Morgunblaðið - 09.12.1978, Síða 48
Verzlið
i sérverzlun með
litasjónvörp og hljómtæki.
(SC47 Skipholti 19
BUDIN SÍmi
--- ' 29800
Smygl fannst
í Goðafossi
TOLLVERÐIR fundu í gær
smyglvarning í m.s. Goða-
fossi, þar sem skipið lá í
Reykjavíkurhöfn. Fundust
442 flöskur af áfengi, aðal-
lega rússnesku vodka.
33 atvinnulaus-
ir á Bíldudal
Á Bíldudal voru skráðir í
nóvemher 33 atvinnulaisir að
sögn Páls Hannessonar fréttarit-
ara Mbl. þar og nemur greiðsla í
atvinnuleysisbætur í þeim
mánuði kr. 1.488.000. Páll sagði
atvinnuástandið heldur vera að
lagast nú eftir mánaðamótin og
væru nú komnir tveir bátar er
reru og fengju að jafnaði 5—7
tonn í róðri, en atvinna væri þó
engan vcginn næg.
Goðafoss átti að láta úr
höfn klukkan 18 í gær en
skipið var kyrrsett, þar
sem grunur lék á því að
meiri smyglvarningur væri
falinn 1 skipinu.
Að sögn Jóns Grétars Sigurðs-
sonar fulltrúa hjá Tollgæzlunni
kom Goðafoss til Reykjavíkur á
þriðjudaginn. Við leit í skipinu í
fyrradag fundust 6 kassar af bjór í
vélarrúmi og við frekari leit í gær
fannst áfengið. Var það falið í
tveimur loftstokkum og undir
aðalvél. Þrír vélstjórar viður-
kenndu að eiga smyglvarninginn.
í gærkvöldi fór fram víðtæk leit
í öllu skipinu og um miðnætti var
ákveðið að skipið fengi að láta úr
höfn kl. 02 síðastliðna nótt. Skipið
átti að fara vestur á Rif og lesta
þar frystan fisk.
Tollverðir við leit að smyglvarn ingi í lest Goðafoss í gærkvöldi.
Æskulýðsmál í borgarstjórn:
5T 15
dagar
tU jóla
MeiriWuti klofnaði aftur
— samstaða milli borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks
Borgarstjórnarmeirihlutinn
klofnaði á fundi borgarstjórnar
á fimmtudagskvöld við
afgreiðsiu tillagna um málefni
æskulýðsráðs. Samstaða varð
milli borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins og borgar-
fulltrúa Alþýðuflokksins í
atkvæðagreiðslu um þau mál.
Fyrst bað Þór Vigfússon um
Borgarráð samþykkir beiðni um
20% hækkun til hitaveitu og 22%
hækkun til rafmagnsveitunnar
BORGARRÁÐ Reykjavíkur hefur
samþykkt að óska eftir um 22%
hækkun til handa Rafmagnsveitu
Reykjavíkur og 20% hækkun handa
Iiitaveitu Reykjavíkur. Hækkunar-
heiðni Rafmagnsveitunnar byggist
á því að hún fái að auki erlent íán
að fjárhæð um 1 milljón Banda-
ríkjadala (318 millj. kr.). því að ef
ekki komi til þetta lán þurfi
hækkunin að vera 32%.
Þessi hækkunarbeiðni Rafmagns-
veitunnar er algjöriega fyrir utan
hækkunarbeiðni Landsvirkjunar
sem enn hefur ekki verið afgreidd
en hljóðar upp á 30% hækkun í
febrúar og 30% hækkun aftur í maí
og myndi að sjálfsögðu valda
frekari hækkun á taxta Rafmagns-
veitunnar.
I samtali við Mbl. sagði Aðalsteinn
GuðjohnSsen rafmagnsstjóri, að
hækkunarbeiðni Rafmagnsveitunnar
nú miðaðist við það að ná endum
fjárhagsáætlunar saman og sagði að
til að hækkunin þyrfti ekki að vera
hærri væri Rafmagnsveitunni gert
að leita eftir erlendu láni að fjárhæð
um ein milljón dala, sem fer að
stórum hluta til greiðslu á afborgun-
um og vöxtum á 2,4 millj. dala láni.
Jóhannes Zöege hitaveitustjóri
kvað hækkunarbeiðni Hitaveitunnar
stafa af venjulegum kostnaðarhækk-
unum bæði launa og efnis. Hækkun-
in mundi þýða að tonnið af heitu
vatni færi úr 90 kr. i 108 krónur eða
úr því að vera um 23% af olíuverði í
það að vera um :
frestun málanna, en borgar-
stjórn hafnaði því þar eð ekki
fékkst skýring á hver forsend-
an væri. Þá flutti Þór tillögur,
aðra um útiskemmtanir á
vegum ráðsins en hina um, að
Tónabær yrði opnaður á ný.
Davíð Oddsson flutti frávísun-
artiilögu við Tónabæjartil-
löguna þar eð hugmyndir Tóna-
bæjarnefndar og æskulýðsráðs
væru til meðferðar hjá borgar-
ráði. Sjöfn Sigurbjörnsdóttir
lýsti furðu sinni á vinnubrögð-
um Alþýðubandalagsins að
vilja fyrst fresta afgreiðslu
málsins, en síðan keyra í gegn
tvær tillögur. Hún ílutti síðan
tillögu sem gengur lengra en
tillaga Alþýðubandalagsmanna
um útiskemmtanir og er
nokkuð samhljóða samþykkt
borgarstjórnar frá 20.12. 1973.
Þór Vigfússon lagði til, að
tillögu Sjafnar yrði vfsað til
borgarráðs, en það var fellt
með atkvæðum sjálfstæðis-
manna og Sjafnar. Tillaga
Sjafnar var síðan samþykkt
með atkvæðum sjálfstæðis-
manna, Björgvins Guðmunds-
sonar og hennar sjálfrar.
Frávísunartillaga Davíðs um
Tónabæ var samþykkt af sömu
aðilum.
Búðir opnar
til 18 i dag
VERZLANIR í Reykjavík
verða almennt opnar til klukk-
an 18 í dag. Næsta laugardag
verða verzlanir opnar til
klukkan 22 og á Þorláks-
messu. sem nú ber upp á
laugardag. verða þær opnar til
klukkan 23.
Flugleiðir
skutu heita
Icelandair
ÁKVEÐIÐ hefur verið að nafn
Flugleiða erlendis verði í fram-
tíðinni Icelandair. Sem kunnugt
er hafa Loftleiðir auglýst erlend-
is undir nöfnunum Icelandic
Airlines eða Loftleidir Icelandic.
Flugfélag íslands hefur hins
vegar kynnt sig erlendis undir
nafninu Icclandair, eða því nafni,
sem nú hefur verið ákveðið að
nota fyrir Flugleiðir.
Þá hcfur verið tciknað nýtt
Hið nýja merki Flugleiða.
merki fyrir Flugleiðir og var það
hannað hjá bandarísku auglýs-
ingafyrirtæki. Hin nýja DC-10
breiðþota Flugleiða, sem afhenda
á Flugleiðum snemma á næsta
ári, verður með hinu nýja merki
Flugleiða. Síðar verður þetta
nýja merki málað á aðrar vélar
fyrirtækisins.
Kjararádstefna Sjómannasambandsins:
Telur nauðsynlega 12
til 18% launahækkun
segir Ingólfur Ingólfsson
SJÓMANNASAMBAND íslands
stendur um þessar mundir fyrir
kjararáðstefnu og tekur einnig
þátt í henni Farmanna- og
fiskimannasamband íslands. Ráð-
stefnunni lýkur í dag. en þar
voru í gær rædd ýmis sameiginleg
hagsmunamál sjómannastéttar-
innar og samræmd viðhorí og
sagði Ingólfur Ingólfsson formað-
ur FFSI að mönnum væri ofar-
lega í huga að ná fram viðunandi
fiskverðshækkun um næstu ára-
mót sem hann sagði að þyrfti að
vera tvöföld eða þreföld á við
almcnnar launahækkanir 1. des.
sl. þar sem sjómenn teldu sig ekki
hafa hlotið hækkanir til jafns við
aðrar stéttir á þessu ári.
Ingólfur Ingólfsson sagði að
sjómenn hefðu fullan hug á því að
standa saman um nauðsynlegar
aðgerðir til að ná fram þeirri
hækkun fiskverðs sem þeir teldu
viðunandi og þyrfti launahækkun
þeirra að vera 12 ef ekki 18%. Þá
sagði hann að sjómenn teldu sig
hafa borið skarðan hlut frá borði
varðandi félagslegar umbætur í
lögunum um efnahagsráðstafanir
og yrði væntanlega lögð fram á
ráðstefnunni tillaga um úrbætur í
þeim efnum.
— Þá skal nefna enn eitt mál
sem við teljum mjög alvarlegt, en
það er að útvegsmenn hafa í
hyggju um næstu áramót að segja
upp ákvæði samnings er gerður
var í júlí 1977 um að uppgjör
skyldu vera mánaðarleg við sjó-
menn á bátaflotanum og eftir
hverja véiðiferð við sjómenn á
minni togurunum. Þetta samn-
ingsákvæði náðist við útvegsmenn
þar sem stjórnvöld höfðu lofað
þeim aukinni fyrirgreiðslu vegna
tíðara uppgjörs en verið hafði, en
nú segjast útvegsmenn ekki lengur
geta staðið við þetta ákvæði þar
sem ekki hafi enn verið staðið við
þetta loforð af hálfu ríkisvalds og
banka. Verði af þessari uppsögn
mun bátaflotinn án efa stöðvast
um áramótin, sagði Ingólfur að
lokum.