Morgunblaðið - 23.06.1979, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1979
Bændaskólinn á
H vanneyri 90 ára
Hvanneyri. 23. júní.
Á morgun. sunnudaginn 24. júní, verður þess minnst á Ilvanneyri
að um þessar mundir eru 90 ár síðan bændaskólinn tók til starfa.
Athöfnin hefst klukkan 14. og verður dagskráin í stórum dráttum á
þessa leið:
Magnús B. Jónsson skólastjóri
setur samkomuna og býður gesti
velkomna. Síðan annast sóknar-
presturinn, séra Ólafur Jens Sig-
urðsson, helgistund. Magnús B.
Jónsson skólastjóri flytur síðan
hátíðarræðu, og að henni lokinni
segir Guðmundur Jónsson fyrr-
verandi skólastjóri sögu staðarins.
Steingrímur Hermannsson land-
búnaðarráðherra flytur ávarp. Að
lokum ávarpa gestir samkomuna,
en þeir verða allmargir því full-
trúar 10, 20, 30, 40 og 50 ára
búfræðinga hafa boðað komu sína.
Kirkjukór Hvanneyrarkirkju
syngur milli atriða, en stjórnandi
kórsins er Ólafur Guðmundsson.
Þá má geta þess að í tilefni
afmælis skólans hefur Guðmund-
ur Jónsson fyrrverandi skólastjóri
tekið saman bók um sögu skólans í
90 ár. Er það mikið rit, prýtt
fjölda mynda, og geymir bókin
sem er nýkomin út mikinn fróð-
leik um sögu staðarins.
— Fréttaritari.
Viðskiptaráðherra í opinbera heimsókn:
Ræðir um olíumál
Viðskiptaráðherra Noregs.
Hallvard Bakke, kemur hingað í
opinhera heimsókn á þriðjudag-
inn. að því er Svavar Gestsson
viðskiptaráðherra sagði í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi.
Mun Bakke dvelja hér á landi í
tæpa viku og ræða við íslenska
ráðamenn um olíumál og fleiri
mál, auk þess sem hann mun
ferðast um landið.
Nýtt gall-
erí opnar
í Lækjar-
götunni
NÝTT gallerí, Listamannahúsið
Lækjargötu 2, opnar í dag, laugar-
dag. kl. 14, með sýningu 6 ís-
lenskra myndlistarkvenna. Gallerí-
ið er í eigu Knúts Bruun og mun að
hans sögn verða í framtíðinni rekið
sem gallerí en ekki salur sem
listamenn geta tekið á leigu.
Á sýningu myndlistarkvennanna
getur að líta 50 verk, málverk og
skúlptúr. Þær sem eiga verk á
sýningunni eru: Júlíana Sveinsdótt-
ir, Nína Tryggvadóttir, Gerður
Helgadóttir, Lovísa Mathíasdóttir,
Þorbjörg Höskuldsdóttir og Guðrún
Svava Svavarsdóttir. Fimm lista-
kvennanna sýna þar málverk en
skúlptúrinn er eftir Gerði Helga-
dóttur. Flestar myndanna eru
fígúrativar.
Sýningin verður opin í 3 vikur.
Hluti húsakynna Lista-
mannahússins í Lækjargötu
2.
Ljósm. Emilía.
Minning:
Olafur ffannesson
Austvaðsholti
hefur breyzt á því tímabili frá því
, að Ólafur hóf búskap. Skipuleg
framræsla á mýrlendi ásamt tún-
rækt, til þess að geta aukið
framleiðsluna og byggt upp
peningahús. Það hefur verið við-
fangsefni svo margra bænda á
síðari árum og Ólafur lét ekki sinn
hlut eftir liggja en vann að þessu
af krafti og þrautseigju og
árangurinn er eftir því, því að
búsmala hefur fjölgað ört í búskap
hans.
Vélvæðing hefur verið Ólafi
hugleikin og hefur hann leitast við
að nýta nýjustu tækni við land-
búnaðarstörf, sem völ hefur verið
á á hverjum tíma. Og mitt í þeim
framkvæmdum, sem Ólafur hefur
staðið í, er hann burt kallaður í
önn dagsins á bezta aldri, en það
er ekki um það spurt. Þar er hinn
slyngi sláttumaður að verki, sem
ferðamenn Ólafs og fjölskyldu
eiga erfitt með að átta sig á, því að
hann var svo skjótt burt numinn,
en enginn má sköpum renna.
Eiginkona Ólafs, Unnur Jóns-
dóttir, og börn þeirra þrjú,
Hannes og Jón í heimahúsum og
Ingibjörg búsett í Reykjavík, gift
Halldóri Leifssyni, ásamt 2ja ára
dóttur þeirra, þau eiga nú að baki
að sjá góðum og tryggum heimilis-
föður, sem helgaði líf sitt heimili
og fjölskyldu, minningin um
góðan dreng sefar sorg þeirra við
þetta skyndilega fráfall og einnig
samferðamenn senda þeim sínar
beztu samúðaróskir og biðja góðar
vættir að styrkja þau á þessum
tímamótum. S.J.
í dag verður til moldar borinn'i
Árbæjarkirkju í Holtum Ólafur
Hannesson, bóndi í Austvarðar-
holti, Landssveit. Ólafur var
fæddur 16. janúar 1920 og voru
foreldrar hans, Hannes Ólafsson
bóndi, og Ingibjörg Guðmunds-
dóttir frá Múlakoti í Fljótshlíð.
Ólafur ólst upp hjá foreldrum
sínum í Austvarðarholti. Þar var
tvíbýli og oft margt fólk á heimil-
inu, eins og víða var á þeim árum í
sveitum þessa lands. Á unglings-
árum Ólafs var nokkuð um það, að
ungir menn í sveitum landsins
færu til náms í héraðsskólum.
Laugarvatnsskólinn var þá fyrir
nokkru stofnaður og hélt Ólafur
þangað, síðar fór hann í Búnaðar-
skólann á Hvanneyri.
Ólafur var viðloðandi heimili
foreldra sinna, þar til að hann hóf
sjálfur búskap á jörðinni. Það má
segja, að Ólafur hafi að mestu
helgað líf sitt störfum við land-
búnað, enda hafa viðfangsefnin á
því sviði verið næg, svo mikið
Forsíða júlíheftis bandaríská Eiri opna úr frásögn blaðsins af hvalveiðum víða um heim og eru
tímaritsins LIFE. báðar myndirnar teknar í hvalstöðinni í Hvalfirði.
Hvalurinn í LIFE
Málefni hvalsins er
aðalefni nýútkomins júlí-
heftis bandaríska tíma-
ritsins LIFE og forsíða
þess hefur fyrirsögnina:
Drepum við síðasta hval-
inn?
Inni í blaði er svo fjallað
ítarlega um hvalveiðar
víðs vegar um heim og
ísland þar sérstaklega tek-
ið fyrir og birtar myndir
teknar við hvalskurð í
hvalstöðinni í Hvalfirði.
Þar er það sérstaklega
tekið fram, að íslendingar
skeri sinn hval á landi, en
Rússar og Japanir, sem
mestan hval veiða verki
hann um borð í sérstökum
verksmiðjuskipum.
Verzlunarráð íslands
efnir til kynningarfundar
mánudaginn 25. júní 1979, kl. 16.00—18.00 í Kristalsal Hótel Loftleiöa um
„Hvernig verðbólgan brenglar
reikningshald og rekstur fyrirtækja<á
Hjalti Geir Chrietopher Ólafur Árni
Kriatjánaaon Lowe Haraldaaon Vilhjélmaaon
Fundurinn er opinn öllum áhugamönnum um pessi
málefni.
Vinsamlega tilkynniö Þátttöku í síma 11555,
vegna fjölda pátttakenda.
Kaffi verður fram borið á fundinum.
Dagskrá
Setningarræða.
Hjalti Geir Kristjánsson, formaður V.í.
Áhrif verðbólgu á reikningsskil fyrirtækja.
Christopher Lowe, Coopers & Lybrand.
Gildi vísitölureikningsskila í verðbólgu.
Ólafur Haraldsson, forstj. Fálkans h.f.
Samanburður aðferða viö aö laga reikningsskil
að verðbreytingum.
Árni Vilhjálmsson, prófessor.
Almennar umræður og fyrirspurnir.