Morgunblaðið - 24.07.1979, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 24.07.1979, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ1979 21 ÞAÐ VORU dýrmæt stig sem Valsmenn tryggðu sér í Laugar- dalnum í gærkvöldi er þeir báru sigurorð aí Fram 3—2, í ieik iiðanna í 1. deiidinni. Og víst er að sætur var sigurinn fyrir Valsmenn því að tvívegis voru þeir undir í leiknum, en tókst að jafna metin, og loks að tryggja sér sigur á lokamínútu ieiksins. Þegar flestir voru búnir að bóka einn jafnteflisleikinn enn milli Vals og Fram, og sumir áhorfend- ur farnir að týnast heim á leið. Valsmenn sóttu og boltinn barst út til Jóns Einarssonar sem Valur- Fram ætiaði að gefa inn á Atla en holtinn hrökk í Framara og til Jóns aftur og þaðan inn fyrir tii Atla sem var einn og óvaldaður. Atli var ekki seinn á sér og þakkaði með því að bruna í átt að markinu og skora fallega. Eftir sátu Frammarar með sárt ennið, þeir höfðu stöðvað og hrópað rangstaða. Afar erfitt var að dæma um það úr blaðamanna- stúkunni, hvort boltinn hrökk af Jóni eða varnarmanni Fram til Atla. Og línuvörðurinn gerði enga athugasemd við markið, og var hann vel staðsettur. Jafnræði í fyrri hálfleik í fyrri hálfleiknum var jafnræði með liðunum og ekki var mikið um góð marktækifæri. Það fyrsta kom á 13. mínútu er gott upphlaup Vals endar með skoti frá Guðmundi Þorbjörnssyni en það fór í stöng og framhjá. Skömmu síðar varði markvörður Fram gott skot frá Atla, Valsmenn voru öllu brattari til að byrja með í leiknum en svo jafnaðist leikurinn og Fram átti síður en svo minna í leiknum. Á 39. mínútu á Marteinn Geirsson þrumuskot af löngu færi en yfir. Á 40. mínútu leiksins fá Frammarar hornspyrnu á Val, Pétur Ormslev framkvæmdi spyrnuna vel, Ásgeir Elíasson náði að skalla boltann yfir til Guðmundar Steinssonar sem skoraði laglega af markteigslínu. Rétt áður en flautað var til hálfleiks ná Frammarar skyndi- sókn. Guðmundur brunar upp miðju vallarins og þrír leikmenn Fram eru á móti Herði Hilmars- syni í vörn Vals. En eigingirni Guðmundar var mikil og í stað þess að gefa boltann, reyndi hann sjálfur að brjótast í gegn og gullið tækifæri á að ná tveggja marka forystu í leiknum rann út í sandinn. Líflegur síð- ari hálfleikur Mikill stígandi var í síðari hálfleiknum, og óhætt að segja að hann hafi boðið upp á mikla spennu og góða knattspyrnu hjá baðum liðum. Ekki voru liðnar nema fimm mínútur af síðari hálfleik er Valsmenn jafna. Magn- ús Bergs, nær að vinna boltann í návígi og leikur upp miðjuna gefur út á Guðmund sem sendir fallega út til Atla, sem var kominn í gott færi og hann notfærði sér það vel og skoraði fallega. Samvinna þeirra Atla og Guðmundar er mjög mikil í leikjum Vals og oft hrein unun að sjathversu vel þeir skilja sendingar og hreyfingar hvors annars í leiknum. Við mark Vals lifnaði mikið yfir leiknum. Bæði liðin léku sóknar- leik, og leikurin var opinn og allt gat gerst. Guðmundur Steinsson skorar tyrsta mark Fram með míklum tiiþrifum. Ljósm. Olafur K. Magnússon. Valsmenn rændu báð- um stigunum af Fram Á 60. mínútu sýndi Ólafur Danivalsson glæsileg tilþrif er hann tekur niður fallega sendingu á vítateigslínu, snýr sér snöggt við og skýtur föstu skoti er hafnar í þverslánni og hrekkur út á völlinn. Frammarar sækja nú af mikl- um krafti og leika og oft fallega saman. Á 62. mínútu bjargar Hörður á línu skalla frá Guðm- undi Torfasyni. Tveimur mínútum síðar berst boltinn út á kantinn til Péturs Ormslev sem brunar upp og skýt- ur síðan föstu skoti fyrir markið. Og öllum til mikillar undrunar hafnar boltinn í netinu 2—1 fyrir Fram. Sigurður fór frá stönginni nær og var svo seinn niður og náði ekki til boltans. Eftir leikinn sagði Sigurður markvörður við undirritaðan að þetta hefði verið mesta klaufa- mark sem hann hefði fengið á sig. „Ég reiknaði með fyrirgjöf og fór út, en svo breytti boltinn um stefnu og ég var of seinn niður. Valsmenn jafna svo ekki leikinn fyrr en á 85 mínútu er öllum að óvörum Magnús Berge fær bolt- ann á vítateigslínu og skýtur föstu jarðarskoti í bláhornið fjær alveg út við stöngina. Vel gert hjá Magnúsi. Sigurmark Vals kom svo á loka- mínútu leiksins eins og áður greinir. Bæði liðin eiga hrós fyrir góðan leik, þau fóru sér frekar hægt í byrjun en góður stígandi var í leik þeirra. Það hefur verið gremjulegt fyrir Fram að sjá á éftir öðru stiginu til Vals úr því sem komið var. Þeir léku mjög vel og áttu annað stigið fyllilega verðskuldað. Lið Fram er sterkt um þessar mundir, Pétur og Guðmundur báðir stórhættulegir framlínu- menn, Rafn Rafnsson er mjög vaxandi leikmaður og Trausta Haraldssyni fer fram með hverj- um leik. Lið Vals verður erfitt að stöðva, leikmenn þess eru í góðri æfingu og leika snildarknattspyrnu á köflum. Vörn liðsins er yfirveguð og gerir fá mistök. Sterkasti hluti Valsliðsins eru miðjumennirnir. Atli, Guðmundur, Hörður, sam- vinna þeirra er aðalsmerki liðsins, og voru þeir bestir í þessum leik. í stuttu máli: íslandsmótið 1. deild. Laugar- dalsvöllur 23. júli. Valur — Fram 3-2 (0:1) Mörk Vals. Atli Eðvaldsson á 50. mínútu 90 mínútu, og Magnús Bergs á 85. mínútu. Mörk Fram: Guðmundur Steins- son á 40. mínútu og Pétur Ormslev á 64. mín. Áminning: Grímur Sæmunds- sen Val gult spjald og Pétur Ormslev gult spjald. Áhorfendur: 2871. Dómari: Guðmundur Haralds- son. -þr. Sagt eftir leikinn Hólmbert Þjálfari Fram: „Við erum orðnir langþreyttir á dómaramistökum, Atli var rangstæður ef hann fékk boltann, það var greinilegt. Boltinn hrökk í fætur Jóns Einarssonar og innfyrir vörnina til Atla sem var langt fyrir innan. Ég persónulega er geysilega sár. Þessi mistök voru okkur dýrkeypt. Leikurinn í heiid var jafn og í járnum allan tímann. Hörður Hilmarsson fyrirliði Vals: „Ég hef trú á því að þetta sé komið hjá okkur. Vissulega eru erfiðir leikir eftir, en við leikum nú betur en áður. Það segir sína sögu að við skuium vera tvívegis undir í leiknum en ná að jafna og sigra síðan verðskuldað í leiknum. Að mínum dómi áttum við að skora fleiri mörk. Framliðið er gott um þessar mundir og leikur vel. Þess vegna Eskfirðingar að rétta úr kútnum BJARNI Kristjánsson er hetja Eskfirðinga þessa dagana, hann skoraði sigurmark Austra gegn Magna á dögunum og á iaugar- daginn var hann enn á skotskón- Austri — Þór um er Austri vann Þór 1:0 á Eskifirði með marki Bjarna. Austri hefur nú unnið báða leiki sína í 2. umferðinni og er liðið að ná f skottið á þeim liðum, sem berjast um miðbik deildarinnar eftir afleita fyrri umferð Austra- manna. Þess má geta að í vor ætlaði Bjarni sér að ganga til liðs við Þórsara, en hætti við á síð- ustu stundu og sá síðan um það á laugardaginn að austurferð Þórs- ara varð engin fræðgarför. Þjálf- ari Þórs er Hlöðver örn Rafns- son, sem síðastliðið sumar þjálf- aði Eskfirðingana. Leikur Austra og Þórs á laugar- daginn var jafn, en með góðri baráttu í seinni hálfleiknum náði Austri undirtökunum í leiknum. Markið kom fyrri hluta seinni hálfleiksins. Eftir góða stungu- sendingu Sigurbjörns þjálfara Austra tókst Bjarna að hrista varnarmenn Þórs af sér og skora gott mark. í fyrri hálfleiknum heimtuðu Þórsarar vítaspyrnu og sögðu að Pétur ísleifsson hefði varið með höndum á marklínu. Dómarinn sá þó ekkert athugavert og dæmdi aðeins hornspyrnu. í síðar hálfleik vildu heimamenn meina að þeirra menn hefðu sömuleiðis átt vítaspyrnu, en Birgir Óskarsson sá heldur ekkert athugavert í það skiptið. Leikur Austra var eftir atvikum sanngjarn í leiknum og beztu menn liðsins voru Haraldur Haraldsson, Hjálmar Ingvason og Steinar Tómasson, en í heild áttu liðin góðan dag og hrós skilið fyrir mikla baráttu. -Ævar/-áij STAÐAN Staðan í 2. deild íslands- mótsins í knattspyrnu er nú þessi eftir leiki helgarinnar. FH — Reynir 10:2 Magni — Selfoss 1:2 Austri — Þór 1:0 ÍBÍ - UBK 1:5 var þetta sætur sigur fyrir okkur. 'tf, FH Breiðablik Fylkir Selfoss Þór Þróttur Isafjörður Reynir Austri Magni 11821 32- 11 82 1 26- 10 5 2 3 22- 11 4 34 16- 11515 14- 9 3 2 4 7- 1024 4 14- 1124 5 8- 1123 6 9- 11218 9- •12 18 ■7 18 •14.12 •11 11 ■15 11 •10 8 •19 •22 ■20 •28 Atli Eðvaldsson skorar sigurmark Vals. Markhæstu menn: mörk Sigurður Grétarsson, UBK 10 Hilmar Sighvatsson, Fylki 8 Pálmi Jónsson, FH 7 Andrés Kristjánsson, ÍBÍ 7 Sumarliði Guðbjartsson, Selfossi7 Guðmundur Skarphéðinsson, Þór7 Þórir Jónsson, FH 6 Leifur Helgason, FH 5 isiandsmóHS i. delld ■ ■ i r Vikinga ÞRÍR ieikir fóru fram í útimót- inu í handknattleik í gærkvöidi. í mfl. kvenna sigraði Valur Víking með 19—11, og í mfl. karla sigraði FH Víkinga 24—18, og Haukar ÍR-inga 28—22.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.