Morgunblaðið - 22.02.1979, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1979
7
r
Ríkisstjórn
nauös og
naggs
Ekki fékkst upplýst í
sjónvarpspættinum á
priðjudagskvöld, hvers
konar samkomulag er
milli torsætisráðherra og
A-A-flokkanna. Þó voru
Þar formenn pingtlokka
peírra beggja, Lúðvík
Jósepsson og Sighvatur
Björgvinsson, og minntu
einna helzt á hund og
hrafn: Sá síöarnefndi
reyndi meó krunki sínu
að espa hinn, sem óöara
glefsaði til hans eða
spangólaði upp í loftið og
lyngdi aftur augunum:
„Þaö er ekki ágreiningur
við okkur um pað, sem
Degar er búiö að taka
ákvörðun um.“
Undir Þetta tók for-
sætisráðherra og Sig-
hvatur miklaði fyrir sér,
hversu langt hefði miðað
í samkomulagsátt.
Þó var Þaö nú svo, aö
forsætisráöherra komst í
Ijótan bobba, Þegar hann
var spuröur, á hvað hann
vildi leggja áherzlu á sínu
efnahagsmálafrumvarpi.
Flest ákvæðin eru mjög
mikilvæg, sagði hann. Þó
vildi hann ekki svara Því,
hvort honum fyndist eitt-
hvaö í frumvarpinu ófrá-
víkjanlegt. Allt yrði Það
til athugunar.
Samt væri frumvarpið
gott. Og svona hring eftir
hring. Enginn fastur
punktur var í málflutningi
forsætisráöherra, heldur
undansláttur, undan-
brögð og undirhyggja,
Þegar launÞegar áttu í
hlut.
Eöa hvers konar mál-
flutningur er Það gagn-
vart launafólki, pegar
fulltrúar ríkisstjórnarinn-
ar segja sama kvöldið, að
Þeír hafi rænt svo og svo
mörgum vísitölustigum
bótalaust eins og Sig-
hvatur eða að Þeir hafi
ekkert krukkaö í vísitöl-
una eins og Lúðvík?
Sjálfur segir forsætisráö-
herra, að tilfinnanleg lífs-
kjaraskerðing verði á
Þessu ári, á sama tíma og
báöir fulltrúar A-A-flokk-
anna, Sighvatur og Lúð-
vík, eru aö tíunda fyrir-
sjáanlegar lífskjarabætur
eða aukningu kaupmátt-
ar. Ekki einu sinni um
Það, hverju spáð sé í
pessum efnum, getur
ríkisstjórn nauösins og
naggsins verið sammála.
En Það er annað, sem
ráðherrarnir eru allir á
einu máli um, og Það er
að standa ekki upp af
stólunum. Þegar peir
voru spurðir um pað
Olafur, Lúðvík og Sig-
hvatur í sjónvarpspættin-
um, hvort Þeir byggjust
við Því, að fólki Þættu
Þeir trúverðugir, eins og
Þeir töluöu við og um
hver annan, kom aðeins
eitt hljóö úr Þeirra
strokkum. Eins og eín sál
og einn búkur brostu Þeir
í sjónvarpssal framan í
landsfólkið allir Þrír og
gerðu sig landsföðurlega
í framan:
„Við náum
samkomulagi"! 11
„Fyrst 1. marz
er tapaöur"
„Það liggur ekki svo
óskaplega á núna, fyrst 1.
marz er tapaður," segir
forsætisráðherra í
Morgunblaðinu í gær og
er ekki meira um en
manni, sem ekki kemst í
Elliöaárnar, Þótt hann
hafi fengið laxveiðileyfi
gefins, en hugsar sér í
staðinn aö reyna að kom-
ast í Laxá í Þingeyjar-
sýslu.
En kratar segja vita-
skuld ekki neitt. Það er
búið að leggja frumvarp-
iö fram í ríkisstjórninni
og pað finnst Þeim mikill
munur eða fyrir jólin,
Þegar Það var einungis
lagt fram á flokkstjórnar-
fundi Þeirra sjálfra.
Utanríkisráðherrar Norðurlanda:
Heita S.Þ. stuðningi
i friðarviðleitninni
Utanríkisráðherrar Norðurland-
anna hafa sent frá sér eftirfar-
andi yfirlýsingu:
Ríkisstjórnir Norðurlandanna
hafa að undanförnu fylgst
áhyggjufullar með þróun mála í
Suðaustur-Asíu.
Þær skora á alla málsaðila að
haga gjörðum sínum á þann veg,
að friður megi á nýjan leik ríkja á
þessu svæði.
Ríkisstjórnir Norðurlandanna
heita því að veita framkvæmda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna og
Öryggisráði þess fyllsta stuðning í
viðleitni þeirra til að tryggja frið
og öryggi í heiminum.
Búlgörsk vika
á LoftleiÓum
Efnt verður til búlgarskra skemmtikvölda í Víkinga-
salnum að Hótel Loftleiðum dagana 22. febrúar til
4. mars n. k.
Vandað verður til skemmtiskrár.
Á borðum verða búlgarskir veisluréttir framreiddir
afHr. Mitev yfirmatreiðslumeistara frá Grand Hotel
Vama, Drusba og búlgörsku aðstoðarfólki hans.
Einnig verður boðið upp á búlgörsk vín.
Matarverð er kr. 4.480,-
Þá munu búlgarskir dansarar sýna þjóðdansa á
hverju kvöldi.
Á eftir skemmtiatriðum leikur Trio Grand Hotel
Vama fyrirdansi.
Efnt verður til gestahappdrættis hvert kvöld og að
lokum dregið um þriggja vikna Búlgaríuferð fyrir
tvo.
Húsið opnar klukkan 19 öll kvöld.
Borðpantanir í símum 22321 og 22322.
Verið velkomin
HÓTEL
LOFTLEIÐIR
Peugeot 504 sfation 7 manna
árg. 1974 og Peugeot 504 árg.
1977 til sýnis og sölu.
HAFRAFELL HF. — VAGNHÖFÐA 7 — SÍMI 85211
ÓTRÚLEGT
EN SATT!
'»»» -r—
JiHnorm wv) Vr'
THORO viðgerðarefnin
leysa allan vanda
THORO efnin hafa veriö framleidd af STANDARD DRY WALL PRODUCTS, siöan 1912,
og er komin mikil og góö reynsla á þau. WATERPLUG, THOROPACH og THORITE,
eru viögeröarefni i sérflokki. Þar sem önnur viögeröarefni dugöu ekki, hafa þessi
viögeröarefni, hvert á sinu sviöi, reynst vel. Og eru ótrúleg dæmi, til um þau.
WATERPLUG stöövar rennandi vatn samstundis, harönar undir vatnsyfirboröi. rýrnar
ekki, en þenst út um leiö og þaö harönar, dettur ekki af brúnum eöa hornum, einstök
ending og þolstyrkur.
THOROPATCH er viögeröarefni fyrir gólf, sem hafa slitnað eöa brotnaö. I staöinn fyrír
þykk ásteypulög, sem kosta mikinn tima og peninga, er besta lausnin þunnt lag af
THOROPATCH yfir allt gólfiö.
Eftir 24 tima má hleypa þeirri umferö á gólfiö, sem þvi er ætlaö. Viöloöun og styrklelki
THOROPACH er meö eindæmum, auk þess sem þetta er ódýrasta og varanlegasta
lausnin. THOROPATCH er hægt aö fá í litum.
THORITE er hraðsteypa, sem rýrnar ekki og er sérstaklega hönnuö til viögeröa á nýrri og
gamalli steinsteypu. Steypugalla og skemmdir er hægt aö laga á fljótan og ódýran hátt
meö THORITE án kostnaöarmikils mótauppsláttar.
Muniö eftir THORO viögeröarefnunum og leitaö upplýsinga um möguleikana, og verö
Mikiö hefur sparast hjá þeim sem hafa komist upp á lagiö og nota THORO viðgerðarefnin.
i: steinprýði
■ ■ DUGGUVOGI 2 SIMI 83340
Útsala
HERRADEILD:
DÖMUDEILD:
Flónel
kr. 350,- m.
Köflótt denimefni
kr. 350.- m.
Rósótt
bómullarefni
kr. 600.- m.
Smárósótt
bómullarefni
kr. 1.000.- m.
Krimplin br. IV2
einlitt og rósótt
kr. 1.000,- m.
Ullarefni,
röndótt, köflótt,
br. IV2 kr. 1.200.- m.
Ullarefni einlit
br. U/2 kr. 1.000- m.
Buxnaefni
br. 1V2 kr. 800 m.
Terelynebómull
kr. 1.500.- m.
Dala ullargarn
Fasan
Skyrtur
kr. 2.500-
Peysur
frá kr. 4.500.-
Sokkar
kr. 500.-
Stuttar
nærbuxur
kr. 1.000-
Bolir
kr. 1.000-
Síðar buxur
kr. 1.500-
Hálferma bolir
kr. 1.000-
Telpnanáttföt
stæröir 6 og 8
kr. 1.000-
Notið tæki-
færið,
kaupið góða
vöru fyrir
lítið verð.
100 gr. kr. 575-
Borðdúkar
kr. 1.500-
Opið til hádegis laugardag.
Egill Sacobsen
Austurstræti 9