Morgunblaðið - 19.06.1979, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 19.06.1979, Blaðsíða 45
45 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 1979 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL 10 — 11 FRÁ MÁNUDEGI landinu, setja útflutningsbann á lífsnauðsynjar þjóðarinnar og stofna verðmætum hennar í voða í' stórum stíl með verkfallsbraski. Þegar konungssambandinu var slitið og ísland varð lýðveldi árið 1944, varð Dönum nokkuð heitt í hamsi af því tilefni. Blað eitt í Kaupmannahöfn talaði t.d. um „skríparíkið ísland“. Mér hefir oft á síðustu árum dottið í hug, hvort við íslendingar ætluðum að láta þessi orð hins danska blaðs ásannast. 14. júní 1979, Bjartmar Kristjánsson. • Passið kettina Mig langar að gera fuglsung- ana sem nú eru sem óðast að skríða úr eggjunum og kettina sem sífellt eru á stjái í kringum þá og í leit að æti að umtalsefni bréfs míns. I húsagarði mínum var hreiður með 5 eggjum. Einn góðan veður- dag voru ekki lengur egg í hreiðr- inu, ungarnir voru skriðnir úr eggjunum. Þeir höfðu hins vegar ekki verið í hreiðrinu nema nokkra daga er köttur hafði étið þá alla. Ekki nóg með það heldur er þessi sami köttur í garðinum svo að segja á hverjum degi til að leita sér að meiri fæðu. Fæðuöflun er gangur náttúr- unnar, en flestir kettir hér á landi eru vel aldir heima við og þyrftu því ekki að veiða fugla. En svo framarlega sem þeir eru ekki passaðir fullnægja þeir rándýrs- eðli sínu. Það þýðir ekkert að segja sem svo: „kötturinn minn er með bjöllu svo fuglarnir geta varast hann“. Ungarnir sem ekki eru orðnir fleygir geta ekki varast ketti. Því vil ég skora á alla kattaeig- endur að hafa ketti sína inni við þann tíma sem ungarnir eru að koma úr eggjunum. Það er ósköp sárt að sjá fiður og tægjur eftir ungana þegar köttur eða fleiri hafa fullnægt eðli sínu á þeim. Fuglavinur. Þessir hringdu . . . SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Fyrir skömmu háðu Sovétmenn og Júgóslavar sína árlegu lands- keppni í skák. Þessi staða kom upp á öðru borði í skák Petrosjans, sem hafði hvítt og átti leik gegn Ivkov. 35. Hxd4! og svartur gafst upp. Ef svartur drepur hrókinn til baka leikur hvítur 36. Hxe5+ — Kxg4, 37. h3 mát. Keppninni lauk með sigri Sovétmanna, 25—15. Á fyrsta borði vann Tal Velimirovic 2'/2:l!/2 og á sömu leið fór viður- eign þeirra Petrosjans og Ivkovs á öðru borði. Á kvennaborðunum tveimur höfðu Sovétmenn mikla yfirburði, unnu 8—0. • Misjafnt álit- ið á dagskrá sjónvarpsins Tvær konur hringdu til Vel- vakanda í gær til að láta í ljósi álit sitt á dagskrá sjónvarpsins að kvöldi hins 17. júní. Guðrún Þórðardóttir hafði þetta að segja: „Mér finnst dagskrá sjónvarps- ins á 17. júní vera mjög góð. Hún var allt í senn, hátíðleg, þjóðleg og skemmtileg. Einnig voru dag- skrárliðirnir valdir þannig, að eitthvað var við allra hæfi. Einnig er það þakkarvert að sjónvarpið skyldi hafa svo mikið af efni fyrir unglinga og svo lengi og mun það áreiðanlega hafa haldið mörgum unglingnum heima við.“ En J.S. var ekki sammála Guð- rúnu: „Mér finnst það fyrir neðan allar hellur að sýna svo mikið af popptónlist fyrir unglinga.á 17. júní. Flest skemmtiatriði þjóð- hátíðarinnar á þessum tíma (þ.e síðla kvölds) eru sniðin fyrir unglinga og þá finnst mér vera að bera í bakkafullan lækinn að hafa dagskrá sjónvarpsins einnig fyrir unglinga. Hvað eigum við gamla fólkið að gera þetta kvöld? Sum okkar eru það illa farin að við komumst ekki út, en ef við förum út og ætlum í nánd við þá staði sem hátíðarhöld eru mætir okkur ekkert annað en glymjandi popp- tónlist og drukknir unglingar. Það væri nær að hafa þjóðlega dagskrá á 17. júní eins og til dæmis myndina sem sýnd var um gömul vorverk. Fleira slíkt hefði mátt sjást á skjánum á 17. júní í stað „skrípafígúra og gargs“. HÖGNI HREKKVÍSI Frá þingi Landssambands framhaldsskólakennara. Ragnar Arnalds í ræðustól og sitjandi f.v.: Magnús Jónsson, Ólafur S. Ólafsson og Guðmundur Árnason. Frá þingi Landssambands framhaldsskólakennara: Kennarafélög sameinuð í Kennarasambandi íslands KRINGUM 80 fulltrúar sátu fulltrúaþing Landssmabands fram- haldsskólakennara sem haldið var í Reykjavik dagana 5.-7. júní. Forseti þess var Magnús Jónsson skólastjóri. Aðalviðfangsefni þingsins voru sameiningarmál kennarafélaganna, þ.e. Sambands grunnskólakennara og Landssambands framhaldsskólakennara en þau telja alls um 2.800 félaga. í frétt frá L.S.F.K. segir m.a. að samþykkt hafi verið einum huga að stofna til nýrra heildarsamtaka með því að sameina þessi félög í eitt sem nefnist Kennarasamband íslands. Þá kom það nýmæli fram á þinginu eftir tillögum landssambandsstjórnar að efna tií félagsskapar meðal kennara, sem komnir eru á eftirlaun og var Magnúsi Jónssyni skólastjóra falin forysta í því máli. Innan þessa nýja sambands verði eftirtalin félög: a) félags- deildir grunnskólakennara í ein- stökum landshlutum, b) félag framhaldskólakennara fyrir kenn- ara í framhaldsskólum um land allt og c) félag kennara á eftir- launum. Stofnþing fyrir hið nýja kennarasamband verður haldið 1980 og fram til þess tíma mun sérstök samstarfsnefnd starfa og fara með þau mál er varða sam- böndin sameiginlega og núverandi stjórnir fela henni. Samhljóða samþykkt var gerð á aukaþingi Sambands grunnskólakennara, sem haldið var samtímis í Reykja- vík. Að öðru leyti snerist starf þingsins um venjuleg aðalfund- arstörf, kjaramál og skólamál almennt. í kjaramálum var lögð höfuðáhersla á, að kennarastarfið verði það vel metið til launa, að kennarar þurfi ekki að sækjast eftir yfirvinnu. Skólamál voru mikið rædd og hér verða birtar tvær samþykktir, sem þingið gerði varðandi þau. 16. fulltrúaþing L.S.F.K. fagnar þeim áfanga sem náðst hefur i málum réttindalausra kennara sbr. reglugerð við lög nr. 51/1978. Þingið varar þó við því að þessi áfangi sé skoðaður sem endanleg lausn, en hvetur til þess að málinu verði fylgt eftir með aðgerðum sem komi í veg fyrir endurnýjun kennarastéttar í framtíðinni með réttindalausu fólki. 16. fulltrúaþing L.S.F.K. sam- þykkir vítur á þá alþingismenn, sem nota svo mikilsvert mál sem framhaldsskólafrumvarpið er, í pólitískum tilgangi og stöðva framgang þess með málþófi. Þing- ið beinir því til stjórnvalda að lög um framhaldsskóla verði sam- þykkt sem allra fyrst, enda all- sendis ótækt að framhaldsskólar starfi eins og raun ber vitni án þess að þar að lútandi löggjöf sé fyrir hendi. Þær breytingar urðu við for- mannskjör, að Ólafur S. Ólafsson sem verið hefur formaður sam- bandsins s.L 13 ár lét nú að eigin ósk af formennsku og var kjörinn heiðursfélagi, en Guömundur Árnason, framkvæmdastjóri L.S.F.K. var kosinn formaður. Aðalfundur Samb. borgfirzkra kvenna: Skora á stjórn- völd að hækka íbúða- lán til ungs fólks SAMBAND borgfirzkra kvenna hclt sinn 48. aðalfund dagana 31. marz og 1. apríl s.l. að Brautartungu í Lundar- reykjadal. Um 30 fulltrúar sátu fundinn. auk stjórnar og gesta, sem voru að þessu sinni for- maður Kvenfélagasambands ís- lands, Sigríður Thorlacius, og varaformaður K.Í.. Sigurveig Sigurðardóttir. I Sambandi borgfirzkra kvenna eru 17 kvenfélög með 938 félaga alls. Sambandið er eign- araðili að Minningarsjóði Ingi- bjargar og Guðmundar Böðvars- sonar bónda og skálds. Sjóður- inn á og rekur hús skáldsins að Kirkjubóli á Hvítársíðu. Á s.l. ári dvaldist skáldið Guðmundur Ingi Kristjánsson í húsinu sem gestur sjóðsins. Full nýting er á húsinu yfir sumarmánuðina. Á aðalfundinum voru margar áskoranir og tillögur um ýmis félags- og heilbrigðismál sam- þykktar. Skorað var á stjórnvöld að hlutast til um að íbúðalán til ungs fólks, sem er að byrja eða kaupa húsnæði í fyrsta sinn, verði hækkuð í um 80% kostnað- arverðs íbúða af hóflegri stærð og verði veitt til mun lengri tíma en nú er. Aðalverkefni S.B.K. á þessu starfsári verður að taka á móti landsþingi Kvenfélagasambands Islands, sem haidið verður að Varmalandi í Borgarfirði dag- ana 22.-24. júní n.k. Stjórn Sambands borgfirzkra kvenna skipa nú: Magdalena Ingimundardóttir formaður, Akranesi, Kristjana Höskulds- dóttir, Melaleiti, Hildur Þor- steinsdóttir, Borgarnesi, Guðrún Bergþórsdóttir, Varma- landi og Gréta Gunnarsdóttir, Akranesi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.