Morgunblaðið - 13.10.1979, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1979
39
Á Hótel Borg stendur yfir sýning á verkum Magnúsar Jóhannessonar. Magnús sýnir þar 45 verk, aðal-
lega vatnslitamyndir. Sýningunni lýkur á morgun, sunnudag, kl. 18.
Islandspólitík
Dana 1913—1918
BÓKAÚTGÁFAN Örn og
Örlygur hefur gefið út bók,
sem nefnist Íslandspólitík
Dana 1913—1918, eftir Per
Sundböl og er í íslenzkri
þýðingu Jóns Þ. Þórs sagn-
fræðings.
Eins og nafnið bendir til
fjallar bókin um afstöðu
Dana til málefna íslands
síðustu árin áður en Islend-
ingar hlutu fullveldi. Koma
þar við sögu íslenzkir og
danskir stjórnmálamenn á
þessu tímabili, skýrt er frá
afstöðu hinna ýmsu stjórn-
málahreyfinga í Danmörku
til sjálfstæðiskrafna íslend-
inga, og þeim farsælu mála-
lyktum, sem þær loks fengu.
Verkið er í 8 meginköflum.
Bókin er gefin út í kilju-
formi og er 170 bls. Hún er
unnin í prentsmiðjunni Hól-
um nema kápan, sem prent-
uð er hjá Offsettækni h.f.
Káputeikningu gerði Ernst
Bachmann.
1913 18
res « noboi jiw h iw m<ií
Árbók SVFl
1979 er komin út
ÁRBÓK Slysavarnafélags
tslands 1979 fyrir starfsárið
1978 er nýkomin út og er hún
146 lesmálssíður að stærð. Er
árbókin fjölbreytt að vanda og
hana prýða margar myndir.
I fyrra var 50 ára afmælis
SVFÍ minnst og í tilefni afmæl-
isins var hafist handa við að
gefa út heildarútgáfu Árbókar
SVFÍ, alls 42 bækur. Er heildar-
útgáfan enn fáanleg hjá SVFÍ og
kostar hún 22 þúsund krónur. I
árbókunum er að finna marg-
víslegan fróðleik, aðallega við-
víkjandi slysavörnum og björg-
unarstarfi í landinu.
Árbókin 1979 fæst á skrifstofu
SVFÍ á Grandagarði og hjá
Slysavarnadeildum um allt land.
I fyrra voru liðin 100 ár síðan
fyrsti vitinn var reistur hér á
landi og í tilefni þess merka
afmælis prýðir forsíðu árbókar-
innar mjög falleg vatnslitamynd
af fyrsta íslenzka vitanum, en
hann var reistur á Reykjanesi,
nánar tiltekið á Valahnúk.
Myndina málaði Bjarni fiski-
fræðingur Sæmundsson árið
1888. Á bakhlið er vitakort
Islands eins og það var 1973, gert
af Sjómælingum íslands.
Meðal efnis í Árbók SVFÍ1979
má nefna skýrslu stjórnar um
starfsemina í fyrra, frásögn er
frá aðalfundi félagsins, sagt er
frá merkisafmælum nokkurra
slysavarnadeilda, grein um skip-
brotsmannaskýlið á Ingólfs-
höfða, ávarp Aðalsteins Júlíus-
sonar vitamálastjóra í tilefni 100
ára afmælis vitanna, yfirlit er
yfir bjarganir og slysfarir á
árinu 1978, greinar um slysa-
varnir og björgunarmál og
margt fleira.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
-tízkusýning
IJ A D
I I I Sunnudaginn 14. október kl. 20.30
■JLb mÆm mL jL JL * Súlnasal Hótel Sögu
Landsliðið í hárgreiðslu og hárskurði sýna ásamt fagfólki
Sala aðgöngumiða að rakarastofunni að Hótel Sögu víðsvegar af landinu. Torfi Geirmundsson sýnir hártoppa fyrir
laugardag frá kl. 1—5 og í anddyri á sunnudag. herra. Tízkusýning frá Studio.
Borð frátekin um leið. „ .. . i i . . ,. Tr n
Kynnir verður hinn landsþekkti Heiðar Jonsson,
0B0RGANLEG SKEMMTUN
Við borgum ekki!
Við borgum ekki!
Sýning í Austurbæjarbíói
í kvöld kl. 23.30.
Sýningin sem gekk fyrir fullu húsi í allan fyrravetur
Ur blaðaumsögnum:
„Allt ætlaði um koll að keyra hjá áheyrendum — óborganleg skemmtun" (Vísir)
„Galsafengin sýning" (Þjv).
„Óvenju heilsteypt sýning" (Mbl.)
„Farsasýningar gerast ekki betri í atvinnuleikhúsum borgarinnar — hittir beint í mark“. (Dbl.).
Miðasala í Austurbæjarbíói
ffrá kl. 4 í dag. Sími 11384.
ALÞYÐULEIKHUSIÐi