Morgunblaðið - 28.09.1978, Síða 18
18
MORGIJNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1978
Fyrsta Lending Boeing E-3A Sentry-þotu á Keflavíkurflugvelli 23. september 1978. Ljósmynd Baldur Svelnsson.
am
KI. 13.30 laugardaginn 23.
september s.l. jókst varnarmáttur
varnarliösins á Keflavíkurflug-
velli veruletía. en þá lenti þar sú
fvrri af tveimur Boeing E-3A
Sentry fljúsandi ratsjárstöðvum.
Sú síðari lenti svo miðvikudaginn
27. september.
I>egar þessi liðsauki er kominn
til söKunnar er viðvörunarkerfi
varnarstöðvarinnar í Keflavík
orðið eitt hið fullkomnasta f
heimi.
Við þetta bætist síðan að
varnarliðið hefur nýverið endur
nýjað orrustuflugflota sinn og er
57. flutísveitin nú búin nýjustu og
fullkomnustu Kerð
Phanton-þotna. eða F IE gerð-
inni.
E-3A vélarnar geta flogið því sem
næst eins hratt og Phantom-þot-
umar fljúga venjulega á eftirlits-
ferðum sínum, geta þær ef óvænt-
ur gestur sést á ratsjárskermum
stöðvanna við Hornafjörð eða í
Rockville á Miðnesheiði verið
komnar á staðinn því nær á sama
tíma og Phantom-þoturnar.
Venjulega tekur það Phanton-þot-
urnar nálægt 40 mínútum að
komast til svæða þeirra suðaustan
og austan við iandið þar sem
rússnesku vélarnar eru aigengast-
ir gestir. Fljúga þá Phamtom-þot-
urnar með hraða sem nemur því
sem næst 9071 af hraða hljóðsins.
Ef á þarf að halda geta þær hins
vegar brugðið fyrir sig betri
fætinum og farið þessa vegalengd
á um helmingi þess tíma, en þá á
kostnað verulega aukinnar elds-
neytiseyðslu og hafa skemmri
tíma á athafnasvæðinu. í slíkum
tiivikum myndi það ekki há E-3A
vélinni þótt hún væri ekki komin
alla leið því að hún getur séð um
að stjórna varnaraðgerðum úr
verulegri fjarlægð og væru 200
mílur þá ekkert vandamál.
Endurnýjun
ratsjár-
flugflotans
Þegar líða tók á sjöunda áratug-
inn varð bandaríska flughernum
ljóst að ekki mátti dragast öllu
lengur að huga að endurnýjun
ratsjárflugflotans. Ratsjárvélarn-
ar voru allar af gerðinni Lockheed
EG-121T Constellation og smíðað-
ar á árunum 1952 — 1956 eða þar
um bil. þessar vélar mátti að vísu
endurbæta nokkuð en ljóst var
hins vegar að ekki væri hægt að
halda flotanum gangandi miklu
lengur. Einnig var að koma til
sögunnar ný ratsjártækni og nýjar
tölvur sem ljóst var að gætu valdið
gerbyltingu í hönnun slíkra fljúg-
andi ratsjárstöðva. Verkið var
boðið út og gerðu bæði
Douglas-verksmiðjurnár og
Boeing-verksmiðjurnar tilboð.
Hugmyndir beggja voru svipaðar
og lögðu Douglas-verksmiðjurnar
farþegaþotu sína DC-8 til grund-
vallar en Boeing aftur á móti
707-320 þotu sína. Boeing-verk-
smiðjurnar unnu samkeppnina og
gerðu samning við flugherinn árið
1970. Einnig var mjög hörð sam-
keppni um smíði ratsjárinnar og
voru það fyrirtækin Westinghouse
og Hughes sem kepptu. Westing-
house bar sigur úr býtum eftir að
báðum ratsjánum hafði verið
komið fyrir í tilraunavélum og þær
báðar reyndar.
Ratsjáin
Ratsjá E-3A vélanna er sér-
hönnuð til þess að eiga auðvelt
með að greina hluti sem eru á
hreyfingu lágt yfir landi. Greining
slíkra hluta er það erfiðasta sem
um er að ræða. Flestar eldri
ratsjár verða hreinlega blindar
vegna endurkastsins frá ójöfnum á
jörðu niðri og eiga því lágfleygar
flugvélar tiltölulega auðvelt með
að dyljast þeim. Westing-
house-ratsjá Sentry-vélanna notar
hins vegar svonefnd „Doppler
áhrif“ til að greina slíka hluti.
Þessi áhrif verka þannig að hlutur
sem er á hreyfingu breytir tíðni
ratsjármerkjanna sem endurkast-
ast af honum. Þannig er tíðni
endurkastsins meiri en tíðni sjálfs
geislans ef hluturinn er á hreyf-
ingu í átt til ratsjárinnar, en
minni ef hluturinn er á hreyfingu
frá ratsjánni. (Ratsjárhraðamæl-
ar lögreglunnar eru reistir á þessu
lögmáli).
Einnig má þess geta að ratsjáin
sendir ekki stöðugt út merki eða
geisla heldur „púlsar" hún þannig
að hún sendir út merki stutta
stund i senn með skömmu milli-
bili.
Ef finna skal skotmörk í meiri
fjarlægð t.d. svo langt frá að
sjóndeildarhringurinn skyggir á
jarðtruflanir, er heppilegra að
nota ekki „Doppler áhrifin“..Getur
ratsjáin nótað báðar aðferðirnar
samtími's' ef á að halda.
- J^ákvjfebih'i ratsjárinnár og viðnám
hennar gegn rafeindatruflunum
eru einstök. Byggist það mjög á
því að merki hennar eru send út í
mjög grönnum geisla og ekki
stöðugt. Eldri ratsjár eru mjög
viðkvæmar fyrir rafeindatruflun-
um vegna þess m.a. að merkja-
geisli þeirra er yfirleitt breiður.
Á ratsjá E-3A vélanna koma
rafeindatruflanir fram sem mjóar
línur á ratsjárskermunum. Með
því að mæla stefnu slíkra lína með
E-3A vélarnar tvær munu verða
staðsettar á Keflavíkurflugvelli og
er eingöngu ætlað að sinna vörn-
-um Islands. Að vísu er ljóst að
varnir Islands og annarra vest-
rænna ríkja eru tengdar traustum
böndum og á þann veg má segja að
Sentry-véiarnar sinni þörfum
NATO hér á Islandi. Hins vegar
verða engar Sentry-vélar hafðar
annars staðar í Evrópu í nánustu
framtíð nema þá NATO-ríkin, og
þá fyrst og fremst Vestur-Þjóð-
verjar, festi kaup á slíkum vélum.
Samningar um slíkt hafa lengi
verið í gangi og má gera ráð fyrir
því að þeir fari að komast á,
lokastig þá og þegar. BandaríkjaJ
menn hafa hins vegar ekki látiðí
uppi neinar áætlanir um að
Sentry-flugvélar verði annars
staðar utan Bandaríkjanna en á
Islandi.
Notkun E-3A vélanna á Kefla-
víkurflugvelli kemur til með að
verða með tvennum hætti aðal-
lega. í fyrsta lagi mun önnur
vélanna verða í varðstöðu á jörðu
niðri og tilbúin til flugtaks roeð
örskömmufn fyrifvara (on aiert).
Hin vélin er þá notuð til æfinga og
eftirlitsfhigs á hvaða tíma sólar-
hrings sem er (ramdom patrols).
Samvinna
æfd
Næstu daga og vikur munu
áhafnir og stjórnendur bæði 57.
flugsveitarinnar með
Phantom-þotur sínar og 2. deildar
552. flugsveitarinnar með
Sentry-vélarnar æfa samvinnu þá
sem nauðsynleg er milli þessara
svéita. Hlýtur þá að koma í ljós
hversu gífurlega breytingu það
eitt hefur í för með sér hversu
fljótari E-3A vélarnar eru í förum
en gömlu Lockheed EC-121T Con-
stéllation . vélarnar voru. Þar eð
Nýtt og gamalt. Er Sentry-þotan renndi í hlað, var henni lagt við hlið einnar af hinum gömlu góðu
Constellation-véla sem nú fara von bráðar til niðurrifs í flugvélakirkjugarðinum á Davis-Monthanflugvelli
í Arizona. Ljósmynd Baldur Sveinsson.
Síðasta Lockheed EC-121T Constellation-vélin sem fer frá íslandi verður þessi vél, 50122. Verður það
væntanlega 4. október. Ljósmynd. Baldur Sveinsson.