Morgunblaðið - 24.07.1979, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 1979
17
Logi Kristjánsson
„Hreint
skemmd-
arverk
— hvers
eigum við
að gjalda?”
— spyr Logi Kristjáns-
son bæjarstjóri
„Þetta er hreint skemmdarverk
— ég veit ekki hvers við eigum að
gjalda,“ voru upphafsorð Loga
Kristjánssonar bæjarstjóra á Nes-
kaupstað, er við hittum hann að
máli á bæjarskrifstofunum.
„Ég minnist þess ekki, að áður
hafi ráðherra tekið sér slíkt vald.
Þetta nálgast það að vera einræði
og lýðræðinu er hætta búin, ef slíkt
á að geta endurtekið sig. Við
þyrftum að eignast sérstakan
dómstól. Ég hef alls ekki trú á því,
að meiri hluti Alþingis samþykki
þessa ráðstöfun gegn óskum mikils
meiri hluta landsmanna.
Fiskiskipaflotinn er undirstaða
þjóðarbúsins og ef hann er látinn
grotna niður verður fátt í lagi með
afkomu okkar.“
Logi sagði, að missir Barða án
tilkomu nýs skips gæti skapað
atvinnuleysi á Neskaupstað, bæði
tímabundið og varanlegt. „Þetta er
ekki aðeins málefni Síldarvinnsl-
unnar heldur einnig bæjarfélagsins
í heild. Sérstaklega finnst mér
furðulegt að sjávarútvegsráðherra
skuli taka þessa afstöðu til Síldar-
vinnslunnar heldur einnig bæjarfél-
agsins í heild. Sérstaklega finnst
mér furðulegt að sjávarútvegsráð-
herra skuli taka þessa afstöðu til
Síldarvinnslunnar, fyrirtækis, sem
rekið hefur verið í félagsforfhi og
sérstaklega hæfir einstaklingar
staðið að stjórnun þess. Þetta er
hroki sem ég skil ekki. Allir, sem
þekkingu og vit hafa á útgerð og
sjavarútvegsvinnslu, vita betur."
Logi sagði atvinnulíf í góðu lagi á
Neskaupstað í dag, en með missi
Barða gæti annað orðið upp á
teningnum, því öll þjónustustarf-
semi, sem væri stór liður í atvinnu-
lífi staðarins, tengdist útgerð að
meira og minna leyti.
„Neskaupstaður hefur ætíð verið
framarlega í útgerðarmálum. Barði
var t.a.m. fyrsti skuttogarinn sem
kom til landsins. Skipstjórnarmenn
hér sýndu mikinn áhuga fyrir
skemmstu á að kaupa hingað kol-
munnaskip. Kjartan hafði forgöngu
um að stöðva það af og nú ætlar
hann að bæta þessu við.“
Logi sagði ljóst, að bæjarstjórinn
stæði einhuga að þessu máli. „Það er
reyndar enginn krati í bæjarstjórn,
en það er alveg ljóst, að þeim kemur
heldur ekki til með fjölga á Nes-
kaupstað eftir þessa meðferð. Ég er
reyndar alveg hissa á Kjartani að
gera þetta, við bjuggum samtímis í
Hafnarfirði hér áður og þekkti ég
hann þá af öllu öðru en slíku. Ég
hefði trúað Vilmundi til þessa, en
ekki honum. Slík vinnubrögð iýsa
vanhæfni og vanþekkingu á þörfum
atvinnulífsins."
Logi sagði í lokin, að hann væri
sannfærður um, að meiri hluti
landsmanna væri einhuga um, að
hér væri ekki rétt staðið að málum.
„Þetta er spurning um, hvort við
búum við lýðræðisskipulag eða ein-
ræði. Vonandi fáum við svar við
henni hið fyrsta."
A Neskaupstad:
Kjartan og Barði NK
120 umræðuefnið hvar
sem tveir eða fleiri hittast
Hvar sem tveir eða fleiri hitt-
ast á Neskaupstað þessa dagana
er um lítið annað meira rætt en
skipakaupamálið svonefnda og
neitun sjávarútvegsráðherra við
skiptum á skuttogaranum Barða
og nýrra skipi. Neskaupstaðarbú-
ar eru skiljanlega vonsviknir og
margir hverjir argir. Blaðamað-
ur og ljósmyndari Mbl. hittu
nokkra íbúa bæjarins og aðkomu-
menn að máli s.l. laugardags-
morgun til að forvitnast um, í
hvaða ljósi þeir sæju þessi mál.
„Kemur íyrst
og fremst niður
á þjóðarbúinu
Á aðalgötu bæjarins voru á
göngu tveir aldnir heiðursmenn,
þeir Sigurður Jónsson og Sigurjón
Einarsson. Þeir voru sammála um
að hér væri um mikil mistök að
ræða hjá Kjartani. Barði uppfyllti
alls ekki kröfur tímans og vildu
þeir sérstaklega benda á muninn á
gæðum aflans úr Barða og nýja
skipinu. „Ef skiptin eiga sér ekki
stað kemur það fyrst og fremst
niður á þjóðarbúinu." Þeir sögðust
vera steinhissa á þessari afstöðu
Hvað
segja
íbúar
Neskaup-
staðar
og aðkomU
menná
staðnum?
Ari Jónsson á Ola Oskars RE
sýndi okkur þennan boldungs-
þorsk er við ræddum við hann.
Hann kvað þorskinn vera a.m.k.
1.20 m á lengd.
áframhaldandi rannsóknaveiða á
kolmunna. Þeir sögðu, að ekki
væri þetta mál mikið rætt um
borð, en þó fyndist þeim furðuleg
sú afstaða ráðherra að vilja ekki
endurnýja flotann eðlilega. „Það
er að komast reiðileysi á flotann,"
sagði Viðar. „Sú endurnýjun sem
átti sér stað, er skuttogarakaupin
hófust, var mikið átak fyrir þjóð-
ina og það má ekki láta skipin
drabbast niður." Gunnar og Egg-
ert sögðu, að þetta væri nú ekki
fyrsta vitleysan sem sjávarútvegs-
ráðherra gerði. „Hann bannaði
fyrir skömmu alla loðnuveiði og
lét út úr sér í fjölmiðlum, að
bannið næði jafnt yfir veiði innan
sem utan landhelgi," sagði Gunn-
ar.
Þeir félagar sögðust hafa
hugleitt, hvort ekki ætti að gera
þá kröfu að maður, sem gegndi svo
mikilvægu starfi, hefði eitthvað
starfað við sjávarútveg. „Svo er
urmull erlendra skipa að loðnu-
veiðum innan og utan við land-
helgina hér austan við land,“
bætti Gísli við.
Þeir sögðu einnig, að víða væri
Sigurður Jónsson t.v. og Sigurjón Einarsson sögðust álíta að hér væri
um að ræða mikil mistök hjá Kjartani.
sjávarútvegsráðherra og reyndar
alls ekki skilja hvað komið hefði
yfir hann.
„Er Kjartan
stór hluthafi
í Sindra h/f?
„Það væri gaman að fá að vita,
hvort Kjartan Jóhannsson sjávar-
útvegsráðherra er stór hluthafi í
Sindra h/f,“ sagði Alfreð Alfreðs-
son vörubílstjóri, er við hittum
hann og konu hans Hönnu Sjöfn
Fredriksen að máli fyrir utan hús
þeirra. „Þetta er ekki aðeins
spurning um Barðann og áhöfn
hans, þó stór sé, heldur einnig um
allt atvinnulíf á staðnum. Mér
datt þetta í hug, hvort Kjartan
ætti hlutafé í Sindra, því eina
leiðin til að losna við Barðann hér
eftir verður að selja hann í brota-
járn og Sindri er stærstur í þeirri
grein hérlendis." Hanna Sjöfn
sagði að sér fyndist þetta fyrir
neðan allar hellur. „Reyndar er
þetta ekki annað og meira en
maður gat búist við. Þessir ráða-
menn eru búnir að ræna mann
öllu sjálfstæði, a.m.k. fjárræði. Þó
maður sé orðinn 21 árs þá finnst
manni að maður sé það ekki —
ríkið vill stjórna öllu og ráða.“
„Þeir ráða ekki
við verkefnin og
ættu að segja af sér“
Sigurjón Ingvarsson frá Ekrum
var við þriðja mann á bryggjunni
að bæta net fyrir rannsóknaskipið
— -------------- — að vita, hvort Kjartan er stór hluthafi í
Sindra,“ sagði Alfreð Alfreðsson vörubifreiðastjóri, er blaðam. hitti
hann og konu hans að máli. Með þeim á myndinni er sonur þeirra
Teddi
Óla Óskars RE. Hann hafði eftir-
farandi um málið að segja: „Við
værum ekki að bæta þessi net, ef
við kynnum það ekki. Það sama
ættu þessir ráðamenn að gera.
Þeir ráða ekki við verkefnin og
ættu að segja af sér. En það er nú
með þessa ráðamenn okkar, þeir
þora aldrei að segja fólkinu sann-
leikann og við eyðum meira en
aflað er og það er nú aðalvand-
inn.“
Sigurjón og félagar sögðust alls
ekki skilja afstöðu ráðamanna í
skipakaupamálinu og auðséð að
þeir réðu alls ekki við verkefni
sitt.
„Við værum ekki að bæta þessi net, ef við kynnum það ekki. Það sama
ættu þessir ráðamenn að gera,“ sagði Sigurjón Ingvarsson frá Ekrum,
sá-aftari á myndinni.
pottur brotinn að þeirra áliti hvað
varðaði rannsóknir á fiskistofnun-
um. Enginn vissi í raun hversu
mikið útlend skip höluðu inn af
fiski, sem við kepptumst við að
vernda. „Fólk er svo að tala um
rányrkju og að við séum að út-
rýma fiskistofnunum. Ég held að
almenningur geri sér alls ekki
grein fyrir á hverju hann lifir. Það
halda víst flestir að þjóðarbúið
byggist upp á eilífum vöruskiptum
og þjónustustarfsemi," sagði
Gunnar. Þeir sögðu í lokin að gera
þyrfti stórátak í eftirliti og rann-
sóknum. „Við þurfum að vaka yfir
þessu dag og nótt til að vita með
vissu hvar við stöndum," voru
lokaorð eins þeirra.
„íslenzkur skipasmíða-
iðnaður hafi jafna
möguleika“
Uppi á dekki á Óla Óskars
hittum við fyrir Ara Jónsson
véltæknifræðing, en hann starfar
að rannsóknum á hráefnismeðferð
og vinnsluaðferðum á kolmunna.
Hann sagðist ekki hafa ígrundað
þetta mál mikið, en hann áliti að
hér hlyti að vera á ferðinni liður í
því áformi að gera íslenzkum
skipasmíðaiðnaði jafn hátt undir
höfði og þeim erlenda. „Ef það er
rétt, þá er ég algjörlega sammála
sjávarútvegsráðherra um þessar
ráðstafanir," sagði Ari.
„Ilannbannaði
einnig loðnuveiðar
utan landhelgi“
Rannsóknaskipið Óli Óskars RE
lagðist að bryggju upp úr hádegi.
Við skruppum um borð til að
kanna hvort utanbæjarmenn væru
jafn áhugasamir um mál þetta og
Neskaupstaðarbúar. Niðri í eld-
húsi hittum við fyrir þá Gísla
Björnsson, Eggert Þorfinnsson,
Viðar Sæmundsson og Gunnar
Þórhallsson. Þeir sögðu skipið
hafa komið til hafnar til að vitja
um veiðarfæri en það færi síðan
aftur út á Héraðsflóadýpi, til