Morgunblaðið - 24.10.1978, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1978
Hópferðabílar
8—50 farþega
Kjartan Ingimarsson
sími 86155, 32716.
Ljosa
itillingar
Veriö tilbúin vetrarakstri
meö vel stillt Ijós, það
getur gert gæfumuninn.
Sjáum einnig um allar
viögerðir á Ijósum.
Höfum til luktargler, spegla.
samlokur o.fl. i flestar
gerðir bifreiöa.
BRÆÐURNIR ORMSSON HA
LÁGUÚLA 9 SÍMI 38820
Geriö góð kaup.
I Verksm-salan S
S
Skeifan 13
Sjónvarp kl. 20.30:
Félagsleg könnun á
bamauppeldi 1 Afríku
í sjónvarpi í kvöld kl.
20.30 er þátturinn Lifandi
vagga. Fjallar hann að
sögn þýðanda, Sveinbjarg-
ar Sveinbjörnsdóttur, um
félagslega könnun á
barnauppeldi í Afríku.
Rætt er við fólk frá Fíla-
beinsströndinni, en það
var áður fyrr hluti frönsku
Vestur-Afríku. Talað er
við það um fæðmgu og
sýndar allar hefðir í sam-
bandi við hana. Börn eru
þar til að mynda eftir
fæðingu nudduð á ákveð-
inn hátt upp úr olíu. Rætt
er við gamalt fólk um
fylgjuna og meðhöndlun á
henni. Þá er talað við
lækna í Abidjan, en þurfi
börnin að fara í spítala
vegna sjúkdóma, fara
mæðurnar með þeim og
eru hjá börnum sínum.
Með því að slíta þau ekki
alveg frá umhverfi sínu ná
þau fyrr bata. Afrískt barn
af þjóðflokki frá þessu
svæði er talið þroskast
fyrr líkamlega og tilfinn-
ingalega og 3ja mánaða
barn þar er sagt jafnsterkt
og 7 mánaða evrópskt
barn.
Þátturinn hefst eins og
áður segir kl. 20.30 og er
hálfrar stundar langur.
Samskipti lögregluyfir-
valda og almennings
Kojak er á dagskrá sjónvarps
í kvöld kl. 21.50. Nefnist hann
Skamma stund verður hönd
höggi fegin. Fjallar hann um
ungan lögregluþjón, samstarfs-
mann Kojaks, en hann verður
fyrir því óláni að skjóta ungan
dreng til bana í starfi sínu. —
Sagt er í framhaldi af því frá
samskiptum lögregluyfirvalda
við fjölmiðla og almenning út af
þessu máli. I hlutverki hins
unga lögregluþjóns er hinn
vipsæli Sylvester Stallone, sem
kunnur er fyrir leik sinn í
myndinni Rocky.
Þetta er 17. þátturinn um
Kojak en þeir eru 21 samtals.
Flutningur myndarinnar tekur
um klukkustund.
sér hvort slíkur útflutning-
ur gæti enn verið hag-
kvæmur eða hvort aðstæð-
ur séu nú orðnar svo
breyttar að svo sé ekki
lengur.
Varla hefur það farið
fram hjá neinum, að nýlega
kom tilboð erlendis frá um
kaup á lifandi sauðfé og
áður hafa verið gerð svipuð
tilboð. I Víðsjá verður því,
að sögn Ögmunds, fjallað
um kosti þess og galla að
flytja út sauðfé á fæti og
ræðir hann við Halldór
Pálsson búnaðarmálastjóra
um það efni. Eins og
kunnugt er fluttu íslend-
ingar út sauðfé í miklum
mæli á seinni helmingi
nítjándu aldar, landsmönn-
Er það grimmdarlegt að senda sauðfé utan, ef til vill í
þeim tilgangi að fórna þeim á altari trúarinnar, svo sem í
Arabalöndum?
Sauðkind
í útvarpi í kvöld kl. 22.45
er þátturinn Víðsjá í umsjá
Ögmunds Jónassonar
fréttamanns.
um til mikilla hagsbóta.
Margir velta því nú fyrir
Útvarp í kvöld kl. 22.45:
Guðrún Guðlaugsdóttir.
Grimms-
ævintýri
Stuttur þáttur, Þjóðsögur frá
ýmsum löndum, er á dagskrá
útvarps kl. 17.35 1 dag. Verður
þar í örstuttri kynningu fjallað
um þjóðsagnasöfnun þeirra
Grimmsbræðra og lesið úr
ævintýrum þeirra. Leikin verða
brot úr þjóðlögum.
Útvarp Reykjavik
ÞRIÐJUDAGUR
24. október
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Lifandi vagga
Heimildamynd um barna-
uppeldi í Afríku. Þýðandi
Sveinbjörg Sveinbjörnsdótt-
vJL
21.00 Atvinnulýöra-ði
Umræðuþáttur í beinni út-
sendingu. Stjórnandi Ólaíur
Itagnarsson ritstjóri.
21.50 Kojak
Skamma stund verður hönd
höggi fegin.
22.10 Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDKGUR
MORGUNNINN_________________
7. OOVeðurfregnir. Fréttir.
7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn.
7.25 Morgunpósturinn.
Umsjónarmenni Páll Heiðar
Jónsson og Sigmar B.
Ilauksson (8.00 Fréttir).
8.15 Veðurfregnir.
Forustugr. dagbl. (útdr.).
Dagskrá.
8.35 Létt lög og morgunrabb
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnannai
Vigdís ðskarsdóttir heldur
áfram að lesa sögu sína,
..Búálfana“ (12).
9.20 Leikfimi. 9.30
Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Létt lög og morgunrabb
(frh).
11.00 Sjávarútvegur og
fiskvinnsla
Jónas Haraldsson sér um
þáttinn.
11.15 Morguntónleikar
12.00 Dagskrá. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir.
Tilkynningar.
Á frívaktinni
Sigrún Sigurðardóttir kynn-
ir óskalög sjómanna.
14.40 Frjálst útvarp?
Erna Indriðadóttir tók
saman þáttinn.
15.00 Miðdegistónleikar
Hermann Prey syngur
„Adelaide“ op. 46 eftir Beet-
hoveni Gerald Moore leikur
á píanó.
Lazar Berman leikur á
píanó Mephisto-vals nr. 1
eftir Franz Liszt. Itzhak
Perlman og Vladimír
Ashkenazý leika Fiðlu-
sónötu í A-dúr eftir César
Franck.
15.45 Til umhugsunar
Karl Ilelgason lögfræðingur
stjórnar þætti um áfengis-
mál.
SIÐDEGIÐ____________________
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popp.
17.20 Tónlistartími harnanna
Egill Friðleifsson sér um
tímann.
17.35 Þjóðsögur frá ýmsum
löndum
Guðrún Guðlaugsdóttir
tekur saman þáttiim.
17.55 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurírcgnir. Dagskrá.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Svcimað um Suðurnes
Magnús Jónsson kennari í
Hafnarfirði flytur fyrra
erindi sitt.
20.00 Ilátíðarhljómleikar á
20.30 Útvarpssagani „Fljótt
fljótt. sagði fuglinn" eftir
Thor Vilhjálmsson.
Ilöfundurinn les (9).
21.00 Kvöldvaka
a. Einsöngur. Kristinn
Ilallsson syngur. Árni
Kristjánsson leikur á píanó.
b. Þrír feðgar, - fyrsti
þáttur af þremur. Steinþór
Þórðarson á Hala í Suður-
sveit les í upphaíi máls
frásögn Stefáns Jónssonar í
IHíð í Lóni.
c* Lausavísur eftir Jónatan
Jakobsson.
d. Farið yfir Smjörvatns-
heiði. Stefán Ásbjarnarson á
Guðmundarstöðum segir frá
ferð um veturnætur fyrir
þrjátíu árum.
e. Kórsöngur. Karlakór
Reykjavíkur syngur lög eft-
ir^ Emil Thoroddsen og
Björgvin Guðmundsson.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.45 Víðsjá. Ögmundur
Jónasson fréttamaður flyt-
ur.
23.00 Ilarmónikulög. Ebbe
Jularbo og Will Glabe leika
með félögum sinum.
23.25 Á hljóðbergi.
Umsjónarmaður. Björn Th.
Björnsson. Á sléttum Noið-
ur-Dakota. Dóttir landnema
segir frá.
Eilecn Ilackart les.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.