Morgunblaðið - 12.08.1978, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1978
Í
I
Börnin bjutíKU öll hljóðfærin til sjáif.
Skilningur er vaxandi
á naudsyn „skapandi
iðjumeðferðar” fyrir
sjúk bö
MBL. hafa borizt nokkrar
úrklippur úr finnskum blöóum,
þar sem segir frá alþjóóiegu
þingi sérfræðinga um harna-
lækningar sem var haldið í
Finnlandi í júnímánuði. Kemur
þar fram að Sigríður Björns-
dóttir myndiistarmaður. sem
lengi hefur einnig unnið mikið
að sjúkraiðjumálum hérlendis,
hefur verið kjörin þar í þriggja
manna ráð sem ætlað er að sjá
um námskeið fyrir sérfræðinga
á sviði barnalækninga. Af því
tiiefni leitaði Mbl. nokkurra
frekari upplýsinga hjá Sigríði
og sagði hún að á þessum
námskeiðum yrði það aðal-
markmiðið að miðla upplýsing-
um landa í' milli um allt sem
lýtur að sjúkrahúsdvöl barna.
... og bjuggu aliar vörur í búðina sjáif
Sigríður kvaðst ekki nógsam- hnigi að því að hjálpa börnum á
lega getað lagt áherzlu á að sjúkrahúsum við leik og þrosk-
skilning bæri að auka á því sem andi iðju. Það væri ungu barni
miklu meira andlegt álag en
fullorðið fólk gerði sér grein
fyrir, ef það þyrfti að leggjast á
sjúkrahús og væri þar með slitið
úr sínu venjulega umhverfi. Öll
umönnun á sjúkrahúsum gagn-
vart börnum væri öðru mikil-
vægara og augu manna væru að
opnast æ meira en áður fyrir
nauðsyn sjúkraiðju, sem á er-
lendum málum er kallað
„creative theraphy" og er því um
að ræða í raun víðfeðmara
hugtak en notað hefur verið hér
á undan. Hún sagði að skilning-
ur á þörf þessari væri mjög að
aukast hvarvetna.
Sigríði Björnsdóttur hefur
verið boðið að sækja ýmis
alþjóðleg þing þar sem fjallað
hefur verið um þessi atriði og
víða flutt fyrirlestra og haft
með sýningar, þar sem í mynd-
um og skýringum er sýnt
hvernig hún telur hagstætt að
vinna að þessum málum.
Hér hefur einu sinni verið
haldið námskeið í þessari grein,
norræn ráðstefna sem var hér
sumarið 1975.
Sigríður Björnsdóttir sagði að
með „skapandi meðferðariðju"
sem beitt væri við börn á
sjúkrahúsum, m.a. með því að
hjálpa þeim að fá útrás í
gegnum leik og t.d. málun væri
mjög oft hægt að lina þá miklu
vanlíðan sem barnið væri hald-
ið. Það hefði t.d. oft komið í ljós
hversu börnum stæði mikil ógn
af röntgenmyndatæki, og ýmiss
konar tal um sjúkleika þeirra og
meðferð við honum sem þau
heyrðu án þess að skilja, væri til
þess eins fallið að vekja með
barninu ugg og jafnvel skelf-
ingu. Þarna kæmi „þerapían" til
sögunnar sem farvegur til að
losa um kvíðann og opna augu
þess, sem með barninu ynni,
fyrir því hvað væri að brjótast
um í því og þar með hjálpa því.
Auk þess mætti heldur ekki
gleyma því hversu sköpunarþörf
barna væri rík og uppgerðarlaus
og þessi þörf minnkaði vissulega
ekki við veikindi.
Sigríður Björnsdóttir hefur
sem fyrr segir haldið marga
fyrirlestra á alþjóðlegum ráð-
stefnum um þessi atriði og
málflutningur hennar auljós-
lega vakið athygli. Hún er m.a. á
leið til norrænnar ráðstefnu um
„Art therapi" nú á næstunni og
mun setja þar upp smásýningu
um sjúkraiðju.
■ í rklippur úr finnskum blöðum með viðtölum við SÍKríði
Björnsdóttur.
Veggspjald um aljþóðaráðstefnuna í Helsinki sem var haldin
í júní sl. Sigríður' Björnsdóttir var þar kjörin í þriggja
manna ráð til að gangast fyrir um alþjóðlegt ráðstefnuhald.
Ritgerð
um trúar-
líf f anga
ÚT er komin ritgerð eftir tvo
guðfræðinema, Valdimar
Hreiðarsson og Þórstein Ragnars-
son, um trúarlíf og félagslega
aðstöðu fanga í íslenskum fangels-
um. Ritgerðin, sem er hluti af
námi guðfræðinganna, ber heitið
„Trúarlífs og félagsleg könnun
meðal fanga á Islandi" og er gefin
út í eitt hundrað eintökum.
Ritgerðin er 170 vélritaðar síður
og er í henni að finna, auk
könnunarinnar sjálfrar,
upplýsingar um ýmsar stofnanir
er hafa afskipti af fangelsismálum
og reglugerðir þar að lútandi. I
fréttatilkynningu sem Mbl. hefur
borist segir að fyrir guðfræðinem-
unum hafi vakað að bera það sem
þessi könnun leiddi í ljós saman
við niðurstöður trúarlífskannana,
sem hafa verið gerðar í kaupstöð-
um hér á landi. Könnunin, sem
gerð var í september á liðnu ári
náði til flestra fanga sem þá sátu
inni á Litla-Hrauni, Kvíabryggju
og í Hegningarhúsinu í Reykjavík.
Ritgerðin fæst í Bóksölu
stúdenta og kostar 3260.00 kr.
Viðræðurívænd-
um milli Banda-
ríkjannaog Víet-
nam um stjórn-
málasamband
Washington, 11. ágúst, AP.
BANDARÍKJASTJORN er nú
reiðubúin að hefja viðræður við
Víetnama um stjórnmálasam-
band milli landanna. en þó mun
að minnsta kosti mánuður líða
enn þar til viðræður hefjast, að
því er háttsettir embættismenn
skýrðu frá í Washington í dag.
Líkur eru taldar á að viðræður
háttsettra embættismanna hefjist
í september þegar Cyrus Vance
utanríkisráðherra verður
viðstaddur setningarathöfn ails-
herjar þings Sameinuðu þjóð-
anna.
Talsverðs ótta gætir meðal
stjórnmálamanna og embættis-
manna að það kunni að spilla
vináttu Bandaríkjanna og Kína ef
Bandaríkin sýni of mikla ákefð í
að koma á stjórnmálasambandi
við Víetnama, og að Kínverjar
kunni að líta á slíkt sem
Bandaríkjamenn séu að blanda sér
í viðkvæmar deilur Kínverja og
Víetnama.
Víetnamar hafa að undanförnu
notað hvert tækifæri til að koma
því á framfæri að þeir vilji ólmir
taka upp stjórnmálasamband við
Bandaríkjamenn og muni í því
sambandi falla frá kröfum um
stríðsbótagreiðslur upp á milljarði
Bandaríkj adala. Bandaríkj astjórn
hefur ekki verið tilkynnt formlega
um slíkt ennþá. Engin formleg
tengsl eru á milli landanna
tveggja í dag, öll mál eru afgreidd
í gegnum sendiráð Víetnam í París
eða sendinefndina hjá Sameinuðu
þjóðunum.