Morgunblaðið - 19.06.1979, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 1979
Vonbrigði þrátt fyrir
sigurífjórum greinum
ísland í neðsta sæti í Evrópubikarkeppninni í Luxemburg
Frá Þórarni Ragnarssyni
blm. Mbl. í Luxemburg
MEÐ HEPPNI hefði ís-
lenska landsliðinu getað
tekist að komast í milli-
riðla í Evrópukeppni í
frjálsum íþróttum. Island
hafnaði að vísu í síðasta
sætinu í sínum riðli í
keppninni hér í Luxem-
borg um helgina, en geysi-
lega hörð barátta var um
3.-5. sætið og aðeins þrjú
stig skildu írland og ísl-
and að. írar höfnuðu í
þriðja sæti með 54 stig og
komust þar af leiðandi
áfram, en íslendingar
hlutu 51 stig. Portúgalir
sigruðu með nokkrum
yfirburðum í keppninni,
hlutu 74 stig og voru
áberandi besta og jafnasta
liðið. Danir urðu í öðru
sæti með 65,5 stig, írar í
þriðja sæti með 54 stig,
Luxemborg í fjórða sæti
með 53,5 stig og komu
mjög á óvart með getu
sinni, og íslendingarnir
ráku lestina með 51 stig.
Islendingar sigruðu í fjórum
greinum í mótinu, Óskar Jakobs-
son sigraði í spjótkasti og kringlu-
kasti, Hreinn Halldórsson í kúlu-
varpi og Friðrik Þór Óskarsson
sigraði í þrístökki. Eitt íslands-
met leit dagsins ljós. 23 ára
gamalt met í 4x400 metra boð-
hlaupi var slegið. íslenzka sveitin,
en hana skipuðu þeir Vilmundur
Vilhjálmsson, Oddur Sigurðsson,
Sigurður Sigurðsson og Aðal-
steinn Bernharðsson, hljóp á
3:15,2 sekúndum, sem er nýtt
íslandsmet, og bætti gamla metið
um tvær sekúndur, en það var sett
í landskeppni við Dani árið 1956
og var 3:17,2 mínútur.
Árangur íslenzku keppendanna
á mótinu hér í Luxemborg var all
þokkalegur í sumum greinum, en
slakur í öðrum og þá fyrst og
fremst í hlaupunum. Þá var það
mjög slæmt fyrir íslenzka liðið, að
Jón Diðriksson gat ekki keppt þar
sem hann átti við meiðsl að stríða
og þar töpuðust dýrmæt stig, þar
sem fullvíst má telja að hann
hefði náð þriðja sætinu bæði í 800
og 1500 metra hlaupunum. Þá kom
frammistaða Vilmundar Vil-
hjálmssonar nokkuð á óvart, áttu
menn von á betri árangri frá
honum, í spretthlaupunum, en
hann varð síðastur bæði í 200 og
400 metra hlaupunum. Oddur Sig-
urðsson kom í stað Vilmundar í
100 metra hlaupinu og stóð sig
mjög vel, náði öðru sæti og að
mati undirritaðs voru það mikil
mistök hjá íslenzka liðinu, að láta
Odd ekki hlaupa 200 metrana
einnig seinni daginn, þar sem
hann hafði staðið sig mjög vel í
100 metrunum og sýnt var að
Vilmundur verkaði frekar þungur.
Þá stóð Friðrik Þór Óskarsson sig
vel bæði í þrístökkinu og lang-
stökkinu.
Fyrri dagur
Eftir fyrri dag keppninnar
stóðu stigin þannig, að Portúgalir
höfðu örugga forystu með 38 stig,
Lúxemborgarar voru í öðru sæti
með 32,5 stig, og komu á óvart með
frammistöðu sinni, flestir höfðu
reiknað með því að þeir myndu
reka lestina. Danir voru í þriðja
sæti með 28,5 stig, hálfu stigi á
undan íslendingum sem voru með
28 stig. írland rak svo lestina með
23 stig.
Frammistaði íslenzku keppend-
anna var nokkuð góð fyrri daginn,
en þó nokkuð misjöfn. Mestu
vonbrigðin voru með það hversu
illa Vilmundi Vilhjálmssyni tókst
upp í 400 metra hlaupinu og
virtist Vilmundur alls ekki vera í
nógu góðri æfingu. Hreinn var
hinn öruggi sigurvegari í kúlu-
varpinu og Óskar sigraði í spjót-
kastinu. En lítum á úrslitin í
keppnisgreinunum fyrri daginn.
Kúluvarp:
metrar
1) Hreinn Halldórsson ísl. 19,44
2) Nick Emoil írlandi 17,58
3) Michail Henningsen Danm.
16,66
4) Mario Silva Portúgal 16,27
5) Roger Per Luxemborg 15,86
Hreinn hafði mikla yfirburði
yfir aðra keppendur og kastaði 2
metrum lengra en næsti maður.
Hreinn virtist samt ekki í essinu
sínu og var langt frá sínum besta
árangri. Var hann óánægður með
árangur sinn. Lengsta kast hans
kom í annarri tilraun, en kastsería
hans var sem hér segir: ógilt —
19,44 - 19,19 - 19,13 og 19,09
metrar.
400 metra grind
sek.
1) Viles Kerput Luxemborg 51,61
2) Jose Carvalo Portúgal 51,68
3) Jesper Have Danm. 53,05
5) Aðalsteinn Bernh.s. ísl. 53,96
5) Kevin Currey írlandi 55,17
Aðalsteinn Bernharðsson keppti
fyrir hönd íslands í grein þessari
og var það jafnframt í fyrsta
skiptið sem hann keppir í þeirri
grein. Aðalsteinn, sem kom í stað
Stefáns Hallgrímssonar sem for-
fallaðist, hljóp allvel miðað við
aðstæður, fór rólega til að byrja
með, en vel yfir grindurnar, það
var góður stígandi í hlaupinu hjá
honum og síðustu 100 métranna
hljóp hann mjög vel, varð aðeins 3
metrum á eftir Dananum í 3
sætinu. Aðalsteinn stóð sig það vel
í sínu fyrsta hlaupi, að ekki er
nokkur vafi á því, að hann getur
bætt sig verulega leggi hann rækt
við greinina. Luxemborgarinn
Kerput kom á óvart í greininni, en
hann tók Portúgalann með góðum
endaspretti í lokin.
1500 metra hlaup: mín.
1) Eámon Coughland, írl. 3:41,9
2) Jesus Pilter Portúgal 3:45,5
3) Bo Nieteste Danm. 3:53,2
4) Andre Pirrard Lux. 4:03,4
5) Ágúst Ásgeirsson Isl. 4:10,9
Það fór aldrei á milli mála hver
yrði sigurvegari í 1500 metra
hlaupinu. Heimsmeistarinn í
míluhlaupinu, Eamon Coughland
frá írlandi tók þegar forystuna,
hljóp létt og átakalaust og sigraði
örugglega með miklum yfirburð-
um. Ágúst Ásgeirsson, sem hljóp í
forföllum Jóns Diðrikssonar,
sleppti hlaupurunum frá sér þegar
í upphafi, verkaði mjög þungur og
hljóp á sínum lang lakasta tíma
um langt skeið. Kenndi Ágúst því
um eftir hlaupið, að hann hefði
kennt máttleysis og þreytu og
hann hefði aldrei fundið sig í
hlaupinu. Munaði þarna miklu að
Jón gat ekki keppt, því að hann
hefði hæglega getað tryggt sér
þriðja sætið.
• Ilreinn Halldórsson sigraði eins og vænta mátti í kúluvarpinu en hann var langt frá sínu bezta.
• Vilmundur Vilhjálmsson býr sig undir 200 metra hlaupið.
d*