Morgunblaðið - 05.09.1978, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1978
21
• NJÓSNARAR fri Hollandi og A-Þýzkalandi munu fylgjast moi) landsleik fslands og Hollands á
Laugardalsvellinum á morgun. Zwartkruis einvaldur silfurliðs Hollendinga kom til landsins á
laugardaginn og dvelur hér fram á fimmtudag. Hann sá leikinn við Bandaríkin á sunnudaginn og
var hrifinn af fslenzka liðinu, en viðtal við hann er á opnu blaðsins. Njósnarar frá A-býzkalandi
eru væntanlegir til landsins f dag til að fylgjast með leiknum á morgun, en A-Þjóðverjar leika f
sama riðli og fsland, Pólland og Holland.
Þá hefur flogið fyrir að fulltrúar ýmissa hollenzkra og belgfskra félaga séu á leiðinni til að skoða
fslenzka leikmenn. Hefur félagið Feyenoord verið nefnt í sambandi við Pétur Pétursson og
skandinavfsk lið munu hafa áhuga á Atla Eðvaldssyni. Þá eru væntanlegir f vikunni fulltrúar frá
belgfska félaginu Lokeren og er reiknað með að f þessari viku verði gengið frá málum Arnórs
Guðjohnsen við félagið, en hvorki KSf né Vfkingur hafa enn gefið heimild til félagaskipta hans.
• ÞETTA ár verður örugglega lengi í minnum haft í skjölum Ármenninga. Uppskera meistaraflokka
félagsins hefur verið rýrari en sennilega hjá nokkru öðru félagi nokkru sinni. f þeim þremur
boltaíþróttum, sem stuiidaðar eru hjá félaginu hafa fjórir meistaraflokkar fallið um deild.
• Meistaraflokkurinn í knattspyrnu varð í næstneðsta sætinu í 2. deild í ár og fellur ásamt Völsungi
niður í 3. deild.
• Meistaraflokkur kvenna í handknattleik féll í vor úr 1. deild niður.í 2. deild og litlar líkur eru
á að félagið sendi lið til keppni þar næsta vetur.
• Meistaraflokkur karla í handknattleik féll í vor úr 1. deild í handknattleik niður í 2. deild.
• Meistaraflokkur Ármanns í körfuknattleik varð í vor í neðsta sæti í 1. deildinni og leikur því
ekki meðal þeirra beztu f úrvalsdeild körfuknattleiksmanna næsta vetur.
— áij
BíoröunMnífit)
• Þrír heimsfrægir kappar í baráttunni, Robert Gadocha og Grzegorz Lato sækja að Sepp Maier, markverði
v-þýzka landsliðsins. Lato er meðal pólsku leikmannanna, sem hingað koma.
„ÚTLENDINGARNIR"
JÓN, BÚBBI OG ÁRNI
BYRJA LEIKINN GEGN
PÓLVERJUM Á MORGUN
ÞRÍR íslenzkir knattspyrnumenn, sem leika með erlendum liðum, koma til landsleiksins við Pólverja annað kvöld. Þeir Jóhannes
Eðvaldsson, Celtic, og Jönköping-leikmennirnir Árni Stefánsson og Jón Pétursson. Á fundi með fréttamönnum í gær sagði
landsliðsþjálfarinn Youri Ilytchev að allir þessir þrfr leikmenn myndu hefja leikinn gegn Pólverjum, en það er fyrsti leikur þjóðanna
í Evrópukeppni landsliða. — Ég þarf að styrkja vörn íslenzka liðsins og þessir menn hafa reynslu, sem ekki er hægt að líta framhjá,
þó svo að ég hafi verið ánægður með leik nýliðanna í vörninni á móti Bandaríkjamönnum á sunnudaginn sagði landsliðsþjálfarinn
á fundinum.
Þessir þrír leikmenn koma
inn í landsliðshópinn, sem
valinn var fyrir leikinn á móti
Bandaríkjamönnum, en þó gaf
Ólafur Danivalsson, FH, ekki
kost á sér í leikinn á morgun af
persónulegum ástæðum. Hópur
16 leikmanna verður síðan
valinn úr þessum 18 manna
hópi, en landsliðið hélt austur á
Þingvöil um hádegi í gær og
voru „útlendingarnir" væntan-
legir þangað í gærkvöldi.
Á blaðamannafundinum í gær
sagði Ellert B. Schram, formað-
ur KSÍ, meðal annars að í pólska
liðinu væru heimsþekktir leik-
menn og árangur pólska lands-
liðsins á undanförnum árum
væri mjög athuglisverður.
Ólympíumeistarar 1972, í úrslit-
um HM 1974 og 1978 og silfurlið
frá Ólympíuleikunum í
Montreal 1976. Eigi að síður
sagði Ellert að ísland tefldi
fram liði, sem gæti veitt
Pólverjum harða keppni og
sagðist hann sannfærður um að
íslenzku strákarnir myndu berj-
ast til sigurs í þessum fyrsta
Evrópuleik íslands að þessu
sinni.
Youri Ilytchev sagði á fundin-
um í gær að hann hefði að
mörgu leyti verið ánægður með
leik íslenzka liðsins gegn Banda-
ríkjamönnunum á sunnudaginn.
Þó ekki úrslitin en ísland hefði
átt að vinna. Youri var spurður
að því á fundinum hvers vegna
Sigurður Haraldsson væri ekki í
landsliðshópnum, en hann hefði
staðið sig frábærlega með Val í
sumar. Svaraði Youri því til að
ef Valsvörnin léki vel þá léki
Sigurður sömuleiðis vel. Ef hins
vegar á móti blési væru taugar
Sigurðar ekki nægilega sterkar
og hann hefði slæm áhrif á
varnarmennina fyrir framan
sig. Hann hefði þekkt Sigurð
frá 1973 og viðurkenndi hann
sem góðan markvörð, en teldi
sig hins vegar hafa aðra
sterkari í landsliðsmarkið.
Knattspyrnusambandið
reyndi að fá Ásgeir Sigurvins-
son og Teit Þórðarson lausa frá
félögum þeirra í þennan mikil-
væga leik. Það tókst ekki og
hefur verið ljóst í nokkurn tíma,
en hvorugur þessara leikmanna
hefur ákvæði um það í samning-
um sínum að þeir skuli lausir í
landsleiki fyrir íslands hönd
þegar þess sé óskað. Vissulega
er skarð fyrir skildi að fá ekki
þessa kappa, en báðir eiga þeir
að leika með félögum sínum á
miðvikudaginn.
Pólverjar eru að breyta liði
sínu, yngja það upp þar sem
lykilmenn liðsins undanfarin ár
eru farnir að eldast. Nokkrar
breytingar hafa verið gerðar á
liðinu frá því sem var í Argent-
ínu í júnímánuði, en í liðinu eru
þó gamalkunn nöfn. Pólverjar
léku á miðvikudaginn í síöustu
viku á móti Finnum í Helsinki.
Mörðu Pólverjar sigur 1:0 og
skoruðu sigurmarkið aðeins 7
mínútum fyrir leikslok. Úrslit
þessa leiks benda til að pólska
liðið sé í einhvers konar milli-
bilsástandi og ætti það að gefa
íslenzka liðinu aukna möguleika
á morgun.
Landsliðsþjálfarinn var
spurður að því í gær hvort
íslenzka liðið myndi leika hrein-
an varnarleik á móti Pólverjum.
Svaraði hann því til að við mjög
sterka andstæðinga væri að
glima, eitt alsterkasta landslið
Evrópu. — Varnarleikurinn
verður aðalatriðið hjá okkur í
þessum leik, en við notum hvert
tækifæri til að byggja upp
skipulagðar sóknir, sagði Youri.
Dómari á leiknum verður T.
Perry frá Norður írlandi. For-
sala aðgöngumiða hefst á hádegi
í dag við Útvegsbankann. áij.
ÍBV gegn
Glentoran
í Kópavogi
kl. 18 í dag
VESTMANNAEYINGAR eru í
rauninni eina íslenzka knatt-
spyrnuliðið, sem á mögulcika
á að komast í 2. umfcrð
Evrópumótanna í knatt-
spyrnu. Þeir lcika gegn
Glentoran frá Norður írlandi
í kvöld á Kópavogsvellinum og
hefst leikurinn klukkan 18. Er
þetta fyrsti leikurinn í
Evrópukcppni, sem fram fer á
þessum ágæta velli og vonandi
tekst ÍBV að sigra þannig að
liðið komist áfram. Með tilliti
til síðustu leikja ÍBV f 1.
deildinni ætti það vel að vera
mögulegt, en Eyjamennirnir
unnu Þrótt og KA á mjög
sannfærandi hátt í Eyjum.
í fyrra lék Glentoran á móti
Val, en Valsmönnum tókst
ekki að komast áfram í keppn-
inni þrátt fyrir mýmörg tæki-
færi í leiknum á Laugardals-
vellinum. f ár leika Valsmenn
á móti Magdeburg, því sterka
a þýzka liði, og bikarmeistar-
ar Akraness leika í meistara-
keppninni á móti Köln.
v-þýzku meisturunum.
Hvorugt þessara liða á raun-
hæfa möguleika á að komast
áfram. Vestmannaeyingar
hafa því það hlutverk að verja
heiður íslenzkra knattspyrnu-
félaga í Evrópumótunum í ár
og komast í 2. umferð.
Þetta er í fjórða skipti, sem
ÍBV leikur í Evrópukeppni.
1969 léku þeir á móti Levski
Spartak frá Búlgaríu og töp-
uðust báðir leikirnir 0i4. 1972
lék ÍBV gegn Víkingi frá
Noregi og var leikurinn ytra
sérlega skemmtilegur. en ÍBV
tapaði honum óverðskuldað
Otl. í Reykjavík varð jafntefli
OiO. 1973 var síðan íeikið á
móti Borussia Mönchenglad-
bach, en þá ætluðu Eyjamenn
sér um of undir stjórn Duncan
McDowells og töpuðu 0i7 og
1.9.
Þjálfari ÍBV er George
Skinner frá Englandi og er
ekki vitað annað en ÍBV mæti
með alla sína sterkustu menn
til leiksins í kvöld.
Sjá einnig opnu biaðsins.
— áí>
• Sigurlás verður vonandi á |
skotskónum í kvöld