Morgunblaðið - 12.08.1978, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1978
47
LANPSLIÐSMAL-
IN ÍLÁGINNI
LIÐIN VIKA — Varðandi knattspyrnu var lidin vika svipuð flestum þeim sem á undan eru gengnar, þ.e.a.s.
flest dæmin gengu upp. Aðalleikir vikunnar voru undanúrslit bikarkeppninnar þar sem Valur og Akranes
tryggðu sér sæti í úrslitaleik, einu sinni enn og munu leika hinn 27. ágúst n.k. Það að komast í úrslitaleik
bikarkeppninnar er að mínu mati orðinn einn þýðingarmesti punktur varðandi tekjuöflun. en á góðum
degi má ætla að úrslitaleikur geti gefið viðkomandi liðum allt að 2 milljónir króna í ágóðahlut.
FIRMAKEPPNI - Fyrirtækja
keppni eða firmakeppni í knatt-
spyrnu hefur nær lognast út af
hin síðari ár. Á árunum
1955 — 1965 var firmakeppni
mjög vinsæl og þátttaka almenn.
Þegar best lét var m.a.s. leikið í
tveimur deildum. Jafnframt
hinni almennu firmakeppni var
árleg knattspyrnukeppni milli
vélsmiðja, svonefnd smiðju-
keppni, bifreiðastöðvakeppni,
keppni milli áhafna fragtskip-
anna og ýmislegt fleira var þá á
döfinni.
Nú er öldin önnur varðandi
þessi mál og það eina sem
undirritaður hefur heyrt minnst
á er svolítill angi af smiðjukeppni
en þær fréttir fara þó mjög
hljóðlega.
Eg tel það miður að firma-
keppni skuli ekki vera í gangi og
tel að slík keppni eigi fullan rétt
á sér og sé til góðs fyrir
knattspyrnuna landinu. Það
kunna að valda því ýmsir ann-
markar að halda slíka keppni, en
ég álít að hér sé fyrst og fremst
um framkvæmdaatriði að ræða,
viljinn er örugglega fyrir hendi.
Stofna þarf sjálfstætt fram-
kvæmdaráð. skipað fulltrúum
þeirra fyrirtækja, sem þátt taka í
keppninni. Setja þarf ákveðnar
reglur um hverjir séu hlutgengir
í hvert lið og sitthvað fleira.
Aðalatriðið er að hafa reglurnar
fáar, en fylgja þeim fast eftir.
Ég álít enníremur að Knatt-
spyrnusamband íslands eigi alls
ekki að vera framkvæmdaaðili,
heldur gæti hér verið verkefni
fyrir kanttspyrnuráð hvers
bæjarfélags að aðstoða eða sjá um
framkvæmdina í samráði við
fulltrúa fyrirtækjana. Ég skora
hér með á áhugasama menn um
knattspyrnu að hugleiöa þessi
mál að nýju og hrinda í fram-
kvæmd myndarlegri firmakeppni
í knattspyrnu.
SKÓLAKEPPNI - í framhaldi
af ofangreindu rabbi um firma-
keppni finnst mér rétt að minn-
ast aðeins á skólamót í knatt-
spyrnu. Skólakeppni í knatt-
spyrnu rís öðru hvoru „upp frá
dauðum“ og hefur verið rcynt á
mjög ófullkominn hátt undanfar-
in ár að framkvæma skólakeppni
milli framhaldsskóla landsins í
knattspyrnu. Framkvæmdin hef-
ur verið með slíkum ómyndar-
skap að í flest skiptin hefði verið
betur heima setið en af stað farið.
Þrátt fyrir að illa hafi til tekist
mörg hin siðari ár, get ég vitnað í
það að þegar ég var á skólaaldri
var háð hér myndarleg og
skemmtileg skólakeppni.
Framkvæmd þeirrar keppni
var í höndum samtaka ungs fólks
sem kennd voru við samtök
skólafólks í Reykjavík og
nágrenni. Ég sting hér uppá að
áhugasamir skólanemendur um
knattspyrnu ráðgist við knatt-
spyrnuráð síns bæjarfélags og
athugi nú með góðum undirbún-
ingi möguleika á að hrinda af
stað myndarlegu skólamóti í
knattspyrnu. Lítil hugmynd gæti
verið t.d. að leika undankeppni
nú strax í haust og geyma síðan
úrslitaleik til vors, eða aðrar
hugmyndir sem fram kæmu ætti
að athuga vel. Einnig kemur að
mínu mati vel til grcina að snúa
dæminu við og byrja keppnina
næsta vor og hafa úrslitaleikinn
að hausti.
Ilugleiðingar þessar um firma-
kcppni og skólamót í knatt-
spyrnu eru hér fram settar til
athugunar fyrir ýmsa sem áhuga
hafa á þessum málum. Ég er þess
fullviss að með góðri skipu-
lagningu og festu má gera baeði
þcssi knatíspyrnumót, sérstak-
lega úrslitaleik ef af yrði, að
meiriháttar knattspyrnuvið-
burðum hvers árs. Ég skora því á
aðila sem koma nærri þessum
málum að setjast niður hugsa sitt
ráð, jafnvel skrifa um þetta f blöð
og hrinda síðan í framkvæmd
myndarlegri firmakeppni og
skólamóti.
LANDSLIÐSMÁL - Heldur
hljótt hefur verið yfir landsliðs-
málum á þessu sumri, eða síðan
landsleikurinn við Dani fór fram
s 'j
KNATTSPYRNURABB
EFTIR ARNA NJÁLSSON
og var þó ekkert sérstaklega
mikill hávaði þar í kring.
„Æfingaprógram" það. sem
landsliðsþjálfarinn setti fram í
vor og allar vonir um mikið
sóknarspil, hcfur enn sem komið
er mest verið á pappírnum.
Sóknarleikurinn hefur verið 0—0
við Dani 0—1 við Norðmenn í
Noregi og 0—1 gegn Akranesi í
æfingaleik í vor. Verkefni lands-
liðsþjálfarans hafa því verið
heldur rýr enn sem komið er, en
þess ber þó að geta að aðalvertíð-
in er eftir.
Um það hefur nokkuð verið
rætt undanfarin ár hvort rétt sé
að vera með landsliðsþjálfara í
fullu starfi og þær deilur voru
nokkuð hávaðassamar meðan
Tony Knapp var með landsliðið,
en nær ekkert hefur heyrst frá
íþróttafréttariturum á þessu ári.
Menn verða trúlega aldrei á eitt
sáttir hvernig haga bcri þessum
málum, en miðað við þann kostn-
að sem fylgir að ráða þjáifara, er
ekki óeðlilegt að mönnum finnist
helst til lítið vera unnið fyrir
þeim peningum sem greiddir eru.
Verkefni núverandi landsliðs-
þjálfara utan að leiða liðið til
leiks í næstu landsleikjum hefur
verið að ferðast og leiðbeina í
nokkra daga á Austfjörðum, en
auk þess mun f athugun að halda
námskeið fyrir þjálfara í byrjun
septcmber. Það verður að vera
mat stjórnar K.S.Í. hverju sinni
hvernig hún ræður málum
varðandi landsliðsþjálfun, og
þegar vel árar fjárhagslega eins
og gert hefur undanfarin ár hjá
K.S.Í. er ekkert við það að athuga
að þessi háttur sé á hafður.
Landsliðsmál munu áreiðanlega
brátt bera á góma, því að um
næstu mánaðamót hefst undan-
keppni fyrir Evrópukeppni lands-
liða með þremur landsleikjum.
Youri Ilytchev á æfingu með unguni eskfirzkum knattspyrnumönnum.
(ljósm. — áij).
Austfiröingar
liðsþjálfarann
Landsliðsþjálfarinn f knatt-
spyrnu, doktor Youri Ilytchev,
dvaldi í vikutíma fyrir nokkru á
Austfjörðum. Hélt Youri fyrir-
lestra, stjórnaði æfingum, undir-
bjó lið fyrir leiki og gagnrýndi
leikaðferðir eftir að hafa fylgzt
með liðunum. Almennt var mjög
mikil ánægja með landsliðs-
þjálfarann. en hann byrjaði ferð
sína á Austfjörðum á Fáskrúðs-
firði og Breiðdalsvík, en kynnti
sér einnig knattspyrnu á Eski-
firði, Neskaupstað, Seyðisfirði og
Hornafirði.
Sennilega hafa engir verið eins
ánægðir með komu dr. Youri og
Norðfirðingarnir. Þá undirbjó
hann fyrir leik á móti Austra á
Eskifirði í 2. deildinni, breytti
lítillega leikaðferð liðsins og færði
menn til á vellinum. I sumar hafði
Þróttur tvívegis tapað fyrir
Austra og einu sinni gert jafntefli,
en eftir að Youri hafði lagt hönd á
FRAM
AÐALFUNDUR Handknattleiks-
deildar Fram verður haldinn í
Framheimilinu þann 15. þessa
mánaðar og hefst klukkan 20.00.
plóginn fóru leikar svo að Þróttur
hafði skorað þrjú mörk í byrjun
leiksins gegn Austra áður en
Eskfirðingarnir áttuðu sig á
breytingunum. Leikurinn endaði
með 3:1 sigri Þróttar eins og fram
hefur komið.
-aij
HÉRAÐSMÓT
ÚLFLJÓTS
ATIIYGLI er hér með vakin á
því. að héraðsmót Ungmenna-
sambandsins Úlfljóts verður
haldið að Hrollaugsstöðum í'
Suðursveit. Hefst það klukkan
13.00 á laugardaginn.
Afmælismót
Ármenninga
AFMÆLISMÓT Ármanns í frjáls-
um íþróttum fer fram á Laugar-
dalsvellinum n.k. mánudag og
hefst kl. 19.30. Meðal keppenda
verður besti frjálsíþróttamaður
Luxemborg, sem á 10,3 sek í 100
m og 21.0 í 200 m hlaupi.
Fjölmargir keppendur eru skráð-
ir og má búast við skemmtilegri
keppni.
Spá Helga
1. deildi
Þróttur — Valur 0—1
UBK - ÍBV 2-0
ÍA — Víkingur 3-1
Fram - FII 0-2
2. deildi
Austri — Ilaukar 2—2
Þór — Þróttur 2—0
Reynir — Völsungur 2—1
KR - ÍBÍ 3-0
STANDEX
KERFI
í hvers konar innréttingar og húsgögn
Standex-kerfi skapar nýja möguleika
í innréttingum og húsbúnaði
Standex-kerfið býður ótrúlega marga nýja
kosti fyrir þá sem vilja fylgjast með og leita
smekklegra og hagkvæmra lausna.
Það er notað í þiljur, grindur og skilrúm;
hillur, borð, skápa o. m. fl.
Meginhlutarnir eru: ferhyrnd álrör með silfur-
áferð, tengsl, hengi og fætur.
Standex-kerfið hentar vel verzlunar-,
skrifstofu- og skólahúsnæði. Einnig á sýningar-
svæðum eða þar sem þörf er á búnaði sem
fljótlegt er að setja saman, taka niður og
nota á ný. Samskeytin eru hins vegar
límd, eigi notkun að vera varanleg.
Standex-kerfið er dönsk gæðaframleiðsla.
verzlunarinnrétting Hekla h.t. raftækjav. húsgögn og innréttingar Rafmagnsveita Reykjavfkur v. Ármúla
Leitið nánari
upplýsinga
OLF&LGJ
Laugavegi 178. Sími 38000