Morgunblaðið - 13.10.1979, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1979
Starfsstjórn
Á fundi rikisráös i Reykjavik i (ía r féllst forseti íslands á tilloKU
ólafs Jóhannessonar forsætisráðherra um að veita ráöuneyti hans
lausn ok fól forseti rikisstjórninni að gegna störfum unz nýtt
ráðuneyti hefði verið myndað. — Ljósm. Mbl. RAX.
Holocaust í
Sprunga í hreyfil-
festingu DC-8 þotu
SPRUNGA við hreyfilfest-
ingu kom fram við skoðun á
DC-8 þotunni TF-FLF í New
York nú í vikunni og er
áætlað að það taki eina viku
að gera við vélina að sögn
Leifs Magnússonar fram-
kvæmdastjóra flugdeildar
Flugleiða. Flugleiðir hafa
þessa vél á leigu frá Seaboard
og hefur hún sinnt nær öllu
farþegaflugi vestur um haf
að undanförnu ásamt DC-8
vél Air Bahama, en aðrar
Yfirskoðunarmenn gera
athugasemd við
símareikninga þingmanns
YFIRSKOÐUNARMENN ríkis-
reiknings hafa ritað forseta Sam-
einaðs þings bréf, sem þeir af-
hentu aidursforseta þingsins, Oddi
ólafssyni í gær. Skv. upplýsingum,
scm Morgunblaðið hefur aflað sér
munu þeir vckja athygli á því, að
einhverjir símareikningar þáver-
andi framkvæmdastjóra Kröflu-
nefndar, Jóns G. Sólnes, alþm. hafi
Ólafur í
f yrsta sæti í
Reykjavík?
ÓLAFUR Jóhannesson for-
sætisráðherra hefur látið
þau orð falla að hann gerði
eki ráð fyrir að hann
my«di gefa kost á sér að
nýju þegar næst kæmi til
þingkosninga og í sjón-
varpsþættinum Kastljósi í
gærkvöld ítrekaði hann þá
afstöðu sína. Mbl. spurði
Jón Aðalstein Jónasson
formann fulltrúaráðs Fram-
sóknarflokksins í Reykjavík
hvort unnið hefði verið að
því að fá ólaf til að skipa
fyrsta sæti flokksins í
Reykjavík:
— Óneitanlega hafa marg-
ir flokksmenn spurt og
heyrst hafa raddir um hvort
ekki væri mögulegt að fá
Ólaf Jóhannesson til að skipa
fyrsta sæti á lista í
Reykjavík, en fulltrúaráðið
hefur ekki unnið að því né
f jallað um það á neinn hátt.
Uppstillingarnefnd hefur
ekki tekið til starfa og því
hefur þessi möguleiki ekki
verið kannaður og verður
vart fyrr en hún fer af stað,
sagði Jón Aðalsteinn.
verið greiddir bæði af Kröflunefnd
og Aiþingi.
Morgunblaðið sneri sér í gær til
Odds Ólafssonar, aldursforseta
þingsins, sem hafði þetta um málið
að segja:
„Það er rétt að til mín komu
yfirskoðunarmenn ríkisreiknings
og afhentu mér bréf. Bréfið lagði ég
inn á skrifstofu forseta alþingis og
bíður það þar, unz kjörinn hefur
verið nýr forseti, sem væntanlega
verður á mánudag og gera má ráð
fyrir að hann taki það til meðferð-
ar, en bréfið leit ég ekki á.“
Morgunblaðið reyndi í gærkvöldi
að ná sambandi við Jón G. Sólnes,
sem nú er stadd'ur erlendis en tókst
ekki. Blaðinu er hins vegar kunnugt
um, að alþingismaðurinn hefur end-
urgreitt alla símareikninga, sem
Kröflunefnd greiddi, en ekki liggur
fyrir, að þeir hafi allir verið
tvígreiddir.
vélar Flugleiða eru nú í
pílagrímaflugi. DC-8 þota frá
fiugfélaginu World Airways
hefur þegar verið leigð til
þess að sinna fluginu yfir
Atlantshafið og er hún leigð
til 26. okt. Áhafnir Flugleiða
munu fljúga vélinni. Einnig
verða leigðar vélar í einstök
flug.
Sams konar bilun í hreyfil-
festingu hefur, að sögn Leifs,
komið fram í mörgum DC-8
vélum á undanförnum árum
og þarf að framkvæma
ákveðna viðgerð vegna bilun-
arinnar samkvæmt tilmælum
Douglas-verksmiðjanna, en
viðgerðin er mjög tímafrek
þótt aðeins þurfi að skipta um
eitt málmstykki. Umrædd bil-
un hefur ávallt komið fram á
mótor 3 á DC-8 vélunum.
Sigluvík land-
aði í Grimsby
SIGLUVÍKIN frá Siglufirði landaði
88.6 lestum af góðum fiski i Grims-
by í gær, en verðið sem fékkst fyrir
aflann, var þó ekkert sérstakt, eða
46.2 milljónir, meðalverð 522 krón-
ur.
Það verð sem fæst á fiskmörkuð-
unum á föstudögum er mjög mis-
jafnt og því talsverð áhætta að selja
síðasta dag vikunnar.
sjonvarpi
Á FUNDI útvarpsráðs í gær þar
sem einkum var fjallað um mál-
efni sjónvarpsins voru m.a. til
umræðu ýmsar myndir er til
greina kemur að keyptar verði til
sýningar í islenska sjónvarpinu.
Hefur þannig komið til tals að
Loðnuaflinn
nálgast 280
þúsund tonn
LOÐNUVEIÐARNAR ganga vel
eins og undanfarið og sætir það
tiðindum hversu litlar frátafir
hafa verið vegna veðurs. Á
fimmtudag tilkynntu 13 skip um
afla til Loðnunefndar, samtals
8400 lestir. bar til síðdegis í gær
höfðu 10 skip bætzt við með 6770
lestir.
Síðdegis á fimmtudag tilkynntu
Ljósfari og Örn um afla, hvort skip
með 580 lestir. í gær tilkynntu
eftirtalin skip síðan um afla:
Grindvíkingur 1050, Óskar Hall-
dórsson 410, ísleifur 440, Óli Ósk-
ars 1350, Huginn 580, Helga II 530,
Skírnir 450, Harpa 530, Hafrún
630, Jón Finnsson 600.
Loðnuaflinn á vertíðinni er nú
farinn að nálgast 280 þúsund
lestir.
keypt verði myndin Holocaust,
sem sýnd hefur verið víða erlend-
is, en hún fjallar um Þýskaland á
tímum seinni heimsstyrjaldarinn-
ar. Var ákveðið að leita hófanna
hjá fyrirtækinu World Vision er
framleiddi myndina, en hún mun
vera alldýr og ekki vitað hvort
strax verður á færi sjónvarpsins
að ráðast í kaup á mynd þessari.
Þá var á fundi útvarpsráðs í
gær fjallað um lestur sögu Indriða
G. Þorsteinssonar, Þjófur i
paradís. Hafði verið ráðgert að
sagan yrði lesin í útvarp nú í
október svo sem frá hefur verið
skýrt, en á fundi í gær var borin
upp tillaga um það að sagan yrði
lesin í nóvember. Var tillagan
felld með jöfnum atkvæðum, 3—3
og mun því enn líða einhver tími
uns hún verður flutt í útvarpi.
Flokksráðs-
fundur Sjálf-
stæðisflokks
á sunnudag
FLOKKSRÁÐSFUNDUR Sjálf-
stæðisflokksins hefur verið
boðaður i Valhöll á sunnudaginn
klukkan 17.
Hitaveitu Akraness
og Borgarfjarð-
ar veitt starfsleyfi
IÐNAÐARRAÐUNEYTIÐ
hefur veitt Hitaveitu
Akraness og Borgarfjarð-
ar einkaleyfi til reksturs
hitaveitu á starfssvæði
veitunnar að því er segir í
frétt ráðuneytisins.
I fréttinni segir ennfremur að
ríkisstjórninni hafi 31. maí s.l.
verið veitt leyfi til þess að taka
eignarnámi hluta jarðarinnar
Deildartungu í Reykholtsdals-
hreppi ásamt jarðhitaréttindum.
Hinn 31. júlí s.l. ákvað ríkisstjórn-
in svo að neyta heimildar laganna.
Samkomulag er milli Hitaveitu
Akraness og Borgarfjarðar, Reyk-
holtsdalshrepps, iðnaðarráðuneyt-
isins og fjármálaráðuneytisins
vegna ákvæðis laganna um að
höfð skuli hliðsjón af hagsmunum
íbúa Reykholtsdalshrepps. Þá hef-
ur verið gert samkomulag milli
Hitaveitu Akraness og Borgar-
fjarðar og fjármálaráðuneytisins
um afnot af heitu vatni úr Deild-
artunguhver, en hverinn verður
eign ríkissjóðs.
Guðmundur J. Guðmundsson á Verkamannasambandsþingi:
99
Umbjódendur verkalýðs-
ins geta ekki unnið sam-
an að stjórn landsins...”
ÞING Verkamannasambandsins var1
sett á Akureyri á Hótel KEA i1
gærkvöldi. Þar flutti Guðmundur J.
Guðmundsson, formaður sambands-
ins, ávarp og síðan var gengið frá
kjörbréfum og skýrsla stjórnar les-
in.
í ræðu Guðmundar minnti hann á
að verkafólk ætti í sífelldri baráttu
um laun sín og réttindi, ekki aðeins
við atvinnurekendur, heldur einnig
við ríkisvaldið. Kvað hann nútíma-
þjóðfélag bjóða upp á meiri sérgrein-
ingu og sérmenntun en áður hefði
tíðkast, ekki aðeins hér á landi,
heldur í öllum nágrannalöndunum.
Taldi hann að sérmenntað fólk með
hærri laun myndaði harðvítug sam-
tök, betur skipulögð, kröfuharðari og
harðsnúnari en hin almennu verka-
lýðsfélög. Þó varaði hann sterklega
við því að líta á þessa hópa, eða
einstaklinga í þeim, sem óvini verka-
lýðsins. Hins vegar kvað hann það
ljóst að ef hin almennu verkalýðsfé-
lög efldu ekki samtök sín og endur-
skipulegðu starfið í samræmi við
nútímann yrðu þau undir í baráttu
og samkeppni við aðra.
Guðmundur lagði þunga áherzlu á
að hinn almenni félagsmaður hefði
ekki verið nógu virkur í félagsstarfi
hingað til, meðal annars vegna hins
langa vinnudags. Þetta væri hið
brennandi mál nú og á því yrði að
ráða bót.
„Ég get ekki neitað," sagði Guð-
mundur, „að það sækir að mér uggur
þegar tveir flokkar sem eru umbjóð-
endur verkalýðsins í landinu og eru í
samvinnu við flokk sem kennir sig
við samvinnuhugsjón, geta ekki unn-
ið saman að stjórn landsins fyrir
umbjóðendur sína, sem eru verka-
fólkið í landinu."
Sem dæmi um mismunandi rétt-
indabaráttu nefndi Guðmundur að
fyrir skömmu hefði BHM sett fram
kröfu um 6 mánaða fæðingarorlof
kvenna innan sinna samtaka, en hins
vegar hefði verkakona nú samkvæmt
samningum þriggja vikna fæðingar-
orlof. Kvað hann eitt af meginverk-
efnunum framundan að leitt yrði í
lög að allar konur í landinu, undan-
tekningalaust, fengju þriggja mán-
aða fæðingarorlof. Þannig kvað hann
bíða mörg baráttumál, réttinda- og
jafnaðarmál.
Verður
kosninga-
lögum
breytt?
VEGNA þess að allra veðra
er von á þeim tíma, sem
alþingiskosningar munu
fara fram síðast í nóvem-
ber eða fyrst í desember,
hefur Sjálfstæðisflokkur-
inn bent Alþýðuflokknum
á að breyta þurfi kosn-
ingalögum til þess að gera
fólki auðveldara fyrir að
greiða atkvæði, ef veður
hamlar kjörsókn.
Sjálfstæðisflokkurinn
leggur til að heimilað verði
að greiða utankjörstaðar-
atkvæði, jafnvel þótt menn
verði heima á kjördag. Geta
þá menn, sem þannig eru í
sveit settir, að möguleiki er
á að þeir komist ekki á
kjörstað á kjördegi, greitt
atkvæði með a.m.k. viku
fyrirvara. Geti menn þá
greitt atkvæði áður en kjör-
dagur rennur upp, vilji þeir
sýna þá forsjálni að teppast
ekki heima hjá sér á sjálfan
kjördaginn.