Morgunblaðið - 19.06.1979, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 19.06.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JUNÍ1979 3 Steinar bóndi (Jón Laxdal) er hér að hitta jöfur i höll hans í Danmörku. Úr fyrsta hlutanum af Paradfsarheimt, sem tekinn var fyrir nokkrum dögum suður í Þýzkalandi. Sólarleysi haml- aði kviimiyndun úti SÓLARLEYSI bagaði kvik- myndagerðarfólk suður f Þýskalandi, þegar teknar voru fyrstu kaflarnir af Brekkukots- annál. En inniatriðin í höllinni, þar sem Steinar bóndi hittir konung, tókust mjög vel, að því er Jón Laxdal tjáði Mbl. í gær. 25 manna hópur frá NDR sjón- varpinu þýzka kom til íslands f fyrrinótt til hefja kvikmyndun- ina hér. Þættirnir úr höllinni voru teknir í undurfallegri höll, er nefnist Panker, og er skammt sunnan við dönsku landamærin og tókust vel, að sögn Jóns. En útiatriðin er áformað vegna ónógrar birtu að taka aftur í haust, bæði atriðið utan við höllina og atriðin við Pilkristín- arölkeldu, en sá staður í kvik- myndinni er skammt frá Ham- borg. Tvær útafkeyrslur í Borgarfirðinum Breytingar og tafir, en all ir haf a komist á leiðarenda —segir Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi Flugleiða um erfiðleikana vegna kyrrsetningar DC-10 þotunnar „VIÐ BÍÐUM að sjálfsögðu spenntir eftir því að heyra hvað ákveðið verður á fundi flugmálayfirvalda í Ziirich í dag,“ sagði Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi Flugleiða í samtali við Morgunblaðið í gær, er hann var spurður hvort eitthvað nýtt væri að frétta af DC 10 þotu Flugleiða sem er sem kunnugt er föst í New York. TVÆR útafkeyrslur urðu í Borg- arfirði um helgina. Sú fyrri varð á laugardag er fólksbifreið fór út af veginum undir Hafnarfjalli. Þrennt var í bílnum og hlaut kona, sem sat í aftursæti bílsins meiðsl á hrygg og liggur nú á Sjúkrahúsinu á Akranesi en meiðsl hennar eru ekki talin alvarleg. Maður og barn sátu í framsætunum og voru bæði í öryggisbeltum. Sluppu þau ómeidd og er talið að öryggisbelt- in hafi komið í veg fyrir að þau slösuðust. bílsins, sem fór út af í Skorradaln- um, hafi verið ölvaður. Tildrög slyssins undir Hafnar- fjalli voru þau að bílinn kom akandi að sunnan, og er talið að hann hafi lent í hvarfi og ökumað- ur hafi misst stjórn á bílnum, sem fór út af veginum og eina veltu. Hvarf þetta sást illa að sögn lögreglunnar í Borgarnesi, þegar komið var að sunnan, og var sett aðvörunarmerki við það strax eft- ir slysið. Bílinn er mjög illa farinn. Sveinn sagði að inn í New York flugið hefði verið tekin þota af gerðinni DC 8, sem átti að vera í Evrópuflugi. En Evr- ópufluginu var bjargað með því að færa til áætlanir, þannig að sumar vélar sem eiga að fara tvær ferðir fara nú þrjár ferðir, og hið sama hefur gilt um sólarlandaflug, fljúga hefur þurft að kvöldinu og fram á nótt. Sagði Sveinn að með þess- um hætti hefðu allir komist leiðar sinnar, en með breýting- um og sumir með nokkrum Sleit flug- vélin raf- magnslínu? RAFMAGNSLÍNA við bæinn Jarðlangsstaði í Borgarhreppi í Mýrasýslu slitnaði laust eftir miðnætti aðfararnótt mánudagsins og er talið að lítil eins hreyfils flugvél hafi flogið á streng- inn og slitið hann en streng- urinn er í um 6 metra hæð frá jörðu. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi hefur flugmaður vélar, sem grunur leikur á að þarna hafi verið á ferð, neitað að hafa flogið á strenginn og er málið enn í rannsókn. Þegar strengurinn slitnaði fór rafmagn af nokkrum bæjum í nágrenninu en gert var við bilunina að fullu undir morgun. töfum, jafnvel nokkurra klukku- stunda töfum. Sagði hann að þessir erfiðleikar hefðu haft í för með sér mikið aukaálag á starfsfólk Flugleiða, einkum vegna breytinga á farskrám, áhafnaskrám, afgreiðslu og fleiru. Áhöfn DC 10 þotu Flugleiða bíður í New York, til þess að geta flogið vélinni með stuttum fyrirvara ef einhverjar breyt- ingar verða, og hefur nýlega verið skipt um áhöfn sem þar beið. í gær barst Flugleiðum skeyti frá Douglasverksmiðjun- um, þar sem sagt var frá því að þess hefði verið farið á leit við flugmálastjórn Bandaríkjanna að málinu verði hraðað, og einnig sagðist Sveinn telja að ef ákvörðun fundarins í Sviss verð- ur jákvæð þá muni fara að styttast í lok kyrrsetningar DC 10 vélanna. Sagði Sveinn að lokum að ástandið ylli Flugleiðum tals- Ilúsvík, 18. júní. ÞAÐ hörmulega slys varð hér í gær, þjóðhátíðardaginn, að 11 ára drengur féll fram af Húsavíkur- höfða um 60 metra fall og mun hafa látist samstundis. Ekki er hægt.að birta nafn drengsins að svo stöddu. Tveir drengir voru þarna í björg- unum, rétt utan við vitann í Húsa- víkurhöfða, og hafa þeir líklega verið að gá að fuglshreiðrum. Virðist sem verðum erfiðleikum, en ljóst væri þó að það væri enn verra hjá þeim flugfélögum, sem væru með margar DC 10 vélar í gangi. Morgunblaðið hafði í gær samband við Gunnar Finnsson hjá Alþjóða flugmálastofnun- inni og innti frétta af DC 10 málinu. Gunnar kvað þá ekki hafa verið beðna að fjalla um málið þar sem það væri á frum- stigi og mál flugstjórna viðkom- andi landa, ennþá a.m.k. Kærði 3 pilta fyrir nauðgun FIMMTÁN ára stúlka kærði þrjá pilta á aldrinum 15 til 17 ára íyrir nauðgun er átti sér stað í húsi í Reykjavík aðíarar- nótt laugardagsins. Rannsóknarlögregla ríkisms hefur haft málið til rannsóknar og hafa piltarnir játað þátt sinn í málinu. aurskriða hafi fallið úr bjarginu og tekið annan drenginn með sér niður í stórgrýtta urð. Læknar og björgun- arlið komust fljótt á staðinn, þó að þangað þyrfti að fara á bát og bentu verksummerki til þess að litli dreng- urinn hefði látist samstundis. Hátíðarhöldum í tilefni þjóðhátíð- ardagsins á Húsavík var aflýst þegar fréttin um slysið barst um nónbilið. — Fréttaritari. Ellef u ára dreng- ur beið bana í Húsavíkurhöfða Talstöð stol- ið úr bíl TALSTÖÐ var stolið aðfararnótt s.l. laugardags úr Ford Escort bifreið sem stóð fyrir utan Grundarstíg 2 í Reykjavík. Eigandi bifreiðarinnar er starfsmaður ríkisútvarps og á bifreiðina og talstöðina sjálfur. Þeir sem geta gefið upplýsingar um málið eru vinsamlegast beðnir um að láta rannsóknarlögregluna vita. Talstöðin er af gerðinni Lafayette Micro 66, en slík stöð kostar liðlega hundrað þúsund krónur. Þá var fólksbíl ekið út af veginum í Skorradal árla morguns á sunnu- dag og fór bílinn eina veltu. Ökumaður og farþegar sluppu með skrámur en bílinn er talinn ónýt- ur. Grunur leikur á að ökumaður Ih'hkí mynd er al bflnum sem lór út al veginum undir Iialnarljalli „Eiga norskir fiskhnenn alltaf að gefa eftir...?” Mikið skrifað um Mand og Jan Mayen í norsk blöð „VIÐ tökum því ekki þegjandi og hljóðalaust ef norsk stjórnvöld viðurkenna einhliða niðurskurð íslendinga á loðnukvóta Norðmanna við Jan Mayen,“ segir Per Sævik, formaður samtaka norskra útgerðarmanna, í samtali við Bergens Tidende í síðustu víku. „Það er ekki til umræðu af okkar hálfu að semja við íslendinga um þessar veiðar fyrr en Norðmenn hafa fengið efnahagslögsögu í kringum Jan Mayen. Hingað til höfum við Norðmenn haft nokkra meðaumkvun með íslendingum í hvert skijpti, sem þeir hafa fært út landhelgi sína án nokkurrar viðurkenningar annarra þjóða. Eg fæ ekki séð að við getum heldið því áfram,“ scgir Per Sævik. í norsk blöð hefur að undanförnu verið mikið skrif- að um Jan Mayen málið, loðnuveiðar þar, miðlínu eða 200 mílna lögsögu íslendinga. Mikil óánægja er greinilega meðal norskra sjómanna og útgerðarmanna með aðgerðir Islendinga og sömuleiðis finnst þessum aðilum að norsk stjórnvöld hafi of lengi haldið að sér höndum. í fyrrnefndu viðtali við Bergens Tidende segir Per Sævik að íslendingar hafi gengið einum og langt með því að ákveða að frá og með 1. júní sl. áskilji þeir sér allan Knallliarile islanilskr lnilile-kra\ «DET ER VAR ■.OIHHSIXMHIi)) Isl ra ln-nsyn lil „—i - lslandsk ikke kom <fVi tvile Norges rett» •.» Jan Mayen-sonen \ tab' er klar m *sland , pphe n. ayen rétt í fiskveiðilögsögu sinni og fara þar með yfir mið- línuna gagnvart Jan Mayen. — Þetta er brot á öllu því, sem almennt er viðurkennt í heiminum, segir Sævik. — Alls staðar er miðlínureglan í heiðri höfð, en íslendingar hafa ævinlega fært landhelg- ina lengra og lengra út án tillits til nokkurs annars. — Utgerðarmenn spyrja nú hvort það sé nauðsynlegt að norskir fiskimenn gefi alltaf eftir. í Baréntshafinu urðu Norðmenn að gefa eftir fyrir Sovétríkjunum og sam- þykkja minni loðnukvóta en þeir höfðu áunnið sér með hefð, vegna þess að Sovétrík- in eru stærri en Noregur. Við Jan Mayen er talað um að afsala sér réttindum til ís- lendinga af því að ísland sé svo lítið. Skilji hver sem getur þessa röksemdafærslu, segir Sævik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.