Morgunblaðið - 24.07.1979, Side 38
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ1979
Heimsmet
ENDALAUST virftist vera hægt að bæta heimsmet í hinum ýmsu
greinum írjálsra íþrótta. Um helgina setti ítalinn Mennea nýtt
heimsmet í 300 m hlaupi, hljóp vegalengdina á 32,23, sek á alþjóðiegu
frjálsíþróttamóti á ítalfu. Þá setti frakkinn Vigneron nýtt heimsmet
unglinga í stangarstökki. Stökk hann 5,52 metra. Fyrra metið var
5,45 metrar.
Drengjamet í 1500
metra hlaupi
UNGUR og efnilegur hlaupari, Brynjólfur Hilmarsson, sem búið
hefur í Svíþjóð sfðustu ár setti nýtt íslenzkt drengjamet í 1500 metra
hlaupi f vikunni. Hann hljóp vegalengdina á 4.00,7 mfnútum og bætti
gamla metið um rúmar þrjár sekúndur. Jón Diðriksson átti það met.
Brynjólfur er 18 ára gamall. — ágás.
Kynning á golfi
fyrir börn
FIMMTUDAGINN 26. júlí n.k. milli kl. 16 og 18 stendur Golfklúbbur-
inn Keilir fyrir kennslu í golfi á golfvellinum á Hvaleyrarholti.
Kynning þessi er ætluð börnum f fylgd með fullorðnum.
Aðalleiðbeinandi verður Þorvaldur Asgeirsson og mun hann kenna
undirstöðuatriði f golfi.
öll börn á félagssvæðinu eru velkomin. Boðið verður upp á
hressingu.
Þessi kynning á golfi sem barna- og fjölskyldufþrótt er framlag
Golfklúbbsins Keilis á barnaári.
Elnkunnagjöiin
VALUR:
SigurAur Haraldsson 1
Magnús Bergs 3
Grímur Samundssen 3
Hörður Hilmarsson 4
Dýri Guömundsson 3
Ssevar Jónsson 2
Atli Eövaldsson 4
Albert GuAmundsson 1
GuAmundur Þorbjörnsson 4
Hálfdán Örlygsson 2
Jón Einarsson (vm) 1
Ólafur Danivalsson 2
Vilhjálmur Kjartans. (vm) 1
FRAM:
GuAmundur Baldursson 2
Trausti Haraldsson 4
Gunnar GuAmundsson 2
Marteinn Geirsson 3
Gunnar Bjarnason 3
HafÞór Sveínjónsson 2
Ásgeir Elfasson 2
Pátur Ormslev 4
GuAmundur Steinsson 4
Rafn Rafnsson 3
GuAmundur Torfason 2
Guðmundur Haraldsson
dómari 3
ÍBV:
Ársssll Sveinsson 3
Snorri Rútsson 2
GuAmundur Erlingsson 2
Jóhar.n Georgsson 1
Valbór SigÞórsson 2
Örn Óskarsson 3
Sveínn Sveinsson 2
Óskar Valtýsson 2
Ómar Jóhannsson 2
Einir Ingólfsson 2
Gústaf Baldvinsson 2
Kári Þorleífsson (vm) 2
Sigurjón Pálsson (vm) 1
Dómari: Ingi Jónsson 3
ÍBK:
Þorsteinn Ólafsson 3
Óskar Færseth 3
Guðjón Guðjónsson 2
Sigurbjörn Gústafsson 2
Guðjón Þórhallsson 2
Siguröur Björgvinsson 2
Einar Á Ólafsson 2
Gfsli Eyjólfsson 3
Steínar Jóhansson 3
Ragnar Margeirsson 2
Ólafur Júlfusson 2
KR:
Magnús Guömundsson 2
Sasbjörn Guömundsson 2
Ottó Guömundsson 3
BörkurIngvason 2
Sigurður Pétursson 3
Elfas Guömundsson 2
Vilhelm Fredriksen 3
örn Guömundsson 2
Sverrir Herbertsson 2
Birgir Guöjónsson 2
Siguröur Indriöason 2
Stefán Örn Sigurösson
(vm) 2
Jósteinn Einarsson (vm) 2
Haukar:
örn Bjarnason 2
Arnór Guömundsson 2
Svavar Svavarsson 2
Ólafur Jóhannesson 3
Danfel Gunnarsson 2
Guömundur Sigmarsson 3
Úlfar Brynjarsson 1
Síguröur Aöalsteinsson 2
Gunnar M. Andrósson 2
Loftur Eyjólfsson 1
Hermann Þórlsson 1
Haukur Haukason (vm) 1
Kristján Kristjánsson (vm) 2
Dómari: Hjörvar Jensson 3
ÍA:
Jón Þorbjörnsson 3
Guöjón Þóröarson 2
Jóhannes Guöjón'sson 2
Siguröur Lárusson 2
Siguröur Halldórsson 4
Kristján Olgeirsson 3
Sveinbjörn Hákonarsson 2
Jón Alfreösaon 3
Árni Sveinsson 3
Matthfas Hallgrfmsson 3
SigÞór Ómarsson 3
Dómari:
Rafn Hjaltalín 3
KA:
Aöalstoinn Jóhannsson 2
Gunnar Gfslason 3
Helgi Jóhannsaon 2
Einar Þórhallsson 2
Haraldur Haraldsson 3
Ólafur Haraldsson 2
Njáll Eiösson 2
Eyjólfur Ágústsson 3
Gunnar Blöndal 2
JóhannJakobsaon 2
Elmar Geirsson 4
Gunnar Berg Gunnarss.
(vm) 1
’k
örn Bjarnason, markvörður Hauka, gómar knöttinn af tám Vilhelms Fredriksens — en tvívegis varð örn
að hirða knöttinn úr netmöskvunum eftir að Vilhelm hafði skoraði. Ljósmynd Kristján.
Haukar voru engin
hindrun fyrir KR
HAUKAR úr Hafnarfirði —
neðsta liðið í 1. deild voru engin
hindrun forustuliði 1. deildar,
KR í gærkvöldi. KR sigraði 4—1
án þess nokkurn tíma að ná að
sýna sínar beztu hliðar. Langt
því frá — KR-ingar voru daufir
en meira þurfti ekki til gegn
Haukum og KR hefur tveggja
stiga forustu í 1. deiid — 14 stig
að loknum 10 leikjum.
Jafnræði var með liðunum úti á
vellinum í fyrri hálfleik og ef
eitthvað var þá voru Haukar
sókndjarfari f upphafi, án þess
þó að skapa sér tækifæri.
Knötturinn gekk andstæðinga á
milli fyrsta kortérift en þó áttu
KR-ingar skot f stöng, Elfas
Guðmundsson skaut þrumuskoti
utan vftateigs en stöng bjargaði
Haukum.
Síðan á 20. mínútu náðu
KR-ingar forystu — nánast fyrir-
varalaust: Vörn Hauka opnaðist
upp á gátt — og átti eftir að gera
oftar í leiknum. Vilhelm Fredrik-
sen komst í gegn og skoraði
örugglega framhjá Erni Bjarna-
syni, markverði Hauka — 1—0.
Aðeins tveimur mínútum síðar
bættu KR-ingar við sínu öðru
marki og enn voru mistök varnar-
manna Hauka hreint ótrúleg. Án
þess að nokkur þrengdi að varnar-
manni gaf hann knöttinn beint
fyrir fætur Erni Guðmundssyni í
eigin vítateig og það boð þáði Örn
með þökkum — skoraði örugglega
með góðu skoti, 2—0.
Það var greinilegt hvert stefndi.
Án þess þó að ná tökum á miðj-
unni og pressa stíft, þá var leikur-
inn í jafnvægi úti á vellinum.
Haukar fullt eins mikið með
knöttinn, ef ekki meira. En vörnin
hjá Haukum opnaðist við minnstu
pressu, gjörsamlega flöt og
sóknarmenn KR nýttu sér það. Á
41. mínútu opnaðist vörn Hauka
rétt einu sinni, rétt eins og hendi
væri veifað. Örn Guðmundsson
sendi í eyðu á Sverri Herbertsson
og enginn varnarmaður nálægur.
Sverrir átti síðan ekki í vand-
ræðum með að skora framhjá
Erni Bjarnasyni, 3—0.
Staðan í leikhléi var því 3—0 og
greinilegt hvert stefndi. Aðeins
spurning hve mörg mörk KR-ing-
ar skoruðu. Haukar áttu ekki svo
mikið sem tækifæri í fyrri hálfleik
— sóknarlotur þeirra náðu yfir-
leitt ekki lengra en að vítateig KR,
þá þraut allt ímyndunarafl og
varnarmenn KR, með Ottó
Guðmundsson í fararbroddi, áttu
ekki í erfiðleikum með að stöðva
þær í fæðingu.
KR-ingar bættu við sínu fjórða
marki á 57. mínútu — jafnframt
laglegasta mark leiksins, vel að
því staðið í alla staði. Sigurður
Pétursson, hinn knái bakvörður
KR, gaf laglega út á vinstri
vænginn til Sæbjörns Guðmunds-
sonar, er síðan gaf á Vilhelm
Fredriksen. Vilhelm skaut þrumu-
KR- Aml
Haukar 4i I
skoti af um 20 metra færi, og
knötturinn þandi netmöskvana —
4—0. Það var engu líkara en
KR-ingar sættu sig við fenginn
hlut og virtust spila upp á að ljúka
leiknum. Það hefndi sín því
Haukar náðu að svara fyrir sig —
eftir mikil mistök Magnúsar
Guðmundssonar markvarðar.
Haukar fengu hornspyrnu frá
vinstri, Magnús kom út og sló
knöttinn frá en ekki betur en svo
að knötturinn fór beint til
Kristjáns Kristjánssonar á víta-
teigslínu. Hann skaut þegar að
marki KR, Magnús víðsfjarri og
varnarmaður varði með höndum.
— víti. Ólafur Jóhannesson
skoraði laglega úr vítinu, 4—1.
KR-ingar léku síðasta
stundarfjórðunginn einum færri
— höfðu skipt tveimur varamönn-
um þegar Sæbjörn Guðmundsson
meiddist. Hinn ungi þjálfari KR,
Magnús Jónatansson, tók enga
áhættu heldur skipti Sæbirni útaf
— nóg meiðslin fyrir.
Þrátt fyrir að Haukar sæktu
stíft síðustu mínúturnar, tókst
þeim þó ekki að minnka muninn.
Magnús Guðmundsson varði
meistaralega skot frá Arnóri
Guðmundssyni á lokamínútu
leiksins. Skömmu síðar meiddist
Arnór illa — fékk spark undir
brigspalirnar og var mjög þjáður.
Var keyrður á sjúkrahús — senni-
lega rifbeinsbrotinn. Heldur
döprum leik lauk því með slæmum
meiðslum Arnórs.
KR hreppti því tvö stig, 14 stig
úr 10 leikjum — og tveggja stiga
forusta i 1. deild. Vörnin er aðall
liðsins en hins vegar á Magnús
Guðmundsson til að gera slæmar
villur. Ottó Guðmundsson og
Börkur Ingvarsson sterkir mið-
verðir. Hins vegar eru tengiliðirn-
ir veiki hiuti liðsins. Þeir berjast
þó vel og gefa aldrei þumlung
eftir, hins vegar skortir mjög
uppbyggingu. Án Jóns Oddssonar
er sóknin fremur dauf, en gegn liði
eins og Haukum kom það ekki að
sök — varnarmenn Hauka bein-
línis buðu þá velkomna.
Fall blasir nú við Haukum og
fátt virðist geta komið í veg fyrir
það. Veikleikarnir blasa við.
Vörnin flöt og opnaðist oft mjög
illa — enginn aftasti maður til
bjargar. Örn Bjarnason var því
ekki öfundsverður af hlutverki
sínu er hann einn þurfti að kljást
við sóknarmenn KR. Ólafur
Jóhannesson er mjög útsjónar-
samur leikmaður, byggir ávallt
upp en hættir til að einleika um
of. Guðmundur Sigmarsson ákaf-
lega sterkur leikmaður, aðrir leik-
menn einfaldlega virðast ekki
hafa nægilega getu í hinni erfiðu
1. deild.
Ágætur dómari var Hjörvar
Jensson en á köflum naut hann
lítillar aðstoðar annars línuvarðar
síns.
Laugardalsvöllur 22. júlí.
KR—Haukar: 4—1.
Mörk KR: Vilhelm Fredriksen, 20.
mín. og 57. mínútu. Örn Guð-
mundsson, 22. mínútu, Sverrir
Herbertsson, 41. mínútu.
Mark Hauka: Ólafur Jóhannesson
77. mínútu úr víti.
Áhorfendur 879. u u n
islandsmOllð 1. aelld
l.-...:.-.■ ■ . ■ .-... . ■ . ..