Morgunblaðið - 19.06.1979, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 1979
Árið 1973 — hlutar úr hreyfli DC-10 köstuðust í Árið 1972. Hurðin opnaðist á flugi. Þá tókst að nauðlenda en tveimur árum síðar biðu
skrokk vélarinnar. Einn maður fórst. 349 manns bana við Orly-flugvöll þegar hurð opnaðist á DC-10 og hún hrapaði til
jarðar.
Alls hafa 623 manns
faristmeð
Flugmálayfirvöld í 21 Evrópulandi ákváðu á fundi í
Strassborg í sl. viku að stefna að því að DC-10 þotur í
eigu evrópskra flugfélaga hefji flug í dag. DC-10
þotur í eigu evrópskra flugfélaga eru 58 en 68 í eigu
bandarískra. alls er 281 þota af þessari gerð í
heiminum. Umfangsmikil skoðun fer fram á þotunum,
eftirlit verður mjög umfangsmikið og nákvæmt. Með
ákvörðuninni í Strassborg hafa flugmálayfirvöld í
Evrópu gengið þvert á stefnu bandarísku flugmála-
stjórnarinnar, FAA. Nú er nokkurs konar kalt stríð á
milli þessara aðila. FAA svaraði þegar með því að
banna flug DC-10 þotna til Bandaríkjanna.
Mikill þrýstingur var frá flug-
félögum í Evrópu um að fá að
setja DC-10 þotur sínar í gagnið
og voru skoðanir nokkuð skiptar.
Frönsk og svissnesk flugmálayfir-
völd vildu að DC-10 hæfu flug
þegar í stað, en Bretar, V-Þjóð-
verjar og Danir vildu fylgja for-
dæmi bandarísku flugmálastjórn-
arinnar, FAA. Það var því fallist á
málamiölun — að aflokinni ná-
kvæmri skoðun og síðan umfangs-
miklu eftirliti skyldu þær fá að
fljúga aftur. Yfirflugvirki Luft-
hansa-flugfélagsins sagði, að eft-
irliti Evrópumanna og Banda-
ríkjamanna hefði ekki verið eins
háttað. Bandaríkjamenn hefðu
tekið allan hreyfilinn af ásamt
festingum upp að væng. Flugvirkj-
ar í Evrópu hefðu tekið hreyfilinn
sér, festingarnar á milli hreyfils
og vængs sér. Þannig hefðu ein-
mitt fyrirmæli frá McDonnel
Douglas-verksmiðjunum hljóðað.
Þá eru flestar DC-10 þotur í eigu
evrópskra flugfélaga af gerðinni
DC-10, 30 og DC-10, 40. Þotan sem
hrapaði við Chicago var hins
vegar af gerðinni DC-10, 10. Þegar
FAA kyrrsetti allar DC-10 þotur
þá komu gallar einkum fram í
DC-10, 10 gerðunum. Þær þotur
eru einkum ætlaðar til styttri
flugleiða en hin DC-10, 30 og 40 til
lengra flugs. Flugleiðir eiga ein-
mitt DC-10, 30. Þetta hafa flugfé-
lög í Evrópu bent á og viljað fá
síðarnefndu gerðirnar í gagnið.
Bandaríska flugmálastjórnin hef-
ur staðið föst á sínu — og deilur
hafa risið.
FAA gagnrýnt mjög
í Bandaríkjunum
Málið er hins vegar mjög við-
kvæmt i Bandaríkjunum, og ýmsir
aðilar í Evrópu hafa gefið í skyn,
að pólitík sé hlaupin í spilið sem
geri það allt erfiðara. Langhorne
Bond, flugmálastjóri Bandaríkj-
anna, hefur verið mjög gagnrýnd-
ur. Hann hefur setið fyrir svörum
hjá þingnefndum og stofnun hans,
FAÁ, hefur átt mjög undir högg
að sækja. Ásakanir hafa jafnvel
gengið svo langt, að sagt hefur
verið að DC-10 þotur hafi aldrei
átt að fá að fara í loftið, fá leyfi
FAA. I grundvallaratriðum hafi
bygging þeirra ekki verið rétt,
ýmsum öryggisatriðum sé áfátt.
Þannig séu vökvakerfi í vængi í
DC-10 aðeins þrjú en í Boeing 747
og L-1011 þotunni frá Lockheed
séu þau fjögur. Augu rannsóknar-
manna. beinast nú mjög að því, að
tvö vökvakerfi í DC-10 þotunni
hafi farið úr sambandi og vinstri
vængurinn því orðið stjórnlaus, og
þotan hrapað. Festingum hreyfla
við vængi sé áfátt, DC-10 þotan sé
einfaldlega meingölluð. Ray E.
Ray, flugvirki hjá American Air-
lines í Los Angeles, hefur haft
miklar áhyggjur af tíunum. „Þær
hafa ekki verið svo lengi í notkun,
í hvert sinn sem nánar er skoðað
en venja er til finnast sprungur.
Mikið álag er á vökvakerfinu, það
titrar allt of mikið, og brýtur
festingarnar sem eiga að halda því
föstu,“ sagði hann. En augu
manna hafa ekki bara beinst að
þotunni sjálfri. Heldur og eftirliti
þeirra, hversu vel hafa flugvirkjar
unnið sitt starf. Þegar vél missir
hreyfil — ætti þá ekki að vera
búið að sjá það fyrirfram? Enn
hefur ekki verið gefin opinber
skýring á hrapi þotunnar, né á því
hverjum væri um að kenna. „Fari
svo að orsakir slyssins við Chicago
verða raktar til lélegs viðhalds og
eftirlits þá verður það í fyrsta
sinn í mörg ár í Bandaríkjunum,"
sagði Ernest J. Boyer, einn af
starfsmönnum FAA.
Gallar hafa fundist í mörgum
DC-10 þotum. Þegar FAA fyrir-
skipaði nákvæma skoðun á DC-10
þotum þá komust tveir flugvirkjar
á O’Hare flugvelli að óhugnanlegri
staðreynd. Þeir Larry Schluter og
Ernie Gigliotti voru að skoða
DC-10 þotu frá United Airlines.
Þeir gátu hreyft afturhreyfilinn
með höndunum einum saman,
fram og aftur. „Við fundum
sprungur svo stórar að lá við að
hægt væri að detta um þær.
Hnoðnaglar voru brotnir, festing-
ar úr lagi gengnar. Skemmdirnar
voru hreint ótrúlegar, og í sann-
leika sagt þá skelfdi þetta okkur,"
„Kalt stríð” mHli evrópskra
flugyfírvalda og bandarísku
flugmálastjómarinnar
Hreyíill á DC-10 breiðþotum er gífurleg smíð eins og sést á myndinni.
DC
Þota Flugleiða — nú kyrrsett. Hún er af gerðinni DC-10, 30. Hins
vegar hafa gallar einkum fundist í DC-10,10. Flugfélög víða um heim
hafa lýst yfir íullu trausti á DC-10, 30 og 40 gerðunum.
sagði Giliotti. Þeir höfðu skoðað
nákvæmar en kvað á um í fyrir-
mælum, sem FAA gaf um skoðun.
Það var aðeins tímaspursmál
hvenær hreyfillinn hefði dottið af
með hörmulegum afleiðingum.
Mönnum stóð ekki á sama og
gagnrýni á DC-10 fór dagvaxandi í
Bandaríkjunum. Skömmu síðar
gaf FAA út fyrirmæli um að allar
DC-10 þotur skrásettar í Banda-
ríkjunum skyldu kyrrsettar.
Níu ár síðan
DC-10 var
tekin í notkun
Nú eru níu ár síðan DC-10 þotan
var tekin í notkun og það var
sjálfur Spiro Agnew, varaforseti
Bandaríkjanna, sem vígði fyrstu
þotuna. Þessi þota kom í kjölfar
Boeing 747 og skömmu eftir að
fyrsta DC-10 þotan flaug sitt
fyrsta flug sendu Lockheed-verk-
smiðjurnar sína fyrstu breiðþotu i
loftið. Undirbúningi hafði1 verið
hraðað mjög. McDonnel
Douglas-verksmiðjurnar höfðu
verið í kapphlaupi við Lock-
heed-verksmiðjurnar. DC-10 átti
að bera 343 farþega, hún átti að
vera sparneytnari en aðrar breið-
þotur, hún átti að valda minni
mengun. Já, hún átti að fullnægja
öllum kröfum. Enda varð DC-10
brátt mjög vinsæl, sú vinsælasta
af breiðþotunum. Áður en DC-10
þoturnar voru kyrrsettar þá
ferðuðust með þeim um 100 þús-
und farþegar á degi hverjum í
Bandaríkjunum einum. í dag hafa
McDonnel Douglas-verksmiðjurn-
ar framleitt 281 Dc-10. Já, tían var
vinsæl og í vetur gerðu Flugleiðir
kaupleigusamning um DC-10.
Gallar komu
brátt í ljós
En í þau níu ár sem liðin eru
hefur DC-10 botan sífellt átt í
vandræðum. Sautján sinnum hafa
DC-10 þotur lent í alvarlegum
slysum. Mesta flugslys sögunnar
— er ein þota átti hlut að máli,
varð þegar DC-10 þota hrapaði
árið 1974 skömmu eftir flugtak frá
París. Þá, rétt eins og í Chicago,
var ekkert að veðri, heiðskír him-
inn og skyggni gott. Gagnrýnend-
ur DC-10 halda því fram, að
McDonnel Douglas hafi „stytt sér
leið“ í hönnun þotunnar til að
verða á undan Lockheed. „Gall-
arnir ná allt til teikniborðsins.
Fyrst voru vandræði með hurðir í
vörugeymslur, síðan hreyflarnir. í
fyrra voru það hjólbarðar, þetta
ár boltar — hvað næst,“ sagði
Cornish Hitchcock hjá bandarísku
neytendasamtökunum.
Flugslysið
við Orly
í marz 1974 fórst DC-10 þotan
við París skömmu eftir flugtak frá
Orlyflugvelli. Hurð á vörugeymslu
opnaðist. Þrýstingur féll í geymsl-
unni og gólf í farþegaklefa gaf sig.
Viðkvæmar stjórnleiðslur í stélið
skemmdust og þotan hrapaði
stjórnlaus — 349 manns biðu þá
bana. Rétt eins og við Chicago þá
átti þotan ekki að hrapa þó hurð
gæfi sig. Rannsókn á slysinu
sýndu að bæði McDonnel
Douglas-verksmiðjurnar og FAA
vissu um gallana. Gallar höfðu
komið fram áður, og raunar mun-
aði sáralitlu að DC-10 þota færist
tveimur árum áður, árið 1972. Þá
gaf hurð á vörugeymslu sig yfir
Windsor í Bandaríkjunum. Það
var þota frá American Airlines.
Þrýstingur féll, hluti gólfsins féll
niður og afturhreyfill missti afl.
Þrátt fyrir þetta tókst flugmann-
inum að lenda heilu og höldnu —
en það þótti nánast ofurmannlegt
afrek. FAA bað verksmiðjurnar
að lagfæra gallann — á ofur
kurteislegan hátt. En það dróst og
dróst — þangað til 349 manns biðu
bana við París. FAA var ásakað
um að valda ekki hlutverki sínu af
þingnefnd. Og um að stofna lífi
þúsunda farþega í hættu með
aðgerðaleysi sínu.