Morgunblaðið - 24.10.1978, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1978
23
Wa
Malmö FF sem hefur . veriö
yfirburða lið hér á undanförnum
árum tók forystu í keppninni
fljótlega og það var talað um það
hve stór sigur þeirra yrði, svo
sjálfsagt þótti það að þeir sigruðu.
Við fylgdum fast á eftir og það var
mikið lagt uppúr að ná þeim.
Æfingum var fjölgað og yfirleitt
allt gert. í 12. umferð mættum við
svo Malmö á heimavelli okkar. Það
var mikill mannfjöldi á vellinum
og mikil stemmning.
Við unnum leikinn 1—0 og
skoraði ég markið.og er mér þetta
því einn minnisstæðasti leikurinn
frá keppnistímabilinu, enda þýddi
þetta það, að við náðum Malmö FP’
að stigum, en við töpuðum okkar
fyrsta leik í næstu umferð, en eftir
það fórum við að síga framúr og
eftir að hafa unnið Malmö FF á ný
í 15. umferð höfum við haldið
forystunni.
Nú fyigdist ég með ykkur
leikmönnum fyrir leikinn gegn
Elfsborg í dag og sýndist mér allt
fremur rólegt. Búið þið ykkur
venjulega undir heimaleiki á
þennan hátt?
— Nei. Leikurinn í dag hófst kl.
13.30, en venjulega leikum við
heima á sunnudögum kl. 19.00. Við
mætum þá um kl. 10.30 og tökum
létta æfingu. Um hádegið fer liðið
í eitt besta hótelið í bænum, þar
sem við borðum saman. Þá er rætt
um taktíkina og annað sem
leiknum viðkemur, en síðan fær
hver maður sitt herbergi svo hann
geti sofið eða hvílt sig sem best.
Eins og þú sérð á þessu, er ekkert
til sparað til að við getum staðið
okkur sem best.
Ekki búinn að átta
sig ennþá
— Nú ert þú orðinn sænskur
meistari í knattspyrnu, jafnframt
því sem mér er sagt að þú sért
fyrsti útlendingurinn í sögu knatt-
spyrnunnar í Svíþjóð, sem þann
titil hlýtur. Er þetta ekki talsvert
mál fyrir þig?
— Jú, og satt að segja, þá er ég
ekki búinn að átta mig á þessu
ennþá. Hér snerist allt á annan
endann. Alls konar fyrirtæki hafa
verið að hringja í mig og beðið mig
um að auglýsa hitt og þetta. Næstu
tvær helgar verður t.d. allt liðið
meira og minna upptekið við að
auglýsa vörur fyrir tvö stór
vöruhús hér og fáum við eitt og
annað fyrir það. Þá fáum við allir
leikmennirnir keypta bíla með
afslætti og góðum kjörum. Þetta
er allt saman öðruvísi hér en t.d.
heima. Ég hef orðið einum þrisvar
sinnum Islandsmeistari með
Skagamönnum. Gekk það allt
saman hljóðlega fyrir sig miðað
við það sem hér gerist. Nú það má
geta þess, að nú er verið að
undirbúa ferð hjá liðinu til
Bandaríkjanna og Jamaica. Verða
konur leikmanna með í þeirri ferð
sem standa mun í 2 vikur, en farið
verður 9. nóv.
— Það er ekki hægt að ræða það
og ég treysti mér varla til að lýsa
því. Ég held að menn verði að sjá
þetta. Ég veit að þú ert mér
sammála eftir að hafa kynnt þér
þessi mál í dag.
— Já, ég tek undir það. En hvað
tekur við er þið komið frá
Bandaríkjunum og Jamaica?
— Við höldum áfram að æfa,
því að það verður ekkert stoppað.
Um eða eftir áramótin förum við
að leika æfingaleiki og síðan er
„turnering" með sænskum og
dönskum liðum og síðan hefst
keppnistímabilið á ný.
Hefur tekið framförum
— Finnst þér þú hafa tekið
breytingum sem knattspyrnumað-
ur á þessum tíma með Öster?
— Mér finnst mér hafa farið
fram og tel mig því betri en ég var
áður. Ég tel mig hafa haldið
hraðanum og kraftinum, en ég er
tekniskari en áður, en eins og allir
vita, þá var þaö mín veika hlið —
auk þess sem ég hef lært mikið. Ég
kom hingað meiddur og það hefur
háð mér allt þar til nú. Ég passaði
fótinn vel og reyndi að forðast
hnjask svo meiðslin tækju sig ekki
upp. Ég tel að ég eigi eftir að leika
betur.
— Það er ótalmargt sem gaman
vséri að spjalla um við þig, Teitur,
en einhversstaðar verður að setja
punktinn. Að lokum. Þú gerðir 2ja
ára samning við Öster. Hvað tekur
við að honum loknum?
Hollenskt félag
í sigtinu?
— Því get ég ekki svarað. Ég
ítreka það sem ég hef sagt áður, að
mér og okkur hjónunum líkar
mjög vel í Svíþjóð. Ég tel að Öster
sé einn besti klúbburinn hér í
landi, þannig að ég er ekki með
neinar breytingar í huga. Þó getur
alltaf eitthvað skeð og get ég sagt
frá því, að nýlega var hringt í mig
og ég spurður hvort félag í
Hollandi væri að ræða við mig og
sögðust þeir hafa það eftii;
áreiðanlegum heimildum. Ég sagði
að mér væri ekki kunnugt um það.
Þannig að það getur alltaf eitt-
hvað skeð, en ég mun hugsa mig
vel um, áður en ég ákveð að fara
frá Öster.
Ég þakka Teiti spjallið og Dísu
Dóru fyrir kaffið, kveð börn
þeirra, Ester sem er 6 ára og Ólaf
Torfa, 3ja ára.
Það er komin þoka og við
Benedikt Valtýsson fylgjumst að í
lestina í Alvesta, sem mun flytja
okkur til Malmö. Við erum sam-
mála um það, að það sem við sáum
og heyrðum í dag sé mun meira en
við reiknuðum með. Teitur er
orðinn stórt nafn í sænskri
knattspyrnu og það má að lokum
geta þess, að Aby Ericsson, sænski
landsliðseinvaldurinn, lét þess
getið nýverið í blaðaviðtali, að það
væri slæmt að Teitur væri ekki
sænskur ríkisborgari, því að hann
hefði not fyrir hann í sænska
landsliðið.
• Þeissir heiðursmenn voru í heimsókn, Davíð Kristjáns-
son og Benedikt Valtýsson.
Teitur skorar
Teitur Þórðarson hefur svo sannarlega verið iðinn að
skora mörk fyrir lið sitt, Öster, í sumar og hann er nú
einn markhæsti maður sænsku knattspyrnunnar.
Hér sjáum við f jögur af mörkum Teits í sumar.
Teitur skorar fyrsta mark sitt í „allsvenskan**.
Þetta var í leik Öster og Elfsborg í 2. umferð.
• Enn eitt mikilvægt mark hjá Teiti, í þetta skipti
gegn Norrköping.
• Markið, sem ef til vill skipti sköpum og kallað var
„gullmarkið“. Teitur hefur skorað sigurmarkið í 2>1
sigri Öster yfir erkifjendunum Malmö FF og það á
útivelli. í fyrsta skipti var Öster komið í efsta sæti og
það sæti lét liðið ekki eftir.
Teitur ásamt þjálfara Öster á leikvelli liðsins fyrir leikinn við Elfsborg.
• Teitur fagnar marki gegn IFK Göteborg, erfiðum
andstæðingi, en í því liði leika m.a. HM stjörnurnar
Björn Norquist og Ralf Edström.
Helgi Daníelsson heimsækir Teit og fjölskyldu í Svíþjóð
I
I