Morgunblaðið - 12.08.1978, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1978
5
Fjölskyldudag-
ar í Vindáshlíd
NOKKRAR íjölskyldur komu
saman í sumarbúðunum í Vindás-
hlíð í Kjós dagana 26,—30. júlí.
TilganKurínn var að ræða um
stöðu og hlutverk fjölskyldunnar
í samfélaginu auk þess að eina
ánægjulegar samverustundir.
Áhersla var lögð á að ræða
fjölskylduna sem einingu og á
hvern hátt væri unnt að treysta
hana sem best á grundvclli
kristinnar trúar.
I því sambandi fóru fram miklar
umræður um bænina og bænalíf,
en sr. Karl Sigurbjörnsson, sókn-
arprestur í Hallgrímskirkju í
Reykjavík, flutti inngang að um-
ræðum þessum og annaðist stjórn
Launamálaráð
BHM hvetur til
áframhaldandi
samstöðu gegn
kjaraskerðingu
LAUNAMÁLARÁÐ skorar á alla
stjórnmálaflokka að falla frá
hugmyndum um lausn efnahgs-
mála. sem ætla launafólki einu að
borga brúsann. Ríkisstarfsmenn
eru fúsir að axla byrðar til jafns
við aðra, en ekki verður séð að
neinar tillögur hafi komið fram
sem opinberir starfsmann gætu
sætt sig við. Kaupskerðingarlög-
in bitna nú þyngra á þcim en
nokkrum öðrum þjóðfélagshóp.
Ráðið hvetur öll launþegasam-
tök til áframhaldandi samstöðu
gegn kjaraskerðingu og með frið-
helgi samingsréttar. Jafnframt
harmar það að Borgarstjórn
Reykjavíkur og ýmsar aðrar
bæjarstjórnir hafa ekki orðið að
fullu við kröfu launþegasamtak-
anna, þrátt fyrir fögur loforð.
AIGLYSINGA-
SÍMINN ER:
þeirra. Einnig var höfð sérstök
fjölskylduguðsþjónusta á sunnu-
deginum, sem sr. Þorvaldur Karl
Helgason, æskulýðsfulltrúi Þjóð-
kirkjunnar, annaðist.
Þátttakendur voru á einu máli
um að bænin væri ákveðið svar
kristinnar kirkju við hvers konar
þrýstingi og utanaðkomandi
spennu sem fjölskyldan verður nú
fyrir í æ ríkara mæli, og á svo
margan hátt.
Dagskrá þessara daga var að
öðru leyti sniðin fyrir alla fjöl-
skylduna, en alls tóku þátt í
þessari samveru rúmlega 50
manns.
Ljósm. Öl.K.M.
Það er sama hvaða aðgerða er gripið til í því skyni að auka
umferðaröryggið. engar ná að fyrirbyggja óhöpp í umferðinni með
öllu. ekki einu sinni götuvitar. akreinar og umferðarmerki, eins og
þessi mynd úr umferðinni í ga'r ber með sér. Af þessu má draga þá
ályktun. að umferðarmenningin verði að komá innan frá.
Samningar
náðust milli
leikara og
Ríkisútvarps
SAMNINGAR hafa tekizf milli
Félags isl. leikara og Ríkisútvarps-
ins, að pví er kemur fram í
fréttatilkynningu frá Félagi isl.
leikara. Segir par ennfremur, að
helzti ágreiningurinn hafi verið um
túlkun á ákvæðum eldri samnings
en náðst hafi viðunandí lausn.
Þá kemur fram, að sú leynd, sem
sögð var í fréttum hvíla yfir
samningsgerðinni, hafi fyrst og
fremst stafað af því að samningsaðil-
ar hafi haft fullan hug á að ná
samkomulagi og leysa ágreinings-
atriði, svo að þeir hafi því ekki viljað
gefa yfirlýsingar í fjölmiðlum er kynnu
að spilla því.
Athugasemd
frá A.S.Í.
BLAÐINU hefur borizt svofelld
athugasemd frá A.S.Í.i
Að gefnu tilefni vegna blaða-
skrifa skal fram tekið að mið-
stjórn Alþýðusambands Islands
bárust þann 26. júlí s.l. tilmæli frá
formanni Alþýðuflokksins f.h.
þeirra stjórnmálaflokka sem þá
stóðu í stjórnarmyndunarviðræð-
um, um að ASI tilnefndi nefnd til
viðræðna við fulltrúa frá flokkun-
um þrem.
Erindi þetta var tekið fyrir á
miðstjórnarfundi þann 27. júli s.l.
og þar samþykkt samhljóða að
verða við þessum tilmælum og
kosin sex manna nefnd til að
annast þessar viðræður fyrir hönd
Alþýðusambands íslands. Fundur
hafði verið ákveðinn með aðilum
laugardaginn 29. júlí, en áður en
til hans kom tilkynnti Benedikt
Gröndal f.h. flokkanna að fundin-
um væri aflýst.
Ljóst má því vera af ofanrituðu
að allar staðhæfingar um að
Alþýðusamband Islands hafi neit-
að viðræðum við flokkana eru
alrangar.
okkar
landsfrssa
hefst mánudaginn1A.ágúst
Og hvad med verdid?
Terylenebuxur frá 5.900.— kr.
Gallabuxur frá 4.500.— kr.
Flauelsbuxur frá 4.500.— kr.
Sheltlandspeysur frá 2.900.—
Aðrar peysur frá 3.900.— kr.
Skyrtur frá 1.990.— kr.
Kvenblússur frá 2.500.—
Mittisblússur frá 2.900.—
Sailor jakkar frá 12.900.-
kr. Kjólar frá 6.900.— kr.
o.fl. o.fl.
Athugið Stórkostleg hljómplötuútsala
að Laugavegi 89.
r \ ____^
Laugavegi 37 simi12861
Laugavegi89 simi10353