Morgunblaðið - 22.02.1979, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1979
r
i
i
!
Bikarkeppni HSÍ:
FH
Haukar
EINN leikur fer fram í hikar-
keppni HSÍ í kvöld otc er það
einn af stórleikjum þessarar
umferðar. í Hafnarfirði mætast
Kömlu fjendurnir FH og Hauk-
ar <>k hefst leikurinn klukkan
20.00. Liðin hafa virst svipuð
að styrkleika í deildarkeppn-
inni í vetur og má því vænta
grimmilegrar orrustu.
Bayern
rak
þjálf-
arann
GAMLA vestur-þýska stórveld-
ið Bayern Munchen hefur rekið
hinn ungverska þjálfara liðs-
ins. Gyala Lorent. Lorant þessi
mun hafa ritað nokkrar grein-
ar í þýsk dagblöð, greinar sem
innihéldu ýmislegt sem féll
stjórnendum Bayern ekki vel í
geð. Þeir hafa því losað sig við
hann. Greinarnar voru þó ekki
hin opinbera skýring. heldur
að Lorant hefði ekki tekist að
rífa liðið upp úr öldudalnum
sem það væri í.
Til að bæta gráu ofan á svart
hjá Bayern, hefur markakóngur
liðsins í gegn um árin, Gerd
Muller, heimtað að vera leystur
undan samningi þegar í stað.
Hann og Lorant voru miklir
mátar, en Miiller kom illa
saman við kappann sem þegar
var skipaður í stað Lorants,
Paul nokkurn Csernai.
Frestaó
bad-
minton
FYRIRHUGAÐ var að Reykja-
víkurmótið í badminton færi
fram um næstu helgi í Laugar-
dalshöllinni, en mótinu hefur
verið frestað og mun það fara
fram í marz í húsi T.B.R.
Kristins-
mót á
skíóum
KRISTINSMÓT sem jafnframt
er punktamót í göngu og stökki
fer fram í Ólafsfirði dagana
3,— -4. mars.
Keppt verður í eftirtöldum
flokkum:
Karlar fl. 20 ára og eldri ganga
15 km.
Karlar fl. 20 ára og eldri stökk.
fl. 17—19 ára ganga 10 km.
fl. 17 —19 ára stökk.
fl. 15—16 ára ganga 7,5 km.
fl. 15—16 ára stökk.
fl. 13—14 ára ganga 5 km.
íl. 13—14 ára stökk.
flrl3 —15 ára stúlkur 3 km.
Þátttökutilkynningar þurfa
að haía borist fyrir 1. mars til
Magnúsar Stefánssonar. Aðal-
götu 33. sími 62264. Ólafsfirði.
Sérstaklega skal bent á
göngu stúikna.
• Þessi mynd var tekin, þegar dregið var í riðla fyrir keppnina á Spáni. Lengst til hægri má sjá D-riðil: Checo,
Islandia, Israel.
Jæja, þá er
það alvaran
IIANDKNATTLEIKSLANDSLIÐIÐ er nú komið til Spánar, þar sem alvaran hefst í dag
með leik ísraela og Tékka í D-riðli. En það er einmitt riðillinn sem íslendingar leika í.
Segja má, að allir handknattleiksaðdáendur og liklega enn fleiri hérlendis séu í hálfgerðri
spennitreyju um þessar mundir. Enginn veit hvaða kröfur er hægt að gera og fæstir þora
nokkuð að vona.
Það er tilhneiging til að taka
leikinn gegn úrvalsliðinu í
Laugardalshöll of alvarlega.
Vissulega var landsliðið afar
lélegt í þeim leik, en menn hugsa
dálítið aTtur í tímann, til
Austurríkis fyrir 2 árum, kemur
svipuð sveifla í Ijós. Þá var
þjálfun liðsins undir stjórn
Janusar Cherwinskis í góðu lagi
og í landsleikjum fyrir keppnina
í Áusturríki unnu íslendingar
frækilega sigra á þjóðum eins og
Dönum, Pólverjum, Tékkum og
tvívegis gegn Vestur-Þjóðverj-
um, sem urðu síðan heimsmeist-
arar aðeins ári síðar. Síðan var
haldið til Austurríkis og þar lék
íslenska liðið 2 eða 3 æfingaleiki
við félagslið og úrvalslið.
Nákvæmlega eins og nú, en
landsliðið lék við Fram og
Hauka á Selfossi rétt fyrir brott-
förina til Spánar, auk leiksins
gegn úrvalsliði Ingólfs Óskars-
sönar. Leikir íslenska landsliðs-
ins gegn hinum austurrísku
félagsliðum voru ekki sannfær-
andi, áhugaleysi og mikið skorað
á báða bóga. Þeir voru ekki
alvaran. Þegar út í keppnina
kom, náði landsiiðið lofsverðum
árangri og lék m.a. til úrslita við
Tékka um 3. sætið. í þeim leik
þurfti framlengingu til að skera
úr um úrslit. Þetta er tínt til, til
þess að benda á, að fall lands-
liðsins gegn úrvalsliðinu og
naumir sigrar gegn Fram og
Haukum þurfa ekki að vera
forsmekkur ' af því sem koma
skal, þvert á móti. Sama
„kúrfan" hefur nú endurtekið
sig, þ.e. góðir landsleikir (Baltic
cup og Frakklandsferðin), en
síðan slakir marklausir æfinga-
leikir rétt fyrir stríðið.
Um HM í Danmörku skal sem
minnst ræða, en aldrei skyldu
Islendingar þá gleyma því sem
þar gerðist, heldur miklu frekar
muna það vel svo að af því megi
læra. Þá fór þjálfun liðsins fram
um bréfaskóla, allt starf fór í
vaskinn, sem var miður, því að
þá eins og ávallt lögðu leikmenn-
irnir allt í sölurnar. Og það sem
enn verra var, að vegna hins
góða árangurs í Austurríki héldu
flestir hérlendis að Island væri á
leiðinni á toppinn. Vonbrigðin
urðu því gífurleg þegar ísland
tapaði öllum leikjum sínum í
Danmörku og féll aftur niður í
B-hóp. Blekkingin hafði verið
svo alger meðan á undirbúningn-
um stóð, að allt kom þetta eins
og reiðarslag yfir þjóðina.
Nú varð að byrja aftur frá
grunni og fyrsti liðurinn var að
ráða innlendan þjálfara. Ekki
var hægt að treysta á þá erlendu
meir. Jóhann Ingi Gunnarsson
var skipaður landsliðsþjálfari og
einvaldur liðsins og þó að á ýmsu
hafi gengið í þeim landsleikjum
sem liðið hefur leikið undir hans
stjórn, má segja, að í heildina
hefur hann gert mjög góða hluti.
Árangurinn á Baltic Cup ber þar
hæst, sigurinn yfir Dönum í
Randers, í sömu höll og Danir
rassskelltu íslendinga á HM.
Fyrstu skrefin voru Jóhanni
Inga erfið, tvö töp fyrir Dönum í
Höllinni, en síðan hefur Jóhann
sýnt rækilega að hann er á réttri
leið með liðið og þó að maður sé
hættur að þora að vona nokkurn
skapaðan hlut með íslensk hand-
knattleikslandslið, er óhætt að
vera dálítið bjartsýnn.
En ekkert má út af bregða.
íslenska liðið er nú statt á Spáni
og á morgun er sannkallaður
tímamótaleikur í íslenskum
handknattleik. Við mætum þá
Israelum. Þeir leika við Tékka í
dag og talið er víst að ísraelar
muni að nokkru leyti fórna
Tékkaleiknum, ekki leika af full-
um styrkleika og leggja allt kapp
á að vinna íslendinga. ísraelar
verða engin lömb að leika við,
þeim hefur farið stórlega fram í
handbolta og eiga góða sigra að
baki gegn þjóðum sem Island
vinnur ekki alltaf, Noregi, Sviss
o.fl. Næstu dagana fæst því úr
því skorið hvort íslendingar eru
nafn á handboltakortinu eða
ekki. Sigur gegn Israel verður að
vihnast til að svo megi verða.
Þegar (og ef) því marki er náð,
verður síðan enn að vinnast
sigur gegn væntanlegum mót-
herja í milliriðli og tapi íslend-
ingar fyrir Tékkum og hafni í
öðru sætinu í riðlinum, verður sá
mótherji væntanlega Holland.
— KK-
Grindavík
vann
GRINDAVÍK vann B-lið Njarðvík-
ur í bikarkeppni KKÍ í Njarðvík í
gærkvöldi. Lökastaðan varð
112-88 (56-36). Mark Holmes
skoraði langmest þeirra Grindvík-
inga 38 stig, þar af 30 í fyrri
hálfleik. Rúnar Georgsson skoraði
mest fyrir UMFN, 18 stig, Elvar
Jónsson skoraði 17 stig.