Morgunblaðið - 13.11.1979, Síða 26
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1979
+
Elginkona mín,
SIGRÍÐUR ERNA ÁSTÞÓRSDÓTTIR,
lést að heimili sínu sunnudaginn 11. nóvember.
Ragnar Stefánsson.
t
Eiginmaður minn og faöir okkar
HARALD WENDEL
húsgagnasmíöameistari
andaöist aðfaranótt 11. nóvember.
Luise Wendel og börn.
+
Faðir okkar, tengdafaðir og afi
GUÐVEIGUR ÞORLÁKSSON
Furugeröi 1
lést laugardaginn 10. nóvember. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
mánudaginn 19. nóvember kl. 13.30.
Börn tengdabörn og barnabörn.
+
Föðursystir mín
INGIGERÐUR BENEDIKTSDÓTTIR
Noröurbrún 1
lést á Landspítalanum laugardaginn 10. nóvember.
Fyrir hönd aöstandenda
Benedikt J. Geirsson.
+
Eiginmaöur minn, faðir, tengdafaðir og afi
ÞORVALDUR BJARNASON
Gröf, Rauöasandi,
andaöist 9. þessa mánaðar.
Ólöf Dagbjartsdóttir,
Vigdís Þorvaldsdóttir, Bragi ivarsson,
Ásta Þorvaldsdóttir, Ármann Brynjólfsson,
Bergur Þorvaldsson, Ásdis Siguröardóttir,
Bjarni Þorvaldsson, Sigurbjörg Ólafsdóttir,
Gunnar Sigurösson
og barnabörn.
Konan mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma,
IÐUNN KRISTJÁNSDOTTIR,
Ásgaröi 45,
Reykjavík,
lést aö heimili sínu laugardaginn 10. nóvember.
Ólafur Jónsson,
Valgeir Vilhelmsson,
Þurföur Vilhelmsdóttir,
Hrafnhildur Vilhelmsdóttir,
Jón Haukur Ólafsson,
Saevar Mér Ólafsson,
Grétar Þ. Ólafsson,
Ragnheiöur Ólafsdóttir
og barnabörn.
Sigurlaug Þorleifsdóttir,
Baldur Hólmgeirsson,
Sigmundur Kristjénsson,
Helene P. Pélsdóttir,
Regína Jóhannsdóttir,
Þorbjörg Jóhannsdóttir,
Ingibergur Gunnlaugsson
HómfríðurHaUdórsdótt-
ir—Minningarorð
Fædd 19. febrúar 1891
Dáin 4. nóvember 1979
Það er mikilsvert á lífsleiðinni
að verða samferða góðu fólki, þó
ekki sé nema um stuttan spöl að
ræða nokkur ár af ævi manns. Ég
lít með þakklæti yfir liðna samleið
með Hólmfríði Halldórsdóttur
sem nú er kvödd hinstu kveðju en
hún andaðist hinn 4. nóv. s.l. Aðrir
kunna betur að rekja æviatriði
hennar og uppruna en ég get þess
aðeins að hún var fædd og uppalin
hér í Reykjavík en fluttist með
eiginmanni sínum prestinum séra
Jósef Jónssyni að Setbergi í
Grundarfirði. Þar unnu þau sitt
ævistarf sem prestshjón og síðar
prófastshjón við miklar vinsældir
sóknarbarna sinna. Og þegar
minnast á hennar nú þá tengjast
minningarnar ósjálfrátt þeim
báðum, og er mér þá efst í huga
hugljúfar stundir frá þeim árum
er við áttum heima í nágrenni við
þau þar sem þau bjuggu á efri
árum sínum í Efstásundi og nut-
um þar vináttu þeirra og um-
hyggju. Ég mundi að vísu fyrri
kynni sem fermingarbarn séra
Jósefs. En þarna myndaðist á
milli þessara heimila hlý og
hljóðlát vinátta og þar átti ekki
við að tala um kynslóðabil hvort í
hlut áttu ung hjón með ungan son
eða öldruð hjón sem fylgdust af
einlægni og áhuga með vexti og
þroska drengsins og glaðst var
yfir góðum gangi mála og áreiðan-
lega eru fleiri sem hafa sömu sögu
að segja. Það var alltaf mjög
gestkvæmt hjá þeim enda þau
bæði góðir og aðlaðandi gestgjáf-
ar. Það gleymist ekki stemmning-
in yfir því er húsmóðirin á sinn
sérstæða og virðulega hátt dúkaði
borð og veitti af rausn og alúðlegt
viðmót húsbóndans sem bætti
móttökurnar enn frekar með
glaðlegum og lærdómsríkum sam-
ræðum. Frú Hólmfríður var mjög
umhyggjusöm eiginkona og móðir.
Hún bjó yfir fjölbreyttum og
góðum eiginleikum sem gerðu
hana vinsæla og ljúfa. Hún var
mikill tónlistarunnandi með næmt
tóneyra og listræna hæfileika á
því sviði, hún var alla tíð organisti
hjá manni sínum og naut sín þar
vel fágaður fegurðarsmekkur
hennar og vandvirkni. Tómstund-
um sínum varði hún einkum hin
síðari ár, við fíngerða og listilega
gerða handavinnu. Eftir að hún
varð ekkja fyrir rúmum 5 árum
síðan bjó hún í skjóli barna sinna
en hélt þó alltaf gangandi eigin
heimili og tók á móti gestum
sínum með sömu reisn og áður,
gestrisni og glaðværð. Þó að próf-
astshjónin væru alla tíð ung í
anda og fylgdust vel með nýjum og
breyttum tíma í gegnum árin, þá
höfðu þau í heiðri eldri siði og
hollar lífsreglur. Þau lögðu sér-
staka rækt við trúarlíf og góðar
hugsanir og voru öðrum til fyrir-
myndar í daglegu lífi. Fólk eins og
þau breiðir birtu yfir leið sam-
ferðamanna sinna og verður
minnisstætt þeim sem til þekkja.
Þau eru því að leiðarlokum kvödd
með virðingu og þökk.
Börnum þeirra tengdabörnum
og afkomendum öllum sendi ég nú
við fráfall hennar innilegar sam-
úðarkveðjur.
Kristin Jóhannesdóttir.
Hvað er hel? öllum ltikn er lifa
vel.
Þegar ég fluttist til Grundar-
fjarðar árið 1928, þá voru á
Setbergi presthjónin sr. Jósep
Jónsson og kona hans Hólmfríður
Halldórsdóttir.
Eru það því rúm 50 ár sem ég
hef þekkt mína elskulegu vinkonu
Hólmfríði sem nú er kvödd hinstu
kveðju í dag. Ég hafði talsvert
saman við þau að sælda þessi
ágætu hjón. Ég söng í kirkjunni og
var frú Hólmfríður organisti
lengst af þeim tíma. Hún var
frábær í því starfi og var unun að
láta hana segja sér til á söngæf-
ingum.
Er mér bæði ljúft og skylt að
minnast hennar bæði frá þeim
tíma og eins eftir að við fluttumst
báðar til Reykjavíkur. Ég heim-
sótti þau oft þessi hjón er þau áttu
heima skammt frá mér og fannst
mér eftir því sem leið á æfina ég
eiga þeim svo óumræðilega mikið
að þakka og tel ég það lán í lífi
mínu að hafa átt samleið með
þeim.
Hann hélt við minni barnstrú,
en hún kenndi mér að meta hina
ljúfu sönglist sem leiðir á lífið
fagran blæ. Var það mér sem
svalarlind er ég kom til hennar og
hún spilaði fyrir mig og við
rauluðum saman, sá ég þá oft tár
á kinn þessarar elskulegu konu
sem hafði svo stóra sál. En
hljóðfæraleikurinn var áreiðan-
lega hennar leiðarljós gegnum
lífið, sem hún eyddi að mestu á
fáförnum stað úti á landsbyggð-
inni.
Ég vil með þessum fáu línum
þakka þessari elskulegu vinkonu
minni fyrir allt sem hún gerði
fyrir mig í gegnum árin.
Fyrir allar stundirnar sem við
áttum saman og töluðum um lífið
bæði hérna megin og handan við
gröf og dauða, sem við vorum
báðar sannfærðar um.
Ég þakka alla hennar tryggð og
elskusemi.
Einn sálmur var henni mjög
kær, öðrum fremur. Var það:
Fögur er foldin
heiður er Guðs himinn.
Ég bið Guð að taka nú á móti
henni inn í sinn heiða himin, með
söng og hlóðfæraleik.
Guð blessi ástvini Hólmfríðar
Halldórsdóttur.
Elísabet Ilelgadóttir.
+
Móöir okkar,
KARÓLÍNA ÞÓRDARDÓTTIR
síöast til heimilis Austurgötu 26, Hafnarfiröi, lést að Sólvangi þann
11. nóvember.
Börn hinnar létnu.
+
Móöir okkar
INGIBJÖRG JÓSEFSDÓTTIR
fyrrverandi hjúkrunarkona,
Hétúni 10, Rvík.
verður jarösungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 15. nóvember
kl. 13.30.
Börnin.
+ Útför móöur okkar og tengdamóður
ÞÓRU SIGURÐARDÓTTUR
Aragötu 7
fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 15. nóvember kl. 3. e.h.
Þeir sem vilja minnast hennar, vinsamlegast látiö Ifknarstofnanir
njóta þess.
Stefanía Pétursdóttir, Halldór Gíslason,
Guöríöur Pétursdóttir, Mér Eiísson,
Sigrfður Pétursdótir, Úlfur Sigurmundsson,
Sigrún Pétursdóttir, Valur Jóhannesson.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar
húsnæöi öskast
Einbýlishús — raðhús —
sérhæð
óskast til leigu á stór-Reykjavíkursvæðinu.
V~. •'■'•oaioina í boði. Fyrirframgreiðsla ef
uirxclvy Sf: Upplýsingar gefur Eignaval s.f., sími
29277 á skrifstofutíma og 43156 á kvöldin
Atvinnurekendur
við Smiðjuveg og
nágrenni í Kópavogi
Flyt lögfraBöi og fyrirgreiösluskrifstofu mína í næstu vlku aö
Smiðjuvegi 9 á II. hæð í húsi Axels Eyjólfssonar. Síminn verður
40170.
Auk lögfræðistarfa tek ég aö mér aö
annast bankaviöskipti og tollaf-
greiðslur fyrir atvinnurekendur í
hverfinu. Þorvaldur Ari Arason,
lögfr. sími 17453.
Espigerði
íbúð með 4 svefnherbergjum helst á tveim
hæöum óskast fyrir fjársterkan kaupanda.
Þorsteinn Jútíusson hrl.
Skólavörðustíg 12. Sími 14045.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU