Morgunblaðið - 26.04.1979, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1979
Oddur Olafsson alþm. og
læknir — afmæliskveðja
Aimæliskveðja
frá formanni
Sjálfstæðisflokksins
Oddur Ólafsson, læknir og
alþingismaður, tók ekki sæti á
alþingi, fyrr en á 7. áratug
sínum, sem hann nú fyllir. Áður
var hann löngu þjóðkunnur
maður vegna læknis- og félags-
málastarfa sinna og metinn að
verðleikum. Þingmennskan sem
slík var Oddi Ólafssyni þannig
persónulega enginn vegsauki,
þegar hann tók sæti á alþingi
eftir kosningarnar 1971, en
þingseta hans hefur síðan bæði
aukið álit alþingis og Sjálf-
stæðisflokksins, og staðfest þá
miklu tiltrú, sem Oddur
Ólafsson hafði áður unnið sér
með ævistarfi sínu.
Það væri mikill skaði, ef nýir
siðir í pólitískri baráttu kæmu í
framtíðinni í veg fyrir, að menn
sem Oddur Ólafsson, er njóta
almenns trausts og vinsælda á
starfssviði sínu, gæfu ekki kost
á sér eða ættu ekki völ á
þingsæti, og stjórnmálin og
alþingisseta yrðu alger atvinnu-
mennska.
Ég kynntist Oddi Ólafssyni
fyrst, þegar ég var borgarstjóri,
og hann var í forystu fyrir
Sambandi íslenzkra berkla-
sjúklinga og Öryrkjabandalag-
inu. Hann sýndi þá sem endra-
nær, lagni, dugnað og stórhug,
enda hefur Oddur Ólafsson og
merkir samstarfsmenn hans
unnið stórvirki. Vitað var og að
árangurinn, eins og Reykja-
lundur og byggingarnar við
Hátún, vakti athygli langt út
fyrir landsteinana og þótti
brautryðjendaverk. Sameigin-
legur vinur okkar Odds Ólafs-
sonar, Urban Hansen, fyrrum
yfirborgarstjóri Kaupmanna-
hafnar, hafði oft á þessu orð og
um leið því mikla áliti sem
Oddur Ólafsson nýtur erlendis
meðal þeirra, sem þekkja til
hans verka, en Urban Hansen
hafði einmitt dvalið að Reykja-
lundi sér til heilsubótar áður en
hann varð yfirborgarstjóri.
Oddur Ólafsson hefur
sameinað í skoðunum og starfi
stefnumið Sjálfstæðisflokksins,
einstaklingsfrelsi og framtak,
samhjálp og sjálfsbjörg.
I nafni Sjálfstæðisflokksins
þakka ég Oddi Ólafssyni giftu-
rík störf, ekki sízt á Alþingi
íslendinga, og óska honum, frú
Ragnheiði og fjölskyldu þeirra
allra heilla.
Geir Hallgrímsson.
Oddur Ólafsson læknir og
alþingismaður er sjötugur í dag.
Hann ber þann aldur með ágætum,
raunar með glæsibrag, eins og
hans er von og vísa. Með sömu
ágætum og sama glæsibrag hefur
hann í áratugi verið í forustu
samstarfsmanna, eða eftir atvik-
um samherja, í læknisstörfum,
félagsmálaþjónustu og stjórnmál-
um.
Oddur er Suðurnesjamaður í
húð og hár, Reykjanesmaður
kannski réttara að segja nú orðið,
fæddur á Kalmanstjörn í Hafnar-
hreppi, sonur Ólafs bónda þar og
hreppstjóra Ketilssonar og konu
hans Steinunnar Oddsdóttur
prests og slysavarnafrömuðar
Gíslasonar. I Menntaskólann í
Reykjavík fór Oddur 14 ára en um
það leyti herjaði berklaveiki harð-
ast hér á landi, ekki síst meðal
ungs fólks, enda reyndist um
helmingur skólasystkina Odds fá
smitandi berkla ýmist í skóla eða
síðar. Oddur var í hópi hinna
síðarnefndu. Að loknu stúdents-
prófi 1929 hóf hann nám í lækna-
deild Háskóla íslands en veiktist
illa af lungnaberklum þegar hann
var um það bil hálfnaður með
námið. Hafði þá um haustið staðið
ásamt fleirum að stofnun
stúdentafélags og verið kjörinn
fulltrúi þess i stúdentaráð en
jafnframt unnið sem lækna-
stúdent á Kristneshæli. Þá tók við
tæplega tveggja ára sjúkrahúss-
og hælisvist og berklameðferð
þeirra tíma var hafin og var fram
haldið í hans tilviki í 10 ár alls.
Hann hélt þó traustu taki í náms-
bækurnar meðan hann var á
Vífilsstöðum, hóf skólasókn á ný
haustið 1934 og lauk læknaprófi
vorið 1936. Hafði berklaveikin þá
aöeins náð að tefja hann um eitt ár
frá námi. Síðan var Oddur
aðstoðarlæknir á Vífilsstöðum um
nokkurra ára skeið og öðrum
sjúkrahúsum, m.a. í Bandaríkjun-
um, og var viðurkenndur af heil-
brigðisstjórninni sérfræðingur í
berklalækningum árið 1943.
Á þessum árum herjaði berkla-
veikin áfram fullum fetum um
land allt. Berklahælin voru yfirfull
af misjafnlega veiku fólki, biðtími
eftir vist þar oft of langur, vist-
tíminn oft of stuttur, oftast vand-
kvæði með dvalarstað fyrir og
eftir hælisvist en einkum skorti þó
vinnu við hæfi eftir útskrift. Á
þessum misserum ræddu berkla-
sjúklingar sín á milli að gerast
sjálfir virkir í baráttu við berkl-
ana, sem leiddi til þess að SÍBS
var stofnað á Vífilsstöðum í
október 1938. Oddur skipaði sér í
raðir fyrri samsjúklinga, þótt nú
væri hann jafnframt læknir
þeirra, og sat stofnþingið. Þar með
var teningnum kastað. Oddur var
kosinn í stjórn SÍBS 1940 og hefur
átt sæti í henni síðan, lengur en
nokkur annar.
Aðalstefnumál SÍBS var frá
upphafi að bæta hag berkla-
sjúklinga, einkum eftir útskrift af
hælunum. Árið 1940 ritaði Oddur
grein í 2. tölublað ársrits SÍBS
(Berklavörn) um gildi vinnu-
heimila fyrir berklasjúklinga.
Eftir að línurnar fóru að skýrast
setti SÍBS merkið hátt: Skipaði
vinnuheimilisnefnd 1941 og var
Oddur formaður hennar, keypti 30
hektara lands í Mosfellssveit 1944,
þar sem Réykjalundur nú er, hóf
byggingaframkvæmdir þar í júní
sama ár undir forystu byggingar-
nefndar og var Oddur einn með-
lima hennar. Hendur voru látnar
standa fram úr ermum og verkin
unnin með hraði því að starfsemin
að Reykjalundi hófst formlega 1.
febrúar 1945, einu ári eftir að
landrýmið fékkst, átta mánuðum
eftir að byggingaframkvæmdir
hófust, og þætti það vel af sér
vikið í dag. Áður en starfsemin
hófst hafði að sjálfsögðu verið
rætt rækilega innan SÍBS um
rekstrarhætti væntanlegs vinnu-
heimilis, en hliðstæður rekstur var
enginn í landinu eða nálægum
löndum. Nefnd var skipuð sem
lagði til eins og segir í samþykkt
hennar „að sami maður verði
yfirlæknir og forstjóri fyrir vinnu-
heimili SÍBS“, ræddi síðan við Odd
Ólafsson og eins og áfram segir í
samþykkt hennar „fór þess á leit
við hann að hann tæki að sér þetta
yfirlæknis-umsjónarstarf, þar eð
hann væri hinn eini starfandi
læknir á Iandinu sem kynnt hefði
sér sérstaklega rekstur slíkra
vinnuheimila erlendis, læknisum-
sjá með þeim og heilbrigðisráð-
stafanir, svo og vegna þess að
miðstjórn hafi einkum notið sér-
þekkingar hans um hýsingu vinnu-
heimilisins og framtíðaráætlanir."
Féllst Oddur á að takast þetta á
hendur og var ráðinn til starfsins
frá 1. janúar 1945.
Nú foru í hönd strangir
byggingatímar á Reykjalundi,
smáhýsin byggð hvert af öðru,
aðalhús tekið í notkun 1950, síðan
vinnuskálar einn af öðrum, starfs-
mannahús o.s.frv. Fjöldi vist-
manna jókst jafnt og þétt úr 15 við
opnun í 150 sem er talan í dag. Á
þessum árum markaði Oddur
stefnu Reykjalundar í samráði við
stjórn Reykjalundar og SIBS.
Hann gegndi einn störfum yfir-
læknis og framkvæmdarstjóra til
1948. Yfirlæknisstörfunum gegndi
hann til 30. júní 1970, en eftir það
starfaði hann sem ráðgefandi sér-
fræðingur um ýmis málefni
Reykjalundar til júníloka 1972. Á
þessu tímabili vistuðust alls 2080
menn og konur að Reykjalundi,
ýmsir oftar en einu sinni, sumir
lengi, aðrir stuttan tíma. Auk
læknismeðferðar og heilsugæslu
var að undirlagi Odds mikil
áhersla lögð á félagslega uppbygg-
ingu hvers og eins. Starfsþjálfun
og menntun lét hann sitja í fyrir-
rúmi og að lokinni vist að Reykja-
lundi leitaðist hann við að tryggja
að skjólstæðingarnir ætfu vísa
atvinnu og þar með traustan fjár-
hagsgrundvöll. Með SÍBS fékk
hann einnig miklu áorkað um
húsnæðisútvegun til öryrkja sem
bjuggu í lélegu húsnæði. Frá hendi
Odds var þannig ekki einungis um
venjulega læknismeðferð að ræða
fyrir skjólstæðinga hans, heldur
réðu þau sjónarmið að lækning er
til lítils ef henni fylgir ekki félags-
legt sjálfstæði.
Að sjálfsögðu urðu ýmsar breyt-
ingar á starfsháttum Reykjalund-
ar á þessu 27 ára tímabili. Á
þessum árum var líka unninn
mikill sigur á berklaveikinni í
landinu, svo mikill að berklasjúkl-
ingar þurftu ekki lengur á að
halda öllu rými Reykjalundar
þegar komið varð fram á árið 1958.
Reykjalundur var þá opnaður fyrir
öðrum sjúklingum í þörf fyrir
læknisfræðilega, félagslega og at-
vinnulega endurhæfingu, og var
það gert að fyrirlagi Odds og
annarra stjórnenda þar.
Á þessum árum var Oddur tíð-
um staðgöngumaður héraðs-
læknisins í Alafosslæknishéraði.
Búseta hans í Mosfellshreppi og
afskipti af opinberum málum þar
gerði það að verkum að hann var
kosinn fulltrúi hreppsins í sýslu-
nefnd 1953 og hefur verið það
síðan.
í gegnum störfin í stjórn SIBS
hefur Oddur haft afskipti af fjöl-
mörgum málum sambandsins. Má
þar nefna starfsemi Múlalundar,
vinnustofu SIBS í Reykjavík. Árið
1959 var hann fulltrúi SÍBS í
samstarfsnefnd öryrkjafélaganna
á íslandi, sem lagði grunninn að
stofnun Öryrkjabandalags Islands
1961. Hann var fyrsti formaður
þess og var það allt til 1967.
Öryrkjabandalagið hefur staðið
fyrir byggingu íbúðarhúsnæðis
fyrir öryrkja síðan 1966 og rekur
nú þrjú íbúðarháhýsi í Reykjavík
og eitt í Kópavogi. Húseignirnar
mynda sjálfseignarstofnun og hef-
ur Oddur verið formaður hús-
stjórnar frá upphafi og driffjöðjur
byggingarstarfsins.
Oddur var í stjórn Rauða Kross
íslands á sjötta áratugnum og um
tíma formaður framkvæmda-
nefndar hans. Hann hefur setið í
mörgum nefndum stjórnvalda til
að sinna ýmsum málefnum
öryrkja, m.a. um 15 ára skeið í
nefnd sem úthlutar fötluðum eftir-
gjöf aðflutningsgjalda af bifreið-
um og var formaður hennar i 9 ár.
Hann hefur verið í stjórn lækna-
hússins Domus Medica frá 1967, í
stjórn DNTC (norræna berklasam-
bandsins) nærfellt frá stofnun
þess 1948, í stjórn NFR (norræna
endurhæfingarsambandsins) síðan
1962 og þannig mætti lengi rekja
trúnaðarstörf hans. Á árunum
1967—1969 beitti Oddur sér mjög
fyrir samningu laga um endurhæf-
ingu sem voru samþykkt á Alþingi
1970. Hann var formaður endur-
hæfingarráðs 1970—1974, skipað
samkvæmt þeim lögum.
Þegar Oddur hafði látið af
störfum yfirlæknis að Reykjalundi
féllst hann á að taka þátt í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjaneskjördæmi 1971. Hann
naut góðs fylgis í prófkjörinu, tók
sæti á lista flokksins i kjördæminu
við kosningarnar 1971 og hefur
setið á Alþingi síðan haustið 1971.
Þingstörfum hans verða ekki gerð
skil hér en ætla má að fáir
þingmenn hafi fyrr eða síðar haft
að baki jafnmikla reynslu og hann
í heilbrigðis- og félagsmálum.
Ýmis virðingarvottur hefur
Oddi verið sýndur á liðnum árum
og að verðleikum. Þar eð undir-
ritaður veit 'ullvel að honum væri
síst að skapi að slíkt væri tíundað
á sjötugsafmælinu verður það ekki
gert hér með þeirri undantekningu
þó að láta þess getið að Læknafé-
lag íslands gerði hann að heiðurs-
félaga í nóvember á síðasta ári
sem í því félagi er fremur fágætur
virðingarvottur.
Oddi, Ragnheiði, börnum þeirra
sex og tengdabörnum eru færðar
árnaðaróskir frá Reykjalundi,
jafnt starfsfólki sem vistfólki.
Haukur Þórðarson
Oddur Ólafsson læknir og alþm.
er sjötugur í dag. Af starfsþreki og
ódrepandi áhuga Odds verður ald-
ur hans ekki ráðinn, enda þótt
hann hafi á sviði heilbrigðis- og
líknarmála unnið afrek, sem ómet-
anleg verða íslenzkri þjóð um
ókomna tíma.
Oddur kaus að gefa yngri mönn-
um þar tækifæri og taldi rétt og
reyndar nauðsynlegt, að þeir
byggðu ofan á þann grunn, sem
hann hafði verið svo lánsamur að
leggja með samstarfsmönnum sín-
um og vinum.
Hann gerði sér líka grein fyrir
því, að á sviði líknar- og mannúð-
armála eru verkefnin óþrjótandi
og á löggjafarsamkomu þjóðarinn-
ar gæti hann orðið að liði.
Oddur gaf kost á sér til þingsetu
fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykja-
neskjördæmi, þar sem hann hafði
átt sínar æskustöðvar og forfeður
hans búið um langan aldur og var
kosinn alþm. Reyknesinga 1971 og
hefur setið á Alþingi síðan.
Á Alþingi hefur hann haldið
áfram starfi sínu fyrir þá sem
minna mega sín, auk þess að vera
dugmikill þingmaður umbjóðenda
sinna.
Alla daga ársins er hann á
fleygiferð um kjördæmið, til þess
að fylgjast með lífi og starfi þess
fólks, sem það byggir.
Það var fengur fyrir sjálfstæðis-
menn að Oddur Ólafsson tók sæti
á Alþingi og þeir hinir fjölmörgu,
sem hann hafði unnið fyrir og lagt
lið eignuðust þar traustan mál-
svara.
Við Reyknesingar sendum í dag
Oddi Ólafssyni beztu afmælis-
kveðjur um leið og við þökkum
honum og eiginkonu hans frú
Ragnheiði ómetanleg störf fyrr og
síðar.
Matthías Á. Mathiesen.
Brldge
Umsjón* ARNÓR
RAGNARSSON
Barðstrendinga-
félagið í Rvík.
Nú er lokið Barómeterskeppn-
inni og röð efstu para var þessi:
Stig
1. Kristján Kristjánsson —
Arngrímur Sigurjónsson 205
2. Sigurbjörn Ármannsson —
Hróðmar Sigurbjörnsson 170
3. Helgi Einarsson —
Málfríður Lorange 90
4. Sigurður Kristjánsson —
Hermann Ólafsson 84
5. Hörður Davíðsson —
Ólafur Hermannsson 75
6. Sigurður Elíasson —
Óli Valdimarsson 50
7. Einar Jónsson —
Gísli Benjamínsson 45
Svo ljúkum við vetrarstarfs-
seminni með einmennings-
keppni þann þrítugasta og
verður spilað í þremur 16 manna
riðlum sem þegar fullskipað er í.
Bridgefélag kvenna
Sl. mánudag lauk 5. kvölda
hraðsveitakeppni hjá félaginu.
Spilað var í 2 sjö sveita riðlum
og raðað beint síðasta kvöldið.
Sigurvegari varð sveit Öldu
Hansen sem halut 2973 stig
(meðalskor 2700). Næstu sveitir:
1. Gunnþórunn Erlingsd. 2931
3. Gróa Eiðsd. 2928
4. Aldís Schram 2891
5. Sigríður Ingibergsd. 2790
6. Guðrún Einarsd. 2718
Úrslit í riðlunum síðasta
kvöldið urðu þessi:
A-riðill
1. Alda Hansen 577
2. -3. Gróa Eiðsd. 569
2.-3. Aldís Schram 569
4. Gunnþórunn Erlingsd. 559
5. Sigríður Ingibergsd. 525
6. Guðrún Einarsd. 498
7. Sigríður Jónsd. 483
B-riðill
1. Kristjana Kristinsd. 597
2. Kristín Kristjánsd. 586
3. Sigrún Pétursd. 567
4. Anna Lúðvíksd. 550
5. Guðrún Þórðard. 518
6. Kristín Jónsd. 511
7. Jóhanna Thors. 451
Næstkomandi mánudag, 30.
apríl hefst hin árlega para-
keppni. Um eða yfir 50 pör hafa
að jafnaði tekið þátt í keppni
þessari og geta ekki mörg félög
státað af annarri eins þátttöku.
Að vanda er spilað í Domus
Medica og hefst spilamennskan
kl. hálf átta (19.30) stundvís-
lega. Keppnisstjóri er Ólafur
Lárusson. Þátttökutilkynningar
berist til Öldu Hansen S. 17933
eða Ingunnar Hofmann s. 17987.
Keppnin stendur yfir í 5 kvöld.