Morgunblaðið - 12.08.1978, Side 23

Morgunblaðið - 12.08.1978, Side 23
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1978 Óli Andri Haraldsson og strákarnir Steingrímur Ólason og Guðmundur Jóhann Guðmundsson í nýja svínahúsinu. Lampinn lengst til vinstri á myndinni er vermilampi sem hafður er hjá nýfæddum grísum. Ljósm. RAX. „Ráðlegg eng- um að fara út í svínarœkt” Að meöaltali eiga gylturnar 10 til 14 grísi, en pessi á níu. „Gallinn við að reka svínabú er að verðlaK á aíurðunum er meira rokkandi, en á hinum hefð- bundnu landbúnaðarafurðum. Framboð og eftirspurn ráða verðinu að mestu leyti. Maður vonar auðvitað það bezta, en því er ekki að neita að það eru ýmsar blikur á lofti.“ Sá sem þessi orð mælir, Óli Andri Haraldsson, mælir af cigin reynslu, því óli hefur rekið svínabú í Nýjabæ í Flóanum í rúman áratug. Fyrst í stað voru gylturnar að vísu aðeins tvær, en er árin liðu fjölgaði þeim og nú eru þær orðnar 51. Óli var í nýja svínahúsinu er við sóttum hann heim, en það hús hefur hann verið að byggja á undanförnum árum og nú nýtir hann um helming þess. Nýja svínahúsið tekur 50 gyltur og tvær grísastíur eru í því. Nú eru í húsinu um 25 gyltur og aðra grísastíuna notar Óli. „Ég keypti þessa jörð af gömlum hjónum, sem voru orðin þreytt á að reka býlið,“ segir Óli er við spyrjum hann um aðdraganda þess að hann gerðist bóndi. „Hér fyrir austan hef ég nú búið í 18 ár, en ég hef ekki aðeins stundað búskap, því ég vann úti í átta ár. Fyrst í stað vann ég í Kynbóta- stöðinni í Laugardalnum og síðar í Mjólkurbúi Flóamanna, en það fer illa saman að vinna úti og reka bú.“ Er Óli hóf búskap sinn var hann með tvær kýr og 18 ær, en er fram liðu stundir fjölgaði kúnum og flestar urðu þær sjö, þótt svo yfirleitt hafi þær verið fimm eða sex. „Ég hætti við beljurnar fyrir svona tíu árum,“ heldur Óli áfram „en þá tók Jónas Guðbrandsson við starfi dýralæknis og hann vildi ekki leyfa mér að halda áfram með kýrnar, nema ég endurbætti fjósið. Það gerði ég ekki, en sneri mér þess í stað að svínunum. Ég keypti tvær gyltur, annað hvort árið 1964 eða 1965, og 1967 reisti ég fyrsta áfanga svínabúsins. Gylturnar eiga yfirleitt 10 til 14 grísi hver, en það hefur komið fyrir að gylta hafi aðeins átt einn grís. Grísunum er slátrað sex til sjö vikna gömlum og yfirleitt slátra ég á þriggja vikna fresti. Ég get ekki sagt að það sé nein eftirsjá að grísunum, þegar að því kemur aö slátra þeim, tilgangur- inn er að ala þá upp til slátrunar og því finnst mér sjálfsagður hlutur að slátra þeim. Þar að auki er ég hvergi nálægur, þegar þeim er slátrað, mitt verk er aðeins að koma grísunum upp á bíl, sem síðan ekur með þá í sláturhúsið. Gyltur verða ekki mjög gamlar og ég reyni að hleypa ekki upp á þær fyrr en þær eru orðnar sjö, átta mánaða, þá bera gylturnar fyrstu grísunum þegar þær eru svo til árs gamlar. ' Svínin eru mjög viðkvæm á fóðrum, mun viðkvæmari en flest- ar aðrar skepnur. Ég fóðra svínin á staðlaðri fóðurblöndu, en einnig gef ég gyltunum nýslegið gras. Þeim finnst gott að fá það og einnig verða þær hraustari, því það eru vítamín í grasinu. Hirðing er einnig vandasöm, en hún þarf að vera nákvæm." Óli er spurður að því hvort hann vildi ekki gjarnan stunda einhvern annan búskap og svarar hann því játandi, hann hafi meiri áhuga og ánægju af öðrum búrekstri, „en þetta er lítil jörð og ég sá ekki fram á það að ég gæti komið upp arðvænlegu búi á annan hátt,“ segir Óli. „Það er erfitt að koma markað- inum upp, því hann er mettaður," svarar Óli, er hann er spurður um markaðshorfur í dag. „Sjálfur hef ég orðið að fara í aðra vinnu af og til, til að bjarga málunum. Stærsta vandamálið er að losna við vöruna, því það er offramleiðsla á svína- kjöti sem öðrum landbúnaðar- afurðum. Því er ekki að leyna að mér finnst svínakjöt vera nokkuð dýrt í útsölu og tel ég að það sé kjötkaupmaðurinn, sem ráði mestu þar um, það er að segja hann getur næstum því lagt eins mikið á kjötið og honum sýnist. Ég veit ekki hvaða hlutar svínsins það eru, sem ekki eru nýttir, á mínu heimili fer ekkert til spillis, ef um fyrsta flokks svín er að ræða. Nei, svínakjöt er ekki leiðigjarn matur," segir Óli í framhaldi af spurningu okkar, hvort fjölskyld- an í Nýjabæ sé ekki orðin leið á svínakjöti. „Við borðum töluvert af því og það gengur vel úr. Auðvitað er það helzt um helgar, sem svínakjöt er hér á boðstólum, en bacon er oft borðað og það kunna allir að meta. Ég veit ekki hvort þessi megrunarherferð hefur haft svo mikil áhrif á mína framleiðslu, eða sölu svínakjöts almennt. Ég segi fyrir mitt leyti að ég ét eins og mig langar til og samt er ég ekki feitari en ég er,“ segir Óli og hlær við. „Um framtíðina ætla ég litlu að spá, en ég mundi ekki ráðleggja neinum að fara út í svínarækt, þrátt fyrir að samkeppnin sé ekki mikil,“ segir Óli að endingu. „Ekki hœgt að hafa hrossabúskap einan sér sem lifibrauð” ÞAU ERU ekki mörg búin í landinu þar sem hrossarækt og framleiðsla reiðhrossa er aðal- uppistaðan f búskapnum. Algeng- ara er að bændur fáist við hrossarækt meira í hjáverkum og oft frekar sem tómstundagaman. Þó eru þær nokkrar jarðirnar, sem að mestum hluta eru notaðar til hrossaræktar og er ein þeirra Kirkjubær á Rangárvöllum. Þar rekur Sigurður Haraldsson bóndi hrossaræktarbú sitt en í Kirkju- bæ hefur hann búið sl. 11 ár. Ilrossarækt í Kirkjubæ á sér þó lengri sögu en upphafsmaður að þeirri ræktun, sem enn er við- haldið þar, var Eggert heitinn Jónsson frá Nautabúi. Árið 1945 hyrjaði hann að safna saman hryssum, flestar voru þær að stofni til frá Svaðastöðum og var hann fyrstu tvö árin bæði vestur á Reykhólum og á Bessastöðum en 1945 byrjar hann með hrossa- bú í Kirkjubæ. — Nei, hrossabúskap er ekki hægt að hafa fyrir lifibrauð vegna þess hversu markaðurinn fyrir hrossin er óviss, sagði Sigurður Haraldsson í Kirkjubæ, er við heimsóttum hann. — Til að hægt sé að framfleyta fjölskyldu af slíkum búrekstri verða menn að hafa einhverja tryggingu og þá meina ég annað hvort aðra bú- grein eða aðra vinnu. Sjálfur hef ég leyst þetta með því að vera með sauðfé og er nú með um 200 fjár auk þess, sem ég hef starfað við kennslu. — Ástæðan fyrir því að ég fór út í þessa hrossarækt er kannski öðru fremur áhugi minn á búfjár- rækt almennt og ég hef líka gaman af ræktun sauðfjár og get nefnt sem dæmi að þau 10 ár, sem ég bjó í Reykjavík, var ég alltaf með fé. Þessi búfjárræktaráhugi er mér í blóð borinn og það er ekki snefill af gróðahyggju, seni þarna hefur ráðið ferðinni. „Selur ekki nema eitt og eitt hross á erlendan markað“ I hrossaræktarbúinu í Kirkjubæ eru um 50 stofnhryssur, sem nær allar eru með folöldum árlega og hafa undanfarin ár verið um 150 hross á Kirkjubæjarbúinu, þegar flest hefur verið. Við spurðum Sigurð hvert hann seldi aðallega hross af búinu. — Minn hrossamarkaðu-r er nokkuð sérstæður fyrir það að ég sel ekki nema rétt eitt og eitt hross á erlendan markað. Ég hef aðal- lega selt hross frá búinu vítt og breitt um landið og þá ekki nema að litlum hluta á Reykjavíkur- svæðið, hins vegar hafa hross frá mér t.d. mikið farið norður í land og til Austurlands. Sjálfur hef ég það alltaf á tilfinningunni að það séu ekki mörg hross, sem ég sel á Kirkjubæjarhrossin eru nær undantekningarlílið rauöblesótt. Hér mó sjá nokkur hrossanna úr stóðinu í Kirkjubæ. hverju ári en þetta tínist til þegar það er talið saman. Venjulega set ég á 20 til 25 folöld á hverju hausti og það selst allt, þannig að ég sel að jafnaði sem svarar einum árgangi á ári. Hrossin héðan hafa selst vel og nú á ég t.d. engan sölugrip, sem er eldri en 3 vetra. Nú hafa flestir hrossabændur lagt, á það áherzlu að selja á erlendan markað. Er einhver sérstök ástæða fyrir því að þú vilt heldur selja hrossin á innanlands- markað en úr landi? — Ég er í þessu af áhuga fyrir að rækta hross fyrir íslendinga. Sjálfur hef ég mestan áhuga fyrir því að hægt sé að nota hross frá mér sem reiðhesta eða kýnbóta- gripi- Ég hef heldur ekki alltof sterka trú á þessum erlenda markaði og ég held að þess verði ekki langt að bíða að útlendingar fari sjálfir að framleiða hross af íslenskum stofni. Þegar eru komin út það mörg hross og þá bæði hryssur og stóðhestar að þeir geta hæglega framleitt mestan hluta þeirra hrossa, sem þeir þurfa. Þetta á þó sérstaklega við þau lönd þar sem íslensku hrossin eru orðin flest en

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.