Morgunblaðið - 24.10.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1978
29
ieð fœtuma
di sprungu
vinnurekenda með skattlagningu
og lækkun álagningar. Það breytir
þó ekki þeirri staðreynd að gróð-
inn er vaxtargjafi auðskipulagsins
og skerðing hans hefur í för með
sér keðjuverkun — að öllum
líkindum samdrátt, atvinnuleysi
og skerðingu kaupmáttar, “ segir
Gestur í greininni. Hann telur
verkefni sósíalista að eggja til
baráttu sem beinist gegn auðvald-
inu. Umbótaflokkarnir geri hins
vegar hið gagnstæða, þeir keppist
um að segja alþýðu að auðvalds-
kerfið geti verið mannúðlegra og
betra, þeir letji verkalýðinn að
treysta á eigin mátt heldur skuli
hann treysta á ríkisvaldið og
kjarabaráttunni sé beint ofan í
kjörkassann.
Yfirvofandi rekstrar-
stöðvun samvinnu-
— segir í
verzlunarmnar stjórnar SÍS
STJÓRN Sambands ísl. samvinnufélaga hefur sent frá sér ályktun um vandamál smásöluverzlunarinnar,
þar sem kemur fram að ýmislegt bendi til að samvinnuverzlunin muni fljótlega lenda í algjöru þroti og
beinir stjórnin þeim tilmælum til ríkisstjórnarinnar að gripið verði til aðgerða svo að unnt verði að forða
þessum mikilvæga atvinnuvegi frá yfirvofandi rekstrarstöðvun. Ályktun stjórnar SÍS er svohljóðandii
„Stjórn Sambands íslenzkra
samvinnufélaga vill vekja athygli
yfirvalda á þeim gífurlegu
rekstrarerfiðleikum, sem verzlun-
in á nú við að búa.
Viö fimm gengisfellingar síðan í
desember 1972 hefur verzlunin
orðið fyrir mjög verulegri eigna-
upptöku, sem engin fordæmi eru
fyrir annars staðar í. þjóðlífinu.
Vörubirgðir hafa ekki fengizt
metnar til endurkaupsverðs og því
rýrnað til samræmis við verð-
minni krónur.
Fljótandi gengisskráning hefur
einnig rýrt afkomumöguleika at-
vinnuvegarins, en til viðbótar
hefur hinni svokölluðu 30% reglu
verið beitt fimm sinnum í kjölfar
umræddra gengisbreytinga og
magnað erfiðleika verzlunarinnar.
Þrívegis hafa leiðréttingar feng-
izt á 30% reglunni en ávallt
mörgum mánuðum síðar og voru
t.d. gengisfellingarnar í september
1974 og febrúar 1975 ekki bættar
fyrr en í apríl 1975 og nóvember
1977.
Á þessu ári hafa verið gerðar
tvær gengisfellingar og 30% regl-
unni tvíbeitt, — verzluninni al-
gjörlega bótalaust. í þessum tveim
tilvikum hefur skerðing sölulauna
fyrir innfluttar vörur numið sam-
tals um 20%, auk eignaupptöku,
sem gengisfellingum hefur ávallt
verið samfara. Þá hefur þessi
láglaunaatvinnuvegur orðið að
bera kostnaðarhækkanir óðaverð-
bólgu, sem t.d. birtist í hækkun
launa milli ára um 60—70%, en
vextir af vörubirgðum eru nú
taldir nema um fimmtungi af
brúttóhagnaði.
Sérstökum vandkvæðum í dag-
vöruverzlun kaupfélaganna valda
hin lágu sölulaun á landbúnaðar-
vörum miðað við tilkostnað.
Rekstrarskil kaupfélaganna eru
nær öll á einn veg og benda þau til
þess að samvinnuverzlunin muni
fljótlega lenda í algjöru þroti,
verði ekki við spornað.
Sökum þessa alvarlega ástands,
en einlægs vilja samvinnu-
hreyfingarinnar að verða að gagni
við atvinnu- og þjónustuuppbygg-
ingu í landinu, áréttar stjórn
Sambandsins beiðni sína tii lands-
stjórnar að hún grípi nú þegar til
aðgerða, svo forða megi þessum
þýðingarmikla atvinnuvegi frá
yfirvofandi rekstrarstöðvun."
Otrúlega miklar
framfarir í hunda-
ræktun hér á landi
Nokkrir þeirra hunda, sem bezt stóðu sig á sýningunni.
Labradorhundarnir virðast hafa áhuga á að komast út úr bás
sínum og kanna hvað fram fer utan hans, en ungi maðurinn á
myndinni hefur greinilega mestan áhuga á Ragnari ljósmynd-
ara.
Maltese-tíkin Lady var valinn bezti hundur sýningarinnar og er
á þessari mynd með eiganda sínum, Jóni Sigurðssyni. (Ljósm.
RAX).
sigurvegurum í hverjum
flokki, en stærstu flokkarnir
voru af íslenzka fjárhunda-
stofninum, Golden retriver,
Labrador retriver, írskur
sjeffer, collie eða lassie-hund-
ar og síðan fjórir flokkar
smáhunda, en aðeins fáir
hundar voru í hverjum fiokki
og voru þeir dæmdir sameigin-
lega. Sérstök verðlaun voru
veitt fyrir afkvæmi og hlaut
þau Píla Matthíasar
Guðmundssonar, gul Labra-
dor-tík með svarta hvolpa.
Sýningin í Garðabæ stóð frá
klukkan 13—18 á sunnudaginn
og fylgdist mikill fjöldi fólks
með sýningunni eða á annað
þúsund manns. Kynnir var
Gunnar Eyjólfsson leikari, og
á milli sýningaratriða voru
skemmtiatriði við mikinn
fögnuð áhorfenda.
sýning sem sú í Garðabæ á
sunnudaginn, verði hér eftir
haldin árlega.
Sérstök verðlaun voru veitt
Athugull fylgist þessi íslenzki
hundur með því sem er að
gerast á þessu hunda- og
mannamóti.
sagði enski dómarinn á hundasýningunni í Garðabœ
ALLS voru 73 hundar sýndir á
hundasýningu Hundaræktar-
félags Islands í Ásgarði í
Garðabæ á sunnudaginn.
„Bezti hundurinn" var valinn
rúmlega árs gömul tík af
Maltese-kyni. Hún ber nafnið
„Lady" og eigandi hennar er
Jón Sigurðsson. Dómari í
keppnin i var enska konan
Jean Lanning, viðurkenndur
dómari, sem farið hefur víða
um til að dæma á hunda-
sýningum. Hún kom hingað til
lands fyrir nokkrum árum er
sambærileg sýning var haldin
í Hveragerði. Hafðí hún á orði
nú að framfarir væru ótrúlega
miklar í hundaræktun hér á
landi. Stefnt er að því að