Morgunblaðið - 13.10.1979, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1979
rrfffrwn
vandaðaðar vörur
Sambyggt
hleðslu- og
rafsuðutæki
Ódýrar, handhægar gerðir.
Shell
Oliufélagiö
Skeljungur hf
Heildsölubirqðir:
Smávörudeild Sími: 81722 I
írar fá brátt
getnaðarvamir
Dyflinni, 6. október AP.
LÖG um getnaðarvarnir munu
taka gildi i írlandi i næsta
mánuði. Hin nýju lög hafa valdið
miklum deilum á írlandi.
Samkvæmt þeim fær einungis
gift fólk getnaðarvarnir og þá
samkvæmt lyfseðli frá lækni. Um
helmingur 1200 lyfsala í iandinu
hefur neitað að selja getnaðar-
varnalyf og mikillar tregðu
gætir meðai fjöimargra lækna að
gefa út lyfseðla.
Mikill meirihluti íra er kaþ-
ólskrar trúar. Vitað er að árlega
halda þúsundir kvenna yfir sundið
til Englands til að fá getnaðar-
varnalyf þar og einnig fóstur-
eyðingu. Hin nýju lög taka gildi
aðeins nokkrum vikum eftir heim-
sókn Jóhannesar Páls II páfa til
landsins. Þá hvatti hann íra til að
hafna fóstureyðingum og hjóna-
skilnaði en minntist aldrei beinum
orðum á getnaðarvarnir.
AUGLÝSIWGATEIKNISTOFA
MYNDAMÓTA
Aóalstræti 6 sími 25810
Laugardagskvikmynd sjónvarpsins:
Ævintýrasagan
um
Robinson Crusoe
Laugardagskvikmynd
sjónvarpsins er að þessu
sinni Robinson Crusoe,
sagan um einn frægasta
strandaglóp allra tíma,
manninn sem allir ungl-
ingar lesa um á öllum
tímum.
Ekki er ástæða til að
rekja söguþráðinn sér-
staklega, svo kunnur sem
hann er fólki á öllum
aldri. Kvikmyndin er
bresk og er gerð eftir
hinni sígildu sögu Dani-
els Defoes. Höfundur
handrits er James Mac-
Taggart og er hann jafn-
framt leikstjóri.
Sýning myndarinnar
hefst klukkan 21.40, en
dagskrárlok í sjónvarpi
eru klukkan 23.20.
Stanley Baker í hlutverki hins heimsfræga og sígilda ævintýra-
manns, Robinsons Crusoe.
V aldir kaf lar úr
leik Skagans
og Barcelona
„í þættinum í dag verða meðal annars sýndir valdir
kaflar úr leik Akurnesinga og spænska liðsins Barce-
lona, sem fram fór fyrir skömmu í Barcelona," sagði
Bjarni Felixson er við spurðum um efni íþróttaþáttar
hans í sjónvarpi klukkan 16.30 í dag.
Þá sagði Bjarni, að einnig yrði sýnt frá heimsbikar-
keppninni í frjálsum íþróttum, sem fram fór í Montreal
í Kanada, og verður væntanlega lokið við að sýna
myndir þaðan. Fleira sagði Bjarni verða tekið fyrir í
þættinum, en ekki er alveg ljóst hvað það verður, en
sennilegt að badmintonáhugafólk sjái eitthvað af þeirri
íþrótt.
Landsleik íslendinga og Pólverja í knattspyrnu
sagðist Bjarni því miður ekki geta lofað, því hann væri
á leiðinni frá Póllandi, en leikurinn verður í þess stað
sýndur í heild eftir viku.
Enska knattspyrnan er síðan á dagskrá klukkan
18.55, og þar verða sýndir tveir leikir í fyrstu deildinni
í Englandi: Leikur Crystal Palace og Tottenham, og
einnig leikur Coventry og Everton.
Enska knattspyrnan er á dagskrá sjónvarps i dag klukkan 18.55.
íþróttir í sjónvarpi klukkan 16.30:
Utvarp Reykjavík
L4UG4RD4GUR
13. október
MORGUNNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Tónleikar.
7.10 Leikfimi
7.20 Bæn
7.25 Ljósaskipti: Tónlistar-
þáttur í umsjá Guðmnndar
Jónssonar píanóleikara (end-
urtekinn frá sunnudags-
morgni).
8.00 Fréttir. Tónleikar.
I 8.15 Veðurfr. Forustugr.
; dagbl. (útdr.). Dagskrá. Tón-
leikar
® 9.00 Fréttir. Tilkynningar.
t Tónleikar.
9.20 Leikfimi
9.30 óskalög sjúklinga: Ása
Finnsdóttir kynnir.
(10.10 Veðurfregnir).
11.20 Börn hér og börn þar
Málfríður Gunnarsdóttir
stjórnar barnatíma.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
SÍÐDEGIÐ
13.30 í vikulokin
Edda Andrésdóttir. Guðjón
Friðriksson, Kristján E. Guð-
mundsson og ólafur Hauks-
son stjórna þættinum.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Vinsælustu popplögin
Vignir Sveinsson kynnir.
17.20 Tónhornið
Guðrún Birna Hannesdóttir
sér um þáttinn.
17.50 Söngvar í léttum dúr.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
KVÖLDIÐ
19.35 „Góði dátinn Svejk“
Saga eftir Jaroslav Hasek í
þýðingu Karls ísfelds. Gísli
Halldórsson leikari les (35).
20,00 Gleðistund
Umsjónarmenn: Guðni Ein-
arsson og Sam Daniel Glad.
20.45 Söngur og ljóð að sunnan
Guðbergur Bergsson rithöf-
undur tók saman þáttinn.
21.20 Hlöðuball
Jónatan Garðarsson kynnir
ameriska kúreka- og sveita-
söngva.
22.05 Kvöldsagan: Póstferð á
hestum 1974
Frásögn Sigurgeirs Magnús-
sonar. Helgi Elíasson les (2).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.50 Danslög. (23.50 Fréttir).
01.00 Dagskrárlok.
SKJANUM
orsins
L4UG4RD4GUR
13. október
16.30 íþróttir
Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
18.30 Heiða
Tuttugasti og f jórði þáttur.
Þýðandi Eiríkur Haralds-
son.
18.55 Enska knattspyrnan
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dag-
skrá
20.30 Leyndardómur prófess-
Sjötti þáttur. Þýðandi Jón
O. Edwald. (Nordvision —
Norska sjónvarpið).
20.45 Manhattan Transfer
Létt tónlist flutt af hljóm-
sveitinni Manhattan Trans-
fer.
21.40 Robinson Crusoe
Bresk sjónvarpskvikmynd,
gerð eftir hinni sígijdu
sögu Daniels Defoes.
Höfundur handrits og leik-
stjóri James MacTaggart.
Aðalhlutverk Stanley Ba-
kcr.
23.20 Dagskráriok