Morgunblaðið - 22.02.1979, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1979
borsteinn Bergsson, Stefán Þór Jeppesen, Guðrún Jónsdóttir, formaður Torfusamtakanna og Magnús
Tómasson myndlistarmaður við nokkur vcrkanna, sem ýmisir listamenn hafa gefið sem happdrættisvinn-
inga.
Sinfóníuhljómsveit íslands:
Frumflytur verk eft-
ir Jón Leifs í kvöld
AÐRIR tónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands á seinna misseri
hefjast í Iláskólabiói í kvöld,
fimmtudag 22. febrúar, kl. 20.30.
Einleikari með hljómsveitinni er
austurríski kontrabassaleikarinn
Ludwig Streicher. Hljómsveitar-
stjóri er Þjóðverjinn Reinhard
Schwarz.
A tónleikunum verða flutt
fjögur verk: „Hughreysting“,
eftir Jón Leifs, en verkið er nú
flutt í fyrsta sinn. Höfundur
samdi þetta verk í maí 1968
skömmu fycir andlát sitt.
Þá eru tveir konsertar fyrir
kontrabassa eftir Mercel Rubin á
dagskrá og er annar þeirra sér-
staklega tileinkaður Streicher.
Loks verður flutt 39. sinfónia
Mozarts.
Ludwig Streicher er fæddur árið
1920 í Vín og stundaði tónlistar-
nám í Tónlistarskólanum þar.
Hann lék með Fílharmóníusveit-
inni í Vín frá 1945—73. Síðan 1966
hefur hann kennt við Tónlistar-
Fimmtudaginn 22. febrúar
1979 kl. 16.30, mun Klaus Kron-
er, prófessor flytja fyrirlestur í
stofu 158 í byggingu verkfræði-
og raunvísindar. sem hann nefnir
Orkuvandræði í Nýja Englandi.
Norðausturhluti Bandaríkjanna,
sem gengur undir nafninu Nýja
England, hefur nú á tímum orðið
háður utanaðkomandi orkulindum
og það í miklu ríkari mæli en aðrir
hlutar Bandaríkjanna.
Fyrirlesturinn, sem skýrður
verður með skyggnum, mun bein-
ast að þessu vandamáli með hlið-
sjón af orkunotkun í Bandaríkjun-
Hvolsvelli 21. feb.
FIRMAKEPPNI Taflfélags
Rangæinga er nýlega lokið. 44
fyrirtæki tóku þátt í keppninni.
Teflt var eftir Monrad-kerfi, 7
umferðir. í 1. sæti varð Kóran sf,
Ilellu mcð 7 vinninga, keppandi
Jón Einarsson, í 2. sæti Ljósá sf,
Hellu, með 6 vinninga, keppandi
Ægir Þorgilsson, og í 3. sæti varð
Byggingarfélagið As hf, Hvols-
velli, með 5,5 vinninga, keppandi
Stefán Jónasson.
Skákþing Rangæinga er nú rúm-
háskólann í Vín. Ferill hans sem
einleikara hófst árið 1966, en eftir
það hefur hann komið fram um
alla Evrópu, í Austurlöndum nær
og Afríku. Hann er nú talinn
merkasti núlifandi einleikari á
kontrabassa.
Reinhard Schwarz hljómsveitar-
stjóri fæddist árið 1936 í Berlín.
Hann stundaði almennt tónlistar-
nám við Borgartónlistarskólann í
Berlín og hljómsveitarstjórn hjá
próf. Herbert Ahlendorf ásamt
námskeiðum meðal annars hjá
Herbert von Karajan í Berlín.
Schwarz var stjórnandi við
Borgarleikhúsið í Basel frá
1960—65, þá í Wuppertal 1965—69
en síðan 1971 hefur hann verið
tónlistarstjóri í Hagen. Reinhard
Schwarz hefur stjórnað ófáum
merkustu hljómsveitum Þýzka-
lands, til að mynda Fílharmoníu-
hljómsveit Berlínar. Síðan 1968
hefur Rainhard Schwarz verið
fastur stjórnandi við ríkisóperuna
í Vín.
um sem heild. Bent verður á ýmsa
valkosti sem einstakir notendur í
Nýja Englandi hafa íhugað. Fyrir-
lesturinn verður fluttur á ensku,
en að honum loknum mun fyrirles-
arinn svara spurníngum, jafnt
þeim, sem bornar eru fram á
íslenzku eða ensku.
Klaus Erlendur Kroner, prófess-
or, sem bjó fyrr á árum hér á
landi, kennir iðnaðarverkfræði við
háskólann í Massachusetts í
Bandaríkjunum, en er gistipró-
fessor við Háskóla íslands nú á
vormisseri.
Öllum er heimill aðgangur.
lega hálfnað. Þátttakendur eru 61
og er teflt eftir Monrad-kerfi, 9
umferðir. í mfl. eru 24 þátttakend-
ur. 5 umferðum er lokið og er
Snorri Þorvaldsson efstur með 4
vinninga.
í Hvolsvailarriðli unglinga-
flokks eru 19 þátttakendur og er
Þorvaldur Snorrason efstur að 4
umferðum loknum með 4 vinninga.
í Helluriðli unglingaflokks eru 18
þátttakendur og er Jón Ólafsson
eftir 6 umferðir með 5’/2 vinning.
— Aðalbjörn
Jóir Leifs tónskáld
Ráðstefna
um eldvarn-
ir, varnir
gegn inn-
brotum
og slgsum
ARKITEKTAFÉLAG ís-
lands og Byggingarþjónust-
an efna til ráðstefnu laugar-
daginn 24. febrúar um eld-
varnir og varnir gegn inn-
brotum og slysum í heima-
húsum.
Bárður Daníelsson arki-
tekt flytur erindi um eld-
varnir, Stefán Carlsson
læknir um varnir gegn slys-
um og Grétar Norðfjörð lög-
regluflokksstjóri um varnir
gegn innbrotum.
Ráðstefnan hefst kl. 10 f.h.
í húsakynnum Bygginga-
þjónustunnar að Grensás-
vegi 11. Er öllum heimil
þátttaka, en þátttökugjald
er 3 þús. krónur.
Tilgangurinn með þessari
ráðstefnu er að gefa almenn-
ingi kost á að hlýða á sér-
fræðinga til þess að fá hug-
myndir og ábendingar um
hvað fólk getur gert sjálft til
þess að tryggja sig betur
gegn ofangreindu. Jafn-
framt verður reynt að hafa
sem fjölbreyttast safn sýnis-
horna af efni og tækjum til
notkunar í þessu skym.
Háskólafyrirlestur um orku-
vandræði í Nýja-Englandi
Kóran sf vann firmakeppnina
Friðun Torfunnar
komin á rekspöl?
TORFUSAMTÖKIN hafa nú leit-
að til Umhverfismálaráðs Reykja-
víkur borgar í þeirri von, að
ráðið veiti fulltingi sitt til þess,
að baráttumál samtakanna,
friðun Bernhöftstorfu. komist á
rekspöl.
Bernhöftstorfan, eða Torfan
eins og hún er kölluð í daglegu
tali eru íbúðarhús, brauðgerðar-
hús, og geymsluhús við
Bankastræti 2, byggt árið 1834,
lítt breytt frá upphaflegri gerð.
Svo og Amtmannsstígur 1, sem er
íbúðarhús, byggt árið 1838, tals-
vert breytt frá því sem var í
upphafi.
Fram kom á fundi hjá sam-
tökunum nýlega, að bókun um-
hverfismálaráðs væri jákvæð. og
rætt hefði verið við menntamála-
ráðherra, Ragnar Arnalds, í
sama tilgangi, þar sem hús-
friðunarmál heyra undir mennta-
málaráðuneytið. Hefði ráðherr-
ann lýst sig fylgjandi friðun
húsanna, en jafnframt bent á, að
forsendur þess, að hann gæti
ákveðið friðun, væru þær. að
fyrir yrðu að liggja meðmæli
húsafriðunar nefndar og viðkom-
andi sveitarstjórnar, í þessu til-
felli borgarstjórnar Reykjavíkur.
Sagði einnig á fundinum, að
ítrekuð meðmæli húsafriðunar-
nefndar lægju fyrir, en formleg
afstaða borgarstjórnar hefði hins-
vegar ekki enn komið fram.
Stjórn samtakanna fer því þess
á leit við umhverfismálaráð, að
það beiti áhrifum sínum til þess,
að borgarstjórn taki hið fyrsta
afstöðu til málsins.
I starfsemi samtakanna er
margt á döfinni á næstu mánuð-
um, en starfsemin byggist á sjálf-
boðavinnu. Fengist hefur leyfi
fjármálaráðherra, Tómasar Árna-
sonar, til fjáröflunar í húsakynn-
um samtakanna, en þeir fjármun-
ir, sem koma inn verða nýttir til
að varna frekari skemmdum á
húsunum í Bernhöftstorfu og um-
hverfi.
Opið hús verður í Bernhöfts-
torfu á föstudag, 23. febrúar.
Verður þar flóamarkaður; bollur,
bolluvendir og öskupokar auk
happdrættismiða, sem þar verða
til sölu. Vinningar, sem eru verk
ýmissa íslenzkra listamanna,
verða þar jafnframt til sýnis.
Húsið verður opið frá kl.
11.00—19.00 og á laugardag frá
10.00—12.00. Stendur til að opið
hús verði framvegis vikulega og
árstími látinn ráða nokkru um
það, sem á boðstólnum verður.
I ráði er einnig að halda
ráðstefnu, þar sem greint verður
frá húsverndunarmáium utan
Reykjavíkur. Þá stendur einnig til
að sýningu um verndun húsa verði
komið upp í Norræna húsinu inn-
an tíðar.
Tekist hefur samvinna með hin-
um ýmsu íþúasamtökum og Torfu-
samtökunu'm varðandi skipulags-
og umhverfismál bæði hér í borg
og utan Reykjavíkur. I því sam-
bandi er hafin undirbúningur að
útgáfu sameiginlegs blaðs, þar
sem skipulagsmálin verða tekin
fyrir í hverju hverfi fyrir sig, s.s.
fasteignamatsverð, umferðarmál
og fleira, en blað þetta mun koma
út á tveggja til þriggja mánaða
fresti.
Salome Þorkelsdótt-
ir formaður SASÍR
SALOME Þorkelsdóttir hrepps-
neíndarfulltrúi í Mosfellshreppi
hefur verið kjörin formaður Sam-
taka sveitarfélaga í Reykjanes-
kjördæmi og mun hún einnig
gegna störfum framkvæmda-
stjóra samtakanna.
í fréttatilkynningu frá SASÍR
segir:
„Laugardaginn 17. febrúar var
aðalfundur samtaka sveitarfélaga
í Reykjaneskjördæmi (SASÍR)
haldinn í félagsheimilinu á
Seltjarnarnesi. Fundinn sóttu um
50 kjörnir fulltrúar úr kjör-
dæminu.
Helzta dagsskrárefni fundarins
var skipting sveitarfélaganna í
Reykjaneskjördæmi í tvö lands-
hlutasamtök, og á fundinum gengu
sveitarfélögin á Suðurnesjum
formlega úr SASIR, en eins og
kunnug er, hafa nýlega verið
stofnuð samtök sveitarfélaga á
Suðurnesjum (SSS). Helztu rökin
fyrir þessari ákvörðun Suður-
nesjamanna hafa þegar birst í
fjölmiðlum. Einhugur ríkti meðal
sveitarstjórnarmanna úr kjör-
dæminu öllu með þessa ákvörðun
og var hún samþykkt samhljóða.
Þó munu þessi tvö landshlutasam-
tök hafa áfram með sér nána
samvinnu í ákveðnum mála-
flokkum, m.a. sameiginlegt
fræðsluráð, skipað fjórum mönn-
Salome Þorkelsdóttir
um af norðursvæðinu og þremur
mönnum frá Suðurnesjasvæðinu.
I þeim sveitarfélögum sem eftir
verða í SASIR munu búsett um 25
þúsund manns, og er því SASÍR
hér eftir sem hingað til stærstu
landshlutasamtök sveitarfélaga á
landinu, en þau sveitarfélög sem
þar eiga nú sæti eru Kópavogs-
kaupstaður, Garðabær,
Seltjarnarneskaupstaður, Mos-
fellshreppur, Bessastaðahreppur,
svo og Kjalarnes- og Kjósar-
hreppur.
Á fundinum var kosin ný stjórn
fyrir SASÍR og á fyrsta stjórnar-
fundi var Salome Þorkelsdóttir,
hreppsnefndarfulltrúi í Mosfells-
hreppi kosin formaður SASÍR
fyrir næsta starfsár. Aðrir í stjórn
voru kosnir bæjarfulltrúarnir
Björn Ólafsson, Kópavogi, Magnús
Erlendsson, Seltjarnarnesi,
Sigurður Sigurjónsson, Garðabæ
og Gumundur Oddsson, Kópavogi."
Borgara-
fundur
FELAG viðskiptafræðinga og hag-
fræðinga efnir til almenns borg-
arafundar í Norræna húsinu á
laugardaginn klukkan 14. Fundar-
efnið verður: „Vextir og verðtrygg-
ing í verðbólguþjóðfélagi". Frum-
mælendur verða Jónas Haralz
bankastjóri og Guðmundur
Magnússon prófessor. Öllum er
heimill aðgangur.
Póstránið
óupplýst
PÓSTRÁNIÐ í Sandgerði er enn
óupplýst. Að sögn rannsóknarlög-
reglunnar í Keflavík hefur ekkert
það komið fram við rannsókn
málsins, sem leitt hefur lögregl-
una á rétt spor.