Morgunblaðið - 13.10.1979, Page 34

Morgunblaðið - 13.10.1979, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1979 Þórir S. Guðht'r«sson Rúna <» ísladóttir Börn morgun- dagsins Með þátið að baki stígum við eitt skref inn f óljósa framtíð, sem biður barna morgundagsins. í spegli nútímans eygjum við framtiðina sem blasir við bornum morgundagsins. Framtiðin! Frelsi eða fjötrar? Framtiðin! öryggir eða ótti? Kjarnorka eða kœrleikur? Framtiðin! Visindi og vélmenni? Tölvur, tækni og trylling? Hvers mega börn morgundagsins vænta af börnum nútfmans? Sögur frá MÖRG ykkar hafa lifað viðburðaríkt sumar. Sum hafa verið í sveit, önnur farið til annarra landa — og svo hafa mörg verið heima, farið í stutt eða löng ferðalög innanlands eða átt góða daga í heimahögum. Nú langar okkur til að biðja ykkur að senda Barna- og fjölskyldu- síðunni Sögur frá liðnu sumri. — Það mega einnig vera ljóð. — Og svo mega teikningar gjarnan fylgja með. Bregðið nú skjótt við og látið okkur heyra frá ykkur. Það eru ótrúlega margir bæði börn og full- orðnir, sem hafa gaman af sögum ykkar, ljóðum og teikningum! N otaðu hlutina rétt...! Kaupmaður nokkur fékk eitt sinn tveim vinum sínum tvo sekki af korni hvorum til geymslu fyrir sig. Að ári liðnu kom hann aftur og bað um korn sitt. Sá fyrri fór með hann út i geymslu og benti honum þar á sekkina tvo, myglaða og fúna. Kornið var orðið ónýtt. Hinn fór með hann út á viðáttumikinn akur, benti á þroskaða kornbreiðu og sagði: — Allt þetta er þín eign. Þá svaraði kaupmaðurinn: — Láttu mig fá aftur tvo sekki af korni. Hitt mátt þú eiga sjálfur. Saga þessi minnir okkur á dæmisögu Jesú um talenturnar. Það borgar sig að nota rétt gjafir Guðs! Leikir — Þrautir— Gátur - Skrýtlur Bókstafs- þrautir Sérhvert orð er byggt upp af bókstöfum, sem raðað er saman á ákveðinn hátt. Bókstöfunum — án — er hægt að raða saman á tvennan hátt t.d.: án og ná. Til er kvenmannsnafn, sem er eins hvort sem það er stafað aftur- ábak eða áfram og byrjar á A... ! Hvaða nafn er það? Þið getið sjálf reynt að finna alls kyns þrautir með bókstöfum bæði heima og í skólanum. Ef þið takið t.d. fyrsta stafinn framan af nafni á dýri, sém nefnt er konungur skógarins, stendur eftir algengt karl- mannsnafn! Spreytið ykkur áfram! Risa- fiðrildi Stærsta fiðrildi jarðarinnar heitir Erebus Agrippina og er heimkynni þeirra í Brasilíu. Vænghaf fiðrildanna er um 30 sentimetrar! Eins og þið vitið sjálfsagt mörg lifa fiðrildin aðallega á hunangi, sem þau sjúga úr blóm- um. Til þess nota þau brodd, sem getur orðið allt að 10—12 sm langur! (Eins gott að gæta sín — og stríða þeim ekki mikið! ! Pund eða kíló! I gamla daga sögðust menn gjarnan ætla að fá eitt pund af þessu, tvö pund af hinu o.s.frv. í staðinn fyrir kíló! Gamall maður kom inn í versl- un fyrir all mörgum árum og ætlaði að kaupa eitt pund af smjöri. „Nú heitir það kíló,“ sagði afgreiðslumaðurinn. „Jæja, jæja,“ sagði gamli mað- urinn. „Láttu mig þá fá eitt pund af kílói“! Undarlegt! „Mamma, af hverju skín tunglið á nóttinni og sólin á daginn?" „Æ, ég hef ekki tíma til að svara þér, drengur minn.“ „Mamma, af hverju hefur kötturinn ekki vængi og fuglarn- ir skott?" „Þegiðu nú augnablik — ég hef ekki tíma til að útskýra þetta fyrir þér.“ „Mamma, af hverju verpa kýrnar ekki?“ „Ef þú hættir ekki þessu suði, Pétur, þá verð ég að skamma þig ærlega!" „Mamma, af hverju hefurðu tíma til að skamma mig ærlega, en ekki til að svara mér?“ Heimsókn í fiskabúr Mörg ykkar eiga sjálfsagt fiskabúr. Dag einn fékk Anna að heimsækja Fiskasafnið í Vest- mannaeyjum. Hún hafði aldrei komið þangað áður og dáðist að fiskunum í langan tíma. Allt í einu kom hún auga á tvo fiska, sem virtust vera alveg eins. En þegar hún athugaði þá betur kom í ljós, að þeir voru mjög ólíkir. í fljótu bragði fann hún átta mismunandi atriði. Getur þú ekki reynt að finna þau líka! Gott svar! Kennarinn var að útskýra reikning fyrir börnunum í fyrsta bekk. „Nú ætla ég að leggja fyrir ykkur dæmi, sem er dálítið þungt," sagði hann. „Móðir nokkur átti fimm börn, en aðeins fjögur epli. Nú langaði hana til að skipta eplunum jafnt á milli allra barnanna. Getið þið hjálp- að henni til að leysa þá þraut?" Lítil stúlka rétti fljótlega upp höndina og svaraði full ákafa: „Hún gæti búið til eplagraut handa þeim!“ M ð to a tf ^ b6rn tn u eppíi. é é éé> # 9*. & A A

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.