Morgunblaðið - 13.11.1979, Qupperneq 48
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1979
Toppliðin grátt leikin
Liverpool í meistaraham
Það gekk sannarlega á ýmsu
í ensku deiidarkeppninni um
helgina og verður að segjast
eins og er, að allt steínir í
öruggan sigur Liverpooi, þótt
margan kunni að þykja snemmt
að segja slikt. Sannleikurinn
virðist hins vegar sá, að Liver-
pool er langbesta liðið þessa
stundina. Efstu liðin Manchest-
er Utd og Nottingham Forest
töpuðu bæði illa á útivöllum og
þó að MU haldi enn efsta
sætinu, virðist liðið ekki stöðu
sinni vaxið. United hefur aðeins
skorað 19 mörk i 15 leikjum,
enda ekki einn einasti miðherji
í liðinu, Greenhoff og Jordan
meiddir og Ritchie ekki í náð-
inni, er það nema von að ekkert
gengur að skora með sex tengi-
liði á vellinum. Forest gengur
betur að skora mörk, það vant-
ar ekki, en vörn liðsins hefur
verið í jólaskapi að undanförnu
og gamla öryggið er horfið á
braut.
Yfirburðir Liverpool
Það er segin saga, að ef Ken
Dalglish leikur vel, þá leikur lið
hans Liverpool að sama skapi
vel. Dalglish hefur verið í essinu
sínu í síðustu þremur leikjunum,
skorað sex mörk. Liverpool hefur
skorað 10 mörk í þessum þremur
leikjum og er komið í annað sæti
deildarinnar, einu stigi á eftir
Man. Utd, en með leik til góða.
Botnliðið Brighton átti aldrei
möguleika eftir að Liverpool
hafði á annað borð skorað fyrsta
markið. Bæði Ryan og Ward
fengu hins vegar dauðafæri með-
an staðan var enn jöfn, en allt
rann í sandinn, kom færið hans
Wards svo óvænt, að hann skaut
ekki einu sinni á markið. Ray
Kennedy skoraði eina mark fyrri
hálfleiks fyrir Liverpool, en Ken
Dalglish bætti tveimur við í
síðari hálfleik. Ray Clarke skor-
aði sitt fyrsta mark fyrir Brigh-
ton og minnkaði muninn í 3—1,
en síðasta orðið átti Dave John-
son, 4—1.
1. DEILD
Manrh. ( td 15 8 4 3 19 10 20
[.iverpool 14 7 5 2 30 11 19
Nott. Forest 15 8 3 4 26 17 19
Crystal P 15 6 7 2 22 14 19
Tottenham 15 7 4 4 20 23 18
I WolverhamptonM 7 3 4 19 16 17
Norwieh 15 6 4 5 26 20 16
Araenal 15 5 6 4 17 11 16
Middlcsbr. 15 6 4 5 14 10 16
Southampton 15 6 3 6 26 22 15
West Bromwich 15 5 5 5 23 19 15
Aaton VHla 14 4 7 3 14 13 15
Coventry 15 717 24 29 15
Maneh. City 15 6 3 6 15 21 15
Briatol City 15 465 14 17 14
Stoke 15 4 5 6 19 23 13
Everton 14 3 6 5 16 20 12
Leeds 14 3 6 5 15 19 12
Derby 15 5 2 8 15 21 12
Ipawich 15 4 2 9 12 21 10
Bolton 15 177 12 27 9
Brixhton 14 2 3 9 15 29 7
2. DEILD
Luton 15 8 5 2 28 14 21
Neweastie 15 8 4 3 19 12 20
BlrminKbam 15 843 20 14 20
QPR 15 8 3 4 28 14 19
Ij>ieester 15 7 5 3 28 20 19
Notta County 15 7 4 4 23 15 18
Swanaea 15 744 19 17 18
Chelaea 14 815 21 16 17
Wrexham 15 816 19 16 17
Preaton 15 4 8 3 19 16 16
Weat Ham 14 7 2 5 14 14 16
Sunderland 15 6 3 6 19 17 15
Cardiíf 15 6 3 6 17 20 15
Oldham 15 4 6 5 17 17 14
Orient 15 4 5 6 18 25 13
Charlton 15 3 6 6 17 27 12
Shrewsbury 15 4 3 8 18 22 11
Bristol R. 15 1 3 8 21 28 11
Camhridxe 15 2 6 7 14 19 10
Watford 15 3 4 8 12 20 10
Fulham 16 4 2 9 20 31 10
Burniey 15 0 6 9 15 32 6
• Tottenham (hvitum skyrtum) er það lið sem ásamt Liverpool leikur bestu
knattspyrnuna þessar vikurnar. Liðið er nú komið í fimmta sæti 1. deildar, eftir
að hafa verið í neðsta sætinu í lok september.
Töp efstu liðanna
Ekki voru efstu liðin Man-
chester Utd og Nottingham For-
est sannfærandi um helgina.
United sótti nágrannaliðið Man.
City heim og reið ekki feitum
hesti af vettvangi. Hinn ungi
markvörður liðsins var í sviðs-
ljósinu, varði fjórufn sinnum af
mikilli snilld í fyrri hálfleik og
bætti síðan við það í þeim síðari.
Enginn broddur var í sókn Man-
chester Utd, en þó fékk liðið eitt
dauðafæri, er Steve Coppell
komst einn inn fyrir vörn City,
en skaut í stöngina. Um miðjan
síðari hálfleik kom loks markið
sem legið hafði í loftinu. Tony
Henry skoraði þá af stuttu færi
eftir að hafa fengið góða send-
ingu frá Kazimieze Deyna. 10
mínútum síðar skoraði Mike
Robinson glæsilegt mark og voru
úrslit leiksins þar með ráðin.
Þótt órtrúlegt sé, missti liðið
ekki efsta sætið, þar sem Nott-
ingham Forest tapaði einnig
háðulega.
Leikmenn Forest virtust eitt-
hvað miður sín, kannski þreyttir
eftir erfitt ferðalag til Rúmeníu
í miðri vikunni. Hvað um það, þá
hafði heimaliðið algera yfirburði
í leiknum og Forest fékk á sig 4
mörk í fyrsta skiptið síðan liðið
komu upp úr annarri deild fyrir
þremur árum. Dave Watson og
Mick Channon komu South-
ampton í 2—0 fyrir leikhlé, en
Garry Birtles minnkaði muninn
fyrir Forest snemma í síðari
hálfleik. Lokaorðin átti þó
Southampton, nánar tiltekið
markhæsti leikmaður 1. deildar,
Phil Boyer, sem skoraði tvívegis
undir lok leiksins og innsiglaði
stórsigur liðs síns.
• «
v.#'
Palace og Wolves
halda sínu striki,
Tottenham sækir á
Crystal Palace vann mikinn
heppnissigur á heimavelli sínum
gegn Arsenal. Markið sem færði
liðinu bæði stigin var slysalegt
og tilviljanakennt og markvörð-
ur Palace, John Burridge var sá
sem helst var að þakka sigurinn,
enda varði hann eins og berserk-
ur, einkum í síðari hálfleik.
Markið kom á 44. mínútu, er
Peter Nicholas skaut föstu skoti
inn í haug leikmanna inni í
vítateignum, þar þeyttist knött-
urinn í belginn á Jim Cannon og
af honum fór knötturinn í netið,
sigurmarkið.
Úlfarnir voru ekki að reyna að
heilla áhorfendur í Stoke með
snilldarknattspyrnu, heldur fóru
ekki leynt með ætlun sína að
halda fengnum hlut eftir að Ken
Hibbitt hafði skorað eina mark
leiksins á 30. mínútu. Hrúguðu
sér þá flestir leikmenn Úlfanna í
eigin vítateig og er erfitt við
slíkt að eiga, það fengu fram-
herjar Stoke að reyna.
Tottenham lék sinn níunda
leik í röð án taps og var fljótlega
sýnt í leiknum gegn Bolton, að
líkur á tapi voru engar, enda lið
Bolton líklega það lélegasta í 1.
deild. Terry Yorath skoraði
• Ken Dalglish hefur
skorað 6 mörk í síðustu
þremur leikjum Liver-
pool.
fyrra mark Tottenham á 20.
mínútu. Var það að sögn mjög
glæsilegt, viðstöðulaust þrumu-
skot af 20 metra færi. Glenn
Hoddle skoraði síðara markið úr
vítaspyrnu í síðari hálfleik. Tott-
enham er nú í fimmta sæti 1.
deildar.
Víðar í Englandi
Derby vann óvænt sinn fyrsta
sigur á útivelli, er liðið sótti
Bristol City heim. Tvö mörk með
tíu mínútna millibili í fyrri
hálfleik sáu um það. Það voru
Vic Moreland (27. mín) og John
Duncan (37. mín) sem skoruðu.
Heimaliðið sótti stíft, en upp-
skar ekkert.
Mick Ferguson lék sinn fyrsta
leik fyrir Coventry í háa herrans
tíð og skoraði tvívegis gegn
einkennilega lélegu liði Leeds
Enska
knatt-
spyrnan
Utd. Ian Wallace skoraði þriðja
markið og í heild slapp Leeds vel
þrátt fyrir allt, yfirburðir Cov-
entry voru algerir ef frá eru
taldar fyrstu 15 mínútur leiks-
ins.
Everton vinnur helst ekki á
heimavelli þessar vikurnar,
sjaldan á útivelli heldur ef út í
það er farið, liðið er í miklum
öldudal um þessar mundir. Sigur
Middlesbrough var bæði sann-
gjarn og öruggur. Það var Ástr-
alíumaðurinn Craig Johnstone
sem skoraði bæði mörk Boro,
það fyrra á 16. mínútu eftir að
hafa leikið tvo varnarmenn upp
úr skóm og buxum, og það síðara
á 76. mínútu með skalla eftir
hornspyrnu.
Leikur Ipswich og Aston Villa
þótti tíðindalítill og þrátt fyrir
meiri ágang heimaliðsins í sókn-
inni, þóttu úrslitin ekki ósann-
gjörn, því að Villa lék varnar-
leikinn framúrskarandi vel.
Ipswich er enn án hollenska
leikmannsins Arnold Muhren og
er þangað að rekja lélega
frammistöðu liðsins til þessa.
WBA hefndi fyrir tapið gegn
Norwich í deildarbikarnum í
vikunni með því að leggja liðið
að velli á heimavelli sínum á
laugardaginn. Það leit þó út
fyrir annan skell, þegar að
Martin Peters skallaði í netið
hjá WBA snemma leiks. Mið-
vörðurinn og fyrirliðinn John
Wile jafnaði hins vegar fyrir
heimaliðið fyrir hlé og í síðari
hálfleik skoraði Brian Robson
sigurmark leiksins.
•2
2. deild:
Birmingham 1 (Lynnex) —
Cambridge 0
Fulham 1 (Davies) —
West Ham 2 (Stewart og
Cross)
Leicester 1 (Young) —
Burnley 1 (James)
Luton 1 (Saxby) —
QPR l(Allen)
Newcastle 1 (Shoulder) —
Cardiff 0
Notts County 2 (Mair og Chris-
tie) —
Praston l(Bruce)
Orient 3 (Jennings 2 og Fisher)
Chelsea 7, (Britton, Frost 3,
Walker 2 og Fillary)
Shrewsbury 1 (Keay) —
Watford 0
Swansea 3 (Atley, Stevenson og
James) —
Sunderland 1 (Browne)
Wrexham 1 (McNiel) —
Bristol Rovers 2 (Bater og
White)
Knatt-
spyrnu ■'■wplil 1-
ursiii England, 1, deild:
Brighton — Liverpoo! 1-4
Bristol City — Dcrby 0-2
Coventry — Leeds 3-0
Cr. I'alace — Arsenal 1-0
Everton — Middlesbruugh 0-2
Ipswlch — Aston Vllla 0-0
Manch. City — Manch. Utd. 2-0
Southampton — Nottingh. Forest4—1
Stoke — Wolves 0-1
Tottenham - Bolton 2-0
West Bromwich — Norwich 2-1
England, 3. deild:
Barnsley — Exeter 2-2
Blarkburn — Chesterfield fr.
Blackpool - Sheffield Wed. 1-1
Brentford — Colchester 1-0
Bury - Millwall 3-0
Mansfield — Swindon 1-1
Oxford — Chester 0-1
Plymouth — Carlisle 1-2
Reading — Hull 3-0
Sheffieid Utd. - Gillingham 4-0
Wimhledon — Rotherham 0-1
England, 4. deild:
Bradford — Huddersfield 0-0
Darlington — Northamton 0-0
Hallfax - Port Vale 0-0
Hartlepooi — Hereford 3-0
Lincoln — Bournemouth 1-1
Torquai - York 4-3
Newport — Crewe 1-1
Scunthorpe — Stockport 1-1
Walsail — Portsmouth 1-1
Skotland, úrvalsdeild:
Aberdeen — Morton 1-2
Dundee Utd — Celtic 0-1
Hibernian — Kilmarnock 1-1
Partick — Dundee 2-3
St. Mirren — Rangers 2-1
Staðan í úrvalsdeildinni er
nú þessi:
Morton 13 8 3 23017 19
Celtic 13 8 3 2251219
Kilmarnock 13 5 4 4 15 21 14
Abcrdeen 13 5 3 5 24 18 13
Rangers 13 5 3 52017 13
Dundee United 13 5 26 201612
Partick Thistle 13 445 16 1912
St. Mirren 13 4 4 5 20 25 12
Dundec 13 1 39 12 25 5
Hibernian 13 51 721 3311
SPÁNN, 1. deild:
Las Paimas — Bilbao 1-1
Sevilla — Rayo Vailecano 1-1
Malaga — Barcelona 0-0
Burgos — Almeria 2-1
Gijon — Zaragoza 1-4
Hcrcules — Betis 1-1
Real Sociedad — Reai Madrid 4-0
Espanol — Salamanca 1-1
Það er ekki bara i Englandi þar
sem toppliðfn tapa meft flugeldasýn-
ingum. lika á Spáni. Það breyttist því
ekkert á toppinum. Gijon hefur enn
eins stigs forystu, 15 stig, en Real
Madrld hefur 14 stig.
BELGÍA:
Anderlecht — Charleroi 1-0
Waterschei — FC Brugge 1-1
Cercle Brugge — Wintersiag 1-1
Berchem — Molenbeek 3-3
Waregem — Bringen 1-1
Beveren — Antwerp 0-0
Standard — Lokeren 2-1
Lierse — Beerschot 1-0
llasselt — FC Liege 0-2
Isikeren og FC Brugge eru Jðfn að
stigum, hafa hmði 20 stig, en Lokeren
heldur betri markatölu. Standard er i
þriðja sœti raeð 19 stig.
ÍTALÍA:
Ascoli — Fíorentina 1-0
Bolognia — < atanzarro 4-1
Cagliarl — Avelino 1-1
lnter Milanó — Juventus 4-0
I-azló — Pescara 2-0
Napóli — Udinese 1-0
Perugia — Roma 3-1
Torinó — AC Miianó 0-1
Segja má að Mtlanó hafi unnið
stórsigur á borginni Torino, en bæði
Mlianóliðin, AC og Inter unnu góða
sigra á risunum frá Toríno. AlJe-
sandro Altobelli var hetja dagsins.
skoraði þrennu fyrir Inter, það er
ekki á hverjum degi sem leikma'ur
skorar þrjú mðrk i sama leiknum 1 1.
deiid 1 ftailu. Walter Novelino skoraði
sigurmark AC Milanó gegn Torino og
geta má þess, að gullkáifurinn Paolo
Rossi skoraði tvivegis, er lið hans
Perugia vann góðan slgur, 3- -1, á
Roma.
Inter hefur góöa forystu. 15 stig.
nágranninn og meistarinn AC Milanó
er i ððru sæti með 13 stig. Nýliðarnir
hjá Cagliari eru í þriðja sœti með 12
stlg og hafa enn ekki tapað deildar-
leik, annað Perugia þar á íerðinni?