Morgunblaðið - 09.12.1978, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1978
19
Fura
(Pinus)
Furan er ein þeirra er-
lendu trjátegunda sem hasl-
að hafa sér völl í íslenska
gróðurríkinu og nokkur
kvæmi hafa staðið sig vel
miðað við íslenska veðráttu.
Furan er mjög nægjusöm og
getur náð ótrúlega miklum
vexti við þau skilyrði sem
ekki þýðir að bjóða öðrum
barrtrjátegundum. Hér á
landi hefur fura verið gróð-
ursett síðan fyrir aldamót,
en í mjög smáum stíl framan
af. Fyrst eftir 1945 var farið
að gróðursetja furu að
nokkru ráði og þá einkum
SKÓGARFURU sem er al-
gengasta furutegund til
land og virðist ætla að
standast furulúsina.
íslenska STAFAFURAN
er upprunnin frá Alaska og
hefur hún staðið sig furuteg-
unda best hér á landi, og má
nú sjá álitlega lundi í
flestum sýslum landsins.
Stafafuran hefur nú síðustu
árin rutt sér mjög til rúms
sem jólatré og þykir mjög
góð til þeirra hluta einkum
vegna barrheldninnar.
Stafafura getur orðið stór-
vaxin í góðum jarðvegi og
vex hraðast allra furuteg-
unda á Norðurlöndum.
LINDIFURA frá Síberíu
er mjög falleg trjátegund.
Myndin er tekin 1976 af Stafafuru í reit Vesturíslendinga við
Þingvelli. Gróðursett um 1960.
gagnviðar í öðrum löndum.
En svo illa tókst til hér á
landi að skógarfuran varð
altekin furulús, sem lagði
hana næstum alla að velli á
árunum 1952—1960. Síðan
1960 hefur ekki verið sáð til
skógarfuru og algjörlega
hætt að planta henni frá
sama tíma.
Norsk BERGFURA hefur
náð allgóðum þroska víða um
Til hennar var sáð um
aldamótin, en því miður er
alltof lítið til af henni. Að
síðustu skal nefnd BRODD-
FURAN, dásamlega, frá
Colorado, sem aðallega vex á
Hallormsstað og örlítið
breiðst þaðan út um landið,
einkum sem garðtré. Nafnið
fær hún af hvössum broddi,
sem stendur út úr köngul-
skelinni er fræið geymir.
K.S.
ÞESSI mynd er af Skúla Sveins-
syni, sem minningarorð voru birt
um hér í Mbl. í gær. — Er beðist
afsökunar á þeim mistökum sem
urðu, en myndin átti að sjálf-
sögðu að birtast með minningar-
orðunum.
UNCLINGAPEYSUR
Verð frá kr. 5900.-
Einnig mikið úrval af LeeCooper flauelsbuxum,
gróf riffluðum,milli riffluðum og fín riffluðum.