Morgunblaðið - 23.06.1979, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1979
17
Felmtri slejínir íbúar í Nicarajíua sripu til þess ráðs að ræna verzlanir og birjíðageymslur er matar- og
vöruskortur var orðinn tilfinninjíalegur í þessu stríðshrjáða landi. Ifér sjást konur á hlaupum með ránsfeng
sinn.
H valaf r iðu nar m álið:
Hollendingar styðja
bandarísku tillöguna
GREENPEACE-mönnum
barst í gær skeyti frá
fulltrúa sínum í Ilollandi,
van Remundt, þar sem
segir að hollenzki utanrík-
isráðherrann hafi fyrr um
daginn heitið því að Hol-
lendingar styddu tillögu
Bandarikjamanna um
bann við hvaladrápi á
fundi „alþjóðahvalveiði-
nefndarinnar.
OH von úti
hjá Times?
Lundúnum, 22. júní, AP—Reuter.
PRENTURUM við blaðið Times í
London, er ekki heíur komið út í
sjö mánuði vegna verkfalls
þeirra og annarra starfsmanna-
hópa, hefur verið ráðlagt að leita
fyrir sér um vinnu annars staðar,
þar sem allt útlit sé nú fyrir að
Times muni ekki líta dagsins ljós
á ný.
Samtök prentara telja að öll von
sé úti um að samningar náist, en
einn af helztu talsmönnum útgef-
enda vísaði þeim ummælum á bug
í dag og sagði að útgefendur Times
væru reiðubúnir til viðræðna og
samningagerðar.
Deilan, sem stöðvaði útkomu
Times 30. nóvember sl., stendur að
mestu um tölvusetningartækni
sem útgefendurnir ætluðu að taka
í notkun. Hefur félögum tveggja
annarra stéttarfélaga, sem deilan
snertir, verið ráðlagt að útvega sér
starf annars staðar.
Er deilan dróst á langinn var
3,100 starfsmönnum Times sagt
upp störfum, en enn eru 1,200
manns, þ.á. 500 blaðamenn, á
fullum launum. Forseti félags
brezkra blaðamanna sagði í dag,
að ákvörðun prentarafélagsins
drægi úr líkum á samkomulagi í
Times-deilunni. Blaðamennirnir
munu ákveða í næstu viku hvort
þeir svipast um eftir nýju starfi.
Kunnugir telja, að nú séu enn
minni líkur á því að Times og
Sunday Times komi út á ný. Aðrir
telja þó að hér sé aðeins um
taktíska ákvörðun stéttarfélags
prentaranna að ræða til að koma
hreyfingu á samningamálin, því
ekki sé að fá atvinnu nema fyrir
lítinn hluta prentaranna við
Times.
Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra Breta, hafa borizt skeyti
frá ýmsum aðilum vegna þess sem
Greenpeace-menn kalla töku
Rainbow Warrior í Reykjavík, þar
sem lýst er yfir stuðningi við
málstað friðunarmanna og að-
gerðir íslenzkra stjórnvalda for-'
dæmdar. Meðal þeirra, sem sent
hafa slík skeyti, eru hinir við-
kunnu vísindamenn Scott Lind-
bergh, sonur Charles Lindberghs,
sem fyrstur flaug yfir Atlantshaf-
ið, og dr. B. Heuvelmans. Hafa
þeir einnig sent Ólafi Jóhannes-
syni forsætisráðherra skeyti.
Lindbergh segir í skeyti sínu:
„Ég harma töku skips Green-
peace og áhafnar. Slík samtök og
friðsamlegar aðgerðir þeirra gera
alþjóðlegan þrýsting nauðsynleg-
an til að sigrast á skriffinnsku-
tregðu, sem hindrar að viður-
kenndar séu bráðnauðsynlegar
aðgerðir í umhverfismálum.
Dómsúrskurðurinn á þriðjudag
Stal Pakistani
kjamorkuleyndar-
málum í HoHandi?
Haag, 22. júní — Reuter
HOLLENSKA stjórnin rannsakar nú hvort Pakis-
tan hafi komist yfir leyniskýrslur varðandi vinnslu
úraníums til framleiðslu kjarnorkusprengju. Sögu-
sagnir herma, að Pakistanar séu komnir langt með
að framleiða kjarnorkusprengju. Á árunum 1973-75
vann pakistanskur starfsmaður í rannsóknarstofu í
Amsterdam. Rannsókn hollensku stjórnarinnar
beinist að því hvort hann hafi haft upplýsingar með
sér er hann sneri til Pakistans.
Fréttir frá Hollandi herma, að
Menachem Begin hafi skrifað
hollensku stjórninni og lýst yfir
áhyggjum sínum, einkum vegna
hinna nánu tengsla Pakistana og
Lýbíu manna.
Efnahagsmálaráðherra Hol-
lands, Gijbert van Aardenne,
sagði á hollenska þinginu í gær,
að í ljósi nýrra upplýsinga væri
málið „alvarlegra en í fyrstu var
talið“. Sendiherra Pakistana í
Hollandi lýsti því yfir, að Pak-
istanar hefðu engan hug á að
framleiða kjarnorkusprengju.
Serbinn
ákærður
McGuire-fluKstöðinni. New Jersey. 22.
júní. Reuter.
SERBINN sem rændi farþega-
flugvél í innanlandsflugi í
Bandaríkjunum í gær var form-
lega ákærður fvrir verknaðinn er
hann kom á ný til Bandaríkjanna
í dag. Serbinn. Nikola Kavaja.
gafst upp skömmu eftir að flug-
vélin. sem hann rændi. lenti á
Shannon-flugvelli á írlandi í
gærkvöldi.
Kavaja, sem er 45 ára, var
framseldur skömmu eftir að hann
gafst upp og var flogið með hann
til Bandaríkjanna i vélinni sem
hann rændi. Við komuna var hann
ákærður fyrir flugrán og fleira.
færir okkur fjær slíku takmarki.
Það yrði heiðursdagur fyrir ís-
lendinga ef niðurstaðan yrði
Greenpeace í hag, því að hafi
íslendingar forgöngu um að
bjarga hvölum — ef íslendingar
styðja bann við hvaladrápi á fundi
Alþjóðahvalveiöinefndarinnar í
Lundúnum í júlí-mánuði munu
þeir ylja fjölmörgum um hjarta-
ræturnar.
Scott Lindbergh."
I skeyti dr. Heuvelmans segir
m.a.:
„Ég er undrandi og miður mín
vegna töku Greenpeace-skipsins
og handtöku áhafnarinnar. Geri
mér vonir um að þér hlutist til um
að þeim verði sleppt. Fyrst og
fremst el ég þó með mér vonir um
að heiðruð þjóð yðar, sem er
hvalastofninum skuldbundin
vegna afkomu sinnar áður fyrr,
muni ekki eiga hlut að því að
hvölum verði útrýmt, heldur veiti
banni við hvaladrápi samþykki
sitt í alþjóðahvalveiðinefndinni.
Með virðingu,
B. Heuvelmans."
Veður
víða um heim
Amsterdam 14 skýjað
Apena 24 heiðskírt
Berlín 15 heiðskirt
Brtlssel 15 skýjað
Chicago 20 heiðskírt
Denpasar, Bali 25 heiöskírt
Frankfurt 15 bjartviðri
Genf 10 rigning
Helsinki 14 heiöskírt
Hong Kong 27 heiöskírt
Jerúsalem 18 heiðskírt
Jóhannesarb. Iheióskírt
Kaupmannah. 15 sólskin
Caíró 23 sólskin
Lissabon 15 sólskin
London 12 heiðskírt
Los Angeles 15 skýjað
Madrid 16 sólskin
Miami 26 skýjaö
Montreal 16 heióskírt
Moskva 11 sólskin
New York 18 rigning
Ósló 15 skýjaö
París 14 skýjaö
Rio de Janeiro 13 skýjaö
Rómaborg 13 heiðskírt
San Francisco 11 heiðskírt
Stokkhólmur 15 sólskin
Sydney vantar
Teheran 17 heiðskírt
Tel Aviv 21 sólskin
Tókíó 25 heiöskírt
Vancouver 8 skýjað
Vínarborg 15 skýjað
ERLENT
Samningur um Azor-
eyjar endurnýjaður
Lissabon. 21. júní. AP.
CYRUS Vance, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, héit frá
Lissabon í morgun eftir að geng-
ið hafði verið frá endurnýjun og
frekari útfærslu réttinda Banda
rikjamanna á Azoreyjum. Vance
sagði við brottförina, að sam-
skipti rikjanna í Atlantshafs-
bandalaginu væru ákaflega mik-
ilvæg báðum og fór lofsamlegum
orðum um þá þróun í lýðræðisátt
sem jafnt og þétt væri í Portúgal.
Frá samningnum var formlega
gengið í gærkvöldi og de Freitast
Cruz utanríkisráðherra Portúgals
undirritaði hann fyrir hönd
Portúgala. Vance hitti einnig
Mota Pinto forsætisráðherra að
máli, en Pinto gegnir áfram störf-
um forsætisráðherra unz forseti
landsins hefur tekið ákvörðun um
hvernig að niálum verður staðið.
Samkvæmt samningj þessum
munu Bandaríkin greiða Portúgöl-
unt 140 milljónir dollara og verður
drjúgur hluti þess fjár notaður
sem efnahagsaðstoð, en um 60
milljónum skal varið til herntála
Portúgala.
Herstöðin Lajos á Azoreyjunt er
ntikið notuð af bandaríska flug-
hernunt til að hafa eftirlit nteð
ferðum sovézkra kafbáta á þessum
hafsvæðum. Flutningaflugvélar
með birgðir til bandarískra herja
víða í Evrópu millilenda þar tíðum
og fyrirgreiðsla nokkur er veitt
skipum úr sjötta flota Bandaríkja-
manna.