Morgunblaðið - 19.06.1979, Side 2

Morgunblaðið - 19.06.1979, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ1979 INNLENT Iðgjald kaskótrygginga: Kostar 96 þús. fyrir Cortínu — ef sjálfsábyrgð er 150 þúsund kr. MORGUNBLAÐIÐ aflaði sér nýlega upplýsinga um grunniðgjald kaskótrygginga bifreiða eftir hækkunina, sem heimiluð var í sl. viku en hún var 54,6%. Tryggingafélögin skipta bifreiðum í fimm flokka. í eftirgreindum tölum er iðgjald miðað við 150 þúsund króna sjálfsábyrgð, sem er algeng. Bónus dregst síðan frá upphæðinni, en hann er annað hvort 20% eða 40% ef hann er veittur en ofan á bætist svo 20% söluskattur. Hið raunverulega gjald er því mismunandi. Margur maðurinn notar sér margmennið á 17. júní til þess að selja það sem hann hefur á boðstólum. Á þessari mynd eru þcir félagar Hannibal Valdimarsson og Halldór Kristjánsson á Kirkjubóli að selja minnispcning Jóns Sigurðssonar, sem Hrafnseyrarnefnd hefur gefið út. Verð hvers penings er 10 þúsund krónur og munu þeir Hannibal og Halldór hafa selt drjúgt af peningunum, þar sem þeir stóðu undir vegg Útvegsbankans við Lækjartorg. — Ljósm. Mbl. — mf. Dómsmálaráðherra um aðgerðir Greenpeace: Landhelgisgæzlunni £al- ið að gæta laga af festu —þó ekki þannig að það verði máístað Greenpeace til framdráttar „MÁLIÐ hefur verið kannað ítarlega, auk þess sem rætt hefur verið við forystumenn Hvals h.f. og Greenpeacemenn voru kallaðir til yfirheyrslu, og Leiguflugvél kom með vör- urfráK.höfn VÖRUFLUTNINGAR með flugi til landsins hafa vaxið mjög síðustu vikur vegna farmanna- verkfallsins. Er hér bæði um að ræða vörur frá Evrópu og Ameríku. Vegna þess að DC-10 þota Flugleiða er ekki í umferð þessa dagana tóku Flugleiðir í gær á leigu flugvél af gerðinni CL-44 og kom sú vél síðdegis í gær með nær 30 tonn af vörum til Keflavík- ur frá Kaupmannahöfn. Að sögn Sveins Sæmundssonar, blaðafull- trúa Flugleiða, er þetta fyrsta leiguvélin, sem Flugleiðir hafa orðið að taka til vöruflutninga vegna þessara miklu flutninga síðustu vikur. Landhelgisgæslunni hefur verið falið að fylgjast vandlega með framvindu mála,“ sagði Steingrímur Hermannsson dómsmála- ráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær er hann var spurður hvort á döfinni væru nýjar að- gerðir vegna aðgerða Greenpeacemanna á hval- miðunum við landið. Dómsmálaráðherra sagði að ljóst væri að Greenpeacemenn hefðu brotið íslensk lög og reglur. Meðal annars hefðu þeir verið með menn um borð í skipi sínu sem þeir hafa ekki tilkynnt til út- lendingaeftirlitsins, auk þess sem framkoma þeirra á miðunum væri tvímælalaust brot á íslenskum reglum. „Við erum í þeirri stöðu, að okkur ber skylda til þess að vernda hvalveiðimennina við sín löglegu störf,“ sagði Steingrímur enn fremur, „en við viljum þó fara þannig að, að aðgerðir okkar gefi þessum mönnum ekki óeðlilega áróðursstöðu, til dæmis í Banda- ríkjunum þar sem hreyfingin er nokkuð sterk og útbreidd. Ég hef því gefið fyrirmæli um það að Gæslunni beri að gera allt sem í hennar valdi stendur til að forðast vandræði, en þó gæta okkar laga með festu. Gæslan mun því fylgjast mun nánar með málinu, og þá væntanlega sjálf standa Greenpeacemenn að broti ef af þeim verður." í VIÐRÆÐUM, sem Benedikt Gröndal utanríkisráðherra átti sl. laugardag við Knud Fryden- lund, utanríkisráðherra Noregs, í Noregi, skýrði Benedikt frá þeim þungu búsifjum, sem verð- hækkanir á olfu hafa valdið íslendingum, þar sem þeir séu bundnir við Rottardam-verð að í flokki 1A eru minnstu bifreiðarnar og þar eru grunnið- gjald miðað við 150 þúsund króna sjálfsábyrgð 78.050 krónur. í flokki 1B, þar sem eru bílar eins Lenti á ljósa- staurogvalt UMFERÐARSLYS varð í gær- kvöldi um kl. 20 á Reykjanes- braut á mótum Hafnarfjarðar- vegar í Engidal. Fólksbifreið var ekið norður Reykjanesbraut og lenti hún á ljósastaur. Fór bifreiðin eina veltu og hafnaði á toppnum. Ökumaður- inn var einn í bílnum og hlaut hann höfuðmeiðsl og var fluttur á Slysadeild Borgarspítalans en rannsókn á meiðslum hans stóð enn yfir seint í gærkvöldi. FORSETI bæjarstjórnar í Vest- mannaeyjum, Sveinn Tómasson, fótbrotnaði í einu skemmtiatrið- anna á þjóðhátíðardaginn í Eyj- því er fram kemur í fréttatil- kynningu frá utanríkisráðuneyt- inu. Spurði Benedikt Fryden- lund, hvernig Norðmenn myndu taka ósk frá íslendingum um viðræður um sölu á norskri olíu til íslands næstu áratugi á hag- stæðara verðlagi en nú tíðkaðist. Segir í tilkynningu ráðuneytis- og t.d. Ford Escort og Austin Allegro er iðgjaldið 91.560 krónur. I flokki 1C, þar sem eru bílar eins og t.d. Ford Cortina og Mazda 923 eru iðgjaldið 95.900 krónur. í flokki 1D, þar sem eru bílar eins og Audi 100 og Lancer er iðgjaldið 134.960 krónur. Loks í flokki 1E, þar sem eru stærstu fólksbílarnir er iðgjaldið 146.230 krónur. Iðgjaldið hækkar svo eftir því sem sjálfsábyrgðin er lægri en lækkar aftur á móti ef sjálfs- ábyrgðin er hærri, en hæst er sjálfsábyrgð 600 þúsund krónur. 25hvalir í GÆRKVÖLDi voru komnir á land í Hvalstöðinni í Hvalfirði 24 hvalir og að sögn starfsmanna í stöðinni var einn hvalbátanna búinn að fá einn hval til viðbótar en var enn úti. Meirihluti og minnihluti bæjar- stjórnarinnar kepptu í poka- handbolta. Lentu meirihlutinn og minnihlutinn í einni kös og kom forsetinn fótbrotinn úr kösinni. ins að Frydenlund hafi tekið þessu máli mjög vel og sagt það yfirlýsta stefnu Norðmanna að taka tillit til annarra Norðurlanda í olíuvið- skiptum. Kvaðst Benedikt mundu leggja þetta mál fyrir ríkisstjórn Islands. Fund Benedikts og Frydenlund sátu einnig Páll Tryggvason sendiherra í Ósló og Jens Evenson, hafréttarfræðingur ásamt fleiri norskum embættismönnum. Var á fundinum rætt ítarlega um mál- efni Jan Mayen, sérstaklega um hugsanlega loðnuveiði á þessu sumri á Jan Mayen-Grænlands- svæðinu. Ákveðið var, að sérfræð- ingar sjávarútvegsráðuneytanna einbeittu sér í viðræðum að loðnuveiðum og reynt yrði að koma í veg fyrir árekstra í veiðun- um í sumar og þátttöku nýrra aðila. Benedikt Gröndal dvaldist í Noregi sl. föstudag og laugardag í boði Fræðslusambands alþýðu (AOF) og tók þátt í umræðum á fjölmennu þingi í Lillehammer að því er segir í tilkynningu ráðu- neytisins. um. Frydenlund í samtali við Benedikt Gröndal: Tók vel í sölu á olíu til íslands næstu áratugi Forsetinn í Eyjum fótbrotnadi ísland greiddi atk vædi gegn rádum vísindanefndarinnar -segir David McTaggart, einn af forystumönnum Greenpeacsamtakanna „YFIRLÝSING Hvals h.f. um að Island hafi ávallt farið eftir ráðum vísindanefndar Alþjóða hvalveiðiráðsins er ekki rétt. Til að mynda hafa farið fram mikilvægar atkvæðagreiðslur í ráðinu síðustu tvö árin um friðun búrhvala í Indlandshafi. ísland greiddi þá atkvæði gegn tillögum visindanefndarinnar og olli þar með nær því út- rýmingu hvala þar,“ sagði David McTaggart, einn af forsvars- mönnum Greenpeacesamtak- anna á Rainbow Warrior í samtali við Mbl. „Hinn 9. júlí liggja fyrir Al- þjóða hvalveiðiráðinu tvær tillög- ur, ákaflega mikilvægar báðar. Hin fyrri er frá Bandaríkjamönn- um, sem gerir ráð fyrir algjöru tímabundnu banni á hvalveiðar til iðnaðar, en þar eru undan- skildar til að mynda hrefnuveiðar eins og þið stundið. Ástæðan fyrir þessu banni er, að hvalveiði- þjóðirnar hafa ekki fylgt ráð- leggingum vísindanefndar Al- þjóða hvalveiðiráðsins. Þær þjóð- ir, sem hafa einkum brotið gegn þessu eru Japanir og Sovétmenn en einnig íslendingar, Norðmenn og Danir. Það á enginn von á því, að ísland sé fylgjandi algeru banni en Islendingar verða að átta sig á af hverju tillagan liggur frammi. Hún er fram komin af því að ísland ásamt öðrum þjóðum hefur ekki fylgt ráðum vísindanefndarinnar. í öðru lagi liggur fyrir tillaga frá Shesheyelseyjum í Indlands- hafi um friðun búrhvala í Ind- landshafi og hluta af Kyrrahafi. Það er mjög mikilvægt að ísland sé fylgjandi þessu banni en ís- lendingar eiga ekki hagsmuna að gæta þar. Atkvæði íslands getur riðið baggamuninn í atkvæða- greiðslunni en allir vita að bann á búrhvalaveiðar á þessu svæði mundi verulega minnka hvalveiðar Japana. Það munu margir fylgjast af eftirtekt með því hvernig þessari atkvæða- greiðslu lyktar í Lundúnum. Þá hefur það valdið furðu okkar, sem fylgjumst með þess- um málum, að hvalveiðar skuli ekki hafa verið ræddar í þinginu, þar sem jafnmikilvæg mál eru. Báðar þingdeildir Bandaríkja- þings hafa lýst fylgi sínu við bann, hvers vegna er þetta þá ekki til umræðu á Alþingi. Af hverju þessi leynd — hér er ekki um stríð að ræða,“ sagði David McTaggart að lokum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.