Morgunblaðið - 24.07.1979, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.07.1979, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ1979 SÍKurbjörn Bárðarson o« Brjánn stóðu sig vel. Þeir hlutu fyrstu verðlaun í tölti, fjórganníi og f B-flokki gæðinga, einnig önnur verðl. í hlýðnikeppni. Ljósm.: Gunnbjörn Marinósson. Skógarhólamót og íslandsmót í hestaíþróttum Sigfús Guðmundsson á Þyt. Sigfús sigraði f íslenzkri tvfkeppni. Svipur stóð efstur í A-flokki gæðinga. Knapi er Trausti Þór Guðmundsson. Á Skógarhólum í Þingvalla- sveit voru haldin helgina 14.—15. júlf s.l. tvö hestamót saman. Annars vegar var hið svokallaða Skógarhólamót, og 'úns vegar íslandsmót f hestaíþ. itum. Milli tvö og þrjú þúsund manns voru saman komin á Skógarhólum mótsdagana. Að Skógarhólamótinu stóðu átta félög af Suð-Vesturlandi, það voru: Andvari Garðabæ, Fákur Reykjavík, Gustur Kópavogi, Háfeti Þorlákshöfn, Hörður Kjósarsýslu, Máni Keflavík, Sörli Hafnarfirði og Trausti Laugardal og Grímsnesi. Þetta mót var með hefðbundn- um hætti, þ.e. góðhestakeppni og kappreiðar. í góðhestakeppnina sendu félögin sex hesta hvert, þrjá í A-flokk og þrjá í B-flokk. Gæðingunum voru gefnar einkunnir eins og venja er, en síðan fóru fimm efstu hestar í hvorum flokki í sérstaka endur- röðun. Endurröðun þessi er ný af nálinni og er samkvæmt nýsam- þykktum reglum L.H. Hun fer þannig fram að hestunum er riðið eftir hringvelli og dómarar raða í sæti eftir hverja gangtegund og auk þess fyrir vilja og fegurð í reið. Finnst mér þessi endurröðun vera komin glettilega nálægt t.d. fimmgangskeppni íþróttadeild- anna. Álit manna er misjafnt á þessari endurröðun, sumum þykir þetta góð nýbreytni en öðrum, að þetta dragi mótin óþarflega á langinn. í A-flokki gæðinga breytti endurröðunin ekki endan- legri röð, sem varð þessi: 1. Svipur (frá Sörla) eig. Sigurður Alfonsson. eink. 8,57 kn. Trausti Þ. Guðmundsson. 2. Garpur (frá Fák) eig. Hörður G. Albertsson, eink. 8,44 kn. Sigurbjörn Bárðarson. 3. Valur (frá Sörla) eig. Víðir Sæmundsson, eink. 8,33 kn. Sigurður Sæmundsson. 4. Váli (frá Fák) eig. Sigurbjörn Bárðarson, eink. 8,05 kn. Ragnar Hinriksson. 5. Stormur (Fákur) eig. Guðmundur Ólafsson, kn. Erling Ólafsson. í B-flokki skiptu þriðji og fjórði hestur um sæti í endurröðuninni. Endanleg röð varð þessi: 1. Brjánn (Fákur) eig. Hörður G. Albertsson, eink. 8,58 kn. Sigurbjörn Bárðarson. 2. Máni (Fákur) eig. Hrafn Vilbergsson, eink. 8,50 kn. eigandi. 3. Skussi (trausti) eig. Hreinn Þorkelsson, eink. 8,29 kn. eigandi. 4. Stormur ( Fákur eig. Hörður G. Albertsson, eink. 8,31 kn. Kristján Birgisson. 5. Bjarmi (Máni) eig. Maja Loehell, eink. 8,23 kn. eigandi. í kappreiðunum var lítið um óvænt úrslit. Mest spennan var í 350 m. stökki og í 250 m. skeiði. í skeiðinu var það að sjálfsögðu Fannar Harðar G. Albertssonar Tómas Ragnarsson á Glotta sigr- aði í hindrunarstökki. Fimm efstu hestar í tölti. T.v. Sigurbjörn og Brjánn, Hreggviður og Goði, Sigfús og Þytur, Aðalsteinn og Skeimir og Reynir og Borgfjörð. Hópreið hestamanna inn á svæðið. Gísli Baldvinsson, kennari: Að eiga sér draum Dagana 31. mars til 2. apríl 1978 efndi Alþýðubandalagið til ráð- stefnu um skólamál og gaf nýverið út útdrátt frá þessari ráðstefnu undir heitinu SKÓLI OG ÞJÓÐ- FÉLAG. Þrátt fyrir að fyrirlestr- ar á þessari ráðstefnu séu margir lærifeður mínir er ég þeim svo hjartanlega ósammála í svo mörgu sem þar er sagt að stíl- vopnið er mundað. Það má því segja að hrapallega hafi þeim tekist í uppfræðslunni þrátt fyrir að þeir telji sig af svokallaðri VI. stétt (sjá skýringar síðar). Ekki má taka orð mín sem stórasann- Ieik heldur viðleitni til skoðana- skipta. Erindi Jónasar Pálssonar Ég verð að láta undrun mína í ljós að jafn mikill fræðimaður og JP er skuli gera sig sekan um órökstuddar staðhæfingar og jafnvel orðtakarugl. Því hvernig ber að líta á setningar eins og — „Einnig er um að ræða ótta- blandna fyrirlitningu á fræðileg- um rannsóknum sem er áberandi á íslandi. Fáfræði og leynd er besta hjálp sérhagsmunamanna. Þekkingin ætti þá (að mati valda- hópanna) að vera fyrir útvalda eina.“ Einnig: — „Mismunandi greind einstaklinga er efld af stéttarlegum aðstæðum en raun- verulegur munur er fyrir hendi. Hér staðhæfir sem sagt JP að til séu menn eða einstaklingar sem af ráðnum hug gæti þess að sumir fái ekki tilskilda menntun! Ekki get ég heldur fallist á að hægt sé í ■ sama orðinu að tala um eflingu greindar og þekkingar. Einnig talar JP um tvær and- stæðar menntastefnur sem hann nefnir staðreyndanámsefni og námsefni verkefni/ vinna (þarna gleymir hann afleiðingunni sem er uppgötvunin). Hann segist aðhyll- ast seinni stefnuna en segir hina kalla á flokkunarkerfi og auki undirlægjuhátt í þjóðfélaginu. Eg get verið JP sammála um það að gamla landsprófskerfið var byggt upp á fyrri stefnunni. En fæ ekki séð af hverju ekki báðar stefnurnar séu nothæfar sé skyn- samlega á haldið. Það er því miður að JP kennir aðra stefnuna við kapitalískt þjóðfélag en hina réttu menntastefnu við sósialisma. í slíka flokkspólitíska gryfju hélt ég ekki að Jónas Pálsson félli í. Erindi Lofts Guðmundssonar LG leggur út af spurningunni hvers vegna skyldunámsskólinn opnar sumum leið til félagslegs frama og öðrum ekki. Hann telur eins og Marx að það sé vegna þess að skólinn og kröfur hans mótist af ríkjandi skipulagi (lýðræði) og af þeim sökum verði verkalýðs- hreyfingin undir í þeim átökum við borgarastéttina. Allt þetta rökstyður LG með rannsóknum erlendis frá. Mér finnst það ekki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.