfað við viðskipta- deild Háskóla íslands frá 1970, og annazt jafnframt ýmis stjórnun- arstörf á vegum háskólans og annarra aðila. Landskeppni í skák vió Færeyinga; Akureyringarnir tryggðu sigurinn LOKIÐ er landskeppni Is- lands og Færeyja í skák. Fór fyrri hálfleikur hennar fram á Eskifirði, er aust- firskir skákmenn tefldu við hina færeysku gesti. Fóru leikar þannig, að Færeyingar sigruðu með 6 vinningum á móti 5. Síðari hálfleikurinn var svo tefldur á Akureyri á fimmtudagskvöld. Akureyr- ingum tókst betur upp en Austfirðingum, og það svo vel að þeir tryggðu sigur Islands í keppninni. Fóru leikar þannig í þessari seinni lotu, að Akureyri fékk 6V4 vinning en Færeyjar 4‘/2, svö að heildarútkoman og þar með úrslit- in í landskeppni þessari íslenzkur sigur — II V2 vinningur gegn 1014 vinningi. íslendingar unnu því bikar þann er Flugleiðir gáfu til keppninnar fyrir nokkrum árum en þetta var í þriðja sinn, sem keppt var. Einar S. Einarsson, forseti Skáksambandsins, afhenti akureyrsku sveitinni verðlaunin. — s.e.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.