Morgunblaðið - 09.12.1978, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 09.12.1978, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1978 MORötlto- kafr/NO (0 GRANI GÖSLARI ÞaA er ekki plass á töskunni fyrir Tékkóslóvakía. Við verð- um bara að fara til Ibisa! Eyðubiöðin fyrir launahækkunarumsóknir eru þarna í hillunni fyrir aftan þig! Ég sem hélt að það væri æsispennandi starf að vera Ijónatemjari! Af f slendingum í Bandaríkjunum Hér fara á eftir nokkur orð Friðgeirs Grímssonar um Islend- inga er búsettir hafa verið í Bandaríkjunum í mörg ár og fylgst hafa með málefnum Islands það- „í Fallbrook í Kaliforníu búa íslensk hjón, Asta og Eiríkur Vigfússon. Hann er hátt á níræðis- aldri og er seinni maður Astu. Fyrri maður hennar var Einar J. Bachmann rafvirkjameistari, sem margir eldri borgarar muna héðan úr Reykjavík. Hann er látinn fyrir mörgum árum, Einar og Ásta áttu tvö börn, Agnesi og Einar, þau eru bæði búsett í Bandaríkjunum og hafa búið þar í mörg ár og eiga uppkomin eða hálfuppkomin börn þar. Eiríkur mun vera ættaður af Vesturlandi. Hann fylgist vel með íslenskum þjóðmálum, einkum stjórnmálum og stjórnmálamönn- um, og ættfærði þá flesta fyrir mér. Hann fær íslensk dagblöð nokkuð regiulega og drekkur í sig flest það sem þau flytja með hæfilegri gagnrýni. Eiríkur er hagmæltur og vel skýr maður og glöggur þrátt fyrir sinn háa aldur. Þegar við hjónin heimsóttum hann og Ástu nú í haust urðu fagnaðar- fundir. Annars vegar við aö hitta og kynnast Eiríki, þessum ágæta manni, sem ég hefi aðeins heyrt en ekki séð eða kynnst fyrr og hins vegar við að hitta Ástu, sem var svo handgengin fjölskyldu okkar og heimili foreldra minna áður fyrr því fyrri maður Ástu var móðurbróðir minn. Það gladdi mig mjög hve Eiríkur er mikill íslendingur í sér þrátt fyrir 5 áratuga dvöl í Bandaríkj- BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Þegar hridgespilarar hittast á mannamótum er gjarna talað um skemmtileg spil. og enn er jafnvel minnst á spil. sem Norðmaðurinn Johannes Brun spilaði á Evrópu- móti árið 1933. Norður gaf, norður-suður á hættu. Norður S. ÁK853 H. D4 T. 2 L. ÁK652 COSPER Vestur S. G92 H. 86 T. ÁK10985 L. D7 Austur S. D1076 H. Á93 T. D L. G10983 COSPER. JS99 Suður S. 4 H. KG10752 T. G7643 L. 4 Brun var með spil suðurs og sagnirnar urðu þessar: Norrtur Austur Suður Vrstur 1 I.auf - 1 lljarta 2 Títtlar 2 Spaðar — 3 lljörtu — 1 Hjörtu ok allir pass. Sagnir norðurs sýndu litina eðiilega og vestur spilaði út gegn hjörtunum fjórum tígulkóng og staldraði við þegar austur lét drottninguna. Suður átti greini- lega hina tíglana og hafði auðvitað ekkert á móti trompum í borðinu. Vestur spilaði því hjarta sem austur tók með ás og spilaði aftur hjarta. Sagnhafi gat eftir þetta ekki tekið beint nema níu slagi og ekki voru fyrir hendi nægilega margar innkomur i borðið til að fríspila annanhvorn svaralitinn. En Brun dó ekki ráðalaus. Þegar hann tók síðasta trompið af austri valdi hann að láta lauf frá borðinu því ætti annarhvor andstæðing- anna fimm spaða gæti hann hafa skotið inn spaðasögn. Þvínæst tók Brun á tvo hæstu spaöana og trompaði spaða. Spilaði laufi á ásinn og spilaði fjórða spaðanum frá borðinu. Austur fékk að eiga slaginn á drottninguna en átti þá ekki annað en lauf eftir á hendinni og kóngurinn varð þannig dýrmæt inpkoma til að taka tíunda slaginn á siðasta spaðann. Þú átt að horfa á eigin nafla! „Fjólur — mín Ijúfa Framhaldssaga eftir Else Fischer Jóhanna Kristjónsdóttir Þýddi una svo að nokkrar bækur færðust til. — Það eru fjólurnar sem færa honum Martin okkar allar tekjur sem hann hefur. Magna Kelvin rétti úr þrif- iegum Ifkamanum og hagræddi bókunum með róiegum hreyf- ingum. — Já, en ég vil hafa í þessu hreinar línur og þú veizt sjálf að Einar hafði á sfnum tíma heilmikil áform á prjónunum um að skipta Mosahæðinni upp. Ilann hafði meira að segja fengið arkitekt til að tcikna fjöldann allan af iitium hra*ði- legum húsum sem stóðu kiesst hvert upp við annað... — Blóðþrýstingurinn ... Ilermann minn. Vertu nú bara rólegur. Ég sé að þú roðnar í framan. Svona seztu nú niður og reyndu að slaka á. Magna klappaði honum sef- andi á höndina og benti honum að fá sér sæti í þægiieum hægindastól. Já. en Magna, sérðu fyrir þér ef Moshæðarlandi verður skipt niður í sumarbústaðalóð- ir. AHur Eikarmosabær er þá beinlínis ónýtur. Herman settist þyngslalega niður í sófann og rétti höndina fram eítir sjerríglasinu. - I fyrsta lagi hefur Mosa- hæð alls ekki verið auglýst til sölu. — Nci, en Einar Einarsson veit að hún vcrður til sölu, því að það cr hann sem hefur gengið frá Amerfkusamningn- um hans Jaspars. — Og í öðru lagi myndi það vera skrftið af Jespar seldi okkur ekki — eða léti okkur hafa forgang sem erum alténd góðir vinir hans. — Engu að síður vil ég fá að vita hvar ég stend. Herman Kelvin rcis aftur á fætur og gekk fram og aftur um gólfið og horfði á konu sína hugsandi. — Ég hitti Anders Jörgen- sen hæstaréttarlögmann af tilviljun í morgun. Þú veizt að hann er einnig lögmaður Ein- ars Einarssonar og hann sagði mér að Einar hefði upp á síðkastið tekið út úr ýmsum bankareikningum sfnum ævin- týralega háar upphæðir. — Það getur nú verið að hann noti peningana til annars en að kaupa fyrir þá lóðir, sagði Magna Kelvin en maður hennar lagði ckki við eyrun. — Hann hefur tekið út svo háar upphæóir að lögfræðingi hans blöskrar stórum, hélt hann áfram. — Anders spurði mig svona eins og fyrir tilvilj- un hvort það væri höfuðból til sölu á þessum slóðum, því að Einar Einarsson heíði að minnsta kosti ráð á að borga það sem upp væri sett. — Ég hcld ekki að það sé Mosahæð sem hann hefur auga- stað á sagði Magna róandi og rétti fram höndina eítir súkku- laðiöskjunni sem stóð jafnan innan seilingar hennar. — Ég held ékki það sé Mosahaið og það myndi vissulega fara mjög í taugarnar á mér ef þú hefur boðið Einari hingað í kvöld, fyrst vinkona Martins kcmur. Það kostar bara ófrið og leiðindi ef pcningamál komast á dagskrá. — Ég vil fá hreinar línur, endurtók maður hennar þver loga. — Og auk þess vil ég ekki hafa að þú móðgir Einar einmitt núna, sagði kona hans fastmælt. — Martin er nýbúinn að segja mér að hann sé í mestu vandræðum vegna þcss að Einar vilji ekki gefa upp um hvort hann framlengi samning- inn við hann. — Martin hlýtur að geta gcrt sína samninga beint við lista- mennina. Það er fráleitt að það þurfi að ganga gegnum ein- hverja milliliði sem taka háar prósentur fyrir, tautaði Herm- ann Kelvin. — Þannig gengur það nú

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.